Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SAFNADAGURINN Í DAG Nærri 20 nefndir hafa verið sett- ar á fót til að fjalla um byggingu Náttúruminjasafns Íslands. Ekkert slíkt safn hefur þó enn verið stofn- að þrátt fyrir að fimm ár séu síðan sett voru safnalög þar sem tiltekið er að Náttúruminjasafn skuli starfa hér á landi. Í dag er íslenski safn- adagurinn og af því tilefni bjóða söfn í landinu upp á fjölbreytta dagskrá og mörg upp á ókeypis að- gang. Menntun skilar litlu Pólverjar mynda stærsta hóp innflytjenda hér á landi, en þrátt fyrir að menntunarstig þeirra sé al- mennt hátt heyrir til undantekn- inga að þeir fari úr frumframleiðslu í störf sem krefjast meiri mennt- unar, jafnvel þótt þeir hafi búið á Íslandi í fleiri ár. Nær allir pólskir innflytjendur, sem hingað koma og eru yfir tvítugu, eru með stúdents- próf og margir hafa lokið iðn- eða háskólanámi. Einangrun þeirra hef- ur meðal annars stafað af tungu- málaörðugleikum því aðeins lítill hluti pólskra innflytjenda virðist tala íslensku. Þessir örðugleikar geta einnig komið í veg fyrir að menntun pólsku innflytjendanna nýtist til fulls. Síðasti leikur HM Síðasti leikur heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu í Þýskalandi fer fram í kvöld þegar Frakkar og Ítalir mætast á ólympíuleikvang- inum í Berlín og leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Áætlað er að yfir milljarður manna muni fylgjast með leiknum í 207 löndum. Kærðir vegna vanrækslu? Nokkrir háttsettir bandarískir hermenn sem hafa tekið þátt í hernaðaraðgerðum í Írak gætu átt yfir höfði sér kærur vegna van- rækslu í rannsókn á meintum morðum Bandaríkjahers á 24 óbreyttum borgurum í íraska bæn- um Haditha í nóvember í fyrra. Ítreka afstöðu sína Bandaríkjamenn og Japanar ítrekuðu þá afstöðu sína í gær að þeir myndu þrýsta á um refsiað- gerðir gegn Norður-Kóreumönnum vegna eldflaugatilrauna þeirra í síð- ustu viku. Þá þrýsti fulltrúi Banda- ríkjastjórnar á Kínverja um að styðja refsiaðgerðir gegn Norður- Kóreu, en stjórnvöld í Moskvu og Peking hafa hingað til lýst sig andsnúin tillögu að ályktun í Ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna sem fæli í sér heimild til slíkra aðgerða. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Myndasögur 44 Ummæli 11 Dagbókarviðtal 45 Hugsað upphátt 26 Dagbók 44/47 Menning 48/53 Víkverji 44 Sjónspegill 26 Staður og stund 46 Forystugrein 28 Leikhús 48 Reykjavíkurbréf 28 Bíó 50/53 Umræðan 30/33 Sjónvarp 54 Minningar 37/43 Staksteinar 55 Hugvekja 37 Veður 55 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is GEIR H. Haarde forsætisráð- herra segir góðan skrið á varn- arviðræðum milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda, og að vonir standi til þess að viðræðum ljúki með samkomulagi fyrir lok september. Fundi samninga- nefndanna á föstudag lauk án þess að niðurstaða næðist. „Þessar viðræður gengu út af fyrir sig ágætlega, en þetta er fjölþætt mál og mörg atriði sem þarf að ræða. Það er ekki komin niðurstaða um neitt í sjálfu sér, en menn munu halda áfram að vinna í þessu á vegum beggja samninganefnda þar til næsti fundur verður haldinn, eftir um það bil þrjár vikur eða svo. Menn tala saman í góðum anda,“ segir Geir. „Ég held að það sé fullur vilji af beggja hálfu til að tala um öll atriði málsins og leggja sig fram við að finna viðunandi niðurstöð- ur,“ sagði Geir. Spurður hvenær búast megi við að lending náist í viðræðunum sagði hann: „Það fer eftir því hvernig gengur, en við höfum gert okkur vonir um að það mætti ljúka þessu fyrir sept- emberlok.