Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ V erðlaunin eru allra þeirra sem komið hafa að eða tengst hafa starfi skólans frá stofn- un hans árið 1987 og þau eru að sjálfsögðu mikil viðurkenning,“ segir Ellert Borgar og brosir. „Í Ártúnsskóla eru 180 nemendur frá 1. bekk og upp í 7. bekk. Við höfum ávallt haft það að leiðarljósi að öllum líði hér vel, jafnt nemendum sem starfsfólki, enda er það forsenda árangursríks starfs. Starfshætti sína byggir skólinn á ein- kunnarorðunum samvinna, traust og vinátta. Við leggjum sérstaka áherslu á jákvæðan og góðan starfsanda, sér- stöðu skólans og að hann sé fyrir alla nemendur. Með markvissri kennslu í lífsleikni leggjum við áherslu á að efla samskiptafærni nemenda allt frá upphafi skólagöngu auk þess sem við leitum fjölbreyttra leiða til þess að tryggja öflugt samstarf heimila og skóla. Það síðastnefnda hefur ávallt verið með eindæmum gott, við finn- um fyrir mikilli vinsemd og ég hef oft sagt, bæði í gamni og alvöru, að skól- inn sé í einstaklega foreldravænu um- hverfi.“ Ellert Borgar vill nú ekki gera mikið úr sínu ágæti sem skólastjóra en ummæli nokkurra fyrrverandi nemenda sem blaðamaður hefur hler- að og eru nú orðnir fullorðnir einstak- lingar eru mjög hlýleg. Þau ummæli gefa heldur ekki til- efni til þess að ætla að þú sért neinn ógnarstjórnandi? „Nei, ég er það nú ekki,“ segir Ell- ert og hlær. „Ég legg mikið upp úr já- kvæðum samskiptum, skilningi og velvilja. Það er eitt að ætla að stjórna sem stjórnandi og annað að stjórna sem leiðtogi. Sá sem ætlar að reyna að vinna sér sess leiðtogans verður að taka þátt og vera með. Hjá mér hefur skólinn haft forgang. Ég hef varið miklum tíma með nemendum mínum. Það er mér mjög mikils virði og til mikillar ánægju. Það er vissulega hægt að stjórna úr skrifstofum og segja öðrum að gera hitt og þetta en til þess að fá fólk til þess raunveru- lega að fylgja sér verður maður sjálf- ur að vera þátttakandi. Hér í Ártúns- skóla hefur ríkt það viðhorf að skólastarfið sé samstarfsverkefni.“ Prestur eða kennari Varstu alltaf ákveðinn í að leggja fyrir þig kennslu? „Það kom tvennt til greina, að verða prestur eða kennari,“ segir hann og hlær innilega. „Ég hef verið frekar félagslega sinnaður og haft gaman af mannlegum samskiptum. Nei, í alvöru talað þá var það eins og hver önnur tilviljun en þó blunduðu þessar tvær starfsgreinar sterkast í mér eftir landspróf og kennarastarfið varð ofan á. Ég lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1967 og fór þá austur á land og kenndi fyrsta árið eftir það við grunnskólann á Eskifirði og tók síðan við stjórn skólans. Þar var ég til vorsins 1972 þegar við hjón- in ákváðum að flytjast til Hafnar- fjarðar og um haustið hóf ég störf við Öldutúnsskóla þar sem ég kenndi til ársins 1978. Sama ár varð ég vara- bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og tók jafnframt við starfi skólafulltrúa sem þá reyndar hét fræðslustjóri Hafnarfjarðar.“ Þá hefurðu væntanlega komið meira að mótun skólastarfsins og framtíðarsýn? „Það var hluti af starfinu en allt skólahald í Hafnarfirði heyrði þá að verulegu eða öllu leyti undir Skóla- skrifstofuna. Þetta var erilsamt starf. Síðan komu fræðsluskrifstofurnar til sögunnar og þá fór hinn faglegi þátt- ur og kennararáðningar undir Fræðsluskrifstofu Reykjaness. Ég starfaði á Skólaskrifstofunni til ársins 1987, varð þá skrifstofustjóri á Fræðsluskrifstofu Reykjaness í nokkra mánuði enda gafst mér kostur á að taka við Ártúnsskóla sem þá var bara á teikniborðinu. Ég stökk á það og sé ekkert eftir því.“ Hvað heillaði þig við að taka að þér stjórn grunnskóla? „Að komast út á akurinn,“ segir Ellert Borgar einlægur. „Starfið sem skólafulltrúi eða skrifstofustjóri gaf mér ekki nóg og mér fannst ég þurfa að vera meira úti á akrinum. Á þeim árum var ég reyndar líka í pólitíkinni en engu að síður langaði mig að vinna með börnum og þeim sem standa að eða vinna í skólanum, kennurum, öðru starfsfólki, foreldrum og fleir- um. Ég vildi vera í þeirri hringiðu.“ Lífið er pólitík Er eitthvað líkt með starfi stjórn- málamannsins og skólastjórans? „Báðir verða auðvitað að tileinka sér færni í mannlegum samskiptum og bæði störfin gefa manni innsýn í líf fólks og veita oft tækifæri til beinnar og óbeinnar þátttöku. Stjórnunin sjálf er þó að vissu leyti gjörólík.“ Það var nú oft hasar þegar þú varst í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði. Nú hlær Ellert Borgar eins og sá sem öllu er vanur og svarar eins og stjórnmálamaður sem engu hefur gleymt en virðist sannarlega búinn að leggja vopnin til hliðar. „Ég var og er í Sjálfstæðisflokkn- um og var varabæjarfulltrúi kjör- tímabilið 1978–1982 og síðan bæjar- fulltrúi 1982–1986. Ég var hins vegar ekki sáttur við ýmislegt sem tengdist flokknum og flokksstarfi svo ég bauð mig ekki fram kjörtímabilið þar á eft- ir en gegndi þó ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í bæn- um. Ég kom síðan aftur inn í pólitík- ina árið 1990 og var þá kosinn í bæj- arstjórn. Kjörtímabilið 1994–1998 var hins vegar svolítið róstusamt. Við Jó- hann G. Bergþórsson, tveir af fjórum bæjarfulltrúum D-listans, vorum ekki alveg sáttir við framkvæmd flokksstarfsins og töldum hana að mörgu leyti á skjön við gefin loforð og stefnu. Við ákváðum því eftir að hafa, að okkur fannst, reynt að fá flokks- forystuna til að skilja okkar sjónar- mið að stíga til hliðar og mynda nýjan meirihluta með fimm bæjarfulltrúum Alþýðuflokks og störfuðum með þeim til loka kjörtímabilsins. Við sögðum okkur hins vegar aldrei úr Sjálfstæð- isflokknum. Í bæjarstjórnarkosning- unum 1998 blésum við með góðu fólki til sérframboðs og til þess að gera langa sögu stutta var maður einfald- lega blásinn út af hinu pólitíska skák- borði,“ segir hann og hlær við. „Við fengum þó yfir 600 atkvæði en það var ekki nóg til þess að ná manni inn. Þá ákvað ég, jafnvel þótt ég sé nú fæddur í nautsmerkinu og geti verið ákaflega þrjóskur, að mínum opin- beru pólitísku afskiptum væri lokið og ég hef staðið við það. Eftir á að hyggja var það líka viss pólitísk gæfa að lenda ekki einn og stakur í bæj- arstjórn. Því þótt það virðist duga sumum vel þá sýna dæmin að oftar en ekki hafa slíkir einstaklingar ákaf- lega lítið vægi.“ En lífið er auðvitað pólitík? „Já, mikil lifandi ósköp og ég fylg- ist mjög vel með pólitík og þekki all- vel til hennar. Í stjórnmálunum finnst mér ég oft greina þræði sem verið er að toga í bak við tjöldin en fólk al- mennt gerir sér ekki grein fyrir.“ Börn meira ein Ellert Borgar segir að sér finnist ánægjulegt hversu grunnskólar landsins standi fyrir margbreytileg- um gildum og að með tilfærslu þeirra til sveitarfélaganna hafi hver og einn þeirra orðið sjálfstæðari. „Skólarnir hafa færst nær því að vera eiginlegar þjónustustofnanir en áður. Skólinn var í bakgrunni alls mannlífs en nú er hann í forgrunni, ef hægt er að taka svo til orða. Margt hefur verið til bóta í þeim breytingum sem orðið hafa á skólastarfi en það eru ekki aðeins skólanir heldur þjóðfélagsgerðin sem hefur verið að taka breytingum. Þjóð- félagið hefur verið á alveg ofboðslegri ferð og skólarnir eru í linnulítilli að- lögun að þessum öru breytingum þjóðlífsins. Það er hins vegar mín skoðun að skólar megi og eigi að vera visst íhaldssamir í jákvæðustu merk- ingu þess orðs, því íhald er ekki það sama og afturhald. Íhald er í þessari merkingu kjölfesta skólans sem hann grundvallar starf sitt á. Það á ekki að kasta því fyrir róða sem vel gefst. Þó að allt sé breytingum undirorpið á ekki að breyta aðeins breytinganna Samvinna, traust og vinátta eru leiðarljósin Skrifstofa skólastjórans í Ártúnsskóla er ekki tákn um ægivald heldur söng, gleði og samræður. Þar ræð- ur ríkjum Ellert Borgar Þor- valdsson sem trúir á virka þátttöku allra sem að skól- anum koma og lýðræði en Ártúnsskóli hlaut íslensku menntaverðlaunin í ár sem veitt eru skólum sem sinnt hafa nýsköpun vel eða far- sælu samhengi í fræðslu- starfi. Unnur H. Jóhanns- dóttir ræddi við skóla- stjórann hógværa um skólastarfið, menntun í nútímaþjóðfélagi, pólitíkina og poppið. Morgunblaðið/Eggert Ellert Borgar Þorvaldsson skólastjóri Ártúnsskóla segir mikilvægt að mennta fólk sem hafi sterka sjálfsmynd, jarðfestu og sjálfsöryggi í ögrandi þjóðfélagi. ’Það kom tvennt til greina, aðverða prestur eða kennari‘ ’ Það er miklu auðveldara fyrir börn að læraljóð sem eiga sér lög og því kenni ég ljóð á þann hátt auk þess sem það er svo miklu skemmtilegra. ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.