Morgunblaðið - 09.07.2006, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Á mánu-daginn lést 41 og 39
slösuðust þegar
neðan-jarðar-lest fór út af
sporinu í borginni Valencia á
Spáni. Talið er að lestin hafi
verið á nær tvö-földum
leyfilegum hámarks-hraða
þegar hjól gaf sig undir
fremsta lestar-vagninum.
Lestar-stjórinn reyndist vera
á meðal látinna og er nú verið
að greina þær upplýsingar
sem svarti kassi lestarinnar
geymir. Meðal annars er
reynt að staðfesta að lestin
hafi ekið of hratt en
stéttar-félag járn-brautanna
telur ólíklegt að svo hafi
verið.
41 fórst í
lestarslysi
í Valencia
Seðla-banki Íslands hækkaði
á fimmtu-daginn stýri-vexti um
0,75% til að draga úr þenslu í
efnahags-lífinu og spáir nú
11% verð-bólgu á síðasta
fjórðungi þessa árs og fram á
mitt ár 2007. Viðbrögð við
vaxta-ákvörðun
Seðla-bankans hafa verið
misjöfn en forsvars-menn
Samtaka atvinnu-lífsins (SA)
og Alþýðu-sambands Íslands
(ASÍ) hafa fordæmt
vaxta-hækkunina og segja
hana munu framkalla harða
lendingu í hag-kerfinu. Í
gagnrýninni kemur fram að
óraunsætt sé hjá Seðla-banka
að spá aukningu í
íbúða-framkvæmdum á milli
ára og að svona mikil hækkun
sé óþörf og muni gera
lang-tíma kjara-samninga
erfiðari í framtíðinni. Davíð
Oddson, formaður
banka-stjórnar
Seðla-bankans, útilokaði ekki
frekari vaxta-hækkanir en
næsta ákvörðun verður tekin í
ágúst í stað september.
Forsvarsmenn
SA og ASÍ spá
harðri lendinguAð minnsta kosti 22
Palestínu-menn og einn
ísraelskur hermaður féllu í
átökum á Gaza svæðinu og
Vesturbakkanum á
fimmtu-daginn. Fleiri tugir eru
slasaðir og er óttast að enn
fleiri hafi fallið en Ísraelar
réðust inn á svæðið fyrir
skömmu til að hefna fyrir rán
palenstínskra vígamanna á
ísraelskum hermanni í
síðustu viku.
Hafa árásirnar verið
fordæmdar en Ismail Haniya,
forsætis-ráðherra Palestínu,
sagði þær glæp gegn
mann-kyninu og óskaði eftir
aðstoð erlendra ríkja svo
þrýsta mætti á Ísraels-menn
um að draga herlið sitt
tilbaka. Ísraels-menn segjast
hinsvegar munu draga herlið
sitt tilbaka þegar
hermanninum verður skilað
og eldflauga-árásum á Ísrael
hætt.
Mannfall
eykst á
Gaza
George Bush, fyrrverandi
forseti Banda-ríkjanna, hitti
Ólaf Ragnar Grímsson,
forseta Íslands, á
blaðamanna-fundi á
þriðju-daginn en hingað kom
hann til að fara í laxveiði í
boði Orra Vigfússonar,
formanns Verndar-sjóðs
villtra laxa-stofna (NASF).
Ólafur Ragnar sagði íslensku
þjóðina kunna vel að meta
vináttu Bush sem kysi að
dvelja hér á Íslandi á
þjóðhátíðar-degi
Banda-ríkjanna sem haldinn
var hátíðlegur 4. júlí í 230.
sinn síðast-liðinn þriðju-dag.
Bush sagðist ekki vilja tjá
sig um viðkvæm mál af
tillitssemi við son sinn,
George W. Bush sem er
núverandi Bandaríkja-forseti
en sagðist þó hafa miklar
áhyggjur af stöðu mála í
Mið-Austur-löndum og
alvarlegum átökum
Palestínu-manna og Ísraela.
„Ekkert jafnast á við að
landa 10-15 punda laxi,“
sagði Bush og ljóstraði upp
því leyndar-máli að hann yrði
við veiðar í Selá. Ólafur
Ragnar tók fram að
uppljóstrun þessi væri ekki
boð til fjölmiðla um að
fylgjast með Bush að veiðum
enda yrði öryggisgæsla mikil í
kringum forsetann
fyrrverandi.
