Morgunblaðið - 09.09.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 09.09.2006, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FYRSTA íslenska heildsalan, Ó. Johnson & Kaaber, stóð fyrir mikl- um fögnuði í gær, en hundrað ár eru liðin frá stofnun fyrirtækisins. „Þetta er náttúrulega stórkostleg stund og á þessum tímamótum minnist maður þeirra sem lögðu grunninn að þessu og eru nú fallnir frá,“ segir Helga Guðrún Johnson, stjórnarmaður í stjórn fyrirtæk- isins. Hún segir að vissulega sé freistandi að horfa á 100 ára gamalt fyrirtæki sem elliært gamalmenni. „Við höfum því ákveðið að gera orð Emily Dickinson að okkar: Við verðum ekki eldri með árunum, heldur nýrri með hverjum deg- inum,“ segir Helga. Heildverslunin Ó. Johnson og Kaaber var stofnuð árið 1906 af þeim Ólafi Þ. Johnson og Ludvig Kaaber. Á þeim tíma var ritsíminn að ryðja sér til rúms og þeir félagar sannfærðir um að tækið myndi ger- breyta öllum viðskiptaháttum. Fyrstu vörurnar sem félagið keypti og hafði á lager voru tóbak, rúg- mjöl og nýlenduvörur. Árið 1910 urðu tímamót í sögu fyrirtækisins en þá hóf það umfangsmikinn út- flutning og árið 1920 var ull og fiskimjöl flutt til Ameríku, saltkjöt til Noregs og hestar til Danmerkur, svo dæmi séu tekin. Ólafur dvaldi langdvölum vestan hafs meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stóð og ann- aðist matvöruinnkaup fyrir Íslend- inga, en reynsla hans af viðskiptum við Bandaríkin kom sér afar vel fyr- ir land og þjóð. Í fyrstu ferð sinni fyrir íslensk stjórnvöld yfir Atl- antshafið lagði Ólafur af stað ásamt Sveini Björnssyni, síðar forseta, með norsku skipi sem fyllt var með gærum og síldartunnum. Þegar til Bandaríkjanna var komið hófu tví- menningarnir að koma vörunum í verð og stofna til viðskipta- sambanda og skömmu seinna sneru þeir heim á drekkhlöðnu skipinu. Allar götur síðan þá hefur fyr- irtækið staðið að umfangsmiklum innflutningi á hvers kyns neyslu- vöru, allt frá minnstu önglum til bifreiða. Ýmis matvara hefur einnig verið framleidd hérlendis á vegum fyrirtækisins, og er kaffið þar sennilega þekktast, en kaffi- brennsla ÓJ&K var stofnuð árið 1924. „Nýrri með hverjum deginum“ 100 ár liðin frá stofnun Ó. John- son & Kaaber Morgunblaðið/ÞÖK Aldarafmæli Ólafur Ó. Johnson og Helga Guðrún Johnson voru glað- beitt í afmælisfagnaði ÓJ&K í höfuðstöðvunum í gærkvöldi. INNVIÐIR gamla Morgunblaðshússins í Kringlunni hafa nú tekið miklum breytingum, og hefur tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík nú tekið þar öll völd. Þau Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, og Bjarki A. Brynjarsson, forseti tækni- og verkfræðideildar skólans, opnuðu dyr deild- arinnar fyrir gestum í gær til að sýna nýja húsnæðið. Búið er að breyta ritstjórn og skrifstofum í nokkrar kennslustofur, skrifstofur kennara og annarra starfsmanna, auk þess sem þar eru nú komnar rann- sóknarstofnanir tækni- og verkfræðideildar. Morgunblaðið/Sverrir Háskóli yfirtók Morgunblaðshúsið FYRSTA sakamál sinnar tegund- ar þar sem reynt var að afrita seg- ulrönd kreditkorta með sérstökum svindlbúnaði við bensínsjálfsala í Reykjavík hefur nú komið til kasta lögreglunnar. Búnaðurinn var settur utan á sjálfsalann en málið uppgötvaðist seint í ágúst þegar viðskiptavinir kvörtuðu undan því að sjálfsalinn virtist bilaður. Þegar viðgerðarmaður kom á vettvang varð fljótlega ljóst að einhver hafði átt við sjálfsalann. Verið er að kanna hvort þeir sem þar voru að verki hafi náð upplýsingum af einhverjum kort- um, en Hörður Jóhannesson yf- irlögregluþjónn segist telja að tjónið hafi orðið mjög takmarkað, ef nokkurt, þar sem málið upp- götvaðist fljótt. Enginn hefur verið handtekinn en málið er í rannsókn. „Þetta er fyrsta og eina tilvik sinnar teg- undar sem við höfum orðið varir við,“ segir Hörður. „Um er að ræða viðbót sem er sett framan við kortaraufina á sjálfsalanum og er algerlega óháð starfsemi hans.