Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.07.2006, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ George Koronias, for-stjóri Vodafone í Grikk-landi, hafði sambandvið skrifstofu grískaforsætisráðherrans í byrjun mars á síðasta ári. Forstjór- inn tilkynnti forsætisráðherranum, að í ljós hefði komið að einhverjir hefðu nýtt hlerunarhugbúnað til að laumast inn á kerfi Vodafone og hlera farsíma um 100 háttsettra embættis- og stjórnmálamanna. Í þeim hópi voru æðstu yfirmenn grískrar lög- reglu og varnarmála og ráðherrar í ríkisstjórninni, þar á meðal forsætis- ráðherrann. Hneykslið í kjölfar þessara upplýs- inga, þar sem einnig kemur við sögu dauði starfsmanns Vodafone sem tal- inn er geta tengst hlerununum, hefur skekið grísku þjóðina. Það kemur í kjölfar Ólympíuleikanna sem haldnir voru í Grikklandi árið 2004 og voru þjóðinni ærið tilefni til stolts. Hler- anirnar virðast hafa hafist nokkrum vikum áður en leikarnir voru settir í ágúst 2004 og uppgötvuðust ekki fyrr en sjö mánuðum síðar. Þar með hefur verið hægt að hlera rúmlega 100 far- síma, þar á meðal síma sem tengdust bandaríska sendiráðinu í Aþenu, að því er gríska ríkisstjórnin hefur upp- lýst. Bandaríska sendiráðið neitaði að tjá sig um málið. Mál þetta hefur reynst hið versta vandræðamál fyrir tvö stærstu fyr- irtæki heims á sviði farsímaþjónustu. Það eru breska fyrirtækið Vodafone, hið stærsta í heiminum á sviði far- símaþjónustu ef miðað er við tekjur, og sænska fyrirtækið Telefon AB L.M. sem sér Vodafone fyrir öllum búnaði til að reka fjarskiptakerfi sín. Svo gæti farið að Vodafone yrði sekt- að af gríska fjarskipteftirlitinu um milljónir evra ef niðurstaðan verður sú að öryggisráðstöfunum fyrirtæk- isins hafi verið áfátt. Málið varpar líka einstöku ljósi á heim háþróaðrar hlerunartækni og sýnir hvernig þeir sem hlera geta smogið inn á kerfi sem eiga að vera örugg. Dularfullt dauðsfall Margt er enn á huldu í málinu. Saksóknarar, sem enn rannsaka mál- ið, hafa ekki fundið neina sökudólga. Þeim hefur heldur ekki tekist að sýna fram á af hvaða hvötum hlerunarbún- aðinum var komið fyrir og ekki held- ur hvort samtöl hafi í reynd verið vöktuð. Löggæsla hefur lengi átt þess kost að hlera einstaka farsíma meintra glæpamanna og hryðjuverkamanna, í samræmi við dómsúrskurði. Gríska hlerunarmálið er af allt öðrum toga, því þar hafa einhverjir óþekktir að- ilar sett upp hugbúnað til að hlera fjölda farsíma æðstu stjórnenda landsins. Það flækir svo enn málið að nokkr- um klukkstundum áður en Koronias forstjóri hafði samband við ríkis- stjórnina fannst einn kerfisstjóra Vodafone, Costas Tsalikidis, látinn í íbúð sinni í Aþenu, hengdur í reipi sem bundið hafði verið við vatns- leiðslur fyrir utan baðherbergi hans. Saksóknarar telja að tengsl geti verið á milli dauða hans og hlerananna, að því er maður kunnugur rannsókninni segir. Fjölskylda Tsalikidis staðhæfir að hann hafi ekki framið sjálfsvíg, eins og gríska lögreglan taldi í fyrstu. Henni þykir líklegt að hinn 39 ára Tsalikidis hafi uppgötvað hlerunar- hugbúnaðinn. Tsalikidis hafði hug- leitt um hríð að segja upp starfi sínu hjá Vodafone, en sagði unnustu sinni skömmu fyrir dauðann að það væri lífsspursmál að hann hætti, að því er lögmaður fjölskyldunnar, Themis So- fos, sagði í viðtali. Tsalikidis vildi hins vegar ekki ræða málið nánar þegar unnustan krafði hann skýringa. Vodafone hafnaði öllum tengslum milli dauða Tsalikidis og hlerunar- málsins, að því er fram kom í yfirlýs- ingu fyrirtækisins 3. febrúar sl. Fyr- irtækið hefur einnig neitað því að hafa sjálft tengst hlerununum. Engin sambærileg dæmi Ericsson, sem einnig neitar allri aðild, segir að ábyrgð á öryggi sím- kerfa liggi hjá viðskiptavinum Erics- son, sem veiti