Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 30
tíska
30 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Fartölvur eru orðnar hefð-bundinn partur af dag-legum búnaði margra í at-vinnulífi og námi. Það er
ekkert grín að burðast með tölvuna
allan daginn og því skiptir far-
tölvutaskan miklu máli. Það er ekki
langt síðan aðeins var hægt að fá
eina gerð af fartölvutöskum; stórar,
svartar og frekar ljótar, sem áttu
ekki bara að nýtast undir tölvuna
heldur líka sem skóla- eða skjala-
töskur. Hægt var að geyma svo mik-
ið af bókum í töskunni með tölvunni
að þyngdin var orðin óviðráðanleg
flestu venjulegu fólki og stærðin á
töskunum var ekki í samræmi við
neinn nema tröllvaxinn væri. Sem
betur fer hefur þetta breyst og úr-
valið af fartölvutöskum aukist mikið.
Eiga að vera flottar
Í dag skiptir máli að töskurnar
séu nettar og flottar, í stíl við eig-
andann og klæðaburð hans. Þær
eiga helst ekki að líta út fyrir að vera
fartölvutöskur bæði vegna þess að
það er flottara og minni hætta er á
að þeim sé stolið ef ekki virðist vera
tölva innanborðs. Töskurnar eiga að
vernda tölvuna vel og eru oft ekki
með pláss fyrir neitt annað en hana
og kannski hleðslutækið og tölvu-
músina, annað er óþarfi.
Svartar og hefðbundnar töskur
eru ennþá algengastar en þær eru
orðnar mikið hentugri en áður. Far-
tölvubakpokar sjást líka mikið og
eru þeir eins og hver annar bakpoki
í útliti og oft sportlegir. Þægilegra
er að geta skellt tölvunni á bakið en
að burðast með hana á annarri öxl-
inni, sérstaklega þegar ferðast er
um á hjóli eða fótgangandi. Kven-
legar fartölvutöskur hafa rutt sér til
rúms og líta oft út eins og hefð-
bundnar handtöskur, svo konan geti
verið smart þó fartölvan sé með í
för.
Viðskiptafólkið vill svart
Hjá EJS á Grensásvegi er hægt
að fá línu innan fartölvutöskumerk-
isins Targus sem er eingöngu fyrir
konur. Töskurnar eru úr leðri og líta
út eins og handtöskur, rauðar og
svartar að lit og mjög kvenlegar.
„Við erum með þrjú merki af far-
tölvutöskum. Það er hægt að fá
dömulegar töskur, sportlegar og svo
þessar venjulegu,“ segir Hrafnkell
Helgason, sölufulltrúi hjá EJS.
„Flestir sem eru að kaupa sér tölvu
kaupa sér tösku um leið enda geng-
ur ekki annað en að hafa tösku utan
um tölvuna, nema þú ætlir ekki með
hana út úr húsi.“ Hrafnkell segir að
svörtu og venjulegu tölvutöskurnar
séu vinsælastar enda passi þær með
öllu. „Þær ýta undir alvarlegt útlit
og því kaupir viðskiptafólkið þær
mikið, þú sérð það fólk ekki með
sportlega hliðartösku utan um far-
tölvuna, framhaldsskólakrakkarnir
kaupa þær frekar.“
Í Apple búðinni á Laugavegi er
mikið úrval af litskrúðugum far-
tölvutöskum þótt þær svörtu slæðist
inn á milli. „Við erum aðallega með
tvö merki, Acmemade töskur eru
mynstraðar, litskrúðugar og penar.
Konur kaupa þær meira enda eru
þær ekki fartölvutöskulegar. Við
höfum verið með þetta merki í tvö ár
og seljum alltaf vel af því enda þykir
það flott og öðruvísi,“ segir Sigurður
Þorsteinsson verslunarstjóri hjá
Apple. „Hitt merkið er Crumpler og
er það með bakpoka og hliðartöskur
í sportlegum stíl. Það er vinsælt
núna að kaupa hliðartösku með
langri ól sem hægt er að smeygja á
ská yfir sig. Hönnunin á Crumpler
töskunum höfðar meira til yngra
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Kvenleg Nettar og fallegar far-
tölvutöskur sem minna á venjulega
handtösku. Frá EJS.
Morgunblaðið/Sverrir
Töff Sportleg fartölvutaska úr Apple-búðinni.
Í dag skiptir máli
að töskurnar séu
nettar og flottar,
í stíl við eigand-
ann og klæða-
burð hans.
Sportlegar, nettar og
litríkar fartölvutöskur
KAFFI hefur í aldanna rás haldið margri mann-
skepnunni gangandi við iðju sína enda fátt sem
hristir slenið jafnrækilega af vinnandi fólki og
krassandi kaffi. Góður kaffibolli getur gert hrein-
asta kraftaverk, breytt slæmum vinnudegi í ljúfan
og veitt nauðsynlega skyndiorku þegar mikið ligg-
ur við. Ekki má heldur vanmeta hvað góður kaffi-
bolli getur gert fyrir sálartetrið þegar argaþras
hversdagsins er í þann mund að bera það ofurliði.
Að sama skapi verða vonbrigðin yfirþyrmandi
þegar kaffið stendur ekki undir væntingum og
reynist ekkert annað en sull af verstu sort. Og
bjóði vinnustaðurinn ekki upp á annað en fjölda-
framleitt maskínuskólp, líkt og víða þekkist, getur
það reynt á þolrif kaffiunnandans og dregið úr
daglegri starfsgleði svo ekki sé sterkar kveðið að
orði.
Kaffikonur og -karlar þurfa þó ekki að þjást í
hljóði heldur geta þau kitlað kaffitaugarnar með
einföldum aðgerðum. Oft þarf ekki annað en litla
eins bolla pressukönnu og poka af gæðakaffi til að
framkalla sæluhrollinn sem bjargar deginum. Lítill
brúsi af kaffisýrópi eða kandísstöng setur svo
punktinn yfir i-ið. Tedrykkjufólk getur gert slíkt
hið sama með því að sniðganga gamaldags tepoka
en taka í staðinn með sér spennandi telauf og eigin
síu. Og þá má ekki gleyma persónulega bollanum
sem framkallar þá tilfinningu hjá eigandanum að
hann sé kominn heim.
Kitlandi kaffisæla
Morgunblaðið/Ásdís
Ilmandi te við tölvuna Te og kaffi, tebolli með síu og
loki, 1.595 kr. Bancha japanskt te 100 grömm, 560 kr.
Húsatúns hunang, 165 grömm, 325 kr.
Eykur orkuna Te og kaffi, Latte-
bolli, 1.290 kr. Kandísstangir
5 stk. í pakka 295 kr. Kaffitár,
Bodum götumál með pressu fyrir
þá sem stöðugt eru á ferðinni
2.990 kr.
Morgunblaðið/Ásdís
Gott að narta í Húsgagnahöllin, Galzone
kaffiglas, stakt 340 kr. eða tvö í pakka með
áhangandi skeiðum 890 kr. Galzone diskur
1.280 kr. Kaffitár, Biscotti þríbökur þrjár í
pakka 390 kr.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is