“ Þegar kortinu er rennt í gegn fer það í gegnum búnaðinn. Þannig getur þjófurinn m.a. aflað sér upp- lýsinga um PIN-númer kortsins. Svik reynd í sjálfsala „TILLÖGURNAR eru í samræmi við þær áherslur sem sjálfstæðis- menn hafa haft í þessum málum um aukið val og frelsi,“ segir Júlíus Víf- ill Ingvarsson, formaður mennta- ráðs Reykjavíkurborgar, aðspurður hvort borgin hyggist feta í fótspor Kópavogsbæjar sem í fyrradag til- kynnti tillögur sínar um mánaðar- legar greiðslur til foreldra ung- barna, frá lokum fæðingarorlofs til tveggja ára aldurs. Júlíus segir að svipaðar tillögur hafi áður verið til umræðu hjá borgarstjórnarhópi Sjálfstæðisflokksins, þótt þær hafi ekki verið áberandi fyrir kosning- arnar í vor. „Þetta er leið sem við munum hafa í huga og skoða nánar sem kost í þessum efnum.“ Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri Seltjarnarness, segir tillög- urnar ekki hafa verið ræddar á fundum bæjarstjórnar. „Hins vegar finnst mér tillögurnar koma fylli- lega til greina og í raun um áhuga- verðan kost að ræða,“ segir Jón- mundur. Hann kveður að annar kostur sem menn hafi rætt varðandi málið sé að lækka inntökualdur barna á leikskólum niður í 12 mán- uði í stað 24. „Ég hef sett af stað undirbúningsvinnu á vegum skóla- skrifstofu bæjarins vegna þessa máls og þegar hún liggur fyrir get- um við tekið formlega afstöðu til þess með hvaða hætti við munum standa að þessu,“ segir hann. Að- spurður hvort bæjaryfirvöld líti á málið sem jafnréttismál segir Jón- mundur svo vera. „Við sveitar- stjórnarmenn erum og eigum að leggja okkur eftir því að gera fólki jafnhátt undir höfði.“ Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að ekki hafi verið tekin sérstök ákvörðun um auknar greiðslur til þeirra foreldra sem eru heima við með börn sín. Nú þegar greiðir sveitarfélagið þeim foreldr- um 11.000 kr á mánuði. „Við erum hins vegar farin að greiða foreldr- um barna frá níu mánaða aldri 40.000 krónur ef börn þeirra eru hjá dagforeldrum, sem er hæsta upp- hæðin á höfuðborgarsvæðinu,“ seg- ir Gunnar. Ennfremur bendir hann á að bæjarfélagið hafi nýlega gert samning við Hjallastefnuna um að settur verði á fót smábarnaleikskóli í bænum fyrir börn frá 12 mánaða aldri. „Við gerð fjárhagsáætlunar á næstu misserum munum við svo ræða hvernig við getum haldið áfram að koma til móts við þennan hóp.“ Jákvæð viðbrögð sveitarfélaga við tillögum um greiðslur til foreldra ungbarna Svipaðar tillögur hafa verið til umræðu í Reykjavík Í GÆR höfðu um 900 sjálfboðaliðar skráð sig til þátttöku í landssöfnun Rauða kross Íslands (RKÍ) sem fram fer í dag. Kristján Sturluson, fram- kvæmdastjóri RKÍ, seg- ir að þótt veðurspá sé ekki eins og best verður á kosið reikni hann með að fjöldi sjálfboðaliða til viðbótar skrái sig á söfnunarstöðvum víðs vegar um landið. „Við höfum reyndar alltaf fengið ágætt veð- ur. Það sem skiptir mestu er að það sé ekki algert slagveður. Ef veðrið verður slæmt rétt til að byrja með kemur fólk sennilega bara aðeins síðar um daginn,“ segir Krist- ján. „Þegar fólk ákveður að taka þátt í svona verkefni held ég að þurfi töluvert leiðinlegt veður til að það aftri fólki frá því að mæta.