Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 29

Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 29 r alla leið upp í Norðurárdal, sem mkvæmd. Með sama hætti verði dsvegur, frá mörkum Reykjavíkur ur að Þjórsárbrú, endurbyggður sem mkvæmd. Jafnframt gætu jarðgöng í ði verið lögð sem einkaframkvæmd í i við ríkið. Með þessu fyrirkomulagi past aukið svigrúm til þess að hraða ingu vegakerfisins. Við þurfum á því að herða róðurinn við að bæta veg- ss að auka öryggi og til þess að stytta a og lækka flutningskostnaðinn,“ rla. ndsflug fari ekki úr borginni rihluti í borginni ætlar að taka n um Sundabraut á árinu og stað- flugvallar á kjörtímabilinu. Þín við- gna því mjög að ákvörðun verði tek- rgaryfirvöldum um að taka höndum ð samgönguyfirvöld hvað varðar autina. Samráðsferli, sem fór í gang kurð umhverfisráðherra um að heim- ð fara svonefnda innri leið, er í gangi na að við náum saman sem fyrst en veg ljóst að það mun taka nokkurn oma framkvæmdum af stað. Ég gja mig fram um að eiga gott sam- borgaryfirvöld eins og ég hef gert. rstaklega ef það sér fyrir endann á ningi,“ segir Sturla. andi flugvöllinn þá sýnist mér það tekið mjög skynsamlegum tökum af irvöldum. Nefndin undir forystu allgrímssonar verkfræðings er að tta frá öllum hliðum. Það er alveg orgaryfirvöld vilja ekki að innan- gið fari úr Reykjavík og ég fagna því staklega. Ég tel að ef innanlands- ri fært mjög langt frá höfuðborginni ekki svipur hjá sjón, þjónusta við ggðina minni, öryggi sjúklinga minna auki mikill kostnaður fyrir þá sem ið og ég tala nú ekki um ef að það byggja upp nýjan flugvöll annars eð ærnum kostnaði fyrir alla sem semina stunda.“ er þín óskastaða fyr- linn? var búin til með sam- i mín og Ingibjargar Gísladóttur, þáver- garstjóra, í júní 1999 ð gerðum sam- um að endurbyggja kurflugvöll í Vatns- Ég taldi þá og tel enn best fyrir ð flugvöllurinn sé í Vatnsmýrinni og ýtur að því að leggja flugvöllinn nið- ög óskynsamlegt að mínu mati. Svo ng hvort hægt sé að minnka það m flugvöllurinn tekur og fjölga þar gingarlóðum. Við þurfum að leita a til þess.“ ker kostnaðarsöm gir ljóst að geysilega kostnaðarsamt gja flugvöll á Lönguskerjum, líkt og knarflokkurinn hefur lagt til, en talið kosti 22–23 milljarða. „Við þurfum að líta til þess að þetta kostar allt og þó menn segist ætla selja lóðir í rinni þurfa jú einhverjir að kaupa etta eru allt peningar sem þjóðin með og þarf að búa til með einhverri asköpun. Best er að búa bara vel um völlinn í Vatnsmýrinni en við skulum sjá hvaða tillögur koma og ég mun að sjálfsögðu skoða þær. Í öllum höfuðborgum er það tal- inn mikill kostur að hafa flugvelli og járn- brautarstöðvar sem næst miðju borganna svo flutningaleiðir verði sem stystar.“ Hvernig verður kostnaði við Sundabraut háttað? „Það hefur aldrei hvarflað annað að mér en Sundabraut yrði lögð með tveimur akreinum í hvora átt, alveg upp að Hvalfjarðargöngum. Það er verkefnið. Ríkisstjórnin setti átta milljarða af Símasölunni til þessa verkefnis og samhliða því var ákveðið að næstu áfangar yrðu í einkaframkvæmd og ég er að láta ráðu- neytið og samgönguráð fara yfir það hvaða kostir eru varðandi einkaframkvæmdina.“ Gerð Héðinsfjarðarganga hefur verið gagnrýnd, þar sem önnur brýnni verkefni liggi fyrir og er þá horft til umferðarörygg- ismála. Þegar Sturla er inntur eftir við- brögðum við þessari gagnrýni segir hann að vegirnir á Norðurlandi séu misgóðir og að göngin skipti gífurlega miklu máli fyrir um- ferðina um Eyjafjörð, til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og tengingu við Skagafjörð. „Héðinsfjarðargöng eru þar af leiðandi hluti af þessum umferðaröryggisaðgerðum. Auðvitað eru þau geysilega umdeild, mér er það ljóst, en um þetta var tekin ákvörðun í að- draganda þingkosninga 1999 og það verður ekki aftur snúið. Ég tel að það hafi verið skylda mín að standa við þau loforð gagnvart fólkinu á Siglufirði og Ólafsfirði og Eyfirð- ingum. Þetta er klár aðgerð í þágu þessara byggða og það voru ekki síst Akureyringar og Eyfirðingar sem lögðu áherslu á að leggja göngin og það er ekki síst mikilvægt að skoða þetta í því ljósi,“ segir Sturla og bætir við að með þessu sé Eyjafjarðarsvæðinu skapað ákveðið mótvægi gagnvart höfuðborgarsvæð- inu. „En engu að síður þarf að nota meiri pen- inga í uppbyggingu vegakerfisins, það fer ekki á milli mála.“ Sturla segir fróðlegt og ánægjulegt að virða fyrir sér hina pólitísku stöðu að loknum sveitarstjórnarkosningum. „Ég sem ráðherra og þingmaður Norð- vesturkjördæmis fæ mikinn vind í mínar póli- tísku flugfjaðrir eftir kosningarnar,“ segir hann og bendir á að sjálfstæðismenn séu við stjórnvölinn í nánast öllum sveitarfélögum í kjördæminu. „Niðurstaða þessara kosninga er alveg augljóslega sú að okkur sjálfstæðismönnum hefur tekist að efla flokkinn á þessu svæði sem aldrei fyrr.“ Þegar Sturla er inntur eftir því hvað sé framundan hjá honum, pólitískt séð, segir hann þá ákvörðun eðlilega vera í höndum kjósenda en pólitískar aðstæður í kjördæm- inu hafi aldrei verið betri fyrir sjálfstæð- ismenn. „Það er ekki síst mikilvægt fyrir mig sem ráðherra að hafa svona geysilega öflugt lið í kjördæminu, að hafa samstarfsfólk sem íbúarnir treysta og trúa fyrir sínum málum.“ Sinni kallinu ef það kemur Hefur þú í hyggju að breyta til, t.d. skipta um ráðuneyti? „Samgönguráðuneytið er nú þannig að það eru engir tveir dagar eins og nánast alltaf ný verkefni, þannig að það er ekkert í mínum spilum að sækjast eftir einhverjum öðrum verkefnum en pólitíkin er nú bara þannig að menn verða að sinna kalli og ég mun að sjálf- sögðu sinna því kalli sem kemur hverju sinni frá stuðn- ingsmönnum mínum til að sinna verkefnum í þágu kjör- dæmisins og í þágu þjóð- arinnar,“ segir Sturla. Hafa hræringar innan Framsóknarflokksins veikt ríkisstjórnarsam- starfið? „Ég tel að það hafi ekki veikt samstarfið sem slíkt en okkur fataðist flugið aðeins, því er ekki að leyna, en þessi mikla uppstokkun hjá framsóknarmönnum á eftir að sýna sig. Ég sé ekkert í spilunum annað en að rík- isstjórnin komi vel út úr þessum breytingum undir forystu Geirs H. Haarde, sem ég ber mikið traust til og nýtur álits langt út fyrir raðir eigin flokksmanna,“ segir Sturla og tek- ur fram að hann sjái eftir Halldóri Ásgríms- syni úr stjórnmálum, þótt mjög gott fólk komi nú inn í ríkisstjórnina. ,,Það skiptir öllu máli að trúnaður ríki milli manna í slíku samstarfi og hann var til staðar milli mín og Halldórs Ásgrímssonar,“ segir Sturla að lokum. þjóðina að atnsmýrinni“ Morgunblaðið/Eggert ahemla í bíla. „Það er með öllu i á hverju ári,“ segir Sturla. arnihelgason@mbl.is ’Best er að búabara vel um völlinn í Vatnsmýrinni en við skulum sjá hvaða tillögur koma …‘ Hinn 1. júní sl. var undirrituðviljayfirlýsing um raf-orkusölu til fyrirhugaðsálvers í Helguvík í Reykja- nesbæ. Þeir sem þar rituðu nöfn sín voru fulltrúar Norðuráls, Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavík- ur. Samkvæmt þessari viljayfirlýsingu er stefnt að afhendingu orku eftir fjögur ár, þ.e. árið 2010. Sú hugmynd að reisa álver í Helguvík er ekki ný, ekki frekar en ýmsar aðrar álvershugmyndir, t.d. hugmyndin um að reisa álver við Húsavík, á Gásum við Eyjafjörð, í Skagafirði eða í Þorláks- höfn. Nú virðast hins veg- ar ýmsir málsmetandi menn telja að þetta sé góð hugmynd. Hvers vegna? Hvers vegna ætli fólki finnist góð hugmynd að reisa álver í Helguvík? Ég fór að velta málinu fyrir mér og gat í fljótu bragði látið mér detta tvær ástæður í hug: Það skapar atvinnu, það rennir stoð- um undir atvinnulífið og hlutaðeigandi fyrirtæki græða á því að reisa álver. (1) Álver skapar atvinnu. Vissulega skapa álver atvinnu, en það er ekki mikið atvinnuleysi sem stendur á Suð- urnesjum og eiginlega ekkert ef horft er til alls höfuðborgarsvæðisins. Í apr- íl var atvinnuleysið 1,3% (www.vinnu- malastofnun.is/frettir/nr/1035/). Þess vegna gefur atvinnuástandið ekki til- efni til að ráðast í svona fram- kvæmdir. En kannski er ekki rétt að miða við atvinnuástandið „sem stendur“, því áhrifin af brotthvarfi hersins eru ekki komin fram. Þarf kannski að reisa ál- ver til að útvega þeim vinnu sem missa vinnuna þegar herinn fer? En álver árið 2010 er varla lausn fyrir þá sem missa vinnuna núna í haust, þ.e. haustið 2006. Og miðað við atvinnu- ástandið almennt verða eflaust flestir komnir með vinnu þegar álverið tekur til starfa árið 2010, enda hafa margir þegar fengið vinnu. Brotthvarf hers- ins gefur því ekki sérstakt tilefni til að ráðast í stórframkvæmdir á Suð- urnesjum. (2) Álver rennir stoðum undir at- vinnulífið. Kannski þarf ekki að bæta atvinnuástandið á Suðurnesjum held- ur að „renna stoðum undir atvinnu- lífið“, eins og það er kallað. En þarf at- vinnulífið á Suðurnesjum sérstakar stoðir? Ég veit ekki betur en að at- vinnulíf á svæðinu sé með ágætum blóma. Nýja víkingasafnið og hug- myndin um Bláa demantinn eiga eftir að auka möguleika í ferðamennsku og Íþróttaakademían á eftir að skapa ýmsa möguleika, útgerð stendur ágætlega og svo er svæðið hluti af at- vinnusvæði höfuðborgarsvæðisins og því hljóta möguleikarnir að vera óþrjótandi. Árni Sigfússon er sam- mála mér – eða var það að minnsta kosti í ársbyrjun 2005 – ef marka má greinina „Sköpum fyrirmyndarsveit- arfélag“ sem birtist í málgagni sjálf- stæðismanna í Reykjanesbæ (1. árg. 1. tbl.). Þar segir hann m.a.: „Fjöl- breytt atvinnutækifæri bjóðast í Reykjanesbæ og enn fleiri tækifæri eru í mótun. Auk tækifæra sem skap- ast í þjónustu við 11 þúsund íbúa má nefna uppbyggingu Iðngarða í Helgu- vík, heilbrigðisstofnun Suðurnesja, hjúkrunarheimili, fjölþætta þjónustu alþjóðaflugvallarins, Íþrótta- akademíu, miðstöð varna landsins, uppbyggingu á vegum Hitaveitu Suð- urnesja, ný tækifæri í ferðaþjónusu o.fl. o.fl.“ Reykjanesbær þarf greini- lega ekki neinar sérstakar stoðir und- ir atvinnulífið vegna þess að það stendur þegar nokkuð traustum fót- um. Ef það er eitthvað sem þarf er það að trúa á einstaklinginn, sem er jú höf- uðdygð hvers hægrimanns – eða trúa á fólkið eins og vinstrimenn kalla það og er það sama. (3) Álver er gróðaleið. Ástæðan fyr- ir því að Norðurál vill reisa álverið er án efa sú að fyrirtækið telur að það sé arðvænlegt – það muni græða peninga á því. Og Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur trúa því ef- laust líka að þarna megi græða pen- inga. (Ég geri ekki ráð fyrir að selja eigi orkuna á kostnaðarverði, hvernig svosem það verð er reiknað út.) Fyrir Norðurál er gróðavonin góð og gild ástæða til að vilja reisa álver. Norður- ál er venjulegt fyrirtæki sem hefur