Morgunblaðið - 09.07.2006, Page 19

Morgunblaðið - 09.07.2006, Page 19
Kona og barn við Malavívatn sem liggur eftir landinu endilöngu. Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson Mæðravernd á sjúkrahúsi í Malaví. Verkefni nemendanna frá Íslandi hafa meðal annars snúið að mæðravernd og því að styrkja faglega hlið þróunarstarfs ÞSSÍ. Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson Náttúrufegurð í Malaví, á leið frá Monkey Bay til höfuðborgarinnar Lilongwe. Ljósmynd/ Berglind Eik MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 19 Útsalan hefst í fyrramálið v/Laugalæk • sími 553 3755 Berglind Eik Guðmundsdóttir fórtil Malaví í byrjun mars ogkom heim um miðjan apríl. Hún og vinkona hennar úr lækn- isfræðinni, Björg Jónsdóttir, vissu að aðrir læknanemar höfðu farið til Malaví og þótti það spennandi. „Okkur fannst spennandi að sjá eitthvað nýtt og að kynnast einhverju allt öðru en við værum vanar. Sjálf hafði ég til dæmis aldrei farið annað en til einhverra Evrópuríkja,“ segir Berglind sem er 22 ára og fædd og uppalin í Garðabænum. Hún bjó í Finnlandi í fimm ár og lauk nú í vor þriðja ári sínu í læknisfræði. Verkefni Berglindar snerist um að fylgjast með hvernig meðferð nýburum var veitt á svæðissjúkrahúsinu í Monkey Bay. Börnin voru fjögurra vikna og yngri. ÞSSÍ lagði fram tillögu að verkefninu og fannst að sögn Berg- lindar mikilvægt að þetta væri athug- að. „Börnin voru mjög misveik. Ný- burarnir voru langflestir með hita og talið að þeir væru með bakteríusýk- ingu, neonatal sepsis, en greining var þó ekki staðfest með blóðprufu. Börn um allan heim láta raunar lífið úr þessari sýkingu, einnig á Vest- urlöndum. Þarna var hlutfallið hins vegar miklu hærra,“ útskýrir Berg- lind. Eftir heimkomu hlaut hún verð- laun fyrir kynninguna á verkefninu á rannsóknardögum 3. árs læknanema. Ekkert hátæknisjúkrahús … En hvernig þótti Berglindi að kynnast heilsugæslu við þessar að- stæður? „Þetta var mjög athyglisvert, það er ekki hægt að segja annað. Á sjúkrahúsinu í Monkey Bay eru engir læknar en hins vegar svokallaðir læknatæknar með nokkurra ára reynslu. Þetta var náttúrlega töluvert öðruvísi en þau sjúkrahús sem ég er vön og alls ekkert hátæknisjúkra- hús!“ svarar hún glettin. „Þarna voru tæplega 70 rúm, göngudeild og rannsóknarstofa. Á Ís- landi er allt sem á sér stað á sjúkra- húsinu skráð í sjúkraskýrslur; ein- kenni, meðferð, útkoma og annað. Þarna var allt handskráð og skýrslur oft ekki skoðaðar aftur. Kennitölur þekktust ekki og ekki var hægt að leita að upplýsingum nema fara hreinlega í gegnum allar sjúkra- skrárnar. Af þessum sökum voru flest börn með litlar bækur þar sem upplýsingar um þau voru skráðar: Fæðingardagur, bólusetningar, þyngd ef barnið fæddist á sjúkrahúsi og hafði verið vigtað og svo fram- vegis. Mæðurnar geymdu síðan bæk- urnar. Annað sem vakti athygli mína var að fyrir utan sjúkrahúsið var æv- inlega hópur af ættingjum þeirra sem lágu inni. Þeir komu á staðinn til að sinna fólkinu sínu, elda mat handa þeim og vera hjá þeim sem voru veik- ir. Einnig var skrýtið að upplifa að lyfjasendingar bárust oft óreglulega og þá voru ákveðin lyf eins og pens- ilín, sem flestir nýburanna fengu, ef til vill ekki til í nokkra daga. Sam- göngur þarna eru líka erfiðar og flestir fara fótgangandi ferða sinna. Margir höfðu gengið langar leiðir þegar þeir loksins komu á sjúkra- húsið. Einnig kom fyrir að heilsu- gæslustarfsfólk komst ekki út í þorp- in til að bólusetja börn, þar sem rigningar höfðu eyðilagt vegi,“ segir Berglind Eik. Ólíkar árstíðir miðað við Ísland Þær stöllur Berglind Eik og Björg Jónsdóttir bjuggu saman í þorpinu Chirombo, smáspotta frá sjúkrahús- inu í Monkey Bay. „Þarna vorum við í fínu húsi með góðan aðbúnað. Við vorum til dæmis með rafmagn en almennt hefur fólk það ekki á þessum slóðum. Við vorum líka með aðgang að bíl. Þarna við vatnið eru þrír Íslendingar á vegum ÞSSÍ og við vorum í mjög góðum höndum. Fólkið í þorpinu tók okkur vel og starfsfólkið á sjúkrahúsinu var mjög hjálplegt,“ segir hún. Árstíðirnar í Malaví eru ólíkar því sem Berglind á að venjast á Íslandi. Þegar hún var úti í mars og apríl var til dæmis regntímabil. Vinnudag- urinn var frá hálf átta til hálf fimm og um sexleytið skall á svarta myrkur. „Þar sem fæstir hafa rafmagn verður mjög dimmt eftir að sólin sest. Flestir fara að sofa á milli átta og níu á kvöld- in en þeir vakna líka við sólarupprás klukkan fimm …“ segir hún sposk. Sérstaka athygli Berglindar vakti hversu víða var hægt að kaupa sér kók, þrátt fyrir að langt væri á milli verslana með úrval vörutegunda. „Í Monkey Bay var ein lítil búð með helstu nauðsynjum en alls staðar var hins vegar hægt að komast yfir Coca Cola.“ Bólusetningar bjarga miklu Berglind Eik segist viss um að reynslan frá Malaví muni nýtast sér í námi og starfi. „Þetta var mjög áhugavert og það er náttúrlega gott að sjá annan aðbúnað en maður er vanur og reyna að skilja aðra siði og venjur. Maður hefur heyrt ótal margt um ýmis þróunarlönd en það er öðru- vísi að sjá það með eigin augum,“ seg- ir hún og tekur dæmi: „Ef ekki eru til lyf á sjúkrahúsinu í dag, eru einfald- lega ekki til lyf og þá nær það ekkert lengra. Hins vegar kemur líka á óvart hversu margt er hægt að gera með tiltölulega litlu fjármagni og góðu skipulagi, til dæmis með því að bólu- setja öll börn og þungaðar konur. Hægt er að bjarga mörgum manns- lífum með ýmsum ódýrum lausnum sem eru þekktar og vitað er að virka.“ Kókflöskur og lyfja- birgðir sem klárast Berglindi Eik Guðmundsdóttur fannst spennandi að kynnast einhverju nýju Þar sem fæstir hafa rafmagn verður mjög dimmt eftir að sólin sest. Flestir fara að sofa á milli átta og níu á kvöldin en þeir vakna líka við sólarupprás klukkan fimm … Berglind Eik Guðmundsdóttir prófar að halda á barni með sama hætti og konur gera þar sem hún dvaldi í Malaví. Áhorfendur voru um 100 tals- ins og skemmtu sér konunglega!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.