símaþjónustuna. Erics- son er stærsti framleiðandi búnaðar til þráðlausra fjarskipta í heimi og um 40% af allri farsímaþjónustu fara um tæknibúnað sem fyrirtækið hann- ar. Ericsson hefur verið lykilsam- starfsaðili Vodafone. Atburðirnar hafa valdið óróa meðal viðskiptavina Vodafone og Ericsson og bæði fyrirtæki hafa þurft að svara fyrir hvað gerðist. Vodafone hefur hafið mikla markaðssókn í Grikklandi til að endurheimta orðspor sitt, þar á meðal með auglýsingaherferð og öðr- um samskiptum við viðskiptavini, birgja, stjórnvöld og aðra. Ericsson kveðst hafa kannað far- símanet þriggja annarra grískra far- símafyrirtækja, sem nýta búnað sænska fyrirtækisins og nokkurra annarra farsímafyrirtækja víða um heim og hefur ekki fundið nein merki um hleranir þar. „Að því er Ericsson best veit er þetta einstakt atvik.“ Talsmaður Vodafone, Ben Padovan, sagði: „Við höfum hvorki fyrr né síðar rekist á annað slíkt dæmi.“ Ýmsir sérfræðingar og stjórn- málamenn telja að þarna hafi erlend leyniþjónusta verið að verki, enda hafi þurft umfangsmikla hátækni- kunnáttu til að koma hugbúnaðinum fyrir. Þeir sem hleruðu hafi haft að- gang að einhverjum sem þekktu mjög vel til hugbúnaðar Ericsson og kerfis Vodafone. Þeir hafi líka haft nauðsynlegt bolmagn til að þróa og prófa hugbúnaðinn. Sérfræðingar sem rannsakað hafa málið hafa fund- ið tengsl milli hlerunarhugbúnaðar- ins og ýmissa símanúmera í öðrum löndum, í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar. Fyrir Ólympíuleikana 2004 óttuð- ust leyniþjónustur Grikkja, Banda- ríkjamanna og fleiri þjóða að hryðju- verkamenn myndu láta til skarar skríða. Nýttu hugbúnað Ericsson Tvenns konar háþróaður hugbún- aðar lá að baki hlerununum, að því er Ericsson hefur upplýst. Annar var hannaður af Ericsson og er grunn- búnaður sem fylgir kerfishugbúnaði Ericsson. Þegar hugbúnaðurinn er virkjaður er hægt að nota hann til löglegra hlerana af hálfu yfirvalda, en slíkar hleranir hafa orðið æ algengari frá hryðjuverkaárásunum á Banda- ríkin 11. september 2001. Til að virkja þennan hugbúnað þurfa fjar- skiptafyrirtæki að greiða milljónir Bandaríkjadala fyrir viðbótarhug- búnað, vélbúnað og lykilorð. Bæði Ericsson og Vodafone segja að síð- arnefnda fyrirtækið hafi ekki verið búið að kaupa slíkan búnað í Grikk- landi á þeim tíma sem hleranirnar stóðu. Hinum hugbúnaðinum, sem nýttur var til hlerana, var komið fyrir í kerfi Vodafone og tilgangurinn með hon- um var tvíþættur. Annars vegar virkjaði hann hugbúnað Ericsson og hins vegar var hann þeim eiginleikum gæddur að skilja ekki eftir nein aug- ljós ummerki um að hann væri í notk- un í kerfinu. Ericsson, sem rannsak- aði hugbúnaðinn í samstarfi við eftirlitsstofnun í Grikklandi, segir að fyrirtækið hafi hvorki hannað eða þróað hugbúnaðinn, né komið honum fyrir. Hlerunarbúnaðurinn gerði kleift að hlusta á samtölin í hleruðu sím- unum í fjórtán farsímum, sem ekki er hægt að rekja þar sem símakortin voru greidd fyrirfram og símarnir ekki skráðir á nöfn. Þegar hringt var í eða úr einhverjum hleruðu símanna gat einn símanna fjórtán tengst inn á það símtal um leið. Að líkindum beindu þessir fjórtán farsímar sím- tölunum jafnframt áfram í upptöku- tæki annars staðar, að því er fram kom á blaðamannafundi ríkisstjórn- arinnar í febrúar 2006. Sumir þessara fyrirframgreiddu farsíma voru virkj- aðir á tímabilinu júní til ágúst 2004. Af hálfu Vodafone er fullyrt að fyr- irtækið hafi ekki haft hugmynd um að í hugbúnaði Ericsson hafi falist hler- unarmöguleikar, enda hafi Ericsson aldrei upplýst æðstu stjórnendur far- símafyrirtækisins í Grikklandi um það, né heldur skýrt tækniliði fyrir- tækisins sérstaklega frá því, að því er fram kom í yfirlýsingu Vodafone í mars sl. Æðsti yfirmaður Ericsson í Grikk- landi, Bill Zikou, bar hins vegar fyrir þingnefnd að sölumenn fyrirtækis hans hefðu upplýst Vodafone um búnaðinn, auk þess sem þessar upp- lýsingar væri að finna í handbókum með hugbúnaðinum. Vandræði með sms Vodafone og Ericsson uppgötvuðu að eitthvað undarlegt var á seyði í janúar 2005. Þá fóru farsímanotend- ur í Grikklandi að kvarta, því þeir höfðu margir lent í vanda við að senda sms-skeyti. Vodafone bað Er- icsson að kanna málið og sérfræðing- ar sænska fyrirtækisins fínkembdu kerfið vikum saman, með aðstoð sér- fróðra tæknimanna í Stokkhólmi. Í byrjun mars 2005 tilkynnti Ericsson tæknistjóra Vodafone að sérfræðing- arnir hefðu rekist á hlerunarhugbún- aðinn. Ekki hefur hins vegar verið upplýst á hvern hátt hugbúnaðurinn hafði áhrif á sms-sendingar. Ericsson staðfesti að hugbúnaður- inn gerði mönnum kleift að vakta símtöl og Vodafone sá brátt að hler- anirnar beindust að mörgum mikil- vægustu embættismönnum landsins. 8. mars 2005 skipaði Koronias for- stjóri svo fyrir, að aftengja skyldi þennan ólöglega hugbúnað. Hann kveðst hafa gert það til að tryggja einkalíf viðskiptavinanna. Daginn eftir hringdi hann í forsætisráð- herrann. Forstjóri grísku leyniþjónustunn- ar, Ioannis Korantis, sagði nefnd gríska þingsins í maí sl. að sú ákvörð- un Vodafone að aftengja búnaðinn hefði spillt fyrir rannsókn málsins. „Um leið og hugbúnaðurinn var af- tengdur var rofinn sá strengur sem hefði getað leitt til þeirra sem stóðu að hlerununum,“ sagði hann. Hann hefur jafnframt lýst því yfir að gríska leyniþjónustan beri ekki ábyrgð á Vodafone og Ericsson í vanda í Grikklandi Farsímar hundrað háttsettra manna hleraðir Forstjóri Vodafone í Grikklandi, George Kor- onias, hefur legið undir ámæli fyrir að aftengja hlerunarhugbúnaðinn, en það er talið hafa hindrað að sökudólg- arnir fyndust. Bill Zikou, forstjóri Er- icsson í Grikklandi, kom fyrir gríska þingnefnd til að bera vitni um hler- unarhneykslið. Hlerunarbúnaður í farsímum ýmissa háttsettra embættis- og stjórnmálamanna, eftir að laumast var inn í kerfi Vodafone í Grikklandi og hlerunarbúnaði komið þar fyrir, hefur valdið hneyksli er skekið hefur grísku þjóðina. Og dauði eins starfs- manns Vodafone er talinn geta tengst málinu sem jafnvel er talið að rekja megi til erlendrar leyniþjónustu. Atburðir í tímaröð Júní-ágúst 2004: Þeir sem hlera virkja a.m.k. einhverja af þeim 14 fyrirframgreiddu far- símum sem geta tengst símtöl- um frá meira en 100 farsímum, þar á meðal símum æðstu yf- irmanna lögreglu og varn- armála, ráðherra og forsætis- ráðherra. Janúar 2005: Notendur far- síma tilkynna vandkvæði við að senda sms-skeyti. Vodafone bið- ur Ericsson að kanna málið. Byrjun mars: Tæknimenn Er- icsson uppgötva hugbúnað í kerfi Vodafone, sem gerir kleift að fylgjast með símtölum. 8. mars: Yfirstjórnandi Voda- fone í Grikklandi skipar svo fyrir að búnaðurinn skuli aftengdur. 9. mars: Kerfisstjóri hjá Voda- fone finnst látinn í íbúð sinni. Lögreglan úrskurðar fyrst að um sjálfsvíg hafi verið að ræða, en saksóknarar rannsaka málið og tengsl þess við hleranirnar. Síðar sama dag hefur forstjóri Vodafone samband við ríkis- stjórnina og lætur vita af hler- unarhugbúnaðinum sem fannst. 11. mars: Gríska ríkisstjórnin hefur rannsókn á hlerunarmál- inu. 2. febrúar 2006: Gríska rík- isstjórnin gerir málið opinbert og að henni hafi ekki tekist að finna sökudólginn eftir 11 mán- aða rannsókn. Tilkynningin ýtir rannsókn þingnefndar og gríska fjarskiptaeftirlitsins úr vör. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ýmsir sérfræðingar telja að í hlerunarmálinu hafi erlend leyniþjónusta verið að verki, enda þurfi umfangsmikla hátæknikunnáttu til að koma hugbúnaðinum fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.