Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 54
Staðurstund
54 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Fjórða breiðskífa Brain Police
kemur út á þriðjudaginn. Arnar
Eggert ræddi við trommuleik-
arann Jónba um afurðina. » 59
tónlist myndlist
Ragna Sigurðardóttir hendir
upp hattinum sínum fyrir Rom-
an Signer, sem sýnir í Safni við
Laugaveg. » 57
söfn
Ásgeir Ingvarsson fjallar um Ib-
sensafnið í Osló og lætur sig
dreyma um íslenskt bók-
menntasögusafn. » 57
Þjóðleikhúsið frumsýnir verkið
Sumardagur eftir Jon Fosse í
leikstjórn Egils Heiðars Antons
Pálssonar. » 56
leikhús
Ekkert mál, saga Jóns Páls Sig-
marssonar, er vel gerð og mik-
ilvæg heimildarmynd að mati
Sæbjörns Valdimarssonar. » 58
kvikmynd
LÍF fólks í undirheimum Reykjavík-
ur er viðfangsefni kvikmyndarinnar
Barna, sem verður frumsýnd í Há-
skólabíói í kvöld kl. 20.30.
Ragnar Bragason er leikstjóri, en
myndin er samvinnuverkefni hans
og leikhússins Vesturports. Handrit
myndarinnar var unnið í samvinnu
Ragnars og leikaranna, en í aðal-
hlutverkum eru Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Filippusdóttir og
Ólafur Darri Ólafsson. „Ég fékk
Vesturport í lið með mér í þetta
verkefni eftir að ég fékk þá hug-
mynd að vinna handrit og bíómynd í
samvinnu við leikara,“ sagði Ragnar
Bragason í samtali við Morgunblaðið
fyrir skömmu, en persónusköpun fór
að miklu leyti fram með spunavinnu
leikaranna.
Aðrir leikarar í myndinni eru
Andri Snær, Hanna María Karls-
dóttir, Erlendur Eiríksson, Margrét
Helga Jóhannesdóttir og Sigurður
Skúlason; tónlistina samdi Pétur
Þór Benediktsson en kvikmynda-
taka var í höndum Bergsteins Björg-
úlfssonar. Huldar Freyr Arnarsson
sá um hljóðvinnslu og Sverrir Krist-
jánsson um klippingu.
Börn hefur þegar verið valin til
þátttöku á kvikmyndahátíðum er-
lendis; á stærstu kvikmyndahátíð í
Asíu, Pusan International Film
Festival í Suður-Kóreu í lok október,
og á alþjóðlegu hátíðinni í San Seb-
astian á Spáni nú í lok sept-
embermánaðar.
Ragnar Bragason sagði að vinnan
við myndina hefði verið mjög
skemmtileg, allt frá fyrsta degi. „Ég
er með mörg börn í myndunum, en
flestir leikstjórar hræðast það. Að
vinna með börnum á þessum for-
sendum var algjör sæla.“
Börn eru sjálfstæður fyrri hluti
myndatvennu Ragnars og Vest-
urports um fjölskyldutengsl. Seinni
myndin heitir Foreldrar, og verður
frumsýnd síðar í haust.
Frumsýning | Börn
Sæla að vinna með börnum
Svarthvít Ólafur Darri Ólafsson og Margrét Helga Jóhannesdóttir í hlutverkum sínum.
Áslaug Thorlacius ríður á vaðið í annarri sýning-arröð FUGLs, Félags um gagnrýna list, meðsýningu inni á heimili vinafólks síns í Garði áÆgisíðu. FUGL hóf starfsemi sína árið 2005
með röð sýninga í Verslun Indriða á Skólavörðustíg sem
vöktu talsverða athygli. Nú tekur félagið til við sýn-
ingarhald á ný en með nokkuð öðru sniði. Í þetta
skipti verður listamönnum í sjálfsvald sett hvar
sýningaraðstaðan er.
„Ég vildi hafa sýninguna persónulega og þess
vegna valdi ég Garð á Ægisíðunni. Ég bjó sjálf í
húsinu í eitt ár og auk þess vinn ég sjálf mikið í
hugmyndum sem tengjast heimilinu. Það var
því rakið að fara með sýninguna inn á
heimili, heimili sem var einu sinni mitt
heimili. Þarna máta ég mitt heimili í
málverkum, ljósmynd og skúlptúrum
við heimili vina minna. Um leið er ég
að velta því fyrir mér hvernig heimilið
og starfið rennur saman,“ segir Ás-
laug.
Það er nokkuð um liðið síðan Ás-
laug var með sýningu í Reykjavík en
hún hefur sýnt úti á landi og sömuleiðis
erlendis.
Á leið til Kína með fjölskylduna
til að stunda list sína
„Ég er að færa mig yfir í hefðbundn-
ari miðla þótt það sé orðið talsvert loðið
hvað telst ekki vera hefðbundið nú orð-
ið. Ég líka alltaf að reyna að láta
drauminn rætast um að vera lista-
maður. Ég hef alltaf unnið inni á heimilinu
mínu og aðstæðurnar hafa ekki leyft það að ég
vinni til dæmis mikið þar með olíu. Einhvers
staðar á ég mér því stóran draum um vera
listamaður sem málar eingöngu olíumyndir.“
Áslaug segir að myndirnar séu að sínu mati
afar heimilislegar og málaðar með svokallaðri
tempera-aðferð.
„Þetta er í grunninn sama aðferð og íkona-
málarar notuðu. Kannski er svolítið ýjað að
helgi heimilisins í þessum myndum.“
Áslaug hefur verið mjög virk í félagsmálum
fyrir myndlistarmenn, er t.a.m. formaður
Sambands íslenskra myndlistarmanna, en sér
fram á talsverðar breytingar á sínum högum á
næstunni.
„Við erum að fara fjölskyldan, við hjónin og
fjögur börn okkar, nk. þriðjudag til Kína þar
sem við ætlum að vera fram yfir áramót. Við
ætlum að búa þarna og vera með vinnustofu
og hugsa einungis um heimilið og vinnuna.
Hugsanlega soga ég inn kínversk áhrif en í
það minnsta hef ég gott af þessu,“ segir Ás-
laug.
Önnur sýningarröð FUGLs, Félags
um gagnrýna list, að hefjast í fremur
óvenjulegri sýningaraðstöðu
Helgi heimilisins í myndum Áslaugar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Listakona Áslaug Thorlacius í
faðmi fjölskyldunnar með eitt
verka sinna. Fjölskyldan er á
leið til Kína innan tíðar og mun
dvelja þar fram yfir áramótin.