Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 53

Morgunblaðið - 24.06.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 53 ÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI NÚ ER KOMIÐ AÐ HENNI AÐ SKORA FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 12:15 - 1:30 - 3 - 5:30 - 8 CARS M/ENSKU TALI kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 CARS M/ENSKU TALI LÚXUS VIP kl. 12:15 - 4:15 - 8 - 10:30 SLITHER kl. 8 - 10:30 B.i. 16.ára. KEEPING MUM kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára. SHE´S THE MAN kl. 1:30 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 THE POSEIDON ADVENTURE kl. 5:30 - 10:30 B.i. 14.ára. BAMBI 2 M/ÍSL. TALI kl. 1:30 SHAGGY DOG kl. 1:30 BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1:30 - 4 - 6:30 CARS M/ENSKU TALI kl. 1:30 - 3 - 4 - 5:30 - 8 - 9 - 10:30 - 11:15 DIGITAL SÝN. SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6:10 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. MI : 3 kl. 8 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ FULL AF LÉTTLEIKANDI GÁLGAHÚMOR ÞAR SEM ROWAN ATKINSON (MR BEAN & LOVE ACTUALLY) ER Á HEIMAVELLI. AÐRIR LEIKARAR , KRISTIN SCOTT THOMAS (FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL), MAGGIE SMITH (HARRY POTTER) OG KVENNAGULLIÐ PATRICK SWAYZE. NÝJASTA MEISTARAVERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. eee S.V. MBL. eee L.I.B. Topp5.is DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI eeee KVIKMYNDIR.IS umst niður og fórum að hugsa um það hvað Ham var eiginlega. Í gegn- um tíðina döðruðum við við hitt og þetta, en nú komumst við að kjarn- anum, áttuðum okkur á því hvað var Ham og hvað ekki,“ segir Sigurjón. Það mátti og heyra á tónleikum sveitarinnar í Gauknum 14. júní sem voru eins konar upphitun fyrir Rammstein-tónleikana, því í stað þess að spila alla smellina tóku þeir lög sem sum hver höfðu ekki heyrst lengi og stöku gamlar lummur voru í endurbættum búningi. Sama var upp á teningnum í Laugardalshöllinni – Ham var ekki komin saman til að spila slagara. Eftir tónleikana sumarið 2001 lá í loftinu að halda áfram með þær hug- myndir sem kviknuðu á æfingum fyr- ir tónleikana, þótt það hafi tekið þá talsverðan tíma að fara af stað aftur. Þeir fóru þó af stað aftur á endanum eins og heyra mátti á Náttúru- tónleikunum áðurnefndu því þar heyrðist nýtt lag með sveitinni, fyrsta nýja lagið í rúman áratug eða svo, og svo kom enn nýtt lag í Kast- ljósi Sjónvarpsins um daginn, lagið „Sviksemi“ sem þeir félagar segja að hafi fæðst nánast fullskapað. Eins þegar við vorum bestir Þeir segja að þótt það hafi komið skemmtilega á óvart að sitthvað var eftir af hugmyndum og stemningu hafi þeir ekki beinlínis hváð yfir hlut- unum. „Þegar við hættum vorum við komnir með mikinn djöfullegan leiða á farinu sem Ham var í, persónulega, tónlistarlega og bransalega, en þegar við síðan komum saman aftur var þetta allt horfið,“ segir Óttarr. „Þetta var svo leiðinlegt á sínum tíma að það tók okkur mörg ár að reyna að hugsa um það hvað þá ann- að. Núna eru við svo eins og við vor- um þegar við vorum bestir,“ segir Óttarr og Sigurjón heldur áfram: „Við erum að fara inn í ákveðinn hljóðheim sem Ham hafði en aðrar hljómsveitir ekki og erum að þróa þann heim áfram. Þegar við svo komum saman aftur getum við einbeitt okkur að hinu skemmtilega,“ heldur Sigurjón áfram, og Óttarr bætir við að það af gamalli Ham-tónlist sem þeir séu helst að skoða sem stendur sé ein- mitt það allra elsta sem sveitin gerði, „þegar við vorum ungir og geðveik- ir“. „Þetta er dálítið eins og að koma heim,“ segir Sigurjón, „þegar maður er umlukinn hávaðaveggnum.