Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
PLÖTUBÚÐIN Tólf tón-
ar á Skólavörðustíg hefur
staðið fyrir öflugu tón-
leikahaldi í húsakynnum
verslunarinnar og í dag
kl. 17 verður þar enn enn
einn stórkonsertinn. Þar
kemur fram Brooklyn
hljómsveitin Stars Like
Fleas, en sú sveit þykir
með þeim áhugaverðustu
í Bandaríkjunum í dag. Stars Like Fleas hefur
verið líkt við Animal Collective, Town & Country
og Xiu Xiu, og Pitchfork vefurinn hælir þeim á
hvert reipi auk þess sem tónleikum þeirra hefur
verið líkt við heilasprengju.
Tónleikar
Heilasprengja
í Tólf tónum
Stars Like Fleas
ÞAÐ er ekki á hverj-
um degi sem sönghóp-
urinn Hljómeyki held-
ur tónleika, en
hópurinn er þekktur
að frumflutningi
nýrra verka og frjóu
samstarfi við Sum-
artónleika í Skálholti. En nú leggur Hljómeyki
land undir fót og verður með tónleika á Eiðum á
morgun kl. 16. Þar verða íslensk kórverk á dag-
skrá. Hljómeyki var stofnað 1974 og flutti í byrjun
mest veraldlega tónlist. Í samstarfi við Sumartón-
leikana hefur Hljómeyki frumflutt fjöldann allan
af trúarlegum kórverkum íslenskra tónskálda.
Stjórnandi nú er Magnús Ragnarsson.
Tónleikar
Hljómeyki með
tónleika á Eiðum
Hljómeyki
SIÐFRÆÐISTOFNUN og
Heimspekistofnun standa fyrir
málþingi um heimspeki John
Stuart Mills á morgun, laug-
ardag. Tilefnið er að 200 ár
voru liðin frá fæðingu Mills 20.
maí sl. Á málþinginu halda tíu
heimspekingar fyrirlestra.
Fjallað verður um þrjár af
merkustu bókum Mills, Frels-
ið, Nytjastefnuna og Kúgun
kvenna, og þekkingarfræði hans og lýðræð-
ishugmyndir reifaðar. Málþingið fer fram í stofu
N-132 í Öskju. Dagskráin hefst kl. 9.15 og mun
hvert erindið reka annað uns dagskráin er tæmd
kl. 17.
Heimspeki
Málþing um heim-
speki J.S. Mill
John Stuart Mill
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
ARA Sigvaldason þekkja landsmenn
flestir úr sjónvarpinu þar sem hann
flytur þjóðinni fréttir af landi og lýð
á kvöldin. Það vita hins vegar færri
að bakvið ábyrgðarfullt fasið á
skjánum leynist myndasmiður sem
gengur undir sama nafni. Frá og
með morgundeginum geta hins veg-
ar áhugasamir kynnt sér svarthvítar
mannlífsmyndir Ara því þá verður
opnuð sýning hans Reykjavík úr
launsátri í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
„Ég er búinn að vera að þessu í
ein tuttugu ár,“ segir Ari spurður út
ljósmyndaiðkun sína. „En bara sem
hobbí og líkamsrækt,“ bætir hann
við, en hann gengur mikið um borg-
ina með myndavél í hönd í leit að við-
fangsefni. „Svo er ég reyndar með
vélina á mér öllum stundum. Svona
ef maður skyldi sjá eitthvað.“
Myndirnar teknar úr launsátri
Ari segir að sem myndasmiður
leitist hann fyrst og fremst við að
fanga skrítin og skemmtileg augna-
blik í lífi fólks. Af því helgast sú
tækni hans að taka myndirnar „úr
launsátri“, eins og titill sýning-
arinnar gefur til kynna. „Það geri ég
til að ná óuppstilltum og ómeðvit-
uðum mómentum,“ útskýrir Ari og
fullyrðir að hann sé þó alls ekki á
höttunum eftir myndum sem varpi
afkáralegu ljósi á fólk, sýni eitthvað
sem það þarf að skammast sín fyrir.