það markmið fyrst og fremst að græða peninga. Línurnar eru ekki eins hreinar með Orkuveitu Reykja- víkur og Hitaveitu Suðurnesja, en bæði þessi fyrirtæki eru í almanna- eigu og eiga fyrst og fremst að gegna ákveðnu hlutverki í almannaþjónustu. En þarna er þá loks skýr ástæða fyrir því að reisa álver. Að vísu er þetta fyrst og fremst ástæða fyrir Norðurál (og kannski OR og HS líka) en ekki endilega fyrir fólkið á Suðurnesjum, eða Reykjanesbæ. Hvers vegna ekki? Þá er eftir að spyrja hvort einhverjar gildar ástæður séu fyrir því að byggja ekki álver í Helgu- vík. Í fljótu bragði detta mér í hug sex ástæður. (1) Álver menga. Þrátt fyrir hreinsibúnað blása álver út í and- rúmsloftið margvíslegum mengandi lofttegundum: Brennsisteinsdíoxíði, ýmsum flúorsamböndum o.fl. Og þar á ofan blása þau frá sér verulegu magni af koldíoxíði sem er aðalorsök fyrir gróðurhúsaáhrifum. (2) Mengandi stóriðja fælir aðra í burtu. Mengunin út af fyrir sig er ástæða til að byggja ekki álver (en ekki endilega fullnægjandi ástæða) en þar á ofan mun mengandi stóriðja í Helguvík fæla ýmis önnur fyrirtæki frá því að setja upp starfsemi þar. Ál- ver er einfaldlega ekki aðlaðandi ná- granni. Þar á ofan mun álver í Helgu- vík skerða samkeppnisstöðu Reykjanesbæjar á sviði matvælaiðn- aðar og ferðamennsku, en í báðum þessum atvinnugreinum skiptir ímynd hreinleikans máli. (3) Orkuöflunin veldur mengun. Fyrir utan mengun frá álverinu, þá má ekki gleyma því að álver þarf orku. Orkuveita Reykjavíkur og Hita- veita Suðurnesja hyggjast útvega þessa orku með jarðvarmavirkjunum. Þótt slíkar virkjanir séu að ýmsu leyti vænlegri en vatnsaflsvirkjanir í jökul- ám, þá má ekki gleyma því að jarð- varmavirkjanir menga. Á málþingi á Orkustofnun 27. október 2005 báru Þráinn Friðriksson og Halldór Ár- mannsson, sérfræðingar hjá Íslensk- um orkurannsóknum, upp eftirfar- andi spurningu: „Er koltvísýringslosun jarðvarmavirkjana hverfandi lítil í samanburði við nátt- úrulega losun frá jarðhitasvæðum?“ Svar þeirra var: „Losun frá jarð- varmavirkjunum er ekki „hverfandi lítil“ í samanburði við náttúrulega los- un frá jarðhitasvæðum.“ Þetta þýðir að við verðum að líta á jarð- varmavirkjanir sem mengandi orku- ver, jafnvel þótt mengunin frá þeim sé talsvert minni en mengun frá kola- orkuverum (e.t.v. á bilinu 3,5% til 15%). (4) Orkuöflunin veldur nátt- úruspjöllum. Fyrir utan mengun jarð- varmavirkjana má ekki horfa framhjá því að eðli málsins samkvæmt eru slíkar virkjanir á mjög viðkvæmum svæðum. Á Reykjanesi eru fjögur jarðhitasvæði sem mögulegt er að virkja. Þetta eru Reykjanes (suðvest- urhorn Reykjanesskagans), Svarts- engi, Krísuvík og Brennisteinsfjöll. Öll eru þessi svæði í senn afar við- kvæm og mjög mikilvæg fyrir ferða- mennsku á Reykjanesi. Þau eru líka mikilvæg útivistarsvæði fyrir Suð- urnes og höfuðborgarsvæðið og þar með mikilvæg fyrir lífsgæði þeirra sem þar búa. Nálægð við svæði sem þessi eykur lífsgæði fólks á Suð- urnesjum og því munu gufuaflsvirkj- anir á þeim skerða lífsgæðin. Eflaust kæra ýmsir sig kollótta um þessa skerðingu – segja kannski að þeim finnist þessi svæði „ekkert sérstök“. En það breytir því ekki að svæðin eru verðmæt, bæði tilfinningalega og hag- fræðilega, og það verður að taka með í reikninginn þegar hugað er að hag- kvæmni þess að byggja álver í Helgu- vík. (5) Álver kallar á rafmagnslínur. Þá má ekki gleyma rafmagnslínum, en af þeim er veruleg sjónmengun. Álver í Helguvík mun krefjast stórra mastra og mikilla lína og valda verulegri sjón- mengun. (6) Að