Morgunblaðið - 09.07.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.07.2006, Qupperneq 44
Kalvin & Hobbes PABBI, ELSKARÐU MIG? AUÐVITAÐ KALVIN MINN MUNDIRÐU ENNÞÁ ELSKA MIG EF ÉG HEFÐI GERT SVOLÍTIÐ AF MÉR AUÐVITAÐ MUNDI... ...ÉG... ELSKA.... ÞIG EF ÉG HEFÐI GERT SVOLÍTIÐ MJÖG... MJÖG... KALVIN! HVAÐ VARSTU AÐ GERA NÚNA!?! Kalvin & Hobbes KANNANIR VIKUNNAR LÍTA VEL ÚT FYRIR ÞIG PABBI ÞAÐ ER GOTT AÐ HEYRA ÞÚ HEFUR SJALDAN NOTIÐ EINS MIKILS FYLGIS SEM PABBI HEIMILISINS OG MEÐ ÞVÍ AÐ GERA EITT GÓÐVERK Í DAG GÆTIR ÞÚ NÁÐ METFYLGI OG TRYGGT AÐ ÞÚ VERÐIR PABBI Á NÆSTA KJÖRTÍMABILI GÓÐ TILRAUN KALVIN. FARÐU AÐ VASKA UPP OG HANN FREMUR PÓLITÍSKT SJÁLFS- MORÐ Kalvin & Hobbes ÞARNA KEMUR MUMMI, FANTURINN Í BEKKNUM HANN ER EKKI GÁFAÐUR, EN HANN ER KLÁR Á GÖTUNNI... OG ÞÁ MEINA ÉG AÐ HANN ER KLÁR Á ÞVÍ Í HVAÐA GÖTU HANN Á HEIMA Kalvin & Hobbes BLESS PABBI, ÉG ER FARINN AÐ GÆTA AÐ TÍGRISDÝRAGILDRUNNI MINNI ÉG SETTI TÚNFISKSAMLOKU Í HANA Í GÆR, ÞANNIG AÐ ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA KOMIÐ TÍGRISDÝR Í HANA NÚNA FINNST ÞEIM ÞÆR GÓÐAR? JÁ, ÞAU GERA HVAÐ SEM ER FYRIR SAMLOKU MEÐ TÚNFISK ÞETTA ER DÁLÍTIÐ STÓR GALLI Hrólfur hræðilegi Kalvin & Hobbes STOPP! ÞETTA ER TOLLHLIÐ. ÞÚ VERÐUR AÐ BORGA MÉR 10 KALL TIL ÞESS AÐ FÁ AÐ KOMAST INN Í BÍLSKÚR AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ BORGA FYRIR ÞAÐ AÐ FARA INN Í MINN BÍLSKÚR? VEGNA ÞESS AÐ EF ÞÚ BORGAR EKKI ÞÁ SKELLI ÉG HURÐINNI Á HÚDDIÐ Á BÍLNUM ÞÍNUM HVÍLÍKUR NIRFILL Kalvin & Hobbes SLÆMAR FRÉTTIR PABBI! ÞÚ ERT Á NIÐURLIEÐ Í KÖNNUNUM K0NN- UNUM? JÁ, SÉRSTAKLEGA MEÐAL TÍGRIS- DÝRA OG 6 ÁRA HVÍTRA KARLMANNA EF ÞÚ VILT HALDA ÁFRAM AÐ VERA PABBI ÞÁ VERÐUR ÞÚ AÐ GERA LYKILBREYTINGAR Á ÞVÍ HVERNIG ÞÚ STJÓRNAR EITTHVAÐ SÉRSTAKT SEM ÞÚ MÆLIR MEÐ AÐ ÉG GERI? AF ÞEIM SEM TÓKU ÞÁTT Í KÖNNUNINNI VORU FLESTIR HLYN- TIR VASAPENING OG ÖKUKENNSLU Dagbók Í dag er sunnudagur 9. júlí, 190. dagur ársins 2006 Víkverji hefurnokkrum sinnum á undanförnum vikum brugðið sér á sportbar við Ármúla til að fylgj- ast með leikjum í heimsmeistarakeppn- inni í Þýskalandi – á stórum skjá – í góðra vina hópi. Það má með sanni segja að þeir Ís- lendingar sem hafa fylgst hvað mest með leikjum á HM hefðu ekki getað hugsað sér betra veður til að horfa á þrjá leiki á dag en rigningu, en hún hefur verið nær stöðug hér á landi á meðan HM hefur staðið yfir. „Já, veðrið hefði ekki getað verið betra,“ sagði einn vinur Víkverja, sem var þegar byrjaður að kvíða tómarúminu sem myndast í rigningunni á næstu vikum, þegar HM stendur ekki leng- ur yfir. Vinurinn var byrjaður að spá í sólarlandaferð og þá jafnvel til Ítal- íu ef Ítalir verða heimsmeistarar. Spennan er mikil í Þýskalandi fyr- ir úrslitaleiknum á HM, sem fer fram á Ólympíuleikvanginum í Berl- ín í kvöld er Ítalía og Frakkland mætast. Það er næsta víst að al- menningur í Þýskalandi mun halda með Ítölum í þeirri baráttu, þar sem Þjóðverjar eru með miklu meiri samgang við Ítali en Frakka og fara mikið í sumarfrí til Ítalíu og þá sér- staklega til vatnanna á Norður-Ítalíu. Garda- vatnið er þeirra sum- arparadís. Víkverji hefur oft ferðast um Þýskaland og í einni ferð sinni var hann spurður af Þjóð- verja hvert hann væri að fara. Víkverji sagði að það væri ekki ákveðið og spurði á móti: Hvert myndir þú fara? Þjóðverjinn var fljótur að svara – ég færi ekki vestur, og benti til Frakklands. „Það er óhreint og lítil skemmtun þar. Ég myndi halda suð- ur – til Austurríkis og Ítalíu.“ Þjóðverjar og Frakkar hafa háð margar orrusturnar um landsvæði í gegnum aldirnar og þá sérstaklega um Elsass (Alsace), þar sem flestir bæir heita þýskum nöfnum. Margir Þjóðverjar hafa heldur ekki gleymt því að franska útlendingahersveitin var látin vaða inn í Svartaskóg í lok síðari heimsstyrjaldarinnar til þess að eyðileggja sögulegar byggingar í hinum fallega bæ, Freudenstadt. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Fræðsla | Í tilefni af íslenska safnadeginum mun Ingunn J. Óskarsdóttir, garðyrkjufræðingur verða með fræðslu í Grasagarði Reykjavíkur í dag, sunnudaginn 9. júlí kl. 11, um fjölærar jurtir, liljur, lykla og lauka. Mæting er í lystihúsinu. Ókeypis fræðsla og skemmtun, allir velkomnir. Fræðsla í Grasagarði MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. (Jóh. 14, 15.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.