Morgunblaðið - 09.07.2006, Side 4
4 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Suðurlandsbraut 22
Glerárgötu 24-26
Sími 540 1500
Fax 540 1505
www.lysing.is
Sérð þú tækifæri á vexti?
Tækifæri leynast allsta›ar!
"fiegar flú hefur komi› auga á atvinnu-
tækifæri sem hentar flínum flörfum,
getum vi› a›sto›a›me› sérsni›inni
rá›gjöf í bland vi› persónulega fljónustu
sem byggir á sérflekkingu okkar í
fjármögnun atvinnutækja."
Sveinn fiórarinsson
Rá›gjafi, fyrirtækjasvi›
HÆTTAN á að einstaklingur fremji
sjálfsvíg er mest fyrstu tvær vikurn-
ar í gæsluvarðhaldi, eða einangrun.
Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði
Tímamóta, sem er fréttarit fanga á
Litla-Hrauni.
Í samtali við Tímamót segir Þór-
arinn Viðar Hjaltason, sálfræðingur
hjá Fangelsismálastofnun ríkisins,
að fyrstu tvær vikurnar í gæsluvarð-
haldi geti verið erfiðar, t.d. vegna
sviptingar frelsis, fráhvarfsein-
kenna, vímuefnaþarfar, lögregluyfir-
heyrslna, dóma og vægðarlausrar
fjölmiðlaumfjöllunar. Þá segir Þór-
arinn að fangaverðir geti gert ým-
islegt til að draga úr sjálfsvígshættu
fanga.
Fimm fangar hafa svipt sig lífi síð-
astliðin 30 ár. Þar af urðu þrjú sjálfs-
víg á mjög skömmum tíma árið 1998.
Í kjölfarið var nefnd sett á laggirnar
sem fór ítarlega í saumana á þessum
málum og hafa verið gefnar út reglur
sem fangaverðir eiga að starfa eftir
til að meta hvort fangar séu í sjálfs-
vígshættu.
„Almennt hefur komið í ljós að
sjálfsvígshætta eykst með aldri og
að aðeins meiri líkur eru á að karl-
menn svipti sig lífi en konur. Mestar
líkur eru þó á því ef einstaklingur
hefur áður reynt að svipta sig lífi eða
er með geðklofa, þunglyndi eða mis-
notar vímuefni,“ segir Þórarinn í
samtali við Tímamót.
Sjálfsvígsáhætta
mest fyrstu tvær
vikurnar í fangelsi
SPRENGT verður í gjánni sem
Suðurlandsvegur liggur um í Árbæ
í sumar og standa þær fram-
kvæmdir í tengslum við byggingu
mislægra gatnamóta á mótum Suð-
urlandsvegar og Vesturlandsvegar.
Gera má ráð fyrir minniháttar töf-
um á umferð meðan á þessum
framkvæmdum stendur, auk þess
sem íbúar og fyrirtæki í nágrenn-
inu hafa verið látin vita af því
hvernig að framkvæmdum verður
staðið.
Jarðvélar ehf. sjá um fram-
kvæmdir fyrir hönd Vegagerð-
arinnar. Heimilt er að sprengja á
morgnana milli klukkan 10 og 11 og
á kvöldin milli 22 og 23, þó ekki um
helgar. Veginum verður lokað fyrir
umferð á meðan og varað við
sprengingunum með slitróttu hljóð-
merki áður en sprengt er.
Atli Bragason, verkefnisstjóri hjá
Jarðvélum, sagði að búið væri að
sprengja nokkrum sinnum og það
hefði gengið mjög vel. Umferð-
artafir hefðu verið litlar, enda tíma-
setningar sprenginganna miðaðar
við þann tíma sem umferð væri
minnst. Vegurinn hefði verið lok-
aður í um fimm mínútur í senn
meðan sprengt væri og þeir sem
ekki gætu beðið á meðan gætu til
dæmis farið um Árbæinn.
Framkvæmdirnar tengjast bygg-
ingu mislægra gatnamóta Suður-
lands- og Vesturlandsvegar og
verður klettaveggurinn að vest-
anverðu færður til vesturs og lækk-
aður talsvert mikið, en hann hefur
verið mjög laus í sér og stundum
hrunið úr honum eftir að sprengt
var þar vegna lagningar Suður-
landsvegar á sínum tíma.
Jarðvélar hafa þrjá mánuði til
framkvæmdanna, en Atli sagði að
þeir vonuðust til að þurfa ekki að
nýta allan þann tíma og að truflanir
vegna framkvæmdanna yrðu sem
minnstar.
Morgunblaðið/Eyþór
Sprengt í ÁrbæjargjánniFJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐhyggst ekki draga úr skattlagningu
á eldsneyti samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB) sendi erindi þess
efnis til ráðuneytisins á vormánuð-
um.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, segir að erindinu hafi
ekki verið svarað formlega en þó hafi
ekki komið fram jákvæð viðbrögð.
Aðspurður hvort gripið verði til
einhverra aðgerða af hálfu félagsins
segir Runólfur það óráðið.
Runólfur bendir á að í fyrra hafi
menn spáð því að hækkun heims-
markaðsverðs á eldsneyti væri tíma-
bundin.
„Það eru hins vegar engar blikur á
lofti nú um að heimsmarkaðsverð
muni lækka. Það er fremur útlit fyrir
hækkun.“
Draga ekki úr skatt-
lagningu eldsneytis
!
"
#$% &#
' (
" )*& )*
*))
*$)
$$*&
&&
$& $
*$#
$$
# +,
Fjármálaráðuneytið um bensínverðið
NÓTASKIPIÐ Sigurður VE er bú-
ið að fá tæp 8.000 tonn af síld frá
því úthaldið byrjaði um 20. maí.
Undanfarið hefur síldin veiðst
djúpt norðaustur af Kolbeinsey.
„Það hefur gengið ágætlega hjá
okkur,“ sagði Kristbjörn Árnason,
skipstjóri á Sigurði VE, í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta er mjög
stór og falleg síld. Hún verður ekki
stærri held ég.“
Kristbjörn taldi engan vafa leika
á að síldin væri úr norsk-íslenska
stofninum og sagði að hún hefði öll
veiðst í íslensku lögsögunni. „Þetta
byrjaði Íslandsmegin við miðlínuna
milli færeysku smugunnar og Jan
Mayen-línunnar. Svo barst þetta
vestar og þar hvarf hún skyndilega
og fannst svo hér upp við landið.“
Búið er að leita mjög stóru svæði
fyrir norðan land en ekkert hefur
fundist þar af síld. Kristbjörn sagði
að dýpra væri kaldari sjór. Síldin
virðist því hafa haldið sig á
ákveðnu belti.
„Ég held að hún sé á svipuðum
slóðum og hún gekk á á árum áð-
ur. Kannski heldur lengra frá
landi. Við vorum síðast 40–50 míl-
ur norðaustur úr Kolbeinseynni.
Þar var svolítið af síld, en svo
hvarf hún þegar gerði norðanátt-
ina.“ Kristbjörn minntist þess að
fyrir nokkrum árum hefðu Fær-
eyingar verið að veiða síld djúpt út
af Norðausturlandinu. Þá hefði
hann verið á loðnuveiðum og vitað
af Færeyingunum ekki langt frá að
veiða síld.
Sigurður VE hefur landað nær
allri síldinni í sumar í Krossanesi
við Eyjafjörð. Farið var með einn
farm til Vestmannaeyja fyrir sjó-
mannadag og landað í heimahöfn.
En á að halda áfram?
„Við ætlum að skoða þetta núna
þegar norðanáttin gengur niður.
Þá er meiningin að fara út og vita
hvort við finnum eitthvað. Það er
óvíst að það verði neitt. Síldin fór
oft í leiðindaástand þegar hún var
orðin svona feit.“
Sigurður VE kominn með
tæp 8.000 tonn af síld
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Sigurður VE hefur fengið norsk-íslenska síld norðan við Kolbeinsey.