Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 61 dægradvöl 1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 e6 5. g3 Db6 6. Rb3 Re5 7. R1d2 Bb4 8. a3 Dc6 9. axb4 Dxh1 10. Rd4 Rf6 11. R4f3 d6 12. b3 O-O 13. Bb2 Rxf3+ 14. exf3 e5 15. h4 Bh3 16. De2 Bxf1 17. Rxf1 Dh3 18. O-O-O De6 19. Re3 b5 20. f4 bxc4 21. f5 De8 22. bxc4 Da4 23. b5 a6 24. b6 Dc6 25. g4 Hfe8 26. g5 Rd7 27. f6 Rxb6 28. fxg7 Staðan kom upp á minningarmóti Stauntons á Englandi. Jan Timman (2594) hafði svart gegn Jan Werle (2531). 28... Rxc4! og hvítur gafst upp enda taflið gjörtapað eftir t.d. 29. Dxc4 Dxc4+ 30. Rxc4 Hac8. 1. Ivan Sokolov (2652) 9 v. af 11 mögulegum. 2.-3. Jan Timman (2594) og Michael Adams (2732) 8½ v. 4. Jan Werle (2531) 7 v. 5. Erwin L’Ami (2586) 6½ v. 6. Peter Wells (2480) 5½ v. 7. Jon Speelman (2541) 5 v. 8. Tea Bosboom-Lanchava (2389) 4½ v. 9. Yge Visser (2516) 4 v. 10. David Ho- well (2479) 3½ v. 11. Jon Levitt (2431) 3 v. 12. Lawrence Day (2278) 1 v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. EM í Varsjá. Norður ♠Á97543 ♥Á84 ♦-- ♣Á652 Vestur Austur ♠KDG ♠10862 ♥G10 ♥K3 ♦1073 ♦KD986 ♣KDG84 ♣107 Suður ♠-- ♥D97652 ♦ÁG542 ♣93 Á 8 borðum af 32 í opna flokknum varð norður sagnhafi í tveimur spöð- um. Sá samningur fór tvo niður, sem er sjaldan gott og afleitt í þessu tilfelli þegar fjögur hjörtu vinnast auðveld- lega í sömu átt. Hvað gerðist? Jú, vest- ur hóf sagnir á veiku grandi, norður kom inn á tveimur spöðum og suður þorði ekki að hreyfa sig. Þegar slæm samlega blasir við eru spilarar hræddir við að fara úr öskunni í eldinn (sem er fínt orðalag fyrir uppgjöf). Í því ljósi verður að skoða pass suðurs í lokin. En hér er alls ekki útilokað að samlega finnist í rauðum lit. Eða eins og vitur maður sagði eitt sinn: „Ef samning- urinn er fyrirsjáanlega vondur, er ómaksins vert að reyna við annan betri.“ BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 óvinir, 8 þokast áfram, 9 veiðarfæri, 10 nett, 11 komist áfram, 13 fyrir innan allt, 15 eklu, 18 dreng, 21 blóm, 22 dá- in, 23 bætir við, 24 list- unnandi. Lóðrétt | 2 Gyðingum, 3 mannsnafn, 4 op, 5 spar- söm, 6 feiti, 7 karldýr, 12 stúlka, 14 gagnleg, 15 úði, 16 skeldýr, 17 kagga, 18 rétt, 19 auðugur, 20 þref. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gómur, 4 hæfir, 7 túpan, 8 lagin, 9 get, 11 róar, 13 orka, 14 óskar, 15 Fram, 17 mold, 20 enn, 22 lotan, 23 ausan, 24 rændi, 25 nakta. Lóðrétt: 1 gýtur, 2 mappa, 3 röng, 4 hált, 5 fægir, 6 renna, 10 eikin, 12 róm, 13 orm, 15 fílar, 16 aftan, 18 orsök, 19 dynja, 20 enni, 21 nafn. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16    1 Fyrirliði danska landsliðsins eraf íslenskum ættum. Hvað heitir hann? 2Mikið hefur verið unnið að jarð-gangagerð hér á landi að und- anförnu en hver voru fyrstu jarð- göngin fyrir bílaumferð? 3 Um aldaraðir var bannað aðneyta hrossakjöts hér á landi en hvernig stóð á því? 4 Surtshellir er lengsti hellir á Ís-landi. Hve langur er hann? 5 Íslenska stafrófið er dálítið út affyrir sig, ekki síst fyrir bókstaf- ina þ og ð. Hvert voru þeir upp- haflega sóttir? Spurter… dagbok@mbl.is Svör við spurningum gærdagsins: 1. Hitametið er 30,5 gráður á Teigarhorni 1939 og kuldametið 38 gráður á Gríms- stöðum og í Möðrudal 1918. 2. Carlos Tevez og Javier Mascherano. 3. Naut. 4. Ætihvönn,Við Breiðafjörð. Bandaríski leikarinn Jerry Lewisgetur gert sér vonir um góðan glaðning á næstunni en þrír öld- ungadeildarþingmenn hafa lagt til, að hann verði sæmdur gull- orðu þingsins fyrir allt það, sem hann hefur gert til að létta fólki lundina, og fyrir ötult starf að góðgerða- málum í marga áratugi. Sem dæmi um það má nefna, að á 10 árum hefur hann haft forgöngu um að safna nærri 100 milljörðum ísl. kr. í þágu þeirra, sem þjást af vöðvarýrnun og skyldum sjúkdómum. Lewis ber aldurinn vel en hefur þó átt við nokkurn sjúkleika að stríða. Fékk hann vægt hjartaáfall í júní síð- astliðnum og er ekki heill í lungum. Ofan í það fékk hann síðan lungna- bólgu en er nú allur að hressast.    Ákveðið hefur verið að koma fyrirstyttu af kvikmynda- og hnefa- leikahetjunni Rocky, öðru nafni Sylvester Stallone, fyrir utan Lista- safnið í Fíla- delfíu í Bandaríkj- unum. Var það sam- þykkt í lista- nefnd borg- arinnar með 6 atkvæðum gegn tveimur en þeir sem voru á móti héldu því fram að stytt- an væri alls ekkert listaverk og fá- ránlegt að stilla henni upp nálægt verkum eins og „Hugsuðinum“ eftir Auguste Rodin. Þar fyrir utan gengi ákvörðunin gegn þeirri stefnu að koma borginni „upp á aðeins hærra plan“. Einn þeirra sem voru hlynntir ákvörðuninni sagði að styttan, sem er 30 ára gömul, væru óumdeil- anlega „menningartákn“ en Stallone gaf hana borginni árið 1990. Stað- arvalið nú er tilkomið vegna þess að í fyrstu Rocky-myndinni 1976 sést Rocky hlaupa upp tröppurnar að listasafninu.    Leikkonan Lindsay Lohan segistvonast til þess að nýja myndin hennar muni hvetja ungt fólk til þátttöku í stjórnmálum. Kvikmynd- in Bobby, sem er nú til sýn- inga á kvik- myndahátíð- inni í Feneyjum, fjallar um morðið á þing- manninum Ro- bert Kennedy í Los Angeles í júní árið 1968. Emilio Estevez er leikstjóri mynd- arinnar. Lohan, sem er tvítug, segist vona að sú mynd sem sé dregin upp af Kennedy í myndinni muni hreyfa við fólki. „Fyrir fólk af minni kynslóð, þá tel ég að það sé mikilvægt að vekja vitund þeirra á miklum leiðtoga,“ segir hún. Lohan er ein af fjölmörg- um Hollywood-stjörnum sem leika í myndinni. Hún segir frá morðinu á Robert Kennedy út frá sjónarhóli 22 einstaklinga sem annaðhvort gistu eða unnu á Ambassador-hótelinu þar sem ódæðið átti sér stað. Meðal þekktra stjarna má nefna Sharon Stone, Anthony Hopkins, Martin Sheen og Demi Moore.    Fólk folk@mbl.is Þess er nú minnst með þriggjadaga hátíð í Seattle í Bandaríkj- unum, að 40 ár eru síðan geimvís- inda- eða geimævintýraþættirnir Star Trek hófu göngu sína. Þar munu safnast saman leikarar í þátt- unum, bæði gamlir og nýir, og víst er, að ekki munu aðdáendurnir láta sig vanta. Fyrsti Star Trek-þátturinn var sýndur vestra 8. september 1966 og lauk þeirri þáttaröð þremur árum síðar. Síðan kom hver þáttaröðin á fætur annarri og 10 kvikmyndir alls til þessa dags. Er nú verið að vinna að undirbúningi 11. myndarinnar.    Söngkonan, leikkonan og tísku-hönnuðurinn Gwen Stefani er ekki lengur bara löguleg stúlka, heldur líka dúkka. Nú í vikunni sagði hún frá því, að væntanleg væri á markað dúkkulína í hennar mynd og verður þess gætt að hafa upplagið takmarkað. Dúkk- urnar verða átta alls og hefur línan fengið nöfn- in Ást, Eng- ill, Tónlist, Ungabarn og Tíska. Munu þær allar skarta þeim litskrúðuga fatnaði, sem Stef- ani notaði í heimsreisunni sinni. Dúkkurnar verða rúmlega 25 cm háar, litfríðar og ljóshærðar eins og fyrirmyndin og að auki verður boðið upp á ýmislegt annað úr smiðju Stef- ani, til dæmis vasaspegla og plaköt. Uppsett verð fyrir dúkkuna verður 1.747 kr. ísl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.