Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 6
6 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skagafjörður | Kaupfélag Skagfirð-
inga ætlar að nýta góða afkomu til
þess að halda áfram að styrkja
menntamál heima í héraði, og í
gær var undirritaður samningur
milli kaupfélagsins, Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar og Akra-
hrepps um 100 milljón króna fram-
lag þessara aðila til skólamála í
héraði á næstu fjórum árum.
Við undirritunina sagði Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri að á vor-
dögum þegar haldinn var aðal-
fundur félagsins hefði komið fram
sú hugmynd, vegna mjög góðrar
fjárhagsafkomu félagsins, að láta
hagnað nýtast sem best innan hér-
aðs, enda væri Kaupfélag Skag-
firðinga eign héraðsbúa, það væri
„héraðslegt fyrirtæki, og því eðli-
legt að góð afkoma skilaði sér á
þann hátt sem að bestum notum
kæmi, og fyrir sem flesta“.
Sagði Þórólfur að í Skagafirði
væri ekki um nýjung að ræða,
kaupfélagið hefði á undanförnum
árum komið verulega að uppbygg-
ingu Hólaskóla, og því hefði nú sá
kostur verið valinn að láta öll
skólastig héraðsins njóta þessa
einnig, nú væri verið að víkka
verkefnið út og blása til verulegr-
ar sóknar.
Þórólfur sagði, í samtali við
Morgunblaðið eftir athöfnina, að
meginmarkmið með samnings-
gerðinni væri að gera gott skóla-
starf betra og þoka Skagafirði
framar, helst þannig að aðrir gætu
litið til þessa staðar sem fyrir-
myndar. Þetta væri unnt að gera
þegar afkoma fyrirtækjanna væri
góð, og með góðri samvinnu við
sveitarfélögin og aðra hagsmuna-
aðila mætti áorka miklu. Þá sagði
hann að með þessu vildu heima-
menn sýna að þeir gerðu fyrst
kröfur til sjálfra sín, en einnig
gæti átakið fært okkur í þá stöðu
að ríkisvaldið mundi fúsara að
taka höndum saman við heima-
menn til enn frekari átaka.
Ókyrrð stoppaði ráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra ætlaði að
vera viðstödd undirritunina en á
síðustu stundu var flugi til Sauð-
árkróks aflýst vegna ókyrrðar í
lofti. Guðmundur Guðlaugsson
sveitarstjóri dó þó ekki ráðalaus,
heldur flutti ávarp hennar og
kveðjur.
Í ávarpi ráðherra, Þorgerðar
Katrínar segir: „Þetta er stór
stund og sá sáttmáli sem hér var
undirritaður nú rétt í þessu mark-
ar ákveðin tímamót, ekki einungis
í skólamálum hér á svæðinu heldur
um land allt. Það frumkvæði sem
Kaupfélag Skagfirðinga og sveit-
arfélögin hér á svæðinu sýna með
þessu er merkilegt og mun vafalít-
ið vekja athygli. Það er til marks
um stórhug ykkar Skagfirðinga og
mikinn metnað í skólamálum.“
Þar segir ennfremur: „Þegar lit-
ið er til framtíðar er mikilvægt
fyrir byggðir landsins að þar sé
boðið upp á góða menntunarval-
kosti á öllum skólastigum, jafnt
sem spennandi atvinnutækifæri
fyrir einstaklinga að loknu námi.
Ég hef oft sagt að efling mennt-
unar sé öflugasta byggðastefnan
og besta leiðin til að viðhalda
blómlegri byggð með öflugu at-
vinnulífi. – Sá sáttmáli sem hér
hefur verið undirritaður er til
marks um að Skagfirðingar sjá
tækifærin og hyggjast blása til
sóknar. Sem menntamálaráðherra
segi ég: Þið hafið veðjað á réttan
hest, menntun íbúa svæðisins.“
Kaupfélagið greiðir
17,5 milljónir
Í Samningi til sóknar í skóla-
málum í Skagafirði, kemur fram
að til verkefnisins verja aðilar 100
milljónum króna sem skiptast í
jöfn framlög á fjögurra ára tíma-
bili eða 25 milljónir króna árlega.
Síðar í samningnum segir að ár-
legt framlag samstæðufyrirtækja
Kaupfélags Skagfirðinga til átaks-
ins sé 17,5 milljónir kr. Árlegt
mótframlag sveitarfélaganna er
7,5 milljónir. Sérstök verkefnis-
stjórn útfærir nánar markmið
átaksins. Sama verkefnisstjórn út-
hlutar fjármagni og heldur stjórn-
unarlega og fjárhagslega utan um
verkefnið. Verkefnisstjórn er
óbundin varðandi ráðstöfun fjár-
magns að öðru leyti en því að fjár-
munum skal ekki varið til hefð-
bundinna fjárfestinga, t.d.
bygginga. Samt skal heimilt að
verja allt að 40% af árlegu fjár-
magni til kaupa á tækjum og bún-
aði.
