Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 18

Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Flestir læknanemar vinna rann-sóknarverkefni sín á Land-spítala-háskólasjúkrahúsi,eða að minnsta kosti á Íslandi. Nokkrir hafa þó farið ótroðnar slóðir og flogið langar leiðir til að gera 10 vikna verkefni sem allir læknanemar framkvæma á þriðja ári í náminu. Seinustu ár hefur Þróunarsamvinnu- stofnun Íslands (ÞSSÍ) stutt sex læknanema til rannsóknarstarfs í Malaví en þar innir stofnunin af hendi þróunarstarf. Auk þess hefur ljós- móðurfræðinemi farið utan og gert lokaverkefni sitt þar. Verkefni nem- endanna er hluti af því að styrkja fag- lega hlið þróunarstarfsins í Malaví. „Þetta hefur gengið vel og það er engin spurning að það er gott fyrir nemendurna að kynnast aðstæðum sem eru ólíkar aðstæðunum á sjúkra- húsunum hér heima,“ segir Geir Gunnlaugsson læknir sem leiðbeinir íslensku nemunum sem fara utan. „Þetta hefur vakið mikinn áhuga hjá læknanemum og áhuginn fer stöð- ugt vaxandi. Nemendur hafa hingað til fengið fá tækifæri til að kynnast heilbrigðisþjónustu í þróunarlöndum en vaxandi skilningur er á mikilvægi þeirrar þekkingar,“ segir hann. Samningar hafa verið gerðir á milli ÞSSÍ og Háskólans til eins árs í senn. Árið 2003 fóru til Malaví þau Þórður Þórarinn Þórðarson og Sigríður Bára Fjalldal, tveimur árum síðar Eyþór Jónsson og Sigurður Ragnarsson og á þessu ári Berglind Eik Guðmunds- dóttir, Björg Jónsdóttir og Eva Lauf- ey Stefánsdóttir. Ekki spretthlaup heldur maraþon Malaví er að flatarmáli á stærð við Ísland og íbúar eru um 12 milljónir. ÞSSÍ hefur frá árinu 2000 stutt við uppbyggingu heilsugæslustarfs í suð- urhluta landsins, á svæði sem kallað er Monkey Bay og er í um þriggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborginni Lilongwe. Þar eru fimm heilbrigðisstofnanir en íbúar um 110.000. Geir bendir á að ÞSSÍ styðji þarna við þjónustu sem taki til sem svari þriðjungs af íslensku þjóð- inni. Aðstoð ÞSSÍ hefur meðal annars falist í byggingu nýs svæðissjúkra- húss í Monkey Bay, kaupum á sjúkra- bíl og öðru fyrir sjúkrahúsið og menntun faglærðs og ófaglærðs starfsfólks. Sjúkrahúsið er ríkisrekin stofnun og öll þjónusta er ókeypis. ÞSSÍ styður starfsemina en sam- kvæmt samningi við malavísku stjórnina er það í verkahring stjórn- valda að borga laun starfsmanna og lyf. ÞSSÍ hefur síðan haft íslenskan lækni og ljósmóður á staðnum til að styðja við og efla daglegt starf heilsu- gæslunnar á svæðinu. Auk þess að styrkja íslenska háskólanema til rannsókna hefur ÞSSÍ stutt mala- víska læknanema. „Við reynum að draga samstarfs- fólk okkar í Malaví sem mest inn í þetta. Samvinna er mikilvæg til að tryggja árangur til langframa og ÞSSÍ einbeitir sér fyrst og fremst að því að reyna að styrkja innviðina í Malaví,“ segir Geir Gunnlaugsson og bætir við: „Þetta er ekki spretthlaup heldur maraþon, og það verður að hafa þolinmæði. Verkefnið er hins vegar spennandi og lofar góðu.“ Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson Margvíslegur varningur til sölu á markaði í suðurhluta Malaví. Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson Börn að leik í þorpi skammt frá Monkey Bay þar sem háskólanemar frá Íslandi hafa dvalið við rannsóknarstörf. Bólusetningar, fæðingar og mæðravernd eru meðal þess sem íslenskir háskólanemar hafa rannsakað í Malaví í suðausturhluta Afríku. Frá árinu 2003 hafa sex íslensk- ir læknanemar og einn ljós- móðurfræðinemi haldið ut- an, með fulltingi Þróunar- samvinnustofnunar Íslands. Sigríður Víðis Jónsdóttir spurði tvo læknanema spjörunum úr. sigridurv@mbl.is    ! ) $  Íslenskir háskólanemar gera rannsóknir í Malaví Sigurður Ragnarsson lauk fjórðaári í læknisfræði nú í vor og fórtil Malaví í fyrra. Hann hafði áhuga á að kynnast heilbrigð- isstarfsemi í fátæku ríki en áhuginn átti einnig rætur til þess að rekja að sem barn og unglingur bjó hann í Kenýa. Foreldrar hans unnu sem trúboðar í vesturhluta Kenýa og hann var þar og í höfuðborginni Nai- róbí í samtals 11 ár. Sem barn talaði Sigurður swahili en þegar hann flutti aftur til Kenýa á unglingsárunum, eftir að hafa verið á Íslandi í sjö ár, þurfti hann að læra tungumálið upp á nýtt. Swahili- kunnáttan átti eftir að koma sér vel því hún hjálpaði Sigurði við að ná tökum á algengum orðum í chichewa, opinbera tungumálinu í Malaví. „Tungumálin eru af sama orðstofni og ég gat því fljótlega farið að segja einhver orð þegar ég var í Malaví. Það féll í góðan jarðveg,“ segir hann hlæjandi. Verkefni Sigurðar í Malaví sneri að börnum á aldrinum tveggja mán- aða til fimm ára. Hann fylgdist með komu þeirra á sjúkrahúsið í Monkey Bay, kannaði þjónustuna við þau og mat hversu viðeigandi alþjóðlegir vinnuferlar sem notaðir eru við með- höndlun veikra barna, eru við að- stæður sem þessar. Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin (WHO) útbjó vinnuferlana og þeir eiga að hjálpa til í baráttunni gegn barnadauða. Tæplega helmingur allra þeirra sem leita eftir þjónustu sjúkrahússins í Monkey Bay eru börn. Engir hanskar, engin aðgerð Árið 2000 staðfestu öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna átta markmið, svokölluð þúsaldarmarkmið, sem miða að því að vinna verulega gegn fátækt og afleiðingum hennar fyrir árið 2015. Fjórða þúsaldarmark- miðið er að minnka barnadauða um 2/3 á fimmtán ára tímabili. Sigurður bendir á að af dauðsföllum barna yngri en fimm ára eigi 98–99% sér stað í þróunarlöndum. „Flest dauðsföllin eru af völdum vandamála tengdra barnsburði og sjúkdómum á nýburaskeiðinu. Þar á eftir koma lungnabólga, nið- urgangur, malaría og mislingar. Vannæring er undirliggjandi orsök í rúmlega helmingi tilvika. Rann- sóknir sýna að með einföldum að- gerðum á borð við brjóstagjöf, notk- un sykursaltlausnar við niðurgangi og viðeigandi lyfjameðferð við bakt- eríusýkingum og malaríu, megi koma í veg fyrir meira en helming þessara dauðsfalla,“ segir hann. Ein af niðurstöðum rannsóknar hans var að skráðum sjúkdómaum barnanna á svæðinu við Monkey Bay svipar til þess sem almennt gerist í þróun- arlöndum. Önnur ályktun Sigurðar er að mik- ilvægt sé að halda áfram að hafa þjónustuna ókeypis. „Ríkisreknu sjúkrahúsin í Malaví bjóða upp á ókeypis læknisþjónustu. Það er mjög metnaðarfullt enda er Malaví með fá- tækari ríkjum heims. Mörg önnur þróunarlönd hafa byrjað á þessu en síðan bakkað með það. Reynsla ná- grannaþjóða sýnir að þar með sitja heima þeir fátækustu meðal fátækra. Líklegt er að það eigi einnig við á Monkey Bay svæðinu,“ segir hann. Sigurður segir sorglegt hvað þjón- ustan á sjúkrahúsunum sem hann kynntist í Malaví hafi oft strandað á einföldum atriðum. Skortur á hönsk- um hafi til dæmis leitt til þess að ekki hafi verið mögulegt að gera skurð- aðgerð. Hann segir lyfjaskort einnig hafa verið vandamál. Nsima og úgali í matinn En ætli Sigurður hafi fundið eitt- hvað líkt með fólkinu sem hann hitti í Malaví og því sem hann umgekkst norðar í Kenýa? „Það má eiginlega segja að á báð- um stöðum sé fólk opið og mjög gest- risið. Margt er líkt með ýmsum að- stæðum en landfræðilega eru staðirnir ólíkir. Í Malaví er stórt og mikið vatn, Malavívatn, og fólkið lifir mikið á fiski. Í Kenýa þarf fólk hins vegar frekar á því að halda að eiga akur til að geta ræktað maís. Í Malaví veiðir fólk fisk, selur hann og notar peningana til að kaupa maís. Á báðum stöðum er meginuppistaðan í fæðunni þykkur maísgrautur sem kallast nsima í suðurhluta Malaví en úgali í Kenýa. Með þessu er síðan borðað grænmeti eða kjöt en í Malaví aðallega fiskur,“ segir Sig- urður. Aðspurður segist hann kunna vel við sig jafnt á Íslandi sem í Kenýa og Malaví. „Til að byrja með er skrýtið að fara á milli en lífið í landinu venst fljótt þegar á staðinn er kominn. Það var til dæmis furðulegt að flytja aft- ur til Kenýa þegar ég var búinn með Hagaskóla og á leið í MR. Síðan var skrýtið að aðlagast lífinu á Íslandi nokkrum árum síðar og fara í Há- skóla Íslands. Þótt ég væri búinn að vera í mörg ár í Kenýa var mikil upp- lifun að fara til Malaví og gera rann- sóknina,“ segir hann og bætir við: „Það var frábært að fá að vera hluti af samfélaginu í Malaví í þennan stutta tíma.“ Kunnátta í swahili hjálpaði Sigurður Ragnarsson ræðir við ljósmóður á sjúkrahúsinu þar sem hann gerði rannsóknina. Verkefnið sneri að börnum á aldrinum 2 mánaða til 5 ára. Sigurður Ragnarsson bjó í mörg ár í Kenýa Ríkisreknu sjúkra- húsin í Malaví bjóða upp á ókeypis lækn- isþjónustu. Það er mjög metnaðarfullt enda er Malaví með fátækari ríkjum heims.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.