Morgunblaðið - 09.09.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 21
MENNING
NÝ sérsýn-
ing verður
opnuð í
Bogasal
Þjóðminja-
safns Ís-
lands í dag
en þar gefur
að líta út-
saumuð
handverk
listfengra
kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggist á nið-
urstöðum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og búninga-
fræðings og ber heitið Með silfurbjarta nál – spor
miðalda í íslenskum myndsaumi.
Textílsýning
Handverk
liðinna alda
GUNNAR Kvaran sellóleikari
og Selma Guðmundsdóttir
píanóleikari halda tónleika í
Laugarborg í Eyjafjarðarsveit
á morgun kl. 15. Á efnisskrá
tónleikanna er Svíta eftir
franska tónskáldið Couperin,
Sónata „Arpeggione“ eftir
Franz Schubert, Fantasíu-
þættir opus 73 eftir Robert
Schumann og Íslensk þjóðlög í
útsetningu Hafliða Hallgríms-
sonar. Gunnar og Selma hafa
starfað saman að tónleikahaldi frá 1995 og gefið út
tvo geisladiska, Elegía sem kom út árið 1996 og
Gunnar og Selma sem kom út fyrir rúmu ári.
Tónleikar
Gunnar og Selma
á selló og píanó
Gunnar Kvaran og
Selma Guðmunds-
dóttir
HÖNNUNARSAFN Íslands
sýnir í fyrsta sinn finnska list-
muni úr gleri og keramik á
sýningu sem opnuð er í dag.
Hönnunarsafnið er til húsa á
Garðatorgi 7 í Garðabæ.
Þar hefur áður norræn
hönnun frá Danmörku, Noregi
og Svíþjóð verið til sýnis en
ekki frá Finnlandi fyrr en nú.
Tveir listamenn sýna verk sín í Hönnunarsafni
Íslands að þessu sinni en það eru glerlistakonan
Camilla Moberg og Karin Widnäs, sem vinnur
með keramik og hefur sérhæft sig í japanskri
tækni sem kennd er við Raku. Norræni menning-
arsjóðurinn styrkti sýninguna.
Hönnun
Finnsk hönnun í
fyrsta sinn
FÓTBOLTAKAPPINN Zinédine
Zidane er enn í sviðsljósinu, því
heimildamyndin um hann, sem Sig-
urjón Sighvatsson framleiddi, nýtur
mikillar velgengni. Kyrramynd úr
myndinni prýðir nýjustu forsíðu
listatímaritsins virta Art Forum, en
á síðum blaðsins er afar jákvæð um-
fjöllun um myndina að sögn Sig-
urjóns, og önnur, „svolítið öðruvísi“.
Nú er búið að tilnefna leikstjóra
myndarinnar Douglas Gordon og
Philippe Parreno til Gucci-
verðlaunanna, en þau eru veitt lista-
mönnum úr öðrum listgreinum sem
þykja hafa lagt merkan skerf til
kvikmyndalistarinnar.
Gucci-verðlaunin eru samstarfs-
verkefni Feneyjatvíæringsins, Kvik-
myndahátíðarinnar í Feneyjum og
Gucci-fyrirtækisins. Gordon og Par-
reno eru báðir vel þekktir myndlist-
armenn, og verk þeirra prýða meðal
annars Pompidou-safnið í París og
Guggenheim í New York. Meðal
annarra listamanna sem tilnefndir
eru til verðlaunanna sem veitt eru í
fyrsta sinn nú, má nefna tónlistar-
manninn Nick Cave, fyrir handritið
að myndinni The Proposition, fyr-
irsætuna og ljósmyndarann Helenu
Christensen, fyrir leik í myndinni
Allegro, og rithöfundinn Alain
Robbe-Grillet fyrir leikstjórn mynd-
arinnar C’est Gradiva Qui Vous
Appellé.
„Þegar við byrjuðum á myndinni,
fyrir þremur árum, var Zidane enn
mjög þekktur, þótt hann væri ekki á
toppnum lengur,“ segir Sigurjón.
En vinsældir Zidanes áttu eftir að
dvína. „Tíminn leið, og þá var ekki
eins gaman. Við vorum til dæmis
spurðir hvort við vildum ekki frekar
gera mynd um Beckham. Við höfð-
um þó trú á því að Zidane myndi
standa sig í heimsmeistarakeppn-
inni.“
Sigurjón segir að margt í mynd-
inni verði enn athyglisverðara í ljósi
atburðanna í úrslitaleik HM, en sem
kunnugt er var Zidane, manni
keppninnar, vísað af velli fyrir að
hrinda andstæðingi sínum, eftir að
sá hafði gengið fram af honum með
munnlegum svívirðingum.
Kvikmyndir | Heimildamyndin um Zidane skorar víða
Keppir um
Gucci-verðlaunin
„Það er ýmislegt í myndinni sem getur varpað ljósi á það sem gerðist í
leiknum, og auðvitað hefur það gjörbreytt meðvitund fólks um hana. Í dag
vita allir hver Zidane er. Það hefur hjálpað til, en ekki haft úrslitaáhrif, því
hátíðarnar voru þá flestar búnar að panta myndina til sín,“ segir Sigurjón
Sighvatsson framleiðandi.
Myndin skýrir atburðina á HM
HULDA Jónsdóttir, 15 ára fiðl-
unemi í tónlistardeild Listaháskóla
Íslands, fær afhenta fiðlu að láni frá
Rachel Elisabeth Barton sjóðnum í
Chicago í dag. Þetta er í fyrsta sinn
sem Íslendingur fær lánaða fiðlu frá
sjóðnum, sem er kenndur við hinn
heimskunna fiðluleikara Rachel
Barton Pine, sem tvívegis hefur
komið fram sem einleikari með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Það verður
eiginmaður Rachel, Gregory J.
