Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 37
Þingholtsstræti ásamt fjölskyldu
sinni. Þar náði hann ekki upp fyrir
búðarborðið en tókst að heilla af-
greiðslustúlkurnar, þar sem hann
brosti svo skein í spékoppana, þann-
ig að þær gáfu honum rúsínupoka.
Þennan sjarma bar hann alla tíð.
Hann náði að heilla aðra í kring um
sig með sinni alúðlegu kímni. Þegar
hann mætti á staðinn var ekki annað
hægt en að brosa móti einlægu brosi
hans.
Mikið fjör var á æskuheimili Inga
þar sem strákarnir voru þrír og nutu
þess að fljúgast á í góðu gamni á dív-
an. Þar hló hann manna mest.
Þröngt var jafnan í búi og bjó fjöl-
skyldan oft í einu herbergi í sátt og
samlyndi. Hann kynntist sveitarlífi á
Egilsstöðum á Vatnsnesi hjá góðu
fólki og var þar þrjú sumur en það
átti ekki fyrir honum að liggja að
verða landkrabbi. Hann missti föður
sinn rétt innan við fermingu og hóf
ungur að draga björg í bú. Ingi var
þrettán ára þegar hann fór til sjós og
var hjálparkokkur á Súðinni. Sjórinn
var hans líf og yndi. Hann var vel lið-
inn og þótti mönnum gott að vera
með honum í skipsrými. Hann og
bróðir hans Tómas fóru báðir í Sjó-
mannaskólann og var fjölskyldan
mjög stolt af þeim og urðu þeir báðir
afbragðs verkmenn. Þeir giftust báð-
ir stúlkum frá Vestmannaeyjum og
þar með eyjunum um leið.
Síðast þegar við sáum Inga átti
hann óhægt um gang og gekk við
göngugrind en hún stoppaði hann
ekki í því að gera örlítið grín að til-
verunni og fá okkur til að hlæja. Af
einlægni þökkum við samfylgdina og
óskum honum góðrar siglingar á
himinslóðum. Hann er þar ekki einn
á báti heldur í góðum hópi systkina
sinna og foreldra. Við vottum Stínu
og fjölskyldu hans innilega samúð og
biðjum Guð að vera með honum. Við
kveðjum Inga og óskum honum
góðrar ferðar út í blámann þar sem
himinfley sigla.
Ragnheiður Guðmunds-
dóttir, Steinunn Anna
Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Ingi Guðmundsson
var um margt einstakur maður.
Harður og ákveðinn hugmaður, dug-
legur og fylginn sér en samt var
hann ákaflega mikið gæðablóð og
einstakt göfugmenni. Hann gat verið
harður í horn að taka ef því var að
skipta en hjarta hans var einstaklega
hlýtt og örlátt.
Guðmundur Ingi fæddist ekki með
gullskeið í munni og óhætt er að
segja að hann hafi af eigin rammleik
og dugnaði komist til efna. Hann hóf
á unglingsaldri að stunda sjó-
mennsku á síðutogurum til að sjá sér
farborða og frá þeim tíma var sjó-
mennskan starfsvettvangur hans.
Hann menntaði sig til skipstjórnar
og var fljótur að sanna sig á þeim
vettvangi. Kappsemi, áræði og dugn-
aður voru einkennandi fyrir Inga í
starfi hans og þessir eiginleikar, í
bland við góða lund hans og ljúf-
mennsku, urðu til þess að hann kom
ár sinni vel fyrir borð í lífinu.
Ég fékk að kynnast Guðmundi
Inga bæði í einkalífi hans og starfi og
má segja að frá fyrsta degi hafi aldr-
ei borið skugga á okkar samskipti þó
stundum hafi brælt á miðunum og
skin og skúrir hafi skipst á í lífinu.
Hann var ávallt eins og klettur í haf-
inu. Það pusaðist yfir hann í öldu-
rótinu en ekkert haggaði bjargfest-
unni og viðmót hans breyttist ekki
hvað sem á dundi.
Guðmundur Ingi var lengst af
starfsferli sínum skipstjóri á Hugin
VE. Hann hóf útgerð báts með því
nafni í félagi við Óskar Sigurðsson en
keypti síðan hlut Óskars og gerði
einn út frá þeim tíma og hefur lengst
af verið kenndur við þá útgerð og
þekktur sem Ingi á Hugin.
