Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 51
Sími - 551 9000
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ?
YFIR 47.000 GESTIR!
Just My Luck kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
RV kl. 3 og 5.50
The Omen kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Take The Lead kl. 8 og 10.30
Da Vinci Code kl. 3, 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 3 og 6
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006
mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó?
eee
S.V. MBL.
Mögnuð endurgerð af hinni
klassísku The Omen !
Yfir 51.000
gestir! SIGURVEGARINN RÆÐUR
ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM
HELDUR ÞÚ?
Sýnd kl. 2 og 4
B.i. 12 ára
Sýnd kl. 3:40, 5:45, 8 og 10:20
Sýnd kl. 2 ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TAL
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
Sýnd kl. 2 ÍSLENSKT TAL
SVAKALEG HROLLVEKJA SEM
FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA!
HVAÐ GERIST
EF LEIKURINN
SEM ÞÚ ERT AÐ
SPILA FER AÐ
SPILA MEÐ ÞIG.
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
-bara lúxus
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
H.J. Mbl.
eee
DÖJ, Kvikmyndir.com
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 B.i. 14 ára
HÖRKUGÓÐUR
SPENNUTRYLLIR MEÐ
BRUCE WILLIS
FRÁ LEIKSTJÓRA
LETHAL WEAPON
MYNDANNA.
ÞAÐ er ekki heiglum hent að blanda
saman jafn göróttum og vand-
meðförnum hráefnum og gríni og
hrollvekju svo úr verði áhorfanleg
skemmtun. Leikstjóranum og hand-
ritshöfundinum Gumm hefur tekist
ósköpin og útkoman er yfirgengileg-
asta suddafyndni ársins.
Slither gerist í friðsælum
sveitabæ í landbúnaðarhéraði í
Bandaríkjunum, fyrirmyndarsam-
félagi þar sem mönnum er annt um
nágrannann og tíminn líður hjá í
mikilli spekt. Þá gerist það eitt logn-
vært sumarkvöld að loftsteinn fellur
til jarðar í útjaðri þorpsins. Á sama
tíma er Starla (Banks), undurfríð og
ofurgóð eiginkona Grants (Rooker),
harðjaxlsins í þorpinu, ekki alveg í
stuði til að veita bónda sínum fulla
þjónustu, svo hann rýkur út á barinn
til að drekkja ósvöluðum fýsnum í
bourbonflóði. Þar er einnig til staðar
kvenmannskind, tilbúin í slaginn, og
halda þau uppveðruð út í skógarjað-
arinn. Skógarferðin endar á annan
veg en ætlað var, geimvera, sem býr
í loftsteininum, ræðst á þau og
hreiðrar um sig í líkömunum sem
smám saman taka ófélegum stakka-
skiptum og þau þyrstir í kjöt og rífa í
sig allt sem að kjafti kemur.
Gumm tekst kúnstin að fylla
áhorfandann óhugnaði eina stundina
en kæta hann hina, með óvæntum og
meinfyndnum tilsvörum og uppá-
tækjum í algjörri mótsögn við vís-
indaskáldskapinn sem sækir í hrolla
á borð við Alien og afturgöngurnar
hans Georges A. Romeros. Gumm
þarf á fimi línudansarans að halda til
að halda áhuga áhorfandans vakandi
og nýtur m.a. hjálpar frá aðalleik-
urunum, Banks og Fillion, sem leik-
ur löggæslumanninn á staðnum. Þau
feta sig á aðdáunarverðan hátt í
gegnum sýningartímann, hann sem
hetjan knáa, hún sem hið ljósa og
hjartahreina man, sólargeisli
þorpsbúanna.
Aukaleikararnir eru býsna
skrautlegur hópur með Rooker í
broddi fylkingar, en synd væri að
segja að hann hafi beinlínis vaðið í
umtalsverðum hlutverkum frá því
hann sló í gegn sem fjöldamorðing-
inn í Henry: Portrait of a Serial Kill-
er (’86). Svipaða sögu er að segja af
Gregg Henry, sem leikur bæj-
arstjórann, ferill hans, frá því hann
hljóp í skarðið fyrir Nick Nolte í
sjónvarpsseríunni Gæfa og gjörvu-
leiki (Rich Man, Poor Man (’76)), er
ekki upp á marga fiskana. Hér
skemmta þeir sér vel, og okkur í
leiðinni.
Slither er subbuleg, en hún nær
að fanga athyglina og halda manni
við efnið, sem er þeirrar gerðar að
viðkvæmum sálum er ráðlagt að
hugsa sig um tvisvar áður en þær
ákveða miðakaup. Menn verða að
hafa auga fyrir húmornum í hroð-
anum og gefa því gaum að það er
ekki verið að velta áhorfandanum
upp úr soralegu ofbeldi, heldur kitla
hláturtaugarnar. Á dálítið svörguls-
legan hátt, að vísu.
Groddasending úr geimnum
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: James Gunn. Aðalleikarar:
Nathan Fillion, Elizabeth Banks, Gregg
Henry, Michael Rooker. 96 mín. Banda-
ríkin 2006.
Slither Í Slither er einhverja yfirgengilegustu suddafyndni ársins að finna.
Sæbjörn Valdimarsson
RAGNAR Jónasson og Sólveig
Einarsdóttir opna sýninguna
Blobby í Galleríi Vesturvegg í
Skaftfelli í dag klukkan 17.
Sýningin er í tengslum við
listahátíðina Á seyði. Lista-
mennirnir velta upp spurning-
unni hvort heimurinn sé bráðn-
andi ís sem enginn vill borða og
hvort bráðnun íssins sé afleið-
ing ofvaxtar sem tekur á sig
mynd manna eins og Bobby
Ewing úr Dallas.
Menning | Sýningaropnun í Galleríi Vesturvegg
Gróður-
húsaáhrif,
velmegun
og ís
Á sýningunni má sjá bráðnandi ís úr
plastefni og hreinræktuð málverk.
Hljómsveitin Sniglabandiðstendur fyrir bifhjólaballi á
skemmtistaðnum NASA við
Austurvöll í kvöld. Í tilkynningu
segir að sveitin sé að fagna sínu
21. starfsári, og til að fagna þeim
áfanga er margt á prjónunum hjá
hljómsveitinni. Nýr tvöfaldur
geisladiskur RÚV-tops er vænt-
anlegur innan tíðar, en á plötunni
má heyra brot úr útvarpsþátt-
unum „Sniglabandið í beinni“ á
Rás 2, auk 17 nýlegra íslenskra
dægurlaga sem samin voru í sam-
starfi við hlustendur á þessu
tímabili. Eitt þessara laga „Á
hraða snigilsins“ er nú farið að
heyrast á öldum ljósvakans.
Húsið verður opnað klukkan 23
og aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Aldurstakmark miðast við 20 ár.
Fólk folk@mbl.is