George Bush í
laxveiði á Íslandi
George Bush við veiðar.
Ljósmynd/Bjarki Björgólfsson
Orri Vigfússon, George Bush og Vigfús Orrason leiðsögumað-
ur forsetans við Selá. Bush reyndist fengsæll veiðimaður.
Frakkar og Ítalir munu í dag
leika til úrslita um
heims-meistara-titilinn í
knatt-spyrnu í Berlín í
Þýskalandi. Zinedine Zidane
mun leika síðustu leiki ferils
síns á heims-meistaramótinu
en það var einmitt hann sem
tryggði Frökkum sigur gegn
Portúgölum þegar hann
skoraði eina mark leiksins úr
víta-spyrnu og kom liði sínu
þar með í úrslit. Frakkar urðu
heims-meistarar síðast árið
1998 eftir sigur á heimavelli
en Ítalir hafa ekki orðið
heims-meistarar síðan 1982.
Frakkar og Ítalir
leika um HM-gullið
Reuters
Fyrir fjórum árum varð
Brasilía heimsmeistari.
Á föstu-daginn hafði Jón Eggert
Guðmundsson gengið meira en 1.417 km
leið eftir strand-lengju landsins en Jón hóf
göngu sína kringum landið í fyrra og hyggst
ljúka henni í ágúst. Með göngu sinni í sumar
mun hann slá met Reynis Péturs
Ingvarssonar en hann gekk hring-veginn eftir
þjóðvegi 1 sumarið 1985. „Þetta er
söfnunarganga fyrir Krabba-meinsfélag
Íslands,“ segir Jón þegar hann er spurður um
tilgang ferðarinnar.
Jón, sem ætlar að ljúka göngunni á
menningar-nótt, talaði við Reyni Pétur áður en
hann lagði af stað í gönguna. „Hann sagði að
hann myndi lifa sig svo mikið inn í
augna-blikið að hann myndi ekki geta hamið
sig,“ sagði Jón þegar hann var spurður hvort
Reynir Pétur myndi ekki taka á móti honum
þegar hann lyki göngunni. Þeir sem vilja heita
á Jón Eggert og styðja Krabbameins-félagið
geta hringt í síma 907 5050.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Jón Eggert Guðmundsson á göngu sinni.
Göngumet Reynis Péturs
frá 1985 slegið
Hinn nýskipaði forseti
spænska
knatt-spyrnu-liðsins Real
Madrid og nýr þjálfari
liðsins, Fabio Capello, vilja
gera nýjan þriggja ára
samning við David Beckham
en samningurinn myndi
tryggja honum 3,5 milljarða
króna í laun á ári. Beckham
sem er 31 árs gamall og
ekki á flæðiskeri staddur á
eitt ár eftir af samningi
sínum hjá Real Madrid en
ástæða þessara mjög svo
háu launa er sú að
Beckham fær prósentur af
sölu alls varnings sem
tengist nafni hans ofan á
grunn-launin.
Vilja halda í Beckham
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Nýjar og glæsilegar 2ja herb. íbúðir í nýju
og vönduðu lyftuhúsi í miðborginni. Um er
að ræða tvær íbúðir: 2ja herb. 70 fm íbúð
á 3. hæð, verð 26,9 millj., og 2ja herb.
78 fm útsýnisíbúð á tveimur hæðum, 4. og
5. hæð, verð 29,9 millj. Íbúðirnar eru inn-
réttaðar á afar vandaðan og smekklegan
hátt með sérsmíðuðum innréttingum og
vönduðum tækjum. Parket á gólfum,
nema baðherbergi er flísalagt í gólf og
mósaíklagt í veggi að hluta. Íbúðunum
fylgir sérgeymsla/þvottaherb. í kj. Sérþak-
garður með hvorri íbúð fyrir sig til suðurs
og með heitum potti. Einnig svalir út af
hvorri íbúð sem snúa út að Laugavegi.
Glæsilegar íbúðir
í hjarta miðborgarinnar.
Laugavegur
Glæsilegar 2ja herb. íbúðir í nýju húsi