Guðmundur Ingi var aflakló en
enginn verður aflakló án dugnaðar,
ósérhlífni og áræðis í bland við skyn-
semi og heppni. Allt þetta hafði Guð-
mundur Ingi til að bera. Hann var
einnig einstakur hugmaður sem vildi
sjá hlutina gerast hratt og örugglega
og þolinmæði var ekki alltaf hans
sterkasta hlið.
Inga lét það illa að sjá bát sinn
bundinn við bryggju. Það var eitur í
hans beinum enda vissi hann sem
var, og sagði oft, að ekkert fiskaðist í
dallinn meðan hann lægi í höfn. Það
var því yfirleitt ekki langt stoppið
milli úthalda á Hugin. Skipt var af
trolli yfir á nót, og öfugt, með hraði
og Ingi rak á eftir verkinu með
harðri hendi. Allt fannst honum seint
ganga og það brást ekki að Ingi
heyrði alltaf miklar aflafréttir af
miðunum þegar verið var að skipta á
milli. „Þetta er nú meira andskotans
drollið. Ég skil bara ekki hvaða voða-
legan tíma þetta getur tekið hjá
þessum sauðum,“ er setning sem féll
nánast í hvert skipti sem verið var að
standsetja og svo fylgdi á eftir hans
einstaki óþolinmæðiblástur, en síðan
komu frásagnir af bullandi fiskiríi á
miðunum. Ingi var yfirleitt búinn að
fylla tvisvar, landa og selja aflann áð-
ur en haldið var á miðin, svo mikill
var hugurinn.
Um leið og búið var að sleppa og
báturinn kominn af stað var stress-
inu lokið, hvort sem Ingi var um borð
eða í landi. Þá var brosað með öllu
andlitinu, augun pírð og slegið á létta
strengi.
Þó að Ingi þyldi illa að stoppa í
landi við standsetningar lengur en
nauðsyn krafði, þá var hann ekki
þeirrar gerðar að hanga á hafi í bræl-
um. Þá var siglt til næstu hafnar,
slegið á létta strengi með áhöfninni
og ekki vaðið út á ný fyrr en lægði og
oft á tíðum skilaði það betri árangri
og Ingi var fljótari að fylla heldur en
þeir sem héldu sjó úti í brælunni.
Ingi var einstaklega skemmtileg-
ur og góður skipstjóri. Hann hafði
góða stjórn á öllu um borð og naut
virðingar en var samt góður félagi
allra. Hann gat blásið hressilega,
enda slíkt stundum nauðsynlegt til
sjós, og oft skammaði hann „sauð-
ina“ út um brúargluggann og skellti
honum síðan upp en yfirleitt leið ekki
langur tími þar til brosandi andlitið
birtist í glugganum á ný. Ingi gat
verið kraftfiskari og ef tregt var á
loðnumiðunum hikaði hann ekki við
að kasta trekk í trekk, þótt torfurnar
væru ekki stórar. Það var kastað á
hverja peðru sem á asdikið kom, því
hann sagði að það fengist ekki í dall-
inn nema að veiðarfærum væri dýft í
sjó.
Guðmundur Ingi var einstakt ljúf-
menni sem ekkert mátti aumt sjá.
Þótt yfirborðið gæti stundum virkað
hrjúft þá var hjarta hans einstaklega
hlýtt og góðmennska og örlæti voru
stór partur af hans persónuleika.
Guðmundur Ingi rétti mörgum
hjálparhönd gegnum tíðina. Honum
var tamt að „splæsa“ þar sem hann
var, borga reikninginn fyrir hópinn,
og brosa sínu breiðasta um leið. Ör-
lætið var honum í blóð borið og sam-
ferðamenn hans hafa margir ekki
farið varhluta af því.
Síðustu árin hafa verið Guðmundi
Inga erfið. Það var erfitt fyrir þenn-
an hrausta og vörpulega mann að
þurfa að sætta sig við það að park-
insonsveikin drægi smám saman
máttinn úr honum bæði líkamlega og
andlega. Hann tók örlögum sínum þó
af æðruleysi og með reisn eins og
hans var von og vísa og hugurinn var
alltaf á sínum stað, við sjóinn og fisk-
iríið.
