Morgunblaðið - 09.07.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 25
Græni hund-
urinn Puppy
hefur hvorki
augu né eyru en
það gefur honum þann
hæfileika að geta alveg
eins verið hestur eða
jafnvel kýr.
Ítalska framleiðslufyrirtækiðMagis kynnti nýja ævintýra-lega barnalínu á síðasta ári.Magis er þekkt fyrir fram-sækna hönnun og framleiðslu-
tækni og litríkar vörur úr polypla-
stefnum. Fólk tengir börn og hönnun
ekki endilega saman í fyrstu og við
höldum jafnvel að börn geri ekki kröf-
ur og geti leikið sér með hvað sem er.
Þegar um vörur sem ætlaðar eru
börnum er að ræða virðist markhóp-
urinn oft frekar vera þeir fullorðnu
því það eru jú þeir sem borga. Til
dæmis þegar á að kaupa barnamat
smakka foreldrarnir yfirleitt líka
matinn og eru líklegri til að kaupa það
sem þeim finnst gott burtséð frá því
hvað hentar barninu best. Eins er
þegar kemur að leikföngum.
Hillurnar í dótabúðunum svigna
undan dóti sem virðist eingöngu hafa
verið framleitt í sem sterkustum lit-
um til að vera nógu áberandi í hill-
unni. Gæðin sitja á hakanum og
barnaherbergin fyllast af lélegu dóti
sem endist ekki út fyrsta aldursárið.
Me too-barnalínan frá Magis
Með Me too-barnalínunni frá Mag-
is kveður við nýjan tón og eru hlut-
irnir hannaðir sérstaklega fyrir börn
með þarfir þeirra að leiðarljósi og
gæðin í fyrirrúmi. Átta hönnuðir
unnu vörur fyrir línuna og hafa þeir
allir komið við sögu áður hjá Magis en
þeir eru Eero Aanio, Björn Da-
hlström, El Ultimo Grito hönnunar-
stúdíó, Martí Guixé, Enzo Mari, Jav-
ier Mariscal, Satyendra Pakhalé og
Marcel Wanders. Til Me too teljast
leikföng og húsgögn og einnig fatn-
aður fyrir börn og er hugmyndin að
þessari línu runnin undan rifjum eig-
anda Magis, Eugenio Perazza. Hann
var að leita að góðu vinnuborði handa
tveggja ára barnabarni sínu og við
leitina fór hann í gegnum fjöldann all-
an af misgóðum og misfallegum hús-
gögnum og ákvað að framleiða sjálfur
barnalínu. Um það bil 20 vörur – leik-
föng, húsgögn og fatnaður – hafa þeg-
ar litið dagsins ljós og er áætlað að
fylgja þeim eftir með fleiri vörum.
Hönnuðirnir unnu náið með Edw-
ard Melhuish, prófessor við Birk-
beck-háskóla í London, sem er sér-
fræðingur í þroskaferli barna.
Melhuish tók þátt í hönnunarvinn-
unni frá byrjun, fór yfir allar tillögur
og samþykkti aðeins þær hugmyndir
sem hefðu uppbyggileg áhrif á þroska
og jákvæð áhrif á hegðun barna.
Gengið var út frá því að börn hefðu
sérstakar þarfir aðrar en fullorðna
fólkið og að þau hefðu sinn tilverurétt
í samfélagi við hina fullorðnu en væru
ekki bara viðhengi. Me too eða Ég
líka, segir okkur beinlínis: Ég er hér
líka og ég á skilið mitt pláss. Hönn-
uðirnir reyndu að hafa í huga að börn
eru endalaust að uppgötva og eru
fróðleiksfús en horfa um leið gagn-
rýnum augum á það sem þau sjá og
ekki þýðir að bjóða þeim hvað sem er.
Skapandi hugsun
Hönnuðirnir gengu út frá því að
hægt yrði að nota hlutina á fleiri en
einn veg og ýta undir skapandi hugs-
un hjá börnunum með því að bjóða
upp á möguleika.
Trioli-stóllinn eftir Eero Aarnio er
einfaldur og skemmtilegur og hægt
að nota á nokkra vegu. Lagið á honum
er hálfur sívalningur með setu sem er
staðsett fyrir ofan miðju og þannig
nást tvær sethæðir eftir því hvernig
stólnum er snúið. Hærra sætið hentar
til að sitja við borð og sjá vítt yfir
meðan í lægri setunni nær stólbakið
yfir höfuð og er þannig hægt að fela
sig inni í sívalningnum. Svo er hægt
að leggja stólinn niður og sitja hann
eins og hest.
