Morgunblaðið - 24.06.2006, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
ÍSLENDINGADAGURINN í Gimli
er haldinn fyrstu helgina í ágúst og
er fjölsóttasta hátíð Manitoba.
Fyrsta hátíð Íslendinga í Manitoba
fór fram í Winnipeg 1890 og var hún
haldin þar árlega til 1931 en síðan
1932 hefur Íslendingadagurinn verið
haldinn í Gimli. Þetta mun vera næst
elsta hátíð þjóðarbrots í Kanada á
eftir árlegri írskri hátíð í Montreal.
Undanfarin ár hafa um 40.000 til
60.000 manns sótt höfuðstað Nýja Ís-
lands heim þessa helgi og gert er ráð
fyrir svipuðum fjölda dagana 4.–7.
ágúst í sumar. Dagskráin verður
með hefðbundnum hætti og segir
formaður Íslendingadagsnefndar
mikilvægt að íslensk arfleifð sé í há-
vegum höfð.
„Íslenskar konur er þema Íslend-
ingadagsins í ár,“ segir Tami Schir-
lie, sem er á fyrra ári sínu sem for-
maður Íslendingadagsnefndar.
„Erla Helgason Wankling er fjall-
kona, Sólveig Pétursdóttir, forseti
Alþingis, flytur minni Kanada og
Constance Carol Magnusson verður
fyrsta konan til að flytja minni Ís-
lands.“
Skráð í gagnagrunninn
Hjónin Tami og Gordon Schirlie
heimsóttu Ísland um liðna helgi til að
fylgjast með hátíðarhöldunum 17.
júní. Þau tóku virkan þátt í dag-
skránni í Reykjavík, hittu ráðamenn
og fóru m.a. að Þingvöllum, Gullfossi
og Geysi auk þess sem þau heim-
sóttu Vesturfarasetrið á Hofsósi,
Hóla og Glaumbæ í Skagafirði. „Það
hefur margt breyst síðan ég kom
hingað með fjölskyldunni 1977 og
ferðamönnum hefur greinilega fjölg-
að mikið á þessum söguslóðum,“ seg-
ir Tami. „Hofsós er dásamlegur lítill
staður og Valgeir Þorvaldsson sýndi
mér meðal annars gagnagrunninn
svo ég gæti aflað mér upplýsinga um
sögu fjölskyldunnar. Þarna voru for-
eldrar mínir skráðir og Tara systir
en ekki ég. Við þessu var snarlega
brugðist og mér opinberlega bætt í
grunninn. Við nánari athugun kom í
ljós að Valgeir er tengdur okkur.“
Tami segir ferðina hafa verið mjög
gagnlega fyrir sig sem formann Ís-
lendingadagsnefndar. Hún hafi feng-
ið tækifæri til þess að fylgjast með
sambærilegum hátíðarhöldum hér
og eins hafi verið mikilvægt að bera
saman bækur sínar við ráðamenn.
„Svona heimsókn gerir ekki annað
en að efla tengslin og styrkja. Ég hef
alltaf verið mjög hreykin af því að
vera af íslenskum ættum og heim-
sóknin eykur þá ánægju sem því
fylgir. Ég hafði aðeins séð Ísland
með barnsaugum og því var sér-
staklega gaman að koma aftur og
rifja upp minningarnar.“
Nánast allir af íslenskum ættum í
Manitoba tengjast Íslendingadeg-
inum á einn eða annan hátt – ýmist
sem gestir eða þátttakendur í skipu-
lagningu og dagskrá. Í því sambandi
má nefna að 1984 var Erla Macaulay
fjallkona og systurnar Tami Mia
Jakobson og Tara Maria Jakobson
hirðmeyjar hennar. Nú rúmlega
20 árum síðar hefur Tami sest í ann-
an stól í Gimli.
Fyrir 60 árum var Steindor Jak-
obson formaður Íslendingadags-
nefndar og Brian L. Jakobson, sonur
hans gegndi starfinu 1972. Tami er
dóttir hans og því sú þriðja í fjöl-
skyldunni til að stjórna Íslend-
ingadagshátíðinni. „Afi var formaður
1946 til 1948, pabbi tók við keflinu
um 25 árum síðar og nú gegni ég
sama hlutverki. Það er skemmti-
legt.“
Íslendingadagurinn helg-
aður íslenskum konum
Konur verða í sviðsljósinu á Íslendingadagshátíð-
inni í Gimli í Kanada í sumar. Kona er formaður
Íslendingadagsnefndar, fjallkonan verður á
sínum stað, kona flytur minni Kanada og í fyrsta
sinn flytur kona minni Íslands. Steinþór
Guðbjartsson ræddi við Tami Schirlie, konuna
sem ber ábyrgð á þessu.
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Í Alþingishúsinu. Hjónin Gordon og Tami Schirlie með Sólveigu Péturs-
dóttur, forseta Alþingis, og Richard Tetu, sendiherra Kanada á Íslandi.
KANADAMENN af íslenskum
ættum halda gjarnan 17. júní há-
tíðlegan og hátíðahöldin í Winni-
peg minna um margt á þjóðhá-
tíðardagskrána í Reykjavík.
Blómvöndur er lagður að styttu
Jóns Sigurðssonar í báðum til-
vikum, fjallkonan flytur þar
ávarp og forsætisráðherra held-
ur ræðu við styttuna í Reykjavík
en fylkisstjóri Manitoba við
styttuna framan við þinghúsið í
Winnipeg.
