Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 21

Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 21 SUÐURNES Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Innri-Njarðvík | „Börnin sem hafa notað vinnuferli könnunaraðferð- innar eru mun meðvitaðri um um- hverfi sitt en þau sem það hafa ekki gert og orðaforði þeirra hefur eflst. Við finnum verulegan mun á börn- unum og foreldrar þeirra hafa margoft lýst yfir ánægju með verk- efnið. Okkar áherslur eru þær að verkefnið „Lifandi lestur“ sé komið til að vera,“ sögðu Kristín Helga- dóttir, leikskólastjóri á Holti, og Anna Sofia Wahlström verkefnis- stjóri. Nýverið kom „Lifandi lestur“ út á dvd sem heimildarmynd um að- ferðafræði könnunaraðferðarinn- ar, sem hófst sem þróunarverkefni í leikskólanum Holti haustið 2004. Í heimildarmyndinni er fylgst með hópi stráka sem unnu með bókina „Mánasteinar í vasanum“ eftir Brian Pilkinton. Í sögunni kemur m.a. fyrir bátur sem vakti áhuga þeirra og ákveðið var að kanna frekar. Fylgst er með ferli vinn- unnar frá því að viðfangsefnið var ákveðið þar til búið var að kryfja efnið til mergjar. Miklar upplýsingar um báta „Við byrjum alltaf á því að kanna hvaða vitneskju börnin búa yfir og bætum síðan ofan á þá vitneskju með því að leita að þekkingu. Bátar voru skoðaðir og rannsakaðir út frá mörgