Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 58

Morgunblaðið - 09.09.2006, Page 58
58 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ „VERA goðsögn í lifanda lífi“ er ofnotuð klisja, en kraftlyftinga- maðurinn, heljarmennið og skemmtikrafturinn Jón Páll Sig- marsson stendur undir stóru orð- unum. Hann féll frá í blóma lífsins en hafði afrekað margfalt meira á stuttri ævi en flesta dreymir um á lífsleiðinni. Hann var ekki aðeins afburða hraustmenni sem vann til fjölda titla í kraftlyftingum, lík- amsrækt, alþjóðlegum krafta- keppnum og nafnbótarinnar „Sterkasti maður heims“, heldur var hann einatt hrífandi málsvari íslensku þjóðarinnar. Keppandinn sem hirti ekki aðeins gullið heldur alla athyglina eins og hún lagði sig, því meðal ríkulegra vöggu- gjafa sem honum voru gefnar var góð greind, orðheppni, keppnis- skap og drenglyndi sem ávann Jóni Páli virðingu hvar sem hann kom. Það hlaut að koma að því að reistur yrði kvikmyndalegur bautasteinn um slíkan mann og nú hefur hann séð dagsins ljós. Þetta er ekkert mál – saga Jóns Páls Sigmarssonar, er vel gerð, mikil- væg heimildarmynd, unnin af vin- um hans, Steingrími Jóni Þórðar- syni og Hjalta Árnasyni. Hún fylgir hefðbundnum efnistökum, unnið úr miklu myndefni sem til er um kappann knáa, rætt er við samferðamennina hans, vini og mótherja, sem oftar en ekki eru einu og sömu persónurnar. Hluti Þetta er ekkert mál, er sviðsettur með leikurum og fellur hann nán- ast snurðulaust að heimildunum. Sá sem þessar línur skrifar er enginn sérstakur aðdáandi lyftinga né líkamsræktar, en á meðan Jóns Páls naut við lá ég, líkt og stærst- ur hluti þjóðarinnar, sem límdur við skjáinn þegar „Okkar maður“ átti í hlut á mótum úti um heimsbyggðina. Jón Páll lyfti keppn- unum sem hann tók þátt í upp í æðra veldi, þarna var sann- ur víkingur á ferð, sem gerði atburðina að ósviknu einvígi: Annars vegar þessi glæsilegi, ljóshærði beljaki, sem enginn velktist í vafa um hvaðan kæmi, og svo allir hinir. Sem Jón Páll lagði oftar en ekki að velli, ekki að- eins líkamlega, heldur andlega. Jafnan heið- arlegur keppnismaður sem þjarmaði að and- stæðingnum með fullri virðingu. Kom, sá og sigraði, og þá sjaldan það gerðist, þá tapaði hann með reisn. Var sannkallaður herramað- ur og bardagamaður. Þetta er efni heimildarmyndar- innar um brosandi víkinginn og unnið af þeirri einlægni sem hæfir umfjöllunarefninu. Kvikmynda- gerðarmennirnir geta sannarlega verið stoltir af árangrinum. Eini ljóðurinn að mínu mati er undir lokin þar sem lopinn er teygður í viðtölum við samferðafólkið, það hefði mátt fækka þeim þar sem meira er gert úr viðmælandanum en viðfangsefninu. Flestir, einkum Skotarnir, tala þannig um hann að maður hrærist og sér þessa gömlu mótherja hans í fallegri birtu og gerir sér enn betur ljóst hversu mikils og víða hann var metinn. Ég veit ekki hvort það er í anda minningarinnar um þennan síkáta, orðsnjalla gleðigjafa sem var með- fætt og einkennandi að gera öllum lífið ólíkt meira spennandi og skemmtilegra, að dvelja jafnlengi við sálminn góða og þann kafla. Með fullri virðingu fyrir hugarþel- inu á bak við þá ákvörðun og harmleik skammrar ævi og ótíma- bærs fráfalls. Þetta eru smáatriði, aðalmálið er að Þetta er ekkert mál er engin glansmynd, þó efnið bjóði uppá það, heldur heiðarleg, fróðleg og yfir höfuð bráðskemmtileg mynd af manninum sem fetaði í fótspor Alberts Guðmundssonar, Friðriks Ólafssonar og örfárra afreks- manna til viðbótar, sem unnu sér þann glæsilega sess að verða Óskabörn þjóðarinnar. Brosandi víkingurinn KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Selfoss- bíó, Borgarbíó Akureyri, Sam- bíóin Keflavík, Akranesi, Fjarðar- byggð, Patreksfirði Heimildarmynd. Leikstjórn, kvikmynda- taka og klipping: Steingrímur Jón Þórðar- son. Önnur myndataka: Friðþjófur Helga- son og Hjalti Árnason. Handrit: Hjalti Árnason og Steingrímur Jón Þórðarson. Tónlist: Sigurgeir Sigmundsson. Aðalleik- arar: Skarphéðinn Hjaltason (Jón Páll sem barn), Garðar Unnarsson (Jón Páll ungur), Sæmundur Unnar Sæmundsson (Jón Páll fullorðinn). Viðmælendur m.a.: Þorgrímur Þráinsson, Ómar Ragnarsson, Finnur Karlsson, Skúli Óskarsson, Tom Magee, dr. Douglas Edmunds, Hjalti Árnason, og fleiri. 110 mínútur. Goðsögn kvikmyndagerð. Ísland. 2006. Þetta er ekkert mál  Heimildarmynd „Kvikmyndagerðarmennirnir geta sannarlega verið stoltir af árangrinum.“ Sæbjörn Valdimarsson Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is Kortasala hafin! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Litla hryllingsbúðin – síðustu aukasýningar Lau 9. sept kl. 19 UPPSELT Lau 9. sept kl. 22 UPPSELT Sun 10. sept kl. 20 UPPSELT Fim 14. sept kl. 20 Ný aukasýn. í sölu núna! Fös 15. sept kl. 19 örfá sæti laus Lau 16. sept kl. 19 UPPSELT – síðasta sýning Leikhúsferð með LA til London Expressferdir.is - 5000 kr. afsláttur fyrir kortagesti. www.leikfelag.is 4 600 200 Rokksveit Rúnars Júlíussonar í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar. www.kringlukrain.is Sími 568 0878 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 10/9 kl. 14 Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Sun 10/9 kl. 20 Sun 24/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 FOOTLOOSE Í kvöld kl. 20 Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20 Fim 28/9 kl. 20 ALLIR Í LEIKHÚSIÐ Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgar- leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Áskriftarkort á 5 sýningar á 9.900. Þeir sem gerast áskrifendur fyrir 20.sept. fá gjafakort í Borgarleikhúsið í kaupbæti. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is PINA BAUSCH LOKSINS Á ÍSLANDI! Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn Pinu Bausch verður með 4 sýningar á verkinu Aqua í Borgarleikhúsinu. Sun 17/9 kl. 20 UPPS. Mán 18/9 kl. 20 Þri 19/9 kl. 20 Mið 20/9 kl. 20 Aðeins þessar 4 sýningar. Miðaverð 4.900. MIÐASALA HAFIN. MEIN KAMPF Lau 23/9 frumsýning UPPS. Mið 27/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 MIÐASALA HAFIN. ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir! Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar- son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson. Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney. Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „EKKI HUGSA. DANSAÐU!“ Miðasala 568 8000 www.id.is ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands F í t o n / S Í A STYRKTAR- TÓNLEIKAR FL GROUP OG SINFÓNÍU- HLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Í DAG KL. 17.00 fl group og sinfóníuhljómsveit íslands halda styrktartónleika í dag kl. 17.00 fyrir bugl, barna- og unglingageðdeild landspítala - háskólasjúkrahúss. SÖNGUR SÓLVEIGAR Í HÁSKÓLABÍÓI Í DAG 9. SEPTEMBER KL. 17.00 STYRKTU GOTT MÁLEFNI OG NJÓTTU GÓÐRAR TÓNLISTAR UM LEIÐ Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einsöngvari ::: Solveig Kringelborn EFNISSKRÁ: Hector Berlioz ::: Rómverskt karnival, forleikur Edvard Grieg ::: Fimm söngvar Nikolaj Rimskíj-Korsakov ::: Sheherazade MIÐASALA ::: SÍMI 545 2500 WWW.SINFONIA.IS Mr. Skallagrímsson - leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Föstudag 8/9 kl. 20 Uppselt Laugardag 9/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 10/9 kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 13/9 kl. 20 Uppselt Föstudagur 15/9 kl. 20 Uppselt Laugardagur 16/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 17/9 kl. 20 Uppselt Laugardagur 23/9 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 24/9 kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 27/9 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 28/9 kl.20 Laus sæti Fimmtudagur 5/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 6/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 7/10 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 8/10 kl. 20 Örfá sæti Fimmtudagur 12/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 13/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 14/10 kl. 20 Örfá sæti Sunnudagur 15/10 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 19/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 20/10 kl. 20 Laus sæti Laugardagur 21/10 kl. 20 Laus sæti Sunnudagur 22/10 kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 26/10 kl. 20 Síð. sýn. á árinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.