„Það er oft kvartað undan fátæklegu
mannlífi í Reykjavík,“ heldur hann
áfram. „En það er nú kannski meira
en margur heldur. Maður þarf bara
að leita.“
Myndirnar á sýningunni eru flest-
ar teknar yfir tveggja ára tímabil,
2004–2006. Hins vegar lumar Ari
einnig á nokkrum gömlum myndum
frá upphafi tíunda áratugarins,
„svona til að sýna smákontrast“.
Hann þvertekur þó fyrir að hafa
þroskast nokkuð sem myndasmiður.
„Alveg frá því að ég byrjaði að
mynda hefur mér fundist skemmti-
legast að taka myndir af fólki án
þess að það stilli sér upp. Það sem
hefur kannski helst breyst er að
þegar ég byrjaði var ég feiminn við
að mynda fólk á förnum vegi. En það
hefur vanist og mér finnst það ekk-
ert mál í dag.“
Hann segist aldrei hafa lent í
neinu „almennilegu“ klandri vegna
iðju sinnar, eins og hann kallar það.
»Ljósmyndasýning Ara Sig-valdasonar fréttamanns,
Reykjavík úr launsátri, verður
opnuð í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi klukkan 16 á morg-
un.
»Þar getur að líta mannlífs-myndir Ara úr Reykjavík
sem flestar eru teknar á ár-
unum 2004–2006.
»Sýningin er haldin í tilefni220 ára afmælis Reykjavík-
urborgar.
»Ari hefur fengist við ljós-myndun í tuttugu ár, en kýs
að kalla sig myndasmið frekar
en ljósmyndara.
»Sýningin stendur til 12.nóvember.
Í HNOTSKURN
Ljósmyndir | Sýning á mannlífsmyndum Ara Sigvaldasonar opnuð í Gerðubergi
Á götunni í Reykjavík
„Reyndar elti mig einu sinni einhver
kall sem ætlaði að berja mig. Og eitt
sinn í útlandinu var einhver sem
skyrpti á mig. En ég get ekki sagt að
ég hafi verið í bráðri lífshættu,“ seg-
ir hinn ofursvali myndasmiður og
hlær. „Það er bara svo gaman að
standa í þessu,“ segir hann í kjölfar-
ið og ekki alveg ljóst í fyrstu hvort
hann á við hasar eins og lýst er að of-
an eða ljósmyndun almennt. Það
skýrist þó strax. „Ekki bara að taka
myndirnar heldur einnig að velja
þær, stækka og spekúlera í öllu.“
„GALLINN við að taka mannlífsmyndir á Íslandi er að fólk strunsar áfram
og horfir niður í stéttina í storminum. Maður þyrfti stundum helst að liggja
á gangstéttinni til að ná myndum af fólki,“ segir myndasmiðurinn Ari.
Ljósmynd/Ari Sigvaldason
Horft niður í stétt í storminum
KVIKMYND Clints Eastwood,
Flags of our Fathers sem var tekin
upp hér á landi að miklum hluta,
verður frumsýnd
í Bandaríkjunum
í næsta mánuði.
Sérstakar sýn-
ingar voru
haldnar í vikunni
fyrir blaða- og
fréttamenn þar
vestanhafs og
þegar eru kvik-
myndaspekúl-
antar farnir að
spá myndinni góðu gengi á Ósk-
arsverðlaunahátíðinni sem fram fer
í mars á næsta ári. Gengi það eftir
myndi sú niðurstaða koma fáum á
óvart, sér í lagi þegar það er haft í
huga að síðustu tvær myndir
Eastwood (Mystic River og Million
Dollar Baby) hlutu Óskarinn fyrir
bæði bestu leikstjórn og bestu kvik-
mynd. Greinarhöfundur New York
Times segir myndina hafa sterka
skírskotun til nútímans þar sem
áhrifamáttur eins atburðar í stríðs-
áróðri er skoðaður með áhugaverð-
um hætti. Þá kemur einnig fram að
myndin hafi að miklum hluta verið
tekin upp á svörtum Íslands-
ströndum fyrir um 90 milljónir
Bandaríkjadala sem þykir hófleg
upphæð þegar Óskarsverðlauna-
mynd er annars vegar.
