Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Byrjendaheppni og að vera fyrstur í
mark eru einkennandi fyrir þig. Þú
ættir að nýta þér tækifærið því allt
nýtt sem þú gerir veitir þér meiri
orku og gerir þig meðvitaðri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Of fá verðlaun í lífi þínu hafa leitt til
þunglyndis. Það virðist því vera sem
það geri þér gott að dekra aðeins við
þig. Þú ættir að skrifa lista og byrja
að njóta alls sem lífið býður upp á
hvort sem það er stórt eða smátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Óþolinmæði skilar sér í höfnun á
„núinu“ sem er einmitt eini tíminn
sem þú raunverulega lifir í. Þú ert því
á ákveðinn hátt að hafna lífinu. Þú
ættir að temja þér meiri þolinmæði og
vera meðvitaðri.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú lendir í einhverju sem virðist með
ólíkindum en það leiðir þér fyrir sjónir
að þú ert á réttri leið, á leið að ein-
hverju sem er stærra en þú getur út-
skýrt eða skilið .
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Stjörnurnar sýna þér nokkuð sem er
ekki beint nýtt, frekar eitthvað sem þú
sérð á nýjan hátt og er gagnlegt fyrir
þig. Þú gætir til dæmis komist að öllu
því sem af þér er vænst og það mun
veita þér mikið öryggi í persónulegum
samböndum að hafa þessa vitneskju.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert örlát/ur að eðlisfari. Í dag gef-
ur þú og gefur og þú hefur ekkert fyr-
ir því. Þetta er stórmerkilegt og þú
veist ekki einu sinni hvernig þú ferð
að þessu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hæfileikar sem þú álítur sérstaka
verða mjög dýrmætir fyrir einhvern
annan. Táknin segja að þú munir leyfa
öðrum að njóta visku þinnar og hver
veit hvað það getur borið mikinn
ávöxt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt eiga í hrókasamræðum, með-
al annars við fólk sem þú þekkir ekki
neitt. Þú beislar þinn persónulega
styrk með því að hugsa fram á við og
gera þér í hugarlund hvað það er sem
þú vilt fá út úr þessum samtölum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert það sem þú vilt. Í dag er þemað
að breyta þér og endurskapa þig. Þú
hefur það á valdi þínu en þarft ekki
endilega að gera það einn. Sporðdreki
gæti reynst mjög hjálpsamur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þau góðverk eru ekki til sem ekki
bæta heiminn að einhverju leyti. Þú
sérð kannski ekki árangur af þínum
gjörðum en þú mátt trúa að þær hafa
góð og mikil áhrif.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þitt vinalega eðli mun koma að góðum
notum í dag. Bara það að hitta eina
manneskju mun opna þér hundrað
tækifæri sem munu stefna þér á eitt-
hvað spennandi, glæsilegt og ófyr-
irséð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú mátt vera viss um að allir hafa sín-
ar efasemdir, líka þeir sem virðast
mjög sjálfsöruggir. Ef þú vinnur í þín-
um efasemdum munu þær að lokum
hverfa.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Venus og Neptúnus raða
sér upp og leiða í ljós allt
það jákvæða sem prýðir þá
sem þú elskar og ert elskaður af. Þessir
virtu og nánu einstaklingar þurfa ekki
endilega að tengjast vinnu þinni en þú
sækir allan þinn styrk til þeirra. Sjáðu
bara hvernig þú fyllist af sjálfstrausti þeg-
ar þessir vinir þínir hvetja þig til dáða.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 stilltur, 8 náms-
greinin, 9 féllu, 10 kyrra,
11 braka, 13 bunu-
stokkur, 15 fljótt, 18
frýsa, 21 vond, 22 sárið,
23 óbeit, 24 ræpu.
Lóðrétt | 2 bleytukrap, 3
skjóða, 4 bál, 5 kvendýr-
ið, 6 iðkum, 7 hníf, 12
bók, 14 hress, 15 höfuð,
16 mannsnafn, 17 steins,
18 fáni, 19 báran, 20 snjó-
lausa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hlýra, 4 fætur, 7 raust, 8 eyðum, 9 ark, 11 traf,
13 emja, 14 angur, 15 þjór, 17 roks, 20 hræ, 22 rómur,
23 tómum, 24 afræð, 25 rimma.
Lóðrétt: 1 horft, 2 ýsuna, 3 akta, 4 frek, 5 tíðum, 6
rymja, 10 rígur, 12 far, 13 err, 15 þerra, 16 ólmur, 18
ormur, 19 semja, 20 hríð, 21 ætur.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Akureyrarkirkja | Sumartónleikar kl. 17. Ey-
þór Ingi Jónsson, orgel.
Fríkirkjan í Reykjavík | Ragnheiður Grön-
dal leikur íslensk þjóðlög og annað efni í Frí-
kirkjunni sunnud. 9. júlí kl. 21.30. Ragnheið-
ur Gröndal söngur og píanó, Haukur
Gröndal klarínett, bassett horn og Hugi
Guðmundsson elektróník. Miðaverð er
1.000 kr.