Með Guðmundi Inga er genginn
einn af þeim dugnaðarforkum sem
með áræði sínu, hug og krafti gerðu
Vestmannaeyjar að því kraftmikla
og öfluga bæjarfélagi sem það var.
Hann er einn af þeim mönnum sem
áttu sinn stóra þátt í að byggja það
blómlega samfélag sem varð til í
Vestmannaeyjum.
Guðmundur Ingi hefur nú siglt í
sinn síðasta túr. Hann lagði úr höfn í
Eyjum í síðustu viku, tilbúinn í sigl-
inguna og fiskiríið á sjó eilífðarinnar.
Þar er hann líklega kominn á enn
nýjan Hugin, með pírð augu bros-
andi í brúarglugganum og kannski
hljómar Rivers of Babylon með Bo-
ney M. í græjunum í brúnni. Án efa
er Ingi farinn að kasta á hverja þá
peðru sem á asdikið kemur, því það
verður eflaust einnig að „berja á því“
á eilífðarsjónum ef afli á að fást.
Ég þakka Guðmundi Inga sam-
fylgdina og bið Guð að gæta hans á
víðáttusjó eilífðarinnar. Stínu og öðr-
um ástvinum sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Guðmundar
Inga Guðmundssonar.
Grímur Gíslason.
Kröftugur, orðvar, traustur, hlýr,
góður félagi og góður skipstjóri er
yfirskrift minningar Inga. Ekki má
gleyma miklum og góðum hæfileik-
um hans sem útgerðarmanns. Þann-
ig vil ég muna vinn minn Inga á Hug-
in, eins og hann var kallaður í
daglegu lífi, sem kvaddur er í dag
hinstu kveðju. Frá fyrstu tíð var
hann ábyrgur útgerðarmaður sem
markaði sína stefnu sjálfur og
óstuddur. Hann var lífsglaður maður
og mikil gleðigjafi, unnandi þess
góða og hvetjandi alls þess sem færa
mátti til betri vegar og hagsældar
fyrir aðra.
Á árunum í kringum 1974 hóf ég
að vinna við rekstur í útgerðinni hjá
Inga á Hugin og vann ég fyrir hann í
yfir tuttugu ár. Það var gott að starfa
þannig eins og framlengdur armur
Inga. Það var allt mjög ákveðið sem
hann bað mig að gera og hann vann
mjög ötullega að öllu því sem hann
tók sér fyrir hendur. Hann hikaði
ekki við að takast á við „kerfið“ á
þessum árum er hann vildi endur-
nýja skipið sitt. Hvað sem á gekk var
það að einkenni hans að alltaf tókst
honum að vinna sig í gegnum þær
kröppu öldur sem dundu á útgerð-
armönnum við þær aðstæður sem þá
var að glíma við.
Þegar synir hans uxu úr grasi og
vildu fara að stjórna skipinu sem
hann hafði alltaf verið skipstjóri á
tók Ingi bara gamlan bát á leigu og
lagði sín net eftir eigin höfði. Hann
var mikil nótamaður, en netin áttu
huga hans allan. Þegar hann var á
loðnu og í góðu fiskiríi spurði hann
alltaf hvað væri að frétta af netabát-
unum.
Ingi á Hugin var að störfum sem
skipstjóri þar til hann var komin á
sjötugsaldurinn og eftir það var
hann með hugann allan við sjóinn
þótt hann væri bundinn í landi.
Við þessi skil í lífi fjölskyldunnar
votta ég frænku minni, Kristínu, og
ástvinum öllum innilegustu samúð
mína vegna fráfalls Inga. Mér er of-
arlega í huga sú mikla sigling sem
alla tíð var á honum í gegnum lífið og
lífsins ólgusjó. Hann var ósérhlífinn
og harður sjósóknari og varð mikill
Eyjamaður strax eftir að hann flutti
hingað til Vestmannaeyja. Og nú er
hann í höfn við strendur eilífðar-
landsins. Þá kalla ég fram þá mynd
sem kemur fram í sálmi Valdimars
V. Snævarr af hinum hugumstóra
sæfaranda sem hefst á hendingunni
„Ég er á langferð um lífsins haf og
löngum breytinga kenni“, en endar á
kveðju til hafsins:
Lát akker falla! Ég er í höfn.