Sáttmáli til sóknar í skólamálum undirritaður í Skagafirði
Markar tímamót í skóla-
málum fyrir allt landið
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sáttmáli undirritaður Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, forseti sveitar-
stjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
og Agnar H. Gunnarsson, oddviti Akrahrepps, rita nafn sitt á sáttmálann.
BARNAHÚSIÐ hlaut svonefnd Multidiscipl-
inary Team Award fyrir árið 2006 á heims-
ráðstefnu Alþjóðlegu barnaverndarsamtakanna
ISPCAN, (International Society for the Pre-
vention of Child Abuse and Neglect), sem hald-
in var í York í Englandi 3. – 6 september sl.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnavernd-
arstofu, veitti verðlaununum viðtöku við loka-
athöfn ráðstefnunnar.
ISPCAN eru einu þverfaglegu heims-
samtökin á sviði barnaverndar og hafa að mark-
miði að vinna gegn hvers konar ofbeldi og van-
rækslu barna alls staðar í veröldinni. Samtökin
voru stofnuð árið 1977. Snar þáttur í starfsemi
þeirra er að miðla fræðslu á meðal fagfólks úr
ólíkum fræðigreinum um vísindalegar rann-
sóknir, starfsemi og verklag sem telst til fyr-
irmyndar á sviði barnaverndar auk þess að
auka þekkingu og vitund almennings sem
stjórnvalda á réttindum og þörfum barna.
Frekari upplýsingar um ISPCAN má finna á
heimasíðu samtakanna www.ispcan.org
Barnahús var tilnefnt til þessara verðlauna af
dr. Patti Toth, lögfræðingi hjá Washington
State Criminal Justice Commission og fyrrver-
andi samstarfsmönnum hennar hjá Harbour-
view Medical Center í Seattle, en þeir hafa
fylgst með stofnun og starfsemi Barnahúss frá
upphafi.
Hafa valdið þáttaskilum
Í tilnefningunni kom fram það álit að Barna-
húsið hefði valdið þáttaskilum á meðferð kyn-
ferðisbrotamála á Íslandi, einkum með tilliti til
þarfa og réttinda barna. Þá hefði framlag Ís-
lands til að vinna að framgangi þverfaglegra
vinnubragða varðandi kynferðisbrot gegn börn-
um í Evrópu verið einkar árangursríkt eins og
opnun barnahúsa í Svíþjóð bæri ótvíræðan vitn-
isburð um.
Á heimasíðu Barnahúss, bvs.is, kemur fram
að Barnahús hefur áður fengið ýmsa viðurkenn-
ingu, t.d. frá Save the Children Europe árið
2002, svo og fyrstu viðurkenningu samtakanna
Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í málefnum
barna og réttinda þeirra árið 2002. Þar segir að
verðlaunaveiting ISPCAN nú sé líkleg til að
skapa mikinn áhuga á Barnahúsi, ekki einungis
í Evrópu svo sem verið hefur, heldur mun víðar.
Barnahús fær alþjóðlega viðurkenningu
Verðlaunað Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, tekur á móti verðlaunum
á ráðstefnu ISPCAN í Englandi í vikunni.
HVERFISRÁÐ Miðborgar mun beita sér fyr-
ir því að gerð verði fagleg úttekt á öryggi borg-
aranna í miðborginni og samanburður gerður
við aðrar borgir í Evrópu. Telur hverfisráðið
að um leið og öryggismál séu tekin föstum tök-
um sé einnig mikilvægt fyrir uppbyggingu í
miðborginni, ekki síst ferðaþjónustu, að stað-
inn sé vörður um ímynd miðborgarinnar, að því
er segir í tilkynningu.
Hverfisráðið hélt sinn fyrsta samráðsfund í
Ráðhúsi Reykjavíkur með hagsmunaaðilum í
gær og var yfirskrift fundarins „Er miðborg
Reykjavíkur örugg og hvernig eflum við ör-
yggiskennd?“ Fundinn sátu m.a. fulltrúar frá
Þróunarfélagi miðborgar, Samtökum ferða-
þjónustunnar, lögreglan, prestar og fulltrúar
atvinnufyrirtækja sem starfrækt eru í mið-
borginni.
Farið var yfir þær breytingar sem orðið hafa
á yfirbragði miðborgarinnar á undanförnum
árum. Var það mat fundarmanna að þrátt fyrir
að ofbeldisglæpum hefði fækkað og fjölbreytni
miðborgarlífsins aukist hefði fjölmiðlaumfjöll-
un oft og tíðum verið óþarflega neikvæð í garð
miðborgarinnar.
Telur hverfisráðið að um leið og öryggismál
séu tekin föstum tökum sé einnig mikilvægt
fyrir uppbyggingu í miðborginni, ekki síst
ferðaþjónustu, að staðinn sé vörður um ímynd
miðborgarinnar og að hún fái sanngjarna og
rétta umfjöllun í fjölmiðlum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Beita sér fyrir
faglegri úttekt á
öryggi íbúanna
JARÐSKJÁLFTI sem mældist þrír
á Richter varð í Djúpuvík í Reykj-
arfirði á Ströndum í gærmorgun.