“ Þetta er í fjórða skipti sem RKÍ efnir til söfnunar undir kjörorðinu „Göngum til góðs“, og verður því fé sem safnast varið til aðstoðar við börn í sunnanverðri Afr- íku, sem eiga um sárt að binda vegna al- næmis. Um 2.000 sjálfboðaliða þarf til þess að ganga með söfnunarbauka í hvert hús á landinu, auk þess sem sjálfboðaliðar munu manna 67 söfnunarstöðvar víðs vegar um land. „Við finnum mikla stígandi í þessu nú síðustu daga, og erum mjög bjartsýn,“ segir Kristján. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari söfnunarinnar, og mun hann safna fé bæði á höfuðborg- arsvæðinu og á Akureyri. Kristján hvetur landsmenn til að taka vel á móti sjálfboðaliðum sem banka upp á, og hafa reiðufé tilbúið. Einnig er hægt að gefa í söfnunina með því að hringja í síma 907 2020, og dragast þá frá 1.200 krónur frá næsta símreikningi. Vel gengur að undir- búa landssöfnun Kristján Sturluson ÁRNI Pétur Jónsson, sem tók við starfi for- stjóra Dagsbrúnar af Gunnari Smára Egils- syni í síðasta mánuði, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki kannast við að verið væri að skipta Dagsbrún í tvennt. Engar ákvarð- anir hefðu verið teknar. Ríkissjónvarpið birti frétt þessa efnis í gær- kvöldi. „Um leið og þær verða teknar þá verða þær til- kynningaskyldar inn á Kauphöll, og síðan þyrfti að kynna þær fyr- ir hluthöfum og fjárfestum. Síðan þyrfti að boða til hluthafafundar og það er hann sem í raun og veru myndi ákveða hvort þetta yrði gert eða ekki. Ákvörðun hefur ekki verið tekin í stjórn félagsins um að leggja það til fyrir hluthafafund,“ segir Árni. Engar ákvarðanir um skiptingu Dagsbrúnar Árni Pétur Jónsson BANDARÍSKA lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals hefur lagt fram endur- skoðað yfirtökutilboð í króatíska lyfjafyr- irtækið Pliva, að því er fram kemur í frétt AFX-fréttastofunnar. Ekki er gefið upp hvað felst í tilboðinu sem Barr hefur lagt fram til fjármálaeftirlits Króatíu. Sam- kvæmt lögum í Króatíu er óheimilt að greina frá því hvað felst í tilboðinu þar sem fjármálaeftirlitið hafði áður lagt blessun sína yfir fyrra tilboð Barr. Fyrra tilboð Barr hljóðaði upp á 2,3 milljarða bandaríkjadollara en Actavis lagði í síðustu viku fram tilboð í Pliva sem hljóðar upp á 2,5 milljarða dollara, eða um 175 milljarða íslenskra króna. Barr leggur fram breytt tilboð í Pliva LÖGREGLAN í Reykjavík handtók kl. 22 í gærkvöldi fjóra unga menn sem voru á stol- inni bifreið í Efra-Breiðholti. Lögreglan, sem stöðvaði mennina við venjubundið eft- irlit, færði þá á lögreglustöð þar sem tekin var af þeim skýrsla. Að sögn lögreglu sýndu mennirnir engan mótþróa við hand- töku. Lögreglan segir að bifreiðinni hafi verið stolið í Keflavík en frekari upplýs- ingar um málið var ekki að fá í gærkvöldi. Fjórir handteknir á stolinni bifreið »Tillögur bæjarstjórnarKópavogsbæjar miða að því að foreldrar ungbarna fái greiddar 30 þús. kr. mán- aðarlega með hverju barni. »Greiðslurnar yrðu óháðarþví hvort barnið væri í dagvistun eða hjá foreldrum. »Fulltrúar nágrannasveit-arfélaga Kópavogs líta hugmyndina opnum augum. Í HNOTSKURNEftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.