Eins er með litla græna hundinn
Puppy en hann má alveg eins nota
sem hest því einfalt formið býður upp
á möguleika á að hann sé hvaða
kynjaskepna sem er. Puppy hefur
verið svo vinsæll að hann er eini hlut-
urinn í línunni sem er líka framleidd-
ur í fullorðins stærð.
Stóllinn Julian eftir Javier Mariscal
er lítill stóll sem hægt er að sitja í ann-
aðhvort fram eins og í venjulegum
stól við borð eða aftur og þá er hann
orðinn hestur eða hundur eða einhver
ævintýraskepna. Þessa hluti má alla
nota utandyra líka þar sem þeir eru
úr plasti sem eykur við notagildi
þeirra.
Fleiri hlutir í línunni voru ætlaðir
til að virkja krakkana í leik eins og til
dæmis fótboltalímband og stórt gólf-
púsluspil.
Fótboltalímbandið eftir Martí Gu-
ixé er límband með svörtum og hvít-
um sexhyrningum eins og munstrið á
venjulegum fótbolta þannig að þegar
það er vafið saman í kúlu er hægt að
búa til sinn eigin fótbolta í þeirri
stærð sem hentar hverju sinni. Puzzle
Carpet eftir Satyendra Pakhalé er
púsluspil úr einingum sem falla sam-
an á nokkra mismunandi vegu og á að
nota það á gólfinu. Hægt er að raða
þeim saman í heilt teppi eða gera
langan orm sem hlykkjast um allt hús
eða í allskonar önnur form og koma
einingarnar með vatnsmunstri, græn-
ar eins og gras eða gular eins og eyði-
merkursandur allt eftir því hvaða
stemningu á að skapa hverju sinni.
Friðhelgi einkalífsins
Barnaherbergið er heimavöllur
barnsins og þar eyðir það miklum
tíma og ætti það að vera metnaður
foreldra að innrétta þau með hlutum
sem eru sérstaklega hannaðir fyrir
börnin hvort sem það eru húsgögnin
eða leikföng. Ladrillos er heitið á
hillukerfi í herbergið eftir Javier
Mariscal en það sett saman úr átta
mismunandi hilluberum í ýmsum
formum og litum og svo hillum sem
smellt er á. Það er hægt að raða hill-
unum saman á mismunandi vegu og
líka leika sér með hilluberana staka
því þeir eru í skemmtilegum fígúra-
tívum formum og litum. Barnið getur
tekið þátt í að skipuleggja herbergið
og hvernig gengið er frá dótinu með
því að setja hillusamstæðuna saman
eins og það vill.
Marcel Wanders hannaði vinnu-
borð með holum gegnsæjum borðfót-
um þar sem má stinga teikningum og
öðru dóti. Þannig er hægt að setja
nýjan og nýjan svip á vinnuplássið í
herberginu hvort sem hugsunin er að
skreyta borðið beinlínis eða bara að
nota geymsluplássið fyrir dót. Á borð-
plötuna eru hönnuð mismunandi
munstur eða teikningar sem hægt er
að nota í allskonar spilum og þá jafn-
vel búa til spil og leiki í kringum
munstrið.
Annað sem skipti hönnuðina miklu
máli var að bera virðingu fyrir einka-
lífi barna og gera ráð fyrir að þau
þyrftu sinn frið og sitt pláss og hefðu
möguleika á að búa sér til þetta pláss.
Nido er einskonar hellir eða hreið-
ur til að skríða inn í og fela sig eða til
að fá næði. Innan í loftinu má sjá
munstur og botninn er upphleyptur
eins og gras. Hönnuðurinn Javier
Mariscal vill gera ráð fyrir að
krakkar eigi einkalíf og hafi sinn
leynistað til að vera í friði. Það sama
er upp á teningnum hjá Björn Da-
hlström sem hannaði skilvegg eða
tjald sem hann kallar My space eða
mitt pláss. Börnin geta þá afmarkað
ákveðið pláss fyrir sig með þessari
girðingu því stundum getur verið
gott að skipta upp leiksvæðinu
eða herberginu sínu. Skilvegg-
urinn er framleiddur með mis-
munandi munstri á og það má
líka leika sér með hann utan-
dyra þar sem efnið er vatns-
helt. Dahlström hannaði
einnig My house eða húsið mitt,
sem byggist á sömu hugmynd, þ.e. að
búa sér til helli eða hús til að leika sér
inni í. Útkoman er einföld, borð-
dúkur með kastalamunstri
sem fellur yfir borðið alveg
niður í gólf og myndar
hús. Svo skríður
maður bara inn í og
er orðinn konungur í sínum eigin
kastala.
