Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 41

Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 41 MINNINGAR      Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför BJÖRNS JÓNSSONAR, Stapa í Hornafirði, Frostafold 38, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Rannver S. Sveinsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Flókagötu 61, Reykjavík. Guðmundur Benediktsson, Björn Antonsson, Helga Jakobs, Magnea Antonsdóttir, Sigurður Lyngdal, Ásthildur, Auðbjörg, Reynir, Anton, Kristín Ýr og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR JÚLÍUSDÓTTUR, Syðra-Skörðugili, Skagafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar á Sauðárkróki. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall SIGRÍÐAR SÓLEYJAR SVEINSDÓTTUR HALLGRÍMSSON, Hraunbæ 50, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimili- sins Eirar fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Jónína Garðarsdóttir, Friðjón Skarphéðinsson, Sigríður Sóley Friðjónsdóttir, Víðir Þorsteinsson, Hólmfríður Friðjónsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Magnús Garðar Friðjónsson, Olga María Ólafsdóttir, Garðar Hannes Friðjónsson, Auður Finnbogadóttir og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ANNETTU SIGURÐSSON, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Heiðabæ fyrir umönnun hennar. Sigurður Kristjánsson, Laufey Aðalsteinsdóttir, Már Kristjánsson, Valborg E. Kristjánsdóttir, Guðlaugur Óttarsson, Laufey J. Kristjánsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir, Bjarni S. Kristjánsson, Valgerður Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda- föður, mágs, afa og langafa, LEIFS SIGURÐSSONAR rennismíðameistara, Sogavegi 168, Reykjavík. Guðmundur Ingi Leifsson, Elín Einarsdóttir, Sigurður Leifsson, Margrét Árný Sigursteinsdóttir, Elías Halldór Leifsson, Margrét Jónsdóttir, Guðrún Kristófersdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna and- láts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MAGNEU JÚLÍUSDÓTTUR, áður til heimilis í Löngumýri 14, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis- ins í Skjaldarvík fyrir notaleg samskipti og frá- bæra umönnun. Þökkum einnig starfsfólki á lyfjadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir árvekni og góða hjúkrun. Sverrir Kristinsson, Snorri S. Kristinsson, Lísbet Davíðsdóttir, Álfheiður Pála Magnúsdóttir, Björn Brimar Hákonarson, Arnheiður Vala Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALGERÐAR JÓNSDÓTTUR, Kórsölum 3, áður Rauðagerði 44. Bestu þakkir til starfsfólks 11-G og 11-B Landspítala við Hringbraut fyrir yndislega hjálp í veikindum hennar. Einnig viljum við þakka Jóhönnu Björnsdóttur lækni og heimahlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir hlýhug og hjálp á undan- förnum árum. Guðný Eygló Valtýsdóttir, Hulda Berglind Valtýsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Erla Sólrún Valtýsdóttir, Tryggvi Þór Agnarsson, Ágúst Ómar Valtýsson, Reynir Bergmann, Víðir Bergmann, Hlynur Bergmann, Þór, Valgerður, Sigurður Valtýr, Elísabet Lára, Katrín Guðrún, Guðbjartur Ægir, Ásgeir Örn og barnabarnabörn. ✝ Margrét Hall-dóra Bjarna- dóttir fæddist í Vík í Mýrdal 19. júní 1947. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 26. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Bjarni Bogason sjómaður, f. 8. janúar 1907, d. 14. ágúst 1996 og Guðrún Haralds- dóttir húsfreyja, f. 31. júlí 1922. Systk- ini Margrétar eru Kristinn Guð- mundur Bjarnason, f. 4. janúar 1942, Bragi Snævar Ólafsson, f. 23. júní 1944 og Rósa Helga Bjarnadóttir, f. 21. september 1950, d. 13. maí 1981. Margrét bjó í Danmörku langan hluta ævi sinnar. Þar kynntist hún Jan Kjeldal sjómanni, f. 31. júlí 1958 og bjuggu þau saman frá 1983 þar til hún fluttist aftur til Ís- lands 1996. Börn þeirra eru Daní- el Kjeldal, f. 8. desember 1984, Henríetta Kjeldal, f. 30. mars 1987 og Jannick Kjeldal, f. 30. mars 1987. Margrét hafði snemma mikinn áhuga á hannyrðum og fór í Húsmæðra- skólann á Varma- landi og lauk þaðan prófi. Eftir það vann hún á saumastofu í Reykjavík en fluttist til Danmerkur 1967. Þar vann hún á hót- elum þangað til hún kynntist Jan og þau stofnuðu fjölskyldu. Ásamt húsmóðurstörfunum stundaði hún nám við hannyrða- skóla í Danmörku og lauk hinum ýmsu hannyrða- og listgreinum. Hún var iðin við handavinnu alveg til síðasta dags, bjó til ýmsa skrautmuni og var einstaklega vel verki farin og hugmyndarík. Mar- grét barðist við veikindi í tæp tvö ár og bjó þá lengst af á Rauða kross hótelinu við Rauðarárstíg. Margrét var jarðsungin frá Fossvogskapellu, 6. júlí síðastlið- inn, í kyrrþey. Elsku Magga mín. Nú ertu komin í góðar hendur hjá Guði. Þökk fyrir allt. Þín mamma. Elsku Magga frænka, nú ertu loksins komin til Guðs og laus við þessi illu veikindi sem þú barðist við í tæp 2 ár. Það er búið að vera svo erfitt að vita af þér svona mik- ið veikri en núna ertu kvalalaus og vel geymd í góðum höndum hjá Guði, mömmu og afa. Nú vitum við að þér líður vel og þá líður okkur líka vel. Við elskum þig og minning þín lifir í hjörtum okkar að eilífu, elsku engillinn. Ást og samúð sendum við ykkur, elsku Henríetta, Daníel og Jannick á þessari erfiðu kveðjustund. Megi Guð gefa ykkur styrk, elsku börn. Marlín og Jóel. Elsku Magga Dóra. Það var reiðarslag þegar Marlin hringdi og tilkynnti um andlát þitt, þótt svo við vissum að hverju stefndi. Þú varst frænka mín og stóra systir æskuvinkonu minnar. Það er svo margs að minnast. Við höfum verið saman í gegnum súrt og sætt eins og maður segir. Aldr- ei hef ég kynnst eins miklu hörku- tóli og þér, alltaf jákvæð og úr- ræðagóð. Þitt líf hefur ekki alltaf verið létt, en með sterkum vilja og vissri ákveðni hefur þú brotist áfram eins og stóru öldurnar í Vík- urfjörunni. Elsku Magga Dóra, ég veit það verður tekið vel á móti þér af bæði Bjarna, Rósu og öllum hin- um. Hugur minn er hjá Daníel, Jan- nik og Henriettu, mömmu þinni, Marlin, Braga og fjölskyldu. Ég vona að börnin þín hafi erft viljastyrk þinn og seiglu. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Hallgrímur Pétursson) Minning þín lifir Magga Dóra, þín frænka Karólína. MARGRÉT HALLDÓRA BJARNADÓTTIR Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.