byggja álver í Helguvík er að bera í bakkafullan lækinn. Fyrir utan ofangreindar ástæður fyrir því að byggja ekki álver í Helguvík, og sem lúta fyrst og fremst að náttúruvernd, eru annars konar ástæður fyrir því að ráðast ekki í byggingu álversins. Margar stórframkvæmdir eru fyr- irhugaðar á SV-horninu: Byggja á nýtt háskólasjúkrahús, tónlistarhús, Sundabraut, gott ef ekki á að leggja nýjan suðurstrandarveg, gera á átak í aðbúnaði fyrir aldraða sem hlýtur að kalla á byggingaframkvæmdir o.fl. Ég fæ ekki betur séð en að borið yrði í bakkafullan lækinn með því að byggja álver í Helguvík. Með og á móti Ef við berum saman þær ástæður sem mæla með því að byggja álver í Helguvík og hinar sem mæla gegn því, þá virðist niðurstaðan í raun blasa við. Það er alls ekki góð hugmynd að byggja álver í Helguvík. En hvers vegna eru þá málsmetandi menn að hugsa um að byggja álver þar? Ég hef tvær skýringar. (a) Fólk hefur ekki hugsað málið til enda, eða (b) mér hef- ur sést yfir veigamiklar ástæður fyrir því að byggja álver í Helguvík. Ef möguleiki (b) er sá rétti, þ.e. ef mér hefur sést yfir einhverjar veigamiklar ástæður fyrir því að byggja álverið, þá þætti mér vænt um ef einhver léti svo lítið að tilgreina þessar ástæður, því kannski er ég þá ekki einn um fávís- ina. En ef ástæða (a) er tilfellið, þá bið ég fólk að setjast niður, þótt ekki sé nema litla stund, og spyrja sig í ein- lægni: Er góð hugmynd að hafa álver í Helguvík? Norðurál í Straumsvík Ekki er hægt að skilja við þessar vangaveltur án þess að minnast á hugmyndir Alcan um að byggja nýtt álver í Straumsvík. Þetta nýja álver er stundum kallað „stækkun“, en þar sem viðbótin, 280.000 tonna ársfram- leiðsla, er miklu stærri en það sem fyrir er, 180.00 tonna ársframleiðsla, og nokkru stærra en fyrirhugað álver í Helguvík sem á að hafa 250.000 tonna ársframleiðslu, þá virðist mér rétt að tala um nýtt álver frekar en stækkun. Nú er Straumsvík ekki nema steinsnar frá Reykjanesbæ og því væri kannski rétt að slá þessum tvennum framkvæmdum saman og spyrja hvort rétt sé að byggja nýtt tvískipt 530.000 tonna álver á Reykja- nesi. Allar sömu efasemdir og ég hef reifað um álverið í Helguvík eiga við um nýja álverið í Straumsvík. Hvað varðar það síðarnefnda hefur reyndar komið fram ein viðbótarástæða til að leyfa stækkunina. Halldór Ásgríms- son, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði í vor að ef Alcan fengi ekki að stækka álverið, þá myndi fyrirtækið einfaldlega loka því. En kannski er hættan á að Alcan vilji loki álverinu, fái fyrirtækið ekki að stækka það, einmitt ástæða til að hafna stækkun. Lausnin á álflens- unni, sem stungið hefur sér niður á SV-horninu, er þá einfaldlega sú að Alcan loki álverinu í Straumsvík og Norðurál kaupi herlegheitin, því þótt Straumsvíkurálverið sé of lítið fyrir Alcan þá er það alveg mátulega stórt fyrir Norðurál. Eða svo er okkur að minnsta kosti sagt. Þá þarf hvorki að byggja álver í Helguvík né stækka í Straumsvík, og þá þarf ekki að spilla helstu náttúrugersemum Reykja- nessins með nýjum borholum og vegalagningu og byggingu nýrra há- spennumastra um þessa nátt- úruperlu. Eftir Ólaf Pál Jónsson ’Lausnin á álflensunni,sem stungið hefur sér niður á SV-horninu, er þá einfaldlega sú að Alcan loki álverinu í Straumsvík og Norðurál kaupi her- legheitin …‘ Ólafur Páll Jónsson Höfundur er lektor í heimspeki og stjórnarmaður í Náttúruverndar- samtökum Íslands. Hvers vegna álver í Helguvík?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.