Leikföngin eru endingargóð
en allir hlutirnir eiga það
sameiginlegt að vera að
einhverjum hluta eða al-
veg unnir úr polyethelin
og polypropilyn sem
Magis hefur sérhæft sig í
að vinna með. Formin eru
mjúk og vinaleg og einföld og
sama má segja um litina sem eru oftar
en ekki frumlitirnir, einfaldir og
bjartir. Magis ábyrgist gæðin og ættu
leikföngin að geta erfst niður systk-
inaröðina sem er eftirsóknarvert í
dag þegar ending hluta er orðinn
svo lítil og mikið magn leikfanga fer
um hendurnar á krökkunum og
staldrar stutt við. Með Me too-lín-
unni læra krakkarnir því að bera
virðingu fyrir dótinu sínu því það
endist og fylgir þeim gegnum árin.
Nýr tónn í hönnun fyrir börn
Í hlutarins eðli | Það vekur
athygli þegar frægir
hönnuðir og fyrirtæki beina
sjónum sínum að börnum.
Ragnheiður Tryggvadóttir
fjallar um nýja og
forvitnilega barnalínu.
Trioli stóllinn eftir Eero Aarnio er sérlega skemmtilegur því að honum má snúa á ýmsa vegu og gefa honum nýtt hlutverk.
Morgunblaðið/Eyþór
Fötin í Me too línunni ýta líka undir
skapandi leik og hugsun en á þeim eru
eins og lítil hólf og vasar til að lauma í
leyndarmálum eða geyma smáhluti.
Á stuttermabolunum er til dæmis
leikur með tölur, sem eru á hvolfi
þannig að þær snúi rétt þegar sá,
sem klæðist flíkinni lítur niður.
Höfundur er vöruhönnuður.
Úrval af eignum hjá borginni Burgas við Svartahafið
Nálægt Sunny Beach sem er stærsti sólarbær við Svartahafið.
Mikil sala og miklar hækkanir framundan. Búlgaría er á leið í ESB í janúar 2007 og er spáð
mikilli verðhækkun á eignum. Samkvæmt spám er talið að Búlgaría verðið árið 2015
orðinn mest sótti ferðamannastaður Evrópu.
Verðlag í Búlgaríu er ótrúlega lágt en gæðin samt frábær í mat og þjónustu.
Tvær ferðskrifstofur eru með beint flug í sumar til Búlgaríu:
www.terranova.is og www.apollo.is
5 daga skoðunarferð verður farin í lok júlí og takmarkast við 20 manns.
Þeir sem kaupa eignir af Proxima fá ferðina og hótelið endurgreitt.
Proxima finance ltd. er rekið af traustum íslenskum aðilum sem starfrækja skrifstofu í
Burgas og hafa mikla þekkingu á búlgörskum fasteignamarkaði.
Þetta er frábært tækifæri til að kaupa eignir á réttum tíma þar sem stór fjárfestingarfélög
frá t.d. Spáni, Bretlandi og öðrum Evrópulöndum eru að undirbúa fjárfestingar í Búlgaríu.
Aðstoðum fjárfesta við að finna réttu tækifærin!
Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson, sölufulltrúi Akkurat ehf.,
í símum 595-5000 og 822-7300.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
S: 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
SARAKIS - 2 ÍBÚÐIR TIL SÖLU
158 FM HVOR ÍBÚÐ, 1. HÆÐ Á HVORUM ENDA
MIKIÐ ÚRVAL EIGNA FRÁ
900 – 1200 EVRUR Á FM.
BÚLGARÍA – FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI
– Skoðunarferð –
SOZOPOL
BUDJAKA
SAROFO
IN
SA
RA
KE
8
ÍB
ÚÐ
IR
TI
L
SÖ
LU
BUDJAKA - 10 RAÐHÚS
SE
LT
!
SE
LT
!
SE
LT
!
SE
LT
!
SE
LT
!
TI
L
SÖ
LU
TI
L
SÖ
LU
TI
L
SÖ
LU
TI
L
SÖ
LU
TI
L
SÖ
LU
SE
LT
!
11
ÍBÚ
ÐIR
SE
LT
!
13
ÍBÚ
ÐIR
SE
LT
!
8 Í
BÚ
ÐIR