Ég er með frelsara mínum.
Far vel þú æðandi dimma dröfn,
vor Drottinn bregst eigi sínum.
Á meðan akker í ægi falla
ég alla vinina heyri kalla,
sem fyrri urðu hingað heim.
Kæri vinur, Ingi á Hugin, hvíl þú í
friði frelsara þíns.
Magnús Kristinsson.
Í janúar 1955 kom ungur mynd-
arlegur maður á vetrarvertíð í Eyj-
um. Var hann ráðinn sem stýrimaður
á Jötun VE 273 sem var hefðbundinn
vertíðarbátur á þeim tíma, þessi
maður var Guðmundur Ingi Guð-
mundsson. Þú áttir ekki miklar ver-
aldlegar eigur en hafðir kraftinn,
dugnaðinn og áræðið og varst reynd-
ar togarajaxl á þeim tíma frá 15 ára
aldri (þorskveiðar við Grænland þar
sem saltað var um borð og gátu þess-
ir túrar staðið í allt að þrjá mánuði)
en nú var Skipstjóra- og stýrimanna-
skólinn í Reykjavík að baki. Þetta
var mikill happadagur fyrir Eyjar
eins og tíminn hefur leitt í ljós. Fljót-
lega eftir að þú komst fellduð þið
hugi saman þú og Stína systir og það
var stutt í það að þú værir kominn
inn í hópinn í Þingholti og féllst þar
eins og flís við rass í fjölskyldulífinu
þar sem sjómennskan var stórmál.
Ingi varð fljótlega skipstjóri og
fórst það vel úr hendi, var fiskinn, fór
vel með veiðarfæri og hélst vel á
mannskap.
Hinn 22. okt. 1959 byrjaði Ingi í
útgerð með Óskari Sig., Hvassafelli.
Þetta var 60 brl. eikarbátur og var
nefndur Huginn VE 55. Þetta haust
veiddist síld í höfninni og á grunn-
slóð kringum Eyjar og voru notaðar
mjög grunnar nætur. Ég sem þetta
skrifa var stýrimaður hjá þér þessa
fyrstu róðra. Við fórum til Hafnar-
fjarðar með fullfermi og man ég að
þegar við nálguðumst Reykjanesið
þurftum við að hreinsa út af dekkinu
vegna veðurs en að öðru leyti var allt
í lagi.
Árið 1964 kom nýr Huginn, stál-
skip byggt í Þrándheimi í Noregi.
Það var bjart yfir þegar þú komst
með nýja skipið til Eyja. Ég var þá
með gamla Hugin og við lágum í að-
gerð á Víkinni með fullt dekk af
þorski og ýsu. Síðan komu tvö ný
skip og það verður að segjast að það
var misjafnlega bjart yfir, síldar-
leysi, miklar breytingar á gjaldeyri
og of lítið hráefnisverð.
Þegar nýjasti Huginn, sem er eitt
glæsilegasta uppsjávarveiðiskip Ís-
lendinga, kom frá Chile var dollarinn
allt í einu kominn langleiðina í 110
kr. og fáar bankastofnanir vildu
koma nálægt fjármögnun.
Sagt er að eplið falli ekki langt frá
eikinni og það sýndu synir þínir svo
sannarlega þegar þeir tóku barátt-
una um að halda skipinu í Eyjum.
Hafa þeir fiskað afbragðsvel og stýrt
öllu af skynsemi. Veit ég vel að það
var ekki allra að gera þetta.
Þú byrjaðir snemma í golfi og þeg-
ar þú varst í landi þá var ekkert gefið
eftir, gott veður, rigning eða rok, það
breytti engu. Þú áttir góða vini þar
og veit ég að það var erfitt fyrir þig
þegar þú varðst að hætta. Einnig
varst þú heiðursfélagi í Akóges í
Eyjum og undir þér vel í þeim fé-
lagsskap.
