Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 56

Morgunblaðið - 24.06.2006, Síða 56
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra var reffilegur í þessum glæsilega fornbíl, Buick Electra árgerð 1960, er hann setti landsmót Fornbílaklúbbs Íslands á Selfossi í gærkvöldi. Á mótinu, sem stendur yfir helgina, verða forn- bílar sýndir, ekið um Selfoss, bílaþrautir leystar og fleira gert sér til gamans. Mótið er haldið í samvinnu við hátíðina Sumar á Selfossi. Við hlið Guðna er eigandi bílsins, Einar J. Gíslason. | 21 Ljósmynd/Egill Bjarnason Guðni setti landsmót fornbílamanna STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra segir að í nýrri sam- gönguáætlun til 12 ára, sem nú sé í smíðum í ráðuneytinu og rædd verði á þinginu í vetur, verði reynt að skapa skilyrði til þess að koma í auknum mæli á einkaframkvæmd- um í samstarfi við ríkið í vegagerð. Nefnir hann þar Sundabraut úr Grafarvogi, endurbyggingu Suð- urlandsvegar frá Reykjavík allt austur að Þjórsárbrú og jarðgöng í Vaðlaheiði sem dæmi um slík verkefni. Þetta kemur fram í við- tali við samgönguráðherra í Morg- unblaðinu í dag. Hann segist enn telja það best fyrir þjóðina að innanlandsflugið verði áfram í Vatnsmýrinni en að skoða megi að minnka svæðið sem flugvöllurinn taki og fjölga þar með byggingarlóðum. Sturla segist vona að borgaryf- irvöld og ríkið nái saman sem fyrst um framkvæmd Sundabrautar en það sé alveg ljóst að nokkurn tíma taki að koma framkvæmdum af stað. Þá vill Sturla skoða hraðahemla í bíla og telur að hefja ætti um- ræðu um þann kost. Slíkt væri neyðarkostur að hans mati en gefa mætti bíleigendum kost á að setja slíkan búnað í bíla sína eftir vali og í samráði við tryggingarfélög sem myndu koma til móts við bíleig- endur með lækkun iðgjalda. Al- gerlega óviðunandi væri að tutt- ugu vegfarendur látist í umferð- inni á ári hverju og fjöldi manna liggi slasaður eftir umferðarslys. Fataðist aðeins flugið Sturla segir að hræringar innan Framsóknarflokksins hafi ekki veikt ríkisstjórnarsamstarfið en ríkisstjórninni hafi þó aðeins fatast flugið. Hann segist hins veg- ar ekki sjá neitt annað í spilunum en að ríkisstjórnin komi vel út úr breytingunum undir forystu Geirs H. Haarde. Vegagerð í auknum mæli í einkaframkvæmd Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is  Tel enn best | Miðopna ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Tollar á efni til fóður- gerðar falla niður LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að afnema fóðurtoll á hráefni til fóðurgerðar og jafnframt að lækka toll á fullbúnar fóðurblöndur um helming. Fóð- urtollar hafa á undanförnum árum skilað ríkissjóði um 50 milljónum króna en tollur á fullbúnar fóðurblöndur engu, þar sem menn hafa hingað til séð hag sinn í að blanda frekar fóðrið hér heima. Bún- aðarþing og Landssamband kúabænda höfðu óskað eftir verulegri lækkun eða af- námi fóðurtolla. Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda fagnar þessari breytingu og vonar að hún verði til þess að samkeppni við fóðurframleiðslu auk- ist. | 4 HÁSKÓLI Íslands og Kennaraháskóli Ís- lands brautskrá í dag samtals 1.522 nem- endur og fara útskriftarathafnir beggja skólanna fram í Laugardalshöllinni. Eftir hádegi í dag brautskráir Háskóli Íslands 957 kandídata, sem er met. Í fyrra út- skrifaðist á sama tíma úr skólanum 801 nemandi, sem einnig var met. Að sögn Guðrúnar Bachmann, kynning- arstjóra Háskólans, hefur útskrifuðum fjölgað jafnt og þétt síðustu