“ Geir vildi ekki tjá sig efnislega um einstök atriði sem rædd hafa verið á fundum hingað til, og vildi ekki segja neitt um hvort Banda- ríkjamenn hefðu lagt fram ein- hvers konar áætlun um varnir Ís- lands. Óljóst hvað verður um tækjabúnað Talsverð umræða hefur verið um snjóruðningstæki og útbúnað slökkviliðs Keflavíkurflugvallar, enda tækjabúnaðurinn allur í eigu bandarískra stjórnvalda. Geir segir málið margþætt og eitt af því sem þurfi að semja um sé viðskilnaðurinn í Keflavík, þar á meðal yfirtaka á búnaði sem not- aður er til að reka völlinn. Hann vildi þó ekki fara nánar út í málið, né segja neitt um hverjar áherslur íslenskra stjórnvalda eru varðandi tækjabúnaðinn. Spurður hvort þessi tækjabúnað- ur sé hluti af því sem flytja á af landi brott fyrir lok september sagðist Geir ekki geta fullyrt um það. Forsætisráðherra segir góðan skrið á varnarviðræðum Vonast eftir samkomu- lagi fyrir lok september Geir H. Haarde Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is AFSTAÐA, félag fanga á Litla-Hrauni, hyggst beita sér í baráttunni gegn vímuefn- um en nú stendur yfir undirbúningur vímu- efnaverkefnis sem hrinda á í framkvæmd í haust. Afstaða hyggst taka þátt í verkefnum innan sem utan fangelsisins, standa að for- vörnum og leita leiða úr ógöngum þeim sem fíkniefnaneytendur eru fastir í. Lögð verður áhersla á að miðla reynslu þannig að flestir geti notið hennar. Þetta kemur fram í Tíma- mótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. „Þrátt fyrir innilokun og erfiðar aðstæð- ur verður ekki hjá því litið að fangar bera sjálfir sína ábyrgð á neyslunni í fangelsinu. AFSTAÐA telur tímabært að fangar axli nú þá ábyrgð og hefjist sjálfir handa við að sporna gegn almennri neyslu. Frumkvæði fanga að þessu leyti hlýtur að vera dýrmætt skref í átt til betra lífs, bæði innan veggja fangelsisins og ekki síður eftir að afplánun lýkur,“ segir í fréttablaðinu. Ætlunin er að birta verkefnið í formi blaða- og sjónvarpsauglýsinga auk þess sem stefnt er að útgáfu fræðsluefnis. Fangar beita sér í baráttunni við vímuefni RÍKISSTJÓRNIN hefur í tvígang gripið til sérstakra aðgerða til að greiða niður orkuverð í völdum at- vinnugreinum til að vega upp á móti hækkunum sem urðu í kjölfar breytinga á raforkulögum og stór- lega mismunað með þeim hætti fyrirtækjum í landinu. Með þessu viðurkennir ríkisstjórnin að sveigj- anleika vanti í raforkusölu svo fyr- irtæki geti fengið sambærilega samninga og þau höfðu áður. Eina leiðin til að ná sömu kjörum sé að greiða niður rafmagnið beint með séraðgerðum. Ákveðið hafi verið að gera það fyrir valdar atvinnugrein- ar og jafnvel valin fyrirtæki en ný raforkulög áttu að tryggja að ekki væri mismunandi verð eftir því í hvaða skyni rafmagnið væri notað. Lögin þjóni því engan veginn sín- um tilgangi. Þetta segir Bryndís