Hallgrímskirkja | Guðný Einarsdóttir, nýút-
skrifuð frá Konunglega konservatoríinu í
Kaupmannahöfn, leikur á kvöldtónleikum á
vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgríms-
kirkju kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir
J.S. Bach, J. Alain, C.M. Widor og Mus-
sorgskí.
Norræna húsið | Hinn ungi og efnilegi
norski píanóleikari, Joachim Kjelsaas
Kwetzinsky, heldur tónleika í Norræna hús-
inu á morgun, mánudaginn 10. júlí, kl. 20.
Verk eftir Bartok, Stravinskí, Sjostakóvitsj,
Thoresen, Sæverud og tvö eftir Gunnar A.
Kristinsson, annað er glænýtt, hitt er frum-
flutningur á Íslandi.
Skútustaðakirkja | Kl. 21. Herdís Anna
Jónsdóttir, víóla, Sólveig Anna Jónsdóttir,
píanó og orgel, Steef van Oosterhout, ma-
rimba og steinaspil, flytja íslenska og rúss-
neska tónlist í bland við barokktónlist. Að-
gangur ókeypis.
Myndlist
101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga frá 14–17.
Anima gallerí | Sumarsýning: Opið fim.,
föst. og laug. kl. 12–17. Til 15. júlí.
Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur
Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni mynd-
listarmanni) er þriðja sýningin í röðinni af
stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn-
setning í rými. Sýningin stendur til 4. ágúst.
Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey-
nomatic-myndir, nærmyndir af náttúrunni,
einstakar ljósmyndir unnar á striga. Skart-
gripir fjallkonunnar sem vakið hafa mikla at-
hygli. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júl-
ímánuð.
DaLí gallerí | Sigurður Árni Sigurðsson,
myndlistarmaður, sýnir í nýju galleríi á Ak-
ureyri, DaLí galleríi, Brekkugötu 9, Ak-
ureyri. Sýningin stendur yfir til 9. júlí.
Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arn-
ar og Jón Garðar með sýninguna „Far-
angur“. Á sýningunni getur að líta hugleið-
ingar um drauma, galdra, harðviðargólf,
eldhúsgólf og ástarævintýri. Til 27. júlí.
Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson
sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin
blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og
með henni beinir Hafnarborg sjónum að
hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf
sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða
og lagt drjúgan skerf til listalífsins und-
anfarin ár. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er
frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og
hafa verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn-
ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Ís-
lands. Til 26. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sýning á íkonum frá Balk-
anskaga er í Hallgrímskirkju á vegum Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju. Verkin eru gerð á
síðustu 7 árum og sýna þróun í gerð íkona
innan Austurkirkjunnar. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin kl. 9–20 alla daga. Til 9.
júlí.
Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er
til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur listiðn-
aður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hrá-
efni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr
leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýn-
ingin stendur til 27. ágúst. Aðgangur er
ókeypis.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ósk Guðmunds-
dóttir sýnir handverk og málun í Menning-
arsal til 15. ágúst.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning-
unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu
hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns
Hákonar Magnússonar. Meðal listamanna
má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dag-
verðará, Stórval og Kötu saumakonu. Til 31.
júlí.
Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berjalandi,
Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar,
alla daga kl. 12–20.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til
6. okt.
Kirkjuhvoll, Akranesi | Listsýning á verk-
um eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listahá-
skóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Kling og Bang gallerí | Hinn heimsþekkti
myndlistarhópur Gelitin frá Austurríki sýnir
í Kling & Bang gallerí, en hópurinn hefur
m.a. tekið þátt í Feneyjatvíæringnum og
Gjörningatvíæringnum í New York.
Sjá:http://this.is/klingogbang.Opið fim.–
sun. kl. 14–18.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig
eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Íslenski safnadagurinn 2006 í Listasafni
ASÍ. Listamannaspjall kl. 15. Vatnslitamál-
ararnir Eiríkur Smith, Daði Guðbjörnsson og
Kristín Þorkelsdóttir fjalla um verk sín á
sýningunni Akvarell ASÍ Reykjavík. Léttar
veitingar í boði safnsins. Aðgangur ókeypis.
Sýningin er opin frá kl. 13–17.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf op-
inn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo-
uisu Matthíasdóttur. Umfangsmesta sýning
sem haldin hefur verið á verkum Louisu og
rekur allan hennar listamannsferil í sex ára-
tugi. Til 20. ágúst.
Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri lands-
lagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóð-
sagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms
Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og
föstudaga kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu.
Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17,
lokað mánudaga.
Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri lands-
lagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóð-
sagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms
Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og
föstudaga kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu.
Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17,
lokað mánudaga.
Listasafn Íslands | Leiðsögn á íslenska
safnadaginn 9. júlí um sumarsýninguna
Landslagið og þjóðsagan kl. 14 í fylgd Rakel-
ar Pétursdóttur safnafræðings. Kaffitár á
kaffistofu. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúru-
fræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð
og kaffistofa
Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu
Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af-
mæli bankans. Til 30. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinn-
aður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir
verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlut-
um í skúlptúra og innsetningar. Í hópnum
eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuc-
hvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jaeha
Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero
Baker og Tsehai Johnson. Til 31. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma – og hvern-
ig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum.
Til 31. des.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.