Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
$% &
'()"
"#
" #
$%&'
$%&(
*
*
+',
-.
(#)'
()*
+%&(
+%&
*
*
//"
01."'23345
(%#
%,
+%&"
+%&
*
*
01."647
$33
")'
(#",
+ &%
+%&'
*
*
8/,." -29":2
%
**
(""
$%&*
$%&'
*
*
! ;<%"=2>"475
7
%;"475
23"=2>"475
<2"=2>"475
?33<"=2>"475
-@%A!"475
B"=2>"475
="A3"475
6>C@"A3"475
B %A3"D% %"475
1
"475
12%;" %42%"475
)E ";")
2
' ?%" 75A3"475
F%%"475
" #$ ,G%"475
@"=2>"475
?"= "475
8;
;"=2>"475
$H4
"475
+@@@%"475
I%%"475
% #&' ()
'7J@""' %"%<75
(*+
8/,K
'#%
<%35<
**&(%
,&)#
*&,%
"&"%
()&%%
,&#
&*%
%&"%
#(%&%%
*& %
'#&(%
'&#%
('(&%%
'&"%
-
"&'%
"&#%
&%(
'&'(
-
-
-
-
)(&%%
?
@"7
7"<%35<
L"
*M
L"
*M
L"
*M
L"
*M
L"
*M
L" *M
L"
*M
L"
*M
L" *M
L"
*M
L"
*M
L"
*M
<%3>
@%%
+A2"#"23" @%
6>"""""""""'
5
5
5 5
5
5 5
5
5 5 5
5
5
5
5
I%3>"#"C!%5"35
+5"N"4@%
<%3>
BRESKI auðkýfingurinn Richard
Branson hét því í gær að verja þrem-
ur milljörðum dollara, sem samsvar-
ar 210 milljörðum króna, á næstu tíu
árum í ýmis verkefni sem tengjast
baráttunni gegn loftmengun og lofts-
lagsbreytingum í heiminum.
Branson, stofnandi fyrirtækja-
samsteypunnar Virgin Group, til-
kynnti þetta á blaðamannafundi á
vegum stofnunar sem Bill Clinton,
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
veitir forstöðu og miðar að því að
leysa ýmis alvarleg vandamál sem
steðja að heiminum.
Lofar öllum arðinum
Virgin Group hyggst fjárfesta öll-
um arði af flugfélaginu Virgin Atl-
antic og fleiri samgöngufyrirtækjum
á næstu tíu árum í verkefni sem
tengjast baráttunni gegn loftslags-
breytingum. Meðal annars verður
fjárfest í nýrri tækni til að nýta end-
urnýjanlega orkugjafa sem eiga að
koma í stað jarðefnaeldsneytis.
Sérstakt fjárfestingarfélag, Virg-
in Fuels, á að annast þessar fjárfest-
ingar.
Lofar milljörðum
gegn loftmengun
Í HNOTSKURN
» Richard Branson er245. auðugasti maður
heims að mati tímaritsins
Forbes sem áætlar að eignir
hans nemi sem samsvarar
200 milljörðum króna.
» Branson fékk þá hug-mynd að verja hagnaði
samgöngufyrirtækja sinna
til baráttunnar gegn lofts-
lagsbreytingum á fundi
með Al Gore, fyrrverandi
varaforseta Bandaríkjanna.
AP
Rausnarlegur Richard Branson
skýrði frá framlaginu til barátt-
unnar gegn loftslagsbreytingum á
fundi með Bill Clinton.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
● VÍSITALA leið-
andi hagvísa fyrir
bandaríska hag-
kerfið lækkaði í
annan mánuðinn í
röð. Í hálffimm-
fréttum Kaup-
þings banka segir
að dvínandi bjart-
sýni neytenda og
samdráttur í fjölda byggingaleyfa
hafi einna helst stuðlað að lækkun
vísitölunnar sem mjög er horft til
sem vísbendingar um stefnu hag-
kerfisins. Í gær voru einnig birtar töl-
ur um nýskráningar atvinnuleysis,
þ.e. fjöldi einstaklinga sem sækja
bætur í fyrsta skipti. Þeim fjölgaði
töluvert og gefa til kynna að farið sé
að hægja á húsnæðis- og vinnu-
markaði sem ýtir enn frekar undir
væntingar að seðlabankinn muni ná
tökum á verðbólgunni og að vaxta-
hækkunarferli hans sé senn á enda.