Pine, sem afhendir Huldu fiðluna en
þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn
lánar fiðlu til afburðanemanda utan
Bandaríkjanna. Þessi gjörningur er
mikil viðurkenning fyrir Huldu því-
jafnframt láninu fylgir það skilyrði
að hún haldi tónleika í Chicago á
vegum stofnunarinnar tvisvar á ári.
Lánið er til tveggja ára og fram-
lengjanlegt að þeim tíma liðnum.
Gregory Pine sagði í samtali við
Morgunblaðið að sjóðurinn hefði
umráð yfir tólf fiðlum og þar af
væru þrjár í eigu sjóðsins. Láns-
fiðlan er smíðuð af Vincezzo Sann-
ino um 1920. Fiðla Huldu er metin
á nærri 40.000 dali, eða tæpar þrjár
milljónir króna, sem eru mikil verð-
mæti í höndum 15 ára nemanda.
Rachel Elisabeth Barton sjóð-
urinn var stofnaður 1999, aðallega í
kringum fiðlubogasafn sem henni
hafði áskotnast. Það var þó ekki
fyrr en 2001 sem hljóðfæri komst í
eigu sjóðsins og það var einmitt
fiðlan sem Hulda hefur núna að
láni. Henni fylgdi einnig bogi, smíð-
aður af Victor Fetique, sem var
konsertbogi Rachel Barton Pine.
„Við hittum Huldu fyrst 1999. Í
febrúar 2000 bað Guðný Guðmunds-
dóttir okkur síðan um að leiðbeina
henni og við vorum hrifin af tilfinn-
ingalegri dýpt í leik hennar og
tæknigetu. Hljóðfæri hennar veitti
henni ekki tækifæri til þess að vaxa
sem tónlistarmaður og okkur fannst
hún þurfa hljóðfæri sem myndi
gera henni kleift að nýta hæfileik-
ana til hins ýtrasta. Ég held að hún
eigi eftir að ná mjög langt sem tón-
listarmaður. Hæfileikar skipta
miklu máli en hún er líka skipulögð
og öguð. Hæfileikar nýtast ekki ef
ögun og skipulagning fylgja ekki
með.“
Tónlist | Hulda Jónsdóttir fiðlunemi fær afhenta lánsfiðlu
Afburðanemi sem getur
náð langt sem tónlistarmaður
Morgunblaðið/Golli
Lánsfiðla Hulda Jónsdóttir mundar fiðluna góðu, sem metin er á tæpar
þrjár milljónir íslenskra króna. Hún hefur fiðluna í láni í tvö ár.
Í KÁNTRÍBÆNUM Nashville í
Tennessee ríki í Bandaríkjunum
er sinfónískri tónlist ekki úthýst,
þótt varla fái hún inni í Grand Ole
Opry höll sveitasöngvaranna.
Í dag verður vígð glæný tónlist-
arhöll þar í borg, sem verður að-
setur sinfónískrar tónlistar og Sin-
fóníuhljómsveitar Nashville.
Nashville-búar eru ekki mikið
fyrir nýmóðins arkitektúr ef eitt-
hvað er að marka myndir af tón-
listarhöllinni, því hún er byggð í
nýklassískum stíl, og svipar mjög
til evrópskra tónlistarhúsa sem
byggð voru á 18. og 19. öld. Salur
hússins hefur „skókassalagið“ sem
þykir gefa afbragðs hljómburð.
Herlegheitin kostuðu andvirði
tæpra níu milljarða íslenskra
króna.
Nýklassískur íburður Tónlistar-
höllin er afar glæsileg á að líta.
Gamaldags
arkitektúr í
glænýrri
tónlistarhöll
Nýtt tónlistarhús
opnað í Nashville
í Bandaríkjunum
Á FYRRI helmingi þessa árs heim-
sóttu jafnmargir Listasafn Íslands
og allt árið í fyrra, rúmlega 30 þús-
und manns.
Ástæðu þess má rekja til styrkt-
arsamnings sem listasafnið gerði við
Samson eignarhaldsfélag sem meðal
annars fól í sér að fella niður að-
gangseyri að safninu.
Listasafn Íslands hefur tekið upp
nýtt skráningakerfi til að fylgjast
með aðsókninni auk þess sem safnið
hefur fengið Félagsvísindastofnun
til að gera þjónustukönnun meðal
safngesta.
Könnunin hefur meðal annars
leitt í ljós að 75% svarenda telji það
líklegt eða frekar líklegt að ókeypis
aðgangur verði til þess að þeir heim-
sæki safnið oftar.
Morgunblaðið/Júlíus
Aukin aðsókn Sífellt fleiri sækja
sýningar Listasafns Íslands.
Stóraukin að-
sókn að Lista-
safni Íslands
»Heimildamyndin Zidane:Portrett 21. aldarinnar
verður frumsýnd á Kvik-
myndahátíð í Reykjavík í lok
september.
»Leikstjórar myndarinnarhafa verið tilnefndir til
nýrra, stórra kvikmyndaverð-
launa, Gucci- verðlaunanna.
»Helstu kvikmyndahátíðirheims sýna myndina, þar á
meðal þær í Cannes, Sarajevo,
Feneyjum, og Toronto.
Í HNOTSKURN