Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 53

Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 53 GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Lið-a-mót FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR A ll ta f ó d ýr ir Þótt tæp þrjú ár séu liðin síðanJohnny Cash féll frá erhann enn í sviðsljósinu,sumpart vegna kvikmynd- arinnar I Walk the Line og einnig vegna þess að enn eru að koma út plötur með honum, svo margar reyndar að algengt er að menn spyrji hvort verið sé að ganga of lagt í að mjólka minninguna, hvort ekki sé nóg komið. Þannig kom mikill safnkassi, Unearthed, út fyrir jólin 2003, en í honum var meðal annars sálmaplat- an magnaða My Mother’s Hymn Book sem gefin var út sér 2004. Á síðasta ári kom út á annan tug af safnplötum sem flestar spönnuðu þann tíma sem sagt er frá í I Walk the Line og snemma á þessu ári kom út tvöföld plata, Personal File, sem á voru 49 áður óútgefin lög sem Cash tók að mestu upp í júlí 1973. Hinn 4. júlí síðastliðinn kom svo út platan A Hundred Highways sem hefur að geyma nokkrar síðustu upptökur Cash, þar á meðal síðasta lagið sem hann samdi. Rubin og Cash Síðustu tólf æviárin var Cash samningsbundinn Rick Rubin og American-útgáfu hans, en Rubin fékk þá snjöllu hugmynd að kalla Cash, sem var þá flestum gleymdur, í hljóðverið og bjóða honum að taka upp öll þau lög sem hann langaði. Þótt Cash hafi ráðið ferðinni, þ.e. fengið að taka upp það sem honum sýndist, tók hann öllum tillögum frá Rubin vel, hvort sem það var um lagaval eða undirleik. Með tímanum þróuðu þeir síðan með sér það vinnulag að Cash söng lögin inn eins og honum sýndist með lágmarks undirleik og sendi Rubin upptök- urnar. Síðan hlóð Rubin undir lögin, bætti við hljóðfærum eftir því sem honum sýndist fara best, og að lok- um settust þeir saman yfir hvert lag, Cash og Rubin, og ráku á það smiðs- höggið. Fyrsti afrakstur samstarfs þeirra var American Recordings sem kom út 1994. Hún minnir rækilega á Johnny Cash og aflaði honum hylli hjá nýrri kynslóð tónlistar- áhugamanna. Unchained kom svo út 1996, Solitary Man 2000 og The Man Comes Around í nóvember 2002. Hvert lag gæti orðið það síðasta Löngu áður en upptökur á The Man Comes Around hófust var Cash búinn að gera sér grein fyrir því að hvert lag sem hann tæki upp gæti orðið hans síðasta. Fyrir vikið vildi hann helst vera sífellt í hljóðverinu, sífellt að taka upp, og þannig hófst vinna við fimmtu American-plötuna, A Hundred Highways, sem nú er komin út, sama dag og upptökum lauk á The Man Comes Around haustið 2002. Upptökur stóðu þá með litlum hléum í átta mánuði – ef Cash hafði heilsu og þrek til að vinna í hljóðverinu voru alltaf menn til taks. Í þessari átta mánaða lotu tók Cash upp ríflega þrjátíu lög eftir ýmsa höfunda og einnig lög eftir hann sjálfan og þar á meðal það sem hann samdi sjálfur. Eftir að hann lést í september 2003 biðu upptök- urnar svo um hríð en seint á síðasta ári fór Rubin yfir upptökurnar og valdi úr á plötuna sem er kveikjan að þessum skrifum. Hann kallaði síðan saman helstu samstarfsmenn Cash síðustu árin og tók upp undirleik með þeim við sönginn sem Cash skildi eftir sig. Þegar platan var svo tilbúin var svo mikið Cash-æði í gangi að Rubin ákvað að geyma hana um stund og gaf hana svo út 4. júlí síðastliðinn. Eins og getið er geymir A Hundred Highways síðasta lagið sem Cash samdi, „Like the 309“, og annað lag eftir hann gamalt, „I Came to Be- lieve“. Annars eiga lög á plötunni ýmsir höfundar, til að mynda Hank Williams, Bruce Springsteen og Gordon Lightfoot. Mikið eftir Þeir Cash og Rubin tóku jafnan upp þónokkuð af lögum fyrir hverja plötu og alla jafna mun fleiri lög en fóru á viðkomandi plötu. Til að mynda segir sagan að fyrir fyrstu plötuna hafi þeir tekið upp hátt í hundrað lög. Það má því gera ráð fyrir að talsvert sé enn óútgefið af American-upptökum Johnny Cash og við bætist að tugir ef ekki hundr- uð laga eru til óútgefin úr sjónvarps- þáttaröðinni sem hann stýrði 1969 til 1971, meðal annars lög sem hann söng með ýmsum þekktum lista- mönnum öðrum; Joni Mitchell, Bob Dylan, Lindu Ronstadt, Merle Haggard, Lulu, Roy Orbison, Ray Charles, Arlo Guthrie og Stevie Wonder, svo dæmi séu tekin. Það er því nóg eftir og best að svara svo spurningunni um hvort ekki sé nóg komið: Nei, það er aldrei of mikið af Johnny Cash. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Aldrei of mikið af Johnny Cash SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI NÝJASTA MEISTARA- VERKIÐ FRÁ PIXAR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM. KVIKMYNDIR.IS NÚ ER KOMIÐ AÐ HENNI AÐ SKORA eeee KVIKMYNDIR.ISeeeVJV, Topp5.is ee e Kvikmyndir.is EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA K R A F T M E S TA HASARMYND ÁRSINS DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. eee V.J.V.Topp5.is DIGITAL Bíó SAMBÍÓIN KRINGLUNNI VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ. STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI eeee V.J.V, Topp5.is HVERNIG ÁTTU AÐ HALDA Í ÞANN SEM ÞÚ HEFUR ALDREI HITT. FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT. THE BREAK UP kl. 12:30 - 3 - 5:45 - 8 - 10:20 THE BREAK UP VIP kl. 1:45 - 4:15 - 8 - 10:20 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA. THE LAKE HOUSE kl. 1:30 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 12:15 - 1:30 - 3 - 5:30 - 8 CARS M/- ENSKU TAL. kl. 12:15 - 3 - 5:30 - 10:20 SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA. SHE´S THE MAN kl. 8 THE BREAK UP kl. 1:30 - 3:45 - 6 - 9 - 10:15 - 11:30 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8:15 - 10:30 B.I. 12.ÁRA. BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 1:30 - 2:45 - 4 - 6:30 CARS M/- ENSKU TALI kl. 8:15 DIGITAL SÝN. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 6 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN. ÁRA ÁRA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.