Skjálftinn átti upptök sín um þrjá
kílómetra vestur af Djúpuvík í
Reykjarfirði. Annar minni skjálfti,
2,7 á Richter, varð á sömu slóðum
skömmu síðar. Ekki er vitað til þess
að skjálftarnir hafi fundist en um
innflekaskjálfta er að ræða. Ekki er
gert ráð fyrir frekari skjálftavirkni
þarna, samkvæmt upplýsingum frá
eðlisfræðisviði Veðurstofu Íslands.
Jörð skelfur
við Djúpuvík
STJÓRNSKIPUÐ nefnd sem starfað hefur á
vegum norska dómsmálaráðuneytisins hefur
nú lagt fram skýrslu þar sem lagt er til að
sett verði á laggirnar Barnahús að íslenskri
fyrirmynd. Búast má við að bráðlega taki
norska ríkisstjórnin afstöðu til þeirra til-
lagna sem skýrslan hefur að geyma. Þetta
kemur fram á heimasíðu Barnavernd-
arstofu.
Á sl. ári fóru fram umræður í norska
Stórþinginu um úrbætur á sviði kynferð-
isbrotamála gegn börnum þar sem fram
kom þverpólitískur vilji til að stofna Barna-
hús að íslenskri fyrirmynd. Í kjölfarið skip-
aði norska dómsmálaráðuneytið nefnd sem
var ætlað að undirbúa tilraunaverkefni um
nýja leið til að rannsaka málefni barna sem
orðið höfðu fyrir kynferðislegu eða lík-
amlegu ofbeldi. Var nefndinni sérstaklega
falið að skoða íslenska Barnahúsið og hvort
starfsemi þess gæti fallið að norskum að-
stæðum. Nefndin heimsótti Ísland, auk þess
sem Barnaverndarstofa hafði milligöngu um
heimsókn nefndarinnar til Bandaríkjanna í
því skyni að skoða barnahús þar
Í skýrslu nefndarinnar er fjallað ítarlega
um íslenska Barnahúsið auk þess sem nokk-
uð er fjallað um það fyrirkomulag á skýrslu-
töku af börnum sem viðhaft er í héraðsdómi
Reykjavíkur. Þá er m.a. fjallað um Barna-
húsið í Linköping, sem tók til starfa að ís-
lenskri fyrirmynd á sl. ári. Þá er gerð grein
fyrir nokkrum leiðum til að efla vinnslu
mála um kynferðisbrot gegn börnum í Nor-
egi. Niðurstaða nefndarinnar er hins vegar
afdráttarlaust sú að Barnahús að íslenskri
fyrirmynd þjóni hagsmunum barna best.
Barnaverndarstofa lítur svo á að í þessari
niðurstöðu norsku nefndarinnar felist mikil
viðurkenning á þeim árangri sem náðst hef-
ur með starfsemi Barnahúss hérlendis, segir
í frétt á heimasíðu Barnaverndarstofu.
Barnahús í Noregi undirbúið
»Barnahús hóf starfsemi í nóvember1998. Rekstur þess er á vegum Barna-
verndarstofu sem fer með stjórn barna-
verndarmála í umboði félagsmálaráðu-
neytisins.
»Barnahús sinnir málefnum barna semgrunur leikur á að hafi sætt kynferð-
islegri áreitni eða ofbeldi.
» Í Barnahúsi fóru fóru fram 56 rann-sóknarviðtöl á fyrsta fjórðungi þessa
árs, þar af 10 skýrslutökur eða 17,9%
allra rannsóknarviðtala. Greiningar- og
meðferðarviðtöl voru 25. Fjórar lækn-
isskoðanir fóru fram í Barnahúsi á þess-
um tíma.
»Fjölmargir dómar hafa fallið í málumsem Barnahús hefur átt aðild að, bæði
í undirrétti og Hæstarétti.
Í HNOTSKURN
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
uppi á þjóf sem stal ferðatösku
skammt frá miðborginni í gær, í
töskunni var m.a. fartölva. Þjóf-
urinn nýtti tækifærið á meðan eig-
andi töskunnar leit undan og hrað-
aði sér á brott með hana. Lögreglan
hafði hendur í hári þjófsins stuttu
síðar, en hann telst til góðkunn-
ingja hennar.
Ferðatöskuþjófur
handtekinn
Í KJÖLFAR aukinnar umræðu um
ofbeldi gagnvart heilbrigðisstarfs-
fólki hefur Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga ákveðið að gera könn-
un til að afla upplýsinga um tíðni
ofbeldis sem félagsmenn verða fyrir,
svo og hvers eðlis ofbeldið er. Könn-
unin er rafræn á heimasíðu félags-
ins. www.hjukrun.is, og geta allir
hjúkrunarfræðingar tekið þátt í
henni. Niðurstöður könnunarinnar
verða notaðar til að kortleggja um-
fang ofbeldis sem félagsmenn verða
fyrir. Þær má síðan nota sem inn-
legg í frekari umræður og aðgerðir
til að auka öryggi hjúkrunarfræð-
inga á vinnustað. Því er það mik-
ilvægt að félagsmenn bregðist skjótt
við og taki þátt í könnuninni.
Ætla að kanna
tíðni ofbeldis