Við Svava þökkum fyrir öll árin
sem við áttum með ykkur Stínu. Við
giftum okkur saman, bjuggum hlið
við hlið í tugi ára, börnin okkar uxu
upp til þroska og alltaf var sami vin-
skapurinn. Svo er sumt sem maður
talar ekki um eins og eftir brúð-
kaupsveisluna þegar Stína og Svava
voru að vaska upp og taka til og við
vinirnir tókum smá gönguferð út í
kvöldkyrrðina. En þá vildi ekki betur
til en það var ball í Höllinni sem byrj-
aði um miðnætti. Við kíktum aðeins
inn og það var svo gaman að við
gleymdum okkur og komum svo
heim í morgunsárið. Það munaði
ekki miklu að þetta yrðu stystu
hjónabönd í Eyjum, en allt reddaðist
þetta og hefur haldið.
Ingi, þú munt alltaf lifa í minningu
okkar Svövu eins og þegar þú varst
ungur og sterkur. Megir þú hvíla í
friði.
Nú þegar við hjónin kveðjum góð-
an vin, megi guð vera með ykkur,
elsku Stína, börn og barnabörn.
Sævald.
Miðvikudaginn 14. júní sl. lést
Guðmundur Ingi Guðmundsson,
skipstjóri, útgerðarmaður og golfari,
eftir erfið veikindi á sjúkrahúsinu
hér í Eyjum.
Með Inga, eins og hann var alltaf
kallaður, er fallinn frá sterkur per-
sónuleiki en ljúfur var hann og bros-
ið í augum hans bræddi alla. Ingi var
mikill atorkumaður á öllum sviðum
og gerði ekkert með neinum silki-
hönskum og þegar á þurfti að halda
þá var tekið til hendinni og ekkert
gert bara með annarri heldur báð-
um. Duglegri og sæknari skipstjóra
var varla hægt að finna í flotanum.
Það var sama hvað Ingi tók sér fyrir
hendur, það var alltaf gert af lífi og
sál. Hann var mikill golfáhugamaður
og gaf ekkert eftir á golfvellinum
frekar en í sjósókninni og þó að heils-
an hafi gefið sig fyrir nokkrum árum
og hindrað hann í leik og starfi, þá
gaf hann sig ekki fyrr en í lengstu
lög, á golfvöllinn skyldi hann.
Þegar við hjónin fluttum hingað til
Eyja fyrir tæpum 20 árum þekktum
við engan hér nema tvenn hjón, þau
Stínu og Inga og Svövu og Sævald,
bróður Stínu. Þá kom í ljós hversu
mikils virði það er að þekkja gott
fólk, en þau sáu til þess að við kynnt-
umst skemmtilegu fólki og færum á
rétta staði og pössuðu upp á okkur í
einu og öllu þannig að með okkur
tókst góð vinátta þrátt fyrir nokkurn
aldursmun.
Elsku Ingi, nú er komið að kveðju-
stund og viljum við þakka forsjóninni
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og Stínu þinni.
Megi allir Guðs englar vaka yfir
þér og lýsa þér leið.
Elsku Stína, megi góður Guð
styrkja þig og fjölskyldu þína í sorg
ykkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Helga Guðjónsdóttir og
Grímur Jón Grímsson.
Kveðja frá Golfklúbbi
Vestmannaeyja
Með fáum orðum viljum við kveðja
okkar góða félaga, Guðmund Inga
Guðmundsson eða Inga á Hugin,
eins og hann var alltaf kallaður af fé-
lögum sínum. Ingi hefur verið félagi í
Golfklúbbi Vestmannaeyja til
margra ára og var hann í senn góður
og skemmtilegur félagi á golfvellin-
um og auk þess traustur bakhjarl og
þægilegur að leita til er klúbbinn
vantaði aðstoð við uppbyggingu á
eða við golfvöllinn. Ingi hefur tekist
á við erfið veikindi undanfarin ár en
þrátt fyrir það stundaði hann golfið
og heimsótti félaga sína á golfvell-
inum.
Við sendum eftirlifandi eiginkonu,
börnum og öðrum aðstandendum
samúðarkveðjur. Minningin um góð-
an félaga lifir.
F.h. Golfklúbbs Vestmannaeyja,
Helgi Bragason, formaður.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 37
MINNINGAR
Fleiri minningargreinar um Guð-
mund Inga Guðmundsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Akóges,
Vestmannaeyjum, Friðrik Ingi Ósk-
arsson, Hallgrímur Júlíusson, Árni
Johnsen, Páll Sigurgeir, Herdís og
fjölskylda og Þórarinn Sigurðsson.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800