Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 22
22 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
SUÐURNES
Sauðárkrókur | Gullhylur ehf. af-
henti Landsmóti hestamanna ehf.
sl. miðvikudag hið glæsilega móts-
svæði á Vindheimamelum formlega
til afnota á landsmótinu, sem hefst
næstkomandi mánudag. Að Gullhyl
standa hestamannafélögin í Skaga-
firði.
Að sögn Eymundar Þórarins-
sonar formanns Gullhyls ehf. hafa
framkvæmdir á mótssvæðinu stað-
ið yfir í tæpa tvo mánuði, og er nú
svæðið allt orðið hið glæsilegasta.
Eymundur sagði að búið væri
meðal annars að leggja bundið slit-
lag á allar aðkomuleiðir að svæð-
inu, allar reiðleiðir væru frágengn-
ar, keppnisvellir endurgerðir og
keppnisbrautir lagðar vikri. Þá
hefði völlurinn fyrir sýningar kyn-
bótahrossa verið endurnýjaður
með vikurbrautum og öll tjald-
svæði væru í mjög góðu ásigkomu-
lagi. Á fjölskyldusvæðinu væri nú
rennandi heitt og kalt vatn og
sturtuaðstaða þannig að vel væri
séð fyrir aðbúnaði áhorfenda. Lagt
hefði verið rafmagn á svæði húsbíla
og væri möguleiki á tengingu
hundrað slíkra við rafmagn.
Sagði Eymundur að fram-
kvæmdirnar hefðu kostað nokkra
tugi milljóna, en Skagfirðingar
vildu leggja metnað sinn í að gera
þessa stærstu útihátíð sumarsins
eins glæsilega og unnt væri, og að-
búnað gesta sem bestan.
Guðrún Valdimarsdóttir fram-
kvæmdastjóri Landsmótsins sagði
ánægjulegt að taka við þessu
glæsilega svæði, en nú hæfist sá
þáttur sem að mótshöldurum sneri,
en það væri að setja meðal annars
upp áhorfendastúkur við að-
alkeppnisvöllinn og einnig við
keppnisvöll kynbótahrossa, upp-
setningu tæknibúnaðar svo gestir
gætu fylgst með öllum atburðum
mótsins á risaskjá, en einnig að
koma fyrir aðbúnaði fyrir þá þætti
mótshaldsins sem verktakar væru
fengnir til að annast, svo eitthvað
væri nefnt.
Þau Guðrún og Sigurður Æv-
arsson mótsstjóri voru sammála
um að aldrei hefðu svo margir
glæsihestar verið skráðir til leiks
sem nú og nefndu að ekki hefði fyrr
gerst að tveir sigurvegarar hvor í
sínum flokki á síðasta landsmóti
myndu nú freista þess að verja titla
sína, en það eru þeir Geisli frá
Sælukoti í A-flokki og Rökkvi frá
Hárlaugsstöðum í B-flokki. Einnig
myndi Ormur frá Dallandi, sig-
urvegari í A-flokki frá árinu 2000,
mæta aftur til leiks. Þá mætti einn-
ig nefna að Kraftur frá Bringu, en
hann stóð efstur í sínum flokki sem
stóðhestur á síðasta landsmóti,
keppti nú í A-flokki og væri sá
hestur sem hæst væri dæmdur í
tölti inn á mótið og mundi það lík-
lega einsdæmi. Og að lokum mætti
nefna að tvær hryssur væru dæmd-
ar inn á mótið með einkunnina 10 í
tölti, en það eru þær List frá Vak-
ursstöðum og Hátíð frá Úlfsstöðum
og væru þá aðeins nefndir örfáir af
þeim glæsihestum sem setja
mundu svip sinn á mótið.
Ekki gafst frekari tími til spjalls
um komandi landsmót þar sem
margir þurftu að ná tali af for-
svarsfólki mótsins, enda örfáir
tímar til þess er fyrstu keppend-
urnir fara að koma á svæðið.
Aldrei fleiri glæsi-
hestar á landsmóti
Að verða tilbúið Séð yfir hluta af hinu glæsilega mótssvæði.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Afhending Guðrún Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri LH, Eymundur
Þórarinsson, formaður Gullhyls ehf., og Sigurður Ævarsson mótsstjóri.
Hólmavík | Snæuglu að nafni Snæ-
finnur var sleppt aftur út í náttúruna
við Hólmavík í fyrradag. Fuglinn
hefur undirgengist tíu mánaða
stranga endurhæfingu á vegum Fjöl-
skyldu- og Húsdýragarðsins eftir að
hafa slasað sig á sömu slóðum. Það
var Þórólfur Guðjónsson, bóndi á
Innri-Ósi, sem sleppti Snæfinni, en
það var einmitt hann sem fann ugl-
una fasta í gaddavírsgirðingu hvar
hún hafði slasað sig. Lengi vel héldu
þó bændur á Innri-Ósi að um væri að
ræða stóran, hvítan plastpoka.
