Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 51
Farley í röð mynda fyrir rúmum áratug hef-
ur nokkuð stríður straumur „klikkaðra“
gamanmynda legið frá honum. Gæðum hef-
ur hrakað og vinsældum sömuleiðis og líta
má á Varamennina sem nokkuð örvænting-
arfulla tilraun til að endurheimta forna
frægð. Vesalingnum Rob Schneider, sem
líkt og David Spade á rætur að rekja til
bandaríska sjónvarpsþáttarins Saturday
Night Live, hefur gengið illa að feta sig á
kvikmyndabrautinni og nú er svo komið að
það fer um mann í hvert sinn sem honum
bregður fyrir á hvíta tjaldinu. Aðra sögu er
að segja af ungviðinu í hópnum, Jon Heder,
en hann sló eftirminnilega í gegn í hinni
sérviskulegu en bráðskemmtilegu Napoleon
Dynamite hér um árið. Var þar á ferðinni
mynd sem kallaði fram sérstæðan og afar
sterkan leik hjá Heder en frammistaða hans
í myndinni var akkerið sem hélt henni á
jörðinni. Leiðin virðist þó hafa legið niður á
við hjá honum af Varamönnunum að dæma
en þó er óhætt að segja að hann sé það
langskásta í myndinni. Um er að ræða verk
sem svo sannarlega stendur ekki undir
nafni kvikmyndategundarinnar, þ.e. sem
gamanmynd.
VARAMENNIRNIR fjallar um þrjá æsku-
vini, Gus (Rob Schneider), Richie (David
Spade) og Clark (Jon Heder) sem allir voru
flokkaðir sem lúðar á uppvaxtarárunum.
Íþróttabullurnar stríddu þeim miskunn-
arlaust og lágu þeir vel við höggi vegna
slapprar frammistöðu í íþróttaleikjum í
skólanum. Þeir komust sjaldnast af vara-
mannabekknum og ef þeir spiluðu með
blasti hrein niðurlæging við. Gus á nú sjálf-
ur son (en Clark og Richie hafa aldrei verið
við kvenmann kenndir) og ákveður að taka
til sinna ráða þegar hann þarf að horfa upp
á son sinn mæta sömu örlögum og biðu hans
á varamannabekknum. Þeir félagar stofna
hafnaboltalið með stuðningi nágrannans
Mels, fyrrum nörds sem orðinn er forríkur
og hefur byggt sér glæsivillu í Stjörnu-
stríðsstíl. Markmiðið er að safna saman
strákunum sem þurfa að verma vara-
mannabekkinn og sigra hrekkjusvínin og
íþróttabullurnar.
Varamennirnir flokkast undir tegund
bandarískra gamanmynda sem kenna mætti
við „viðbjóðsvaka“ (gross-out films) og snú-
ast um það að finna upp á eins klígjuvekj-
andi gamanatriðum og hægt er, þar sem
hvers kyns líkamsstarfsemi, úrgangur og
niðurlægingar koma við sögu. Þegar verst
lætur fær úrvinnsla handrits algerlega að
víkja fyrir tilætluðum gamanlátum, og í stað
frásagnar- eða samtalsdrifinnar kómedíu er
söguþráður rissaður upp og hann notaður
sem afsökun fyrir nokkurs konar veislu úr-
gangsbrandara. Þetta er eitt af einkennum
Varamannanna, þar sem áðurnefndir Rob
Schneider, David Spade og Jon Heder,
spreyta sig í hlutverkum forkólfanna í Vara-
mannaliðinu sem allir eiga það sameiginlegt
að vera nokkurs konar ofvaxin börn.
Af þessum þremur er það David Spade
sem mesta reynsluna hefur í gamanmyndum
en allt frá því að hann sló í gegn með Chris
Viðbjóðsvaki
Í dómi segir að myndin standi ekki undir því
nafni að vera gamanmynd.
KVIKMYNDIR
Varamennirnir (The Benchwarmes)
Leikstjórn: Dennis Dugan. Aðalhlutverk: Rob
Schneider, David Spade, Jon Heder, Jon Lovitz
og Molly Sims. Bandaríkin, 85 mín.
Borgarbíó, Smárabíó, Regnboginn
Heiða Jóhannsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 51
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10:15
kl. 10:15 B.i. 16 ára
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt
lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta heiminum með henni
...eða gera eitthvað allt annað?