Dvínandi bjartsýni
í Bandaríkjunum
● AVION Group hefur framlengt til-
boð félagsins í allt hlutafé kanadíska
félagsins Atlas Cold Storage Income
Trust. Tilboðið átti að renna út í dag
en það hefur verið framlengt til
föstudagsins 6. október næstkom-
andi. Frá þessu er greint í tilkynningu
frá Avion.
Tilboð Avion í Atlas var upphaflega
tilkynnt hinn 3. ágúst síðastliðinn og
var sent hluthöfum Atlas hinn 17.
ágúst. Í tilkynningu Avion segir að
skilmálar tilboðsins séu óbreyttir, en
það hljóðar upp á um 574 milljónir
kanadískra dollara, eða um 36 millj-
arða íslenskra króna.
Um síðustu mánaðamót var greint
frá því að stjórn Atlas hefði hvatt
hluthafa félagsins til þess að hafna
yfirtökutilboði Avion í félagið.
Atlas rekur 53 kæli- og frysti-
geymslur í Norður-Ameríku og er
skráð í kauphöllinni í Tórontó.
Avion framlengir til-
boð í Atlas í Kanada
● VELTAN á ís-
lenskum hluta-
bréfamarkaði hef-
ur aukist mikið á
undanförnum ár-
um og sömuleiðis
veltuhraði en
hann er reiknaður
sem hlutfall veltu
og markaðsvirðis
bréfanna. Í Vegvísi Landsbanka kem-
ur fram að sé litið á heildarveltu sein-
ustu 12 mánaða sem hlutfall af
meðaltali markaðsvirðis allra
skráðra félaga á sama tímabili sjáist
að veltuhraðinn sé rétt rúm 100% á
ári. Þetta þýðir að á síðustu 12 mán-
uðum hafir heildarvelta í viðskiptum
verið meiri en virði alls markaðsins.
Velta og veltuhraði
hlutabréfa eykst
BENTE LANDSNES, forstjóri
norsku kauphallarinnar, hefur ekki
trú á því að það muni gagnast norska
hlutabréfamarkaðinum að norsk
hlutafélög verði með á hinum svo-
kallaða norræna lista OMX sem
hleypt verður af stokkunum í byrjun
október en fyrir liggur að öll ís-
lensku fyrirtækin í Úrvalsvístölunni
verða með á honum. Landsnes telur
ekki að það myndi leiða til aukinna
viðskipta með norsk hlutabréf ef fé-
lögin væru skráð á listann.
Þetta kemur fram í frétt á vef
Dagens Næringsliv (DN).
„Þetta er frekar listi fyrir dag-
blöðin. [–] Ég tel ekki að norræni
listinn myndi auka sýnileika norskra
fyrirtækja,“ segir Landsnes í sam-
tali við DN.
Hún telur að þrátt fyrir augljósa
samþjöppun meðal kauphalla í Evr-
ópu muni sú norska komast vel af á
eigin spýtur og samruni við OMX er
ekki á dagskrá: „Við eigum ekki í
viðræðum við OMX né nokkurn ann-
an. Við getum alveg staðið ein. Mik-
ilvægst fyrir okkur er að þróa mark-
aðinn í Noregi og skapa honum sem
bestar forsendur, til að mynda með
því að auka veltuna,“ segir Bente
Landsnes.
Norska kauphöll-
in á eigin fótum
GUNNLAUGUR Sævar Gunn-
laugsson, stjórnarformaður Trygg-
ingamiðstöðvarinnar (TM), var val-
inn stjórnarformaður Íslands árið
2006 en Jón Sigurðsson, viðskipta-
og iðnaðarráðherra, afhenti honum
verðlaunin. Stjórnarformaður árs-
ins var valinn samkvæmt könnun
sem var gerð meðal fram-
kvæmdastjóra og stjórnarmanna á
Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem
hann hefur verið valinn með form-
legum hætti. Gunnlaugur Sævar
hefur gegnt stjórnarformennsku
hjá TM í fjögur ár en á þeim tíma
hefur hagnaður félagsins aukist
jafnt og þétt og starfsemi erlendis
hefur verið aukin. Velta félagsins
hefur aukist um 50% og hagnaður
þess þrefaldast.
