Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 33
UMRÆÐAN
Austurmörk 4, Hveragerði, www.byr.is
sími 483 5800
HVERAGERÐI
Soffía Theodórsdóttir
löggiltur fasteignasali
Bjarkarheiði 28
Höfum í einkasölu fallegt 149,5
fm parhús með innbyggðum
bílskúr innst í botnlanga. 3
svefnherbergi, birkispónlögð
eldhúsinnrétting og vönduð
gólfefni. Verð 24,5 m.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali.
GEITLAND - ENDARAÐHÚS
Sérlega vel skipulagt og
mikið endurnýjað 242 fm
endaraðhús, þar af er bíl-
skúrinn tæpir 28 fm, stað-
sett neðan götu. Búið er að
endurnýja járn á þaki, bíl-
skúrshurð, rafmagn endur-
ídregið og tafla endurnýjuð.
Eldhúsið er sérlega glæsi-
legt og stórt, endurnýjað
fyrir stuttu síðan, stækkað,
ný innrétting og tæki. Aðalbaðherbergi endurnýjað, flísalagt í hólf
og gólf, innrétting. Í húsinu eru 4 svefnherbergi (voru 6), stofa og
borðstofa. Fullbúinn bílskúr ofan götu, hús var málað og viðgert
að utan árið 2002. Í heild afar vel skipulagt og fallegt endaraðhús í
einu eftirsóttasta hverfi Reykjavíkur. Verð 58 millj.
Allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898 9396.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Upplýsingar á skrifstofu s. 594 5000 eða hjá sölufulltrúum Akkurat ehf.
Bjarni Péturson s. 896-3875 og Ingvar Ragnarsson s. 822 7300.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
S: 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
DIGRANESVEGUR 1 – KÓPAVOGI
til leigu í miðbæ Kópavogs
Glæsileg nýbygging við Digranesveg 1,
samtals 1986,6 fm
Mjög vönduð skrifstofu- og
þjónustubygging.
Byggt yfir gjána og á frábærum
stað í Kópavogi. Lyfta er í
húsinu.
Jarðhæð: Verslun og þjónusta,
ca 523,2 fm.
2. hæð: Skrifstofur, ca 874 fm.
Byggingin er miðsvæðis í hjarta
Kópavogs.
Stutt er í allar
almenningssamgöngur og
þjónustu.
Mikið auglýsingagildi.
Góð aðkoma er að húsinu bæði
fyrir bíla og gangandi
vegfarendur og næg bílastæði
eru við bygginguna. Til
afhendingar í sept.-okt. 2006.
Byggingaraðili er Ris ehf.
Sími 533 4040
Fax 533 4041
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
Sérlega glæsilegt sumarhús á fallegri eignarlóð. Húsið er á eign-
arlóð og stendur innst í lokuðum botnlanga. Stór afgirt timbur-
verönd með heitum potti er við húsið. Frá húsinu er frábært út-
sýni út á Skorradalsvatn. Húsið er 66 fm að stærð með millilofti
að hluta. Allur frágangur er mjög vandaður, glæsilegar innrétt-
ingar og gólfefni. Afhending við kaupsamning. Verð 26,0 millj.
JÓNÍNA TEKUR Á MÓTI ÁHUGASÖMUM UM HELGINA
MILLI KL. 14 OG 17.
OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAG KL. 14-17
DAGVERÐARNES 30
SKORRADAL
Kristinn Valur Wiium sölumaður s. 896 6913 og Ólafur Guðmundsson sölustjóri s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
VAFALAUST er málarekst-
urinn á hendur Eggerti Haukdal
eitt mesta heiftarklúður sem um
getur í íslenzku réttarfari. Fyrir
nær átta árum var hafin málssókn
á hendur honum fyrir umboðssvik,
falsanir og fyrir að hafa dregið sér
fé úr sveitarsjóði sem oddviti Vest-
ur-Landeyjarhrepps. Af öllum
ákærum hefir Eggert verið sýkn-
aður, utan að hafa verið marg-
dæmdur saklaus af að hafa dregið
sér fé úr sveitarsjóði að fjárhæð kr.
500 þúsund.