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
-bara lúxus
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA
ER AÐ MISSA STJÓRNINA
kl. 2 ÍSL. TALkl. 4 ÍSL. TAL
Skrolla og Skelfir Á SALTKRÁKU
kl. 2 ÍSL. TAL400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
HÚN VAR HEPPNASTA STELPAN Í BÆNUM
ÞANGAÐ TIL DRAUMAPRINSINN EYÐILAGÐI ALLT!
Frábær unglinga gamanmynd með
Lindsey Lohan í fantaformi!
Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum!
1 fjölskylda - 8 hjól
ENGAR BREMSUR
Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins.
eee
Topp5.is - VJV
ROBIN WILLIAMS
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Yfir 51.000 gestir!
eee
L.I.B.Topp5.is
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA
Sími - 551 9000
The Benchwarmers kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
The Omen kl. 10.30 B.i. 16 ára
X-Men 3 kl. 5.30 og 8 B.i. 12 ára
Take The Lead kl. 5.30 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 8 B.i. 14 ára
Rauðhetta m. íslensku tali kl. 3
Ísöld m. íslensku tali kl. 3
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Sýnd kl. 5:45 og 8
SPUNATÓNLISTIN er í aðal-
hlutverki hjá The Island Boys
eða Eyjapiltunum en dúettinn
skipa Íslendingurinn Guð-
mundur Steinn Gunnarsson og
Noah Phillips frá Hawaii.
Kynntust þeir félagar í skól-
anum Mills College í Kaliforn-
íufylki og samstarfið hófst út frá
þeirri staðreynd að þeir eru báð-
ir eyjapiltar. Það bregður fyrir
óhljóðum og rafhljóðum í bland
við ljúfa tóna í tónlist þeirra,
víða er komið við, og finna má
skipulagða búta innan í óreiðu
sköpunarinnar eða óreiðu í ann-
ars skipulögðu efni.
Guðmundur Steinn nam tón-
smíðar við Listaháskóla Íslands,
hefur komið víða við og verið ið-
inn við alls kyns spilamennsku
og tónsmíðar. Hann hefur m.a
tekið þátt í verkefnunum Stór-
sveit Nix Noltes, Hljómsveit
Benna HemmHemm, Hestbak
og Snarsveit Reykjavíkur.
Framsæknar tónsmíðar eru
hans helsta hugðarefni ásamt
skynditónsmíðum og spuna.
Hinn eyjapilturinn, Noah
Phillips, hefur verið ansi iðinn
við spilamennsku, ferðast víða
um heiminn en verið einna mest
áberandi í Los Angeles og á
svæðinu í kringum San Franc-
isco. Líkt og Guðmundur Steinn hefur hann
mikinn áhuga á spuna og komið fram með
þekktum spunamönnum sem hafa verið áber-
andi á vesturströnd Bandaríkjanna á borð við
Henry Grimes, Vinny Golia og Harris Eisen-
stadt. Báðir leika þeir félagar á gítar með raf-
hljómum í bland en Guðmundur Steinn leikur
einnig á kjöltutölvu.
Eyjapiltarnir ætla á næstunni að halda
þrenna tónleika á Íslandi. Fyrstu tónleikarnir
fara fram í kvöld á Þjóðlagahátíðinni á Siglu-
firði og er aðgangur ókeypis. Þeir næstu fara
fram þriðjudaginn 11. júlí í Skaftfelli á Seyð-
isfirði en þá munu Eyjapiltarnir koma fram
ásamt Páli Pálssyni og Charles Ross og er að-
gangseyrir 500 kr. Síðustu tónleikarnir fara
svo fram föstudaginn 14. júlí í húsnæði félags-
ins S.L.Á.T.U.R. að Hverfisgötu 32 og munu
þá þeir Jesper Pedersen og Áki Ásgeirsson
einnig koma fram og er aðgangseyrir 500 kr.
Tónlist | Eyjapiltarnir halda þrenna tónleika
Óhljóð og rafhljóð í
bland við ljúfa tóna
Morgunblaðið/Eyþór
Í tónlist Eyjapiltanna má finna skipulagða búta innan í
óreiðu sköpunarinnar eða óreiðu í annars skipulögðu efni.