Gunnlaugur stjórnarformaður Íslands
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði um 0,6% í gær eða í
6.261stig. Verslað var með hlutabréf
fyrir um 2,5 milljarða, mest með bréf
í Landsbankanum eða fyrir 652 millj-
ónir og fyrir litlu minna með bréf FL
Group, en gengi þeirra hækkaði
mest eða um 0,9%. Bréf Kaupþings
lækkuðu mest eða um 1,4%.
Krónan veiktist um 0,53% og
kostar Bandaríkjadalur nú 70,43
krónur, evran 89,98 krónur og pund-
ið 133,86 krónur.
Krónan veiktist
BANKARÁÐ bandaríska seðlabankans ákvað að halda
stýrivöxtum bankans óbreyttum í 5,25% á fundi ráðsins
síðastliðinn þriðjudag. Þetta er í annað sinn sem bank-
inn hreyfir ekki við skammtímavöxtum, en eftir sautján
hækkanir á tveimur árum nam bankinn staðar þann 8.
ágúst síðastliðinn.
Ákvörðunin var ekki einróma; einn meðlimur ráðsins
greiddi atkvæði á móti. En að sögn New York Times
gaf tónninn í yfirlýsingu bankans til kynna að almennt
teldi ráðið að ákvörðunin í ágúst hefði verið rétt. Hefur
blaðið eftir Robert V. DiClemente, aðalhagfræðingi
Citigroup, að þróun efnahagsmála síðan í ágúst hafi
styrkt röksemdir bankans og aukið trúverðugleika
hans.
Ákvörðunin var í samræmi við spár greiningaraðila,
en allar þær 109 spár sem fréttastofa Bloomberg fylg-
ist með gerðu ráð fyrir óbreyttum vöxtum. Í röksemda-
færslum seðlabankans var kólnun húsnæðismarkaða
sögð helsta ástæðan fyrir hægari vexti hagkerfisins en
bankinn varar enn við hættunni á frekari verðbólgu.
Stýrivextir óbreyttir vestra
ALDREI hefur
verið fjárfest eins
mikið í búðarhús-
næði og á fyrri
helmingi þessa
árs en þá var
fjárfest fyrir lið-
lega 32 milljarða
króna. Það er um
4,8 milljörðum
meira en á sama
tímabili í fyrra og nemur aukningin
um 14% mæld á föstu verðlagi.
Þetta kemur fram í nýbirtum töl-
um Hagstofunnar en greining Glitn-
is segir það vekja athygli að á tíma-
bilinu frá 1997, eða á því tímabili
sem verið hefur mikil hækkun á
verði íbúðarhúsnæðis, hafi verið
nær samfelldur vöxtur í íbúðafjár-
festingum.
„Í nýbirtri þjóðhagsspá okkar
reiknum við með því að fjárfesting í
íbúðarhúsnæði dragist saman um
4,5% á næsta ári og um 5,8% á árinu
2008. [-] Vaxtahækkun á íbúðalánum
og skert lánaframboð draga úr eft-
irspurn á markaðinum ásamt verð-
bólguskotinu sem ógnar kaupmætti
launa. Framboð er umtalsvert á
íbúðarhúsnæði á sama tíma og ekki
síst nýju íbúðarhúsnæði sem skapar
frekari þrýsting til verðlækkunar.
Velta á íbúðamarkaði hefur snar-
minnkað undanfarið og vísbending-
ar eru komnar fram um verðlækkun
sem á endanum mun draga úr ný-
fjárfestingum í íbúðarhúsnæði,“
segir í Morgunkorni Glitnis.
Met í
íbúðafjár-
festingu
Aukningin um 14%
á föstu verðlagi
ÞÝSKA lyfjafyrirtækið Merck hef-
ur eignast ráðandi hlut í svissneska
lyfjafyrirtækinu Serono og ætlar að
gera yfirtökutilboð í félagið sem
metið er á 932 milljarða króna en
það er um 20% yfir markaðs-
verðmæti félagsins sem skráð er
kauphöllinni í Zürich. Merck hefur
greint frá því að félagið hafi gert
samkomulag við Bertarelli fjöl-
skylduna sem á 64,5% hlut í Serono
og ræður yfir 75,5% atkvæða.
Hlutabréf í Merck lækkuðu um
rúmlega 5% í þýsku kauphöllinni í
gærmorgun þegar greint var frá
fyrirhugaðri yfirtöku á Serono. En
hlutabréf í Serono hækkuðu um
18% í rafrænum viðskiptum fyrir
opnun Kauphallarinnar í Zürich.
Merck festir
kaup á Serono
♦♦♦