„Hann lagði hana bara á jörðina,
þetta var ekkert svona ævintýralegt
eins og maður hefði getað haldið,“
segir Unnur Sigurþórsdóttir,
fræðslustjóri í Fjölskyldu- og Hús-
dýragarðinum. „Snæfinnur flögraði
aðeins um og settist síðan niður í
smáfjarlægð. Okkur fannst eins og
hann væri hissa á frelsinu og hann
leit svolítið við, á okkur, var eigin-
lega hálffeiminn.“
Til að byrja með var Snæfinnur
hafður í litlu búri meðan dýralæknir
meðhöndlaði hann daglega. Hann
gerði að ljótum sárum en sem betur
fer var ekki um beinbrot að ræða.
„Uglan fór svo í stærri og stærri búr
þar til hún endaði í búrinu sem gert
var fyrir Styrmi stork.“
Undir það síðasta var uglan farin
að flögra um og orðin viðskotaill,
sem þótti vita á gott. Því var keyrt
með Snæfinn norður á Hólmavík frá
Húsdýragarðinum. Hann var hafður
í búri aftur í bílnum og fylgir sögunni
að ekkert vesen hafi verið á honum á
leiðinni. Nei, nei, hann var allur hinn
rólegasti og mjög athugull þegar við
stoppuðum t.d. á bensínstöðvum.“
Þess má geta að upphaflega hét
uglan Snæfríður en þegar í ljós kom
að hún var karlugla á fyrsta ári þótti
við hæfi að endurnefna. Er vonandi
að Snæfinnur spjari sig vel, því að-
eins um tíu snæuglur lifa hérlendis á
hverjum tíma. Þórólfur bóndi ætlar
næstu daga að fylgjast með uglunni
og ef til vill að gauka að henni mat-
arbita.
Karluglunni
Snæfinni sleppt
Í góðum höndum Gert að sárum Snæfinns í Húsdýragarðinum.
Hvað er að gerast? Uglan var allt
að því feimin þegar henni var sleppt
eftir tíu mánaða endurhæfingu.
HJÓNIN Erla Gunnlaugsdóttir og
Halldór Ben Halldórsson hættu
bæði að vinna í Landsbankanum
fyrir tveimur árum og njóta sín nú í
botn. „Dagurinn er aldrei nógu
langur,“ segja þau.
Þau voru meðal nýrra eigenda
íbúða við Kríuland 1–11 í Garð-
inum, sem fengu íbúðir sínar af-
hentar í gær. Alls hafa Búmenn
með þessu byggt 444 íbúðir víða um
land en 36 þeirra eru í Garðinum og
er hverfið þar með stærstu hverf-
um Búmanna. Íbúðir Búmanna eru
ætlaðar fólki yfir fimmtugt. Það er
Bragi Guðmundsson verktaki sem
byggt hefur öll húsin í Garðinum,
að eigin sögn frá því hann horfði yf-
ir móana þar sem nú eru sléttar
flatir og reisuleg hús. Bragi, ásamt
Guðrúnu Jónsdóttur, formanni Bú-
manna, og Ásgeiri M. Hjálm-
arssyni, afhenti nýjum eigendum
lyklana og veglegar blómaskreyt-
ingar.
Erla segist hafa búið í Sandgerði
og Keflavík áður en í Reykjavík
mörg síðustu ár. „Og nú vildum við
prófa Suðurnesin aftur.“ Halldór
segir að þau hafi búið í þakíbúð á
tveimur hæðum við Laugaveginn
en verið að leita sér að einhverju á
einni hæð. Það varð ofan á að semja
við Búmenn og flytja í Kríuland
númer fimm.
„Við erum hætt að vinna og
finnst gaman að skreppa til út-
landa. Nú erum við nær flugvell-
inum! Einnig vildum við losa um
peninga, það er dýrt að borga fast-
eignagjöld í Reykjavík og nálgast
sömu upphæð og við borgum fyrir
allt saman hér.“
Halldór hyggst setja upp skrif-
stofu og tölvuaðstoðu í bílskúrnum,
sem er rúmgóður með dyrum og
glugga að aftan, en þar mun hann
sinna ýmsum skrifum og fleiru.
„Svo dundum við okkur bara hérna,
förum í göngutúra og fleira. Okkur
finnst gaman að fara á Miðnesheið-
ina og tína egg, þekkjum fólk hér í
kring og eigum skyldfólk.“
Þau segjast eiga einn son í Kefla-
vík en auk þess börn og barnabörn
erlendis. „Þau vilja frekar að við
séum hér en í Hveragerði þegar
þau koma heim. Það er alltaf sagt
að þar sé gott samfélag og við velt-
um fyrir okkur að flytja þangað. En
það verður bara eins hér,“ segja
þau full bjartsýni. Miðað við stemn-
inguna í grillveislunni í gær þurfa
þau engu að kvíða.
Sex nýjar íbúðir í Garði vígðar í gær
Fjölmenn grillveisla Sólin skein glatt í Garðinum í gær. Nýju parhúsin sex standa við Kríuland 1–11.
Lukkuleg Halldór Ben Halldórsson
og Erla Gunnlaugsdóttir voru
ánægð með nýju íbúðina.
Úr þakíbúð við Laugaveg
í parhús í Garðinum
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is