Skúladóttir, efnaverkfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, en verðhækkanir í kjöl- far raforkulaganna hafa að hennar sögn komið harkalega niður á mat- vælaframleiðendum sem og öðrum iðnfyrirtækjum. Bendir hún á að hækkun raforkuverðs til matvæla- framleiðenda sé í hrópandi mis- ræmi við markmið ríkisstjórnar um að lækka matarverð á Íslandi. Lofað óbrettu raforkuverði Bryndís segir ríkisstjórnina stórlega mismuna fyrirtækjum. Í apríl sl. hafi hún samþykkt tillögur um aðgerðir vegna erfiðleika í rekstri fiskeldisfyrirtækja þar sem stærri fiskeldisfyrirtækjum er m.a. lofað óbreyttu raforkuverði. „Erf- itt er að sjá að það sé hægt með öðrum hætti en beingreiðslum til fyrirtækjanna,“ segir Bryndís. Einnig hafi ríkisstjórnin ákveðið á síðasta ári að greiða garðyrkju- bændum beint vegna hækkananna. „Það er óþolandi að ríkisstjórnin skuli á þennan hátt hygla völdum fyrirtækjum með sértækum að- gerðum í stað þess að lagfæra þetta nýja kerfi þannig að allar greinar hafi aðgang að orku á sanngjörnu verði á jafnréttis- grunni,“ segir Bryndís m.a. í grein sem birtist nýverið í Íslenskum iðnaði. „Ekkert hefur verið gert til að koma til móts við fjöldann allan af iðnfyrirtækjum sem einnig fengu á sig miklar hækkanir,“ seg- ir Bryndís. Svo virðist sem hótun fiskeldisfyrirtækja um að flytja starfsemi sína úr landi hafi stuðlað að þeirri ákvörðun ríkisstjórnar- innar að lækka raforkuverð til þeirra. „Samtök iðnaðarins velta fyrir sér hvernig yfirvöld brygðust við ef til dæmis bakarar, plast- framleiðendur eða netagerðir ákvæðu að flytja framleiðslu sína til annarra landa í ríkari mæli en þegar er orðið,“ segir Bryndís. Í samtali við Morgunblaðið sagði hún SI ítrekað hafa vakið athygli stjórnvalda á ástandinu, en án ár- angurs. „En með þessum aðgerðum rík- isstjórnarinnar er viðurkennt að raforkuverð til atvinnustarfsemi sé of hátt,“ segir Bryndís. Hún segir enga raunverulega samkeppni ríkja á raforkumarkaði. Því sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða sem séu almennari en þær sem þegar hafi verið gripið til. Fyrirtækjum stórlega mismunað Raforkulögin þjóna engan veginn til- gangi sínum segja Samtök iðnaðarins STÓRVIRKAR vinnuvélar unnu að því í gær að jafna við jörðu gamla Lýsishúsið við Granda- veg, en niðurrif þess hófst seint á síðasta ári. Reykjavíkurborg og Seltjarnarnes ráðgera að reisa hjúkrunarheimili fyrir aldraða á suðurhluta lóð- arinnar en íbúðarhús á þeim nyrðri. Lýsi hf. var stofnað á þessum stað árið 1938 og starfaði þar allt þangað til fyrir tæpu ári síðan þegar starfsemin fluttist í nýtt og stærra húsnæði. Fyr- irtækið er nú staðsett skammt frá gamla húsinu við Fiskislóð á Grandasvæðinu. Morgunblaðið/Ómar Friðriksson Gamla Lýsishúsið rifið MIKIÐ var um að vera í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun en þá voru áhafnir frönsku keppnisskútanna sem og áhafnir íslenskra skúta í óðaönn að undirbúa brottför sína þaðan til Grundarfjarðar. Frönsku skúturnar eru alls 19 og taka þátt í siglingakeppninni Skippers d’Islande á milli Frakklands og Íslands sem hófst á Paimpol á Bretaníuskaga 24. júní sl. Morgunblaðið/Sverrir Kappsigling til Grundarfjarðar ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.