Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Síðir og stuttir
samkvæmiskjólar
Nýtt Nýtt
Samkvæmisfatnaður
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
Eddufelli 2,
sími 557 1730
Bæjarlind 6,
sími 554 7030
Fjöldi aukahluta
Lágvær og þrælsterk,
endist kynslóðir
HÆ Ð A S M Á R A 4
S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
Litla Jólabúðin
flytur á
Laugaveginn.
Litla Jólabúðin
Laugavegi 8, 101 Rvk., sími: 552 2412
Gallabuxna-
dagar
20% afsláttur af öllum gallabuxum
frá föstudegi til sunnudags
sími 568 1626 • www.stasia.is
Gallabuxur fyrir allar,
í öllum stærðum,
háar og lágar, síðar og stuttar,
bláar, svartar, gráar og brúnar.
Finnurðu ekki stærðina þína?
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Saumum buxur eftir pöntun
Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun
Nýr opnunartími
vegna breytinga:
Opið mán.-fös.
kl. 16-18. buxur.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Á UNDANFÖRNUM misserum
hefur straumur fólks frá útlöndum
verið meiri en nokkru sinni fyrr.
Áætlað er að fólksfjölgun á árinu
nái nærri þremur prósentum en á
árinu 2005 fjölgaði landsmönnum
um 2,2% og var það meiri fólks-
fjölgun en verið hafði um áratuga-
skeið. Aðfluttir hafa þar mikil áhrif
og kemur ekki á óvart að mikill
hluti er búsettur á Austurlandi, og
heldur á ný mið að verkefnum
loknum. Hins vegar bendir margt
til þess að sá hópur fólks sem flutt
hefur til annarra landshluta komi
hingað í þeim tilgangi að búa til
frambúðar.
Þrátt fyrir mikinn fjölda að-
fluttra á Austurlandi hefur auk
þess mikill fjöldi fólks einnig flust
til annarra landshluta á árinu.
Töluverður fjöldi af því fólki teng-
ist umfangsmiklum framkvæmdum
sem eru í gangi í tengslum við
orku- og stóriðju á suðvesturhorn-
inu en einnig eru margir hingað
komnir til að leysa af hendi margs
konar störf í samfélaginu sem
framboð vinnuafls innanlands hefur
ekki getað annað.
Í vefriti fjármálaráðuneytisins
kemur fram að aðflutningurinn til
Austurlands skeri sig úr að því
leyti að yfir 90% aðfluttra þangað
eru karlmenn. Í öðrum lands-
hlutum var hlutfall aðfluttra karla
hins vegar 60% og kvenna 40%.
Aldursskiptingin á Austurlandi
sker sig auk þess mjög úr, því nær
¾ eru á aldrinum milli 30 og 54 ára
– algengasti aldurinn 45 til 49 ára.
Annars staðar á landinu er tíðasti
aldurinn hins vegar 25 til 29 ára og
næst á eftir kemur fólk á aldrinum
20 til 24 ára. Bendir það til þess að
sá hópur fólks sem flutt hefur til
annarra landshluta en Austurlands
sé að mestum hluta ungt fólk af
báðum kynjum sem kemur til Ís-
lands í þeim tilgangi að búa hér til
frambúðar, þ.e. ef því líkar vistin
vel.
Halda á ný mið
Í vefritinu kemur ennfremur
fram að sé reynsla undanfarinna
ára skoðuð bendi margt til þess að
það eigi frekar við þegar í hlut á
fólk sem kemur frá nýju ESB-
ríkjunum og Austurlöndum fjær.
Hins vegar má auðveldlega gefa
sér að erlendir starfsmenn á Aust-
urlandi muni að allmiklum hluta
halda á ný mið þegar fram-
kvæmdum lýkur.
Yfir 90% aðfluttra útlend-
inga á Austurlandi karlar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Verkamenn Um 90% aðfluttra á Austurlandi eru karlmenn og nær ¾ eru á aldrinum milli 30 og 54 ára.
Útlendingar flestir á aldrinum 25–29 ára utan Austurlands
!
!
!"" !#"