Eastwood
spáð Ósk-
arnum
Kostaði einungis
90 milljónir dala
Clint Eastwood
NÝTT VERK eftir listmálarann
Piet Mondrian hefur nú verið upp-
götvað eftir að hafa hangið í antík-
verslun til fjölda ára. Listsalinn
Frank Buunk keypti verkið á upp-
boði fyrir 3.200 dollara.
Buunk segist hafa séð verkið og
fengið á tilfinninguna að það væri
eftir Mondrian. Hann hafi síðan séð
undirskrift málarans á bakhlið
verksins og tveir sérfræðingar í
verkum Mondrian staðfest að það
væri eftir hann. Verkið er frá árinu
1903 og hefur fram til þessa verið
eignað frænda Mondrian, Fritz
Mondrian.
Buunk hefur áður uppgötvað
Mondrian-verk og ætlar að eiga
þetta verk sjálfur. Ljóst er að verk-
ið er margfalt verðmætara en það
sem Buunk greiddi fyrir það.
Nýtt verk eft-
ir Mondrian
Hingað til lands er komin samíska
hljómsveitin Vajas og mun halda tón-
leika í kvöld á skemmtistaðnum Nasa
fyrir tilstuðlan Vináttufélags sama og
Íslendinga (SAMÍS) og Norræna fé-
lagsins.
Í tónlist sinni sækir Vajas inn-
blástur í fornan söng, sönghátt og
sönghefð og hópurinn beitir hinni
fornu samísku söngaðferð „joik“ í list
sinni.
Joik er talið eitt elsta form tónlist-
ar í Evrópu og spilaði stórt hlutverk í
trúarbrögðum sama ásamt trommu-
leik. Var joik lengi bannfært af
kristnum yfirvöldum sem og hefð-
bundnar samískar trommur. Lá
nærri að joik-sönglistin dæji út en á
síðustu öld gekk joik-listin í end-
urnýjun lífdaga og hefur rík joik-hefð
blómstrað meðal sama í dag.
Vajas-hópurinn setur joikið í ný-
stárlegan búning með blöndu af nú-
tíma raftónlist, þjóðlagatónlist,
djassi, rokki og sígildri tónlist.
Hefur hópurinn fengið mikið lof
fyrir störf sín heima fyrir, og hljóða
umsagnir meðal annars á þann veg
að Vajas hafi gefið joikinu nýtt líf og
vídd með frumlegum og nýstárlegum
flutningi. Hópurinn hefur haldið tón-
leika víða um heim, en hljómsveit-
armeðlimir eru: Kristin Mellen sem
leikur á fiðlu og syngur, Ánde Somby
sem joikar og Nils Johannsen sem
leikur á hljómborð og tölvu.
Þess má geta að Ándé hefur joikað
frá blautu barnsbeini, en samhliða
tónlistarferli sínum starfar hann sem
mannréttindalögfræðingur og kennir
frumbyggjarétt við háskólann í
Tromsö.
Á tónleikunum mun eining koma
fram dúettinn Funi sem skipaður er
Báru Grímsdóttur og Chris Foster.
Saman tvinna þau fornar íslenskar
tónlistarhefðir og enskar.
Tónlist | Tríóið Vajas og dúettinn Funi halda tónleika á skemmtistaðnum Nasa í kvöld kl. 22
Ljósmynd/Gunnar Mellem
Rómuð Vajas þykir hafa gert ferska og spennandi hluti með samíska sönghefð.
Samískt bergmál
Húsið verður opnað kl. 21 en tón-
leikarnir hefjast kl. 22. Miðar eru
seldir við innganginn á 1.000 kr.