Það kann að vera að réttargæzl-
an eigi sér afsökun í mistökum
framan af rekstri málsins – en ekki
lengur. Um alllanga hríð hafa legið
fyrir órækar sannanir þess að
ákæran á hendur Eggerti er byggð
á fölsunum fyrrverandi endurskoð-
anda Vestur-Landeyjarhrepps,
Magnúsar Benediktssonar, og svo
áfram af nýjum endurskoðanda,
Einari Sveinbjörnssyni í KPMG,
sem tók við reikningsskilum af hon-
um. Nægir í því sambandi að benda
mönnum á að lesa grein ráðgjafans
Guðbjörns Jónssonar í Morg-
unblaðinu miðvikudaginn 5. júlí sl.,
sem hann nefnir „Málið gegn Egg-
erti Haukdal.“
Ef dómsvaldið nær ekki nýjum
áttum í máli þessu og heldur við
fyrri niðurstöðu um fjárdrátt Egg-
erts, verður framið dómsmorð, sem
á sér engan líka vegna þeirra sönn-
unargagna, sem fram eru komin.
Það vekur sérstaka athygli, að
fjölmiðlar, sem telja sig á tyllidög-
um vera varðhaldsmenn réttlæt-
isins, láta sér ekkert um þetta mál
finnast. Mál, sem öllum hlýtur að
ofbjóða, sem kynna sér málavexti
og þarf ekki að kosta meiri fyr-
irhöfn en að lesa fyrrgreinda blaða-
grein Guðbjörns Jónssonar.
Sverrir Hermannsson
Dómsmorð?
Höfundur er fyrrverandi formaður
Frjálslynda flokksins.
Sagt var: Ég mundi stökkva yfir ef ég mundi þora.
RÉTT VÆRI: Ég mundi stökkva yfir ef ég þyrði.
Eða: Ég stykki yfir ef ég þyrði.
(Bendum börnum á að segja ekki mundi á eftir ef!)
Gætum tungunnar
skiptingu fjárins milli deilda og
það rann allt til ritakaupa í sam-
ræmi við óskir deildanna. Á fjár-
lögum fyrir árið 2000 hvarf eyrna-
merkta upphæðin úr fjárlögum til
HÍ, Ritakaupasjóður var lagður
niður og peningarnir komu nú inn
til Háskólans sem hluti af fjár-
magni deildanna út frá reiknilík-
ani. Það þýddi að í stað þess að
þeir rynnu örugglega til ritakaupa
var lagt í vald deildanna að
ákveða hvort þeim væri varið til
ritakaupa eða til einhvers annars.
Hér var um grundvallarbreytingu
að ræða, safnið missti peningana
til deildanna sem sumar lækkuðu
fljótlega upphæðina. Beina fram-
lagið til safnsins er fyrst og
fremst notað til kaupa á erlendum
ritum sem varða Ísland og Íslend-
inga, handritum, handbókum,
tímarita- og blaðaáskriftum, auka-
eintökum af íslenskum bókum og
almennu menningarefni til útlána.
Tengjast þau kaup þjóðbókasafns-
hlutverkinu. Hluta fjárins er ráð-
stafað vegna landsaðgangs að
gagnasöfnum og þátttöku í sam-
lögum um önnur rafræn gagna-
söfn sem nýtast háskólasamfé-
laginu. Á undanförnum árum
hefur safnið að auki keypt talsvert
af bókum fyrir Háskólann af þess-
ari fjárveitingu.
Ef Háskóli Íslands á að komast
í hóp 100 bestu háskóla í heimi
eins og stefnt er að þarf að lyfta
grettistaki og auka ritakaup safns-
ins verulega. Síðan Lands-
bókasafn Íslands og Háskóla-
bókasafn voru sameinuð 1994
hefur nemendafjöldi Háskóla Ís-
lands aukist um rúmlega 60%.
Rannsóknartengt framhaldsnám
hefur einnig aukist verulega sem
og samkeppni við aðra háskóla.
Meiri kröfur ættu því eðlilega að
vera gerðar til bókasafnsins hvað
varðar ritakaup. Ef ritakosturinn
yrði efldur hefði það í för með sér
aukna notkun og ánægðari safn-
gesti. En til þess þarf meira fé.
Höfundur er sviðsstjóri þjónustusviðs
á Landsbókasafni Íslands – Háskóla-
bókasafni.