Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680 • Laugavegi 40, s. 561 1690
Ný sending af
gallabuxum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýjar haustvörur
Kvartbuxur, síðbuxur,
peysur og bolir
Vesti
Bæjarlind 6
sími 554 7030
Eddufelli
sími 557 1730
b
h
l óm
elgarinn
ar
250 kr
ELDLILJUR
Stekkjarbakka 6 - 540 3300
www.gardheimar.is
heimur skemmtilegra
hluta og hugmynda
ÚTSÖLULOK:30% AFSLÁTTUR AF GARÐLJÓSUMÚTIKERTUM OG LUKTUM
ERIKUTILBOÐ
NÝJAR OG SPENNANDI TE
GUNDIR!
Hver er laukur vikunnar?
HAUSTLAUKARNIR
KOMNIR!
990 kr
3 STK.
kerti og föndurvörur í úrvali
FJÖLDI FALLEGRA HAUSTPLANTNA
Í FRAMHALDI af viðtölum við Jó-
hannes Jónsson í þættinum „Örlaga-
dagurinn“ á Stöð 2 tvo sunnudaga í
ágúst harmar stjórn FÍS – Félags ís-
lenskra stórkaupmanna að félagið
og einstakir forsvarsmenn þess hafi
verið nefndir á nafn í óviðeigandi
samhengi.
„Hlutverk FÍS er og hefur ætíð
verið að gæta hagsmuna aðild-
arfélaga sinna með því að vera fram-
vörður heilbrigðra verslunarhátta
og reyna eftir megni að tryggja rétt-
látar leikreglur í samkeppni og
þannig efla hag verslunar á Íslandi.
Forsvarsmenn FÍS hafa því oft tekið
þátt í opinberri umræðu um verslun
og hagsmunamál greinarinnar en
markmið félagsins hefur ávallt verið
að hafa umræðuna málefnalega og
án þess að draga einstaklinga eða
einstök fyrirtæki þar inn í.
Fjölmörg aðildarfélög FÍS eiga í
miklum og góðum viðskiptum við
ýmis fyrirtæki Baugs þar sem báðir
njóta góðs af. Það er því síst í þeirra
þágu að fræjum tortryggni sé sáð á
þessum vettvangi. Stjórn FÍS vill því
nota þetta tækifæri til þess að bjóða
Jóhannesi Jónssyni og öðrum for-
ráðamönnum Baugs til heimsóknar
á skrifstofu FÍS þar sem þeim gæfist
tækifæri til þess að kynna sér starf-
semi og markmið FÍS enn frekar,“
segir í yfirlýsingu frá FÍS.
FÍS harmar
ummæli í sjón-
varpsþáttum
FUNDUR flokksráðs Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs sem
haldinn var nýverið, sendir Fjórð-
ungssambandi Vestfjarða og íbúum
Vestfjarða, Norðausturlands og ann-
arra landsvæða sem hlut eiga að
máli kveðju: „Óumdeilt er að stór-
iðjustefna stjórnvalda á stóran þátt í
þeirri þenslu, verðbólgu og jafnvæg-
isleysi í efnahagsmálum sem al-
menningur og atvinnulíf hefur liðið
fyrir undanfarin misseri og gerir
enn. Fálmkenndar og allt of seint
fram komnar aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til að takast á við vandann
bitna nú á því og þeim sem síst
skyldi, þ.e. fyrirhuguðum lang-
þráðum úrbótum í samgöngumálum
á Vestfjörðum og Norðausturlandi
og þar með íbúum viðkomandi land-
svæða. Flokksráð VG harmar að þau
svæði sem að öllu eðlilegu ættu að
njóta stuðnings fremur en hitt og
sannanlega hafa miklu fremur verið
þolendur en njótendur stóriðjuums-
vifanna skuli nú látin bera afleiðing-
arnar. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð heitir því að snúa við
blaðinu og leggjast á árar með
heimamönnum m.a. með stórátaki í
að bæta samgöngur á landi þar sem
þær eru enn ófullnægjandi, verði
flokkurinn í aðstöðu til þess eftir
komandi alþingiskosningar. Einnig
hyggst flokkurinn koma aftur á
reglubundnum strandsiglingum eins
og þingmenn hans hafa lagt til á Al-
þingi undanfarin ár.“
VG vill stórátak í samgöngumálum
smáauglýsingar
mbl.is