Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 26
Það er mikil frjósemi á Smíða-
verkstæðinu um þessar mundir
og barnauppeldi og brjóstagjöf
algengt umræðuefni. » 28
daglegt
|laugardagur|9. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Litríkar, dömulegar og sport-
legar töskur eru það sem blífur
þegar flakkað er með far-
tölvuna. » 30
tíska
Það er lítið mál að gera
sínar eigin kryddolíur
og edik úr garðuppsker-
unni. » 31
matur
Hún er ljós og lifandi íbúðin
þeirra Alfreðs og Evu Bjarkar í
Vesturbænum og birta flæðir
um áður drungaleg rými. » 32
hönnun
„ÞEGAR kona ber svona stóran
hring, þá þarf hún í raun ekkert
annað skart,“ segir Berglind
Gestsdóttir, eigandi Trippen-
skóbúðarinnar við Rauðarárstíg,
um hringa stórbrotna sem fást í
verslun hennar.
„Þetta eru allt módelhringar og
handunnir eftir pöntunum, en
konan sem hannar þessa hringa
heitir Daniela De Marchi en hún
er ítölsk og fyrirmynd hennar í
þessum skartgripum eru kór-
allar,“ segir Berglind sem einnig
er með eyrnalokka, hálsmen og
armbönd í kóralskartinu.
Hún segir að vissulega þurfi
sterkan perónuleika til að bera
svona stóra og áberandi hringa,
en samt sem áður hafi hún séð
ólíkustu konur falla fyrir þessum
hringum.
Skart passar vel í skóbúð
„Ég er að fara til Parísar í
október á sýningar og þar mun
ég hitta Danielu, sem er mjög
skemmtileg kona,“ segir Berglind
og bætir við að fyrsti fundur
þeirra hafi verið svolítið fyndinn.
„Vinkona mín sem býr í Mílanó
átti hring frá Danielu og hún
kom mér í tölvupóstssamband við
hana og ég keypti af henni skart
í gegnum síma til að selja í búð-
inni minni. Síðan bauð Daniela
mér á sýningu út og þegar við
hittumst kom í ljós að hún var í
Trippen-skóm og gengur reyndar
ekki í annars konar skóm. Ég
tjáði henni að í búðinni þar sem
ég seldi hringana hennar seldi ég
einvörðungu Trippen-skó. Þetta
fannst okkur báðum frábær til-
viljun.“
Að selja skart og fatnað í skó-
verslun er frekar óvenjulegt, en
Berglind segir að sér hafi fundist
hringarnir tóna vel við Trippen-
skóna og sama sé að segja um
fötin hennar Ástu Guðmunds-
dóttur sem hún selur í versl-
uninni. „Skórnir, skartið og fötin
mynda sérstaka heild,“ segir
Berglind sem einnig selur skart
eftir tvo íslenska hönnuði, Óskar
Waagfjörð og Dís.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sjávarfang Kóralþemað er þráðurinn í skartgripahönnuninni.
Stórir Berglind skartar einum af hringum Danielu, en þá má finna í mörgum útgáfum eins og sjá má.
Kóralhringar
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.danielademarchi.it
Það eru ólíkleg-
ustu konur sem
falla fyrir hringa-
hönnun Danielu.
ER yfirmaðurinn þinn valdasjúkur, hugsar
hann bara um að fá sem hæst laun eða
leggur hann mest upp úr því að eiga gott
samstarf við undirmenn sína og sjá til þess
að þeir eflist í starfinu?
Sænsk könnun bendir til þess að til séu
sex tegundir af stjórnendum. Um 16%
sænsku stjórnendanna, sem tóku þátt í
könnuninni, sögðu aukin völd vera meg-
inástæðu þess að þeir sóttust eftir yf-
Martröð launþegans Svæðisstjórinn David Brent, sem Ricky Gervais leikur í
gamanþáttunum The Office, er líklega maður sem fáir vildu vinna fyrir.
Sex teg-
undir
yfirmanna
irmannsstöðunni en 17% sögðu há laun
helstu ástæðuna.
Niðurstaða könnunarinnar var sú að
skipta mætti stjórnendum í sex hópa:
Stjórnendur sem kappkosta að eiga gott
samstarf við undirmenn sína og gleðjast
þegar þeir sjá þá dafna í starfinu.
Stjórnendur sem vilja hafa áhrif, hafa
ákveðnar skoðanir á því hvernig stjórna
eigi og koma hlutunum í framkvæmd.
Stjórnendur sem leggja mest upp úr
völdunum og vilja vera í aðstöðu til að
stjórna að eigin geðþótta.
Stjórnendur sem láta sér aðallega annt
um frelsið sem fylgir yfirmannsstöð-
unni.
Stjórnendur sem leggja mest upp úr því
að fá sem hæst laun.
Stjórnendur sem þáðu stöðuna af
skyldurækni, eða vegna þess að þeir
töldu fjölskyldu sína og vini vænta þess
af þeim.
Æ FLEIRI konur láta sig hluta-
bréfamarkaðinn varða, ef marka má
samtök danskra hlutabréfaeigenda
(DAF). Á 11 árum hefur fjöldi
kvenna í félaginu aukist um 14 pró-
sentustig, úr 2% í 16%. Þá er þriðj-
ungur nemenda í hlutabréfaskóla
samtakanna konur.
Í grein á vefútgáfu Berlingske ti-
dende er rætt við Ellen Cravach,
stjórnarmann í DAF sem segir
greinilegt að konur vilji hafa sitt að
segja um hvernig fjármunum fjöl-
skyldunnar er varið, í stað þess að
láta eiginmanninum slíkar ákvarð-
anir eftir.
Algengt umræðuefni
meðal vinkvenna
Á Netpóstinum, sem gefur út
fjármálalegar greiningarskýrslur
og býður sjálfstæðum fjárfestum
upp á námskeið, taka menn líka eft-
ir auknum áhuga á hlutabréfa-
viðskiptum meðal kvenna. Þannig
hefur fjöldi kvenna á námskeiðum
þeirra tvöfaldast úr 10% í 20% að
undanförnu. „Í dag er mjög eðlilegt
að ung kona hafi áhuga á hluta-
bréfamörkuðum,“ segir fram-
kvæmdastjóri Netpóstsins, Martin
Lykke Nielsen. „Það er alls ekki
svo óalgengt að maður heyri konur
ræða þessi mál við vinkonur sínar
yfir kvöldverði.“
Í desember 2005 átti þriðjungur
allra danskra kvenna hlutabréf ef
marka má greiningarskýrslu sem
unnin var fyrir DAF. Og að mati
Claus W. Silfverberg, forstjóra
DAF eru konur flinkari í fjárfest-
ingum sínum en karlar. Þetta rök-
styður hann með því að í Banda-
ríkjunum séu til sérstakir hluta-
bréfaklúbbar kvenna líkt og
hlutabréfaklúbbar karla. Hins veg-
ar ná klúbbar kvennanna betri ár-
angri að sögn Silfverbergs.
fjármál
Konur
naskar á
hlutabréf