Jón Sigurðsson-kvennadeild
IODE (Imperial Order Daugt-
hers of the Empire) og Íslend-
ingafélagið Frón í Winnipeg hafa
skipulagt hátíðahöldin 17. júní í
Winnipeg um árabil og Atli Ás-
mundsson, aðalræðismaður Ís-
lands í Winnipeg, hefur lagt mik-
ið af mörkum til þessara mála
eins og annarra viðkomandi
tengslum Kanada og Íslands síð-
an hann tók til starfa vestra. Að
þessu sinni var jafnframt haldið
upp á 90 ára afmæli kvenfélags-
ins og sóttu 320 manns afmæl-
iskvöldverð á Fort Garry-
hótelinu í miðborginni.
Eins og undanfarin ár var tón-
listarfólk áberandi í hátíðahöld-
unum og að þessu sinni skemmtu
Valdine Anderson, Kerrine Wil-
son, Eric Wilson, Thelma Wilson
og Strandamannakórinn.
John Harvard fylkisstjóri hélt
tölu við styttuna. Peter Bjorns-
son, menntamálaráðherra Mani-
toba, flutti ávarp fyrir hönd fylk-
isstjórnarinnar og Erla Helgason
Wankling fjallkona lagði blóm-
sveig að styttunni og ávarpaði
gesti. Gunnur Ísfeld stjórnaði
viðburðunum, jafnt við styttuna
sem í veislunni, og eiginmaður
hennar, Ingþór Ísfeld, blessaði
viðstadda.
Vilja beint flug
Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair, var sérstakur gestur
og flutti hátíðarræðu. Beint flug
milli Íslands og Winnipeg eða Ís-
lands og Kanada hefur verið of-
arlega í huga
margra vestra und-
anfarin ár en for-
stjórinn fór ekki
inn á þær brautir í
ræðu sinni. Jo-
hanna Gudrun
Skaptason var
helsta hvatakonan
að stofnun kven-
félagsins og dóttir
hennar, Johanna
Wilson, hefur verið
félagi í 60 ár og
lengi í forystusveit-
inni. Konurnar
hafa verið mjög
duglegar við að styrkja hin ýmsu
málefni og eru þekktar fyrir að
fá sinu framgengt. Í kvöldverð-
arboðinu flutti Neil Bardal, einn
helsti þungavigtarmaðurinn í ís-
lensk-kanadíska samfélaginu um
árabil, ræðu til heiðurs kven-
félaginu og þakkaði Johanna
Wilson honum fyrir góð orð. Hún
notaði tækifærið og sagðist vona
að Jón Karl Ólafsson hæfi beint
flug til Winnipeg. „Ég hef oft
heimsótt Ísland og beint flug
myndi vissulega gera mér auðveld-
ara fyrir,“ sagði hún við mikinn
fögnuð viðstaddra.
Ljósmynd/Linda Collette
Tim Arnason, fyrrverandi formaður Íslendingadagsnefndar, leiðir
fjallkonuna Erlu Helgason Wankling frá þinghúsinu að styttu Jóns
Sigurðssonar. Fyrir aftan þau er John Harvard, fylkisstjóri Mani-
toba, og fyrir aftan hann Peter Bjornsson, menntamálaráðherra
Manitoba, og Atli Ásmundsson, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg.
Fjölmenn
afmælishátíð
í Winnipeg
Ljósmynd/David Jón Fuller
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, flytur ávarp sitt við styttu Jóns
Sigurðssonar framan við þinghúsið í Winnipeg í Manitoba í Kanada.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljósmynd/Linda Collette
Neil Bardal flytur erindi sitt.
VÖLUNDUR Þorbjörnsson og Daja Kjart-
ansdóttir buðu félögum í Íslendingafélög-
unum í Ottawa og Montreal og öðrum, sem
vildu halda upp á 17. júní, í mótttöku á heim-
ili sínu í Perth við Mississippivatn í Ontario
og mættu um 50 manns.
Markús Örn Antonsson, sendiherra Íslands
í Kanada, og David R.Franklin, ræðismaður í
Montreal, fluttu erindi, boðið var upp á báts-
ferðir, íslenskar kindur voru til sýnis og
gangur íslenska hestsins var sýndur auk þess
sem viðstaddir fengu að fara á bak.
Hápunkturinn var þegar fjórir knapar riðu
ákveðna vegalengd á mikilli ferð. Hver
þeirra hélt á fullu kampavínsglasi alla leiðina
og fór ekki dropi niður, að sögn Lou How-
ards, formanns Vina Íslands, Íslendinga-
félagsins í Ottawa.
Ekki dropi fór
niður í Ontario
Ljósmynd/Markús Örn Antonsson
Völundur Þorbjörnsson með Agnesi dóttur
sinni í þjóðhátíðarveislunni.
ÍSLENDINGAFÉLÖGIN í Calgary, Edmon-
ton og Markerville sameinast um hátíð í til-
efni þjóðhátíðardagsins ár hvert. Þessi fjöl-
skylduhátíð félaganna í Alberta fer fram í
Markerville og er gjarnan vel sótt. Að þessu
sinni mættu um 400 manns.
Fjölmenni í
Markerville
Ljósmynd/Gwen Mann
Á hátíðinni í Markerville var Julie Sopher
krýnd fjallkona Alberta 2006.