árin. Fleiri út- skrifast árlega þar sem Háskólinn braut- skráir nemendur einnig í október og febr- úar. Félagsvísindadeild Háskólans útskrifar nú í fyrsta sinn nemendur úr meistara- námi í blaða- og fréttamennsku, einnig úr meistaranámi í kennslufræði. Frá hjúkr- unarfræðideild lýkur fyrsti hópur hjúkr- unarfræðinga meistaranámi í hjúkrun bráðveikra og frá viðskipta- og hag- fræðideild ljúka fyrstu nemendur M.Acc- gráðu í reikningshaldi og endurskoðun. Einnig útskrifast fyrsti nemandinn úr meistaranámi í umhverfis- og auðlinda- fræði, sem er þverfræðileg námsleið við Háskóla Íslands. Frá Kennaraháskóla Íslands verða 565 kandídatar brautskráðir fyrir hádegi í dag. Úr grunndeild verður brautskráður 481 nemandi og úr framhaldsdeild 84 nemendur. Aldrei hafa fleiri kandídatar verið brautskráðir í einu frá skólanum. 1.522 fá próf- skírteini í Laugardalshöll Feðgin leik- stýra tveimur verkum í Borg- arleikhúsinu FEÐGININ Stefán Baldursson og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýra nú hvort sínu verkinu innan veggja Borgarleikhússins. Stefán setur upp leikritið Amadeus eftir Peter Shaffer sem frumsýnt verður í haust en Unnur setur upp söngleik- inn Footloose sem frumsýndur verður 29. þessa mánaðar. Stefán á að baki ríflega 35 ára feril í leik- stjórn en Unnur Ösp útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands fyrir fjórum árum. „Seinustu tuttugu ár ævinnar hef ég reynt að skilja á milli okkar pabba þegar kemur að leikhúsi,“ segir Unnur Ösp í samtali í Lesbók í dag, „en nú eftir að hann lét af störfum leikhússtjóra í Þjóðleikhús- inu er sennilega auðveldara að við- urkenna faðerni sitt að nýju.“ Unnur Ösp segir það samt sem áður hafa verið forréttindi að alast upp hjá leikhúsfólki en móðir henn- ar er Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, leikari og leikstjóri. Einnig eru viðtöl við nokkra af öðrum aðstandendum sýningar- innar Footloose á menningarsíðum blaðsins í dag. Morgunblaðið/Jim Smart Þrír í varðhald vegna skotárásar ÞRÍR menn um tvítugt hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald vegna rann- sóknar á skotárás er átti sér stað í Valla- hverfi Hafnarfjarðar sl. miðvikudag. Mennirnir eru grunaðir um að hafa hleypt tveimur skotum af haglabyssu inn um glugga á jarðhæð raðhúss við Burknavelli. Auk þess er einn þeirra grunaður um að hafa kastað bensínsprengju í átt að sama húsi aðfaranótt fimmtudags, en þá hafði lögreglan þegar lýst eftir honum í tengsl- um við rannsókn skotárásarinnar. | 4 Brotist inn í sumarbústaði TILKYNNT var til lögreglunnar í Borg- arnesi í gær um innbrot í tvo sumar- bústaði í Galtarholti í Borgarbyggð. Talið er að innbrotin hafi verið framin í fyrri- nótt eða á fimmtudagskvöld. Lögreglan segir eitt og annað hafa ver- ið tekið úr öðrum bústaðnum, m.a. verk- færi og rafmagnstæki ýmiss konar eins og hljómflutningstæki og myndbandstæki. Eigendur hins bústaðarins áttu í gær- kvöldi eftir að fara yfir hverju hefði verið stolið þar. ÞESSI kappklæddi trúður lét sér ekki segjast og tók þátt í upphitun fyrir hið árlega miðnætur- og ólympíufjölskylduhlaup. Hlaupið fór fram í gær- kvöldi, á Jónsmessunni, eins og venja er. Að upp- hitun lokinni tók fólk á rás og nam ekki staðar fyrr en um miðnæturbil. Þá var þátttakendum boðið að hvíla lúin bein í Laugardalslauginni. Að lokum var fólk leyst út með verðlaunapeningi og bros á vör. Morgunblaðið/Jim Smart Hitað upp fyrir Jónsmessuhlaup ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.