“ Förum sparlega í þetta Ný lög eru ekki mörg tilbúin þótt þeir hafi verið að vinna í því sem þeir kalla slatta af lögum undanfarið. „Við förum sparlega í þetta,“ segir Sig- urjón og Óttarr bætir við: „Það er einmitt eitt af því sem við getum leyft okkur núorðið, að vinna hlutina almennilega og vera ekki að spila eitthvert hálfunnið drasl bara af því okkur finnst við verða að spila það. Svo getum við líka sleppt því að spila lög sem einhverjir sakna eflaust.“ Þótt þeir félagar séu fúsir til að spjalla um hvaðeina sem viðkemur hljómsveitinni Ham dregur verulega úr málgleðinni þegar gengið er á þá með framtíðina og hugsanlega út- gáfu á nýrri tónlist. Það eina sem kemur er „tja …“ „humm …“ og „jamm …“ en síðan segir Óttarr að miðað við tempóið sem hljómsveitin hafi tamið sér hingað til sé ekki rétt að gera sér væntingar um að hún ljúki við plötu á næstunni, þótt það eigi eflaust eftir að gerast í fyllingu tímans. „Næsta æfing hjá okkur er eftir þrjá mánuði svo þetta á ekki eft- ir að gerast hratt,“ segir hann. Sigurjón gætir þess einnig að segja ekki of mikið, lofa engu: „Það má kannski búast við plötu á næstu árum,“ segir hann, en dregur svo úr þeirri spá, finnst hún of bjartsýn. Það er þó ljóst að þeir eru með ný lög í farteskinu og hugmyndir að nýjum lögum og eins að þeir eru til í að gefa út nýja plötu … „einhvern tímann, hljómar það ekki bara vel?“ Illt í eyrun „Við erum ekki að þessu til að slá í gegn, eða gefa út plötur eða til að fá að spila, við erum eiginlega bara að þessu til að fá illt í eyrun,“ segir Ótt- arr og Sigurjón tekur undir það: „Það er aðallega þetta suð í eyrunum sem við erum að sækjast eftir, suðið eftir hverja tónleika sem endist yfir- leitt í viku.“ Ekki er ljóst hvenær Ham spila aftur eftir tónleikana 29. enda segir Sigurjón að engu sé hægt að lofa, það eina sem þeir lofa sé að þeir muni mæta á svið 29. júní, en svo koma fyrirvararnir: Nema einhver deyi eða það kvikni í húsinu, en það hefur víst gerst oftar en einu sinni að kviknað hefur í tónleikastað sem Ham spilaði í þótt hingað til hafi það gerst eftir tónleikana, ekki fyrir þá. Allt getur þó gerst þegar Ham er annars vegar. Við týndum okkur Tónleikaprógrammið er rúmur klukkutími, blanda af nýjum lögum og gömlum, sumum mjög gömlum, en þeir segja að það séu allmörg lög í lagasafni Ham sem þeir eigi aldrei eftir að spila á tónleikum. „Við vorum til dæmis að rifja upp lag í gærkvöldi sem við vorum búnir að gleyma að væri til, en mundum þó að það var ömurlegt. Þau eru nokkur þannig og við ætlum ekki að gera það okkur til ógeðs að spila þau aftur.“ Gömlu lögin verða misbreytt, þau sem gengu vel upp á sínum tíma verða óbreytt, en önnur eitthvað lag- færð. Það breytir reyndar lögunum á sinn hátt að Flosi Þorgeirsson er genginn til liðs við sveitina að nýju og verður í öllum lögunum. Hann kemur í stað Jóhanns Jóhannssonar sem spilaði með Ham lungann úr starfs- ævi sveitarinnar og allan seinni hluta hennar, en þess má geta að Jóhann leikur líka með Ham á Nasa í þremur lögum. Arnar Geir Ómarsson leikur síðan á trommur eins og forðum og S. Björn Blöndal á bassa eins og allt- af. Flosi er því að spila lög sem hann hefur ekki áður tekið með Ham, bæði lög sem samin voru eftir að hann hætti og svo lög sem sveitin var hætt að spila þegar Flosi kom til sög- unnar. „Frábær lög sem við héldum að væru ekki nógu mikil „hits“ til að við gætum verið að spila þau,“ segir Óttarr og nefnir sem dæmi Trúboða- sleikjarann, sem ekki hefur heyrst á sviði með Ham árum saman; „ekki eftir að við héldum að við værum költ,“ segir Óttarr, „enn eitt dæmið um það hvernig bransinn var að trufla okkur“. „Jamm,“ segir Sig- urjón, „við týndum okkur.“ Ham á endurkomutónleikum í Höllinni árið 2001: Björn Blöndal, Flosi Þorgeirsson (kom fram sem gestagítarleik- ari), Óttarr Proppé, Sigurjón Kjartansson, Jóhann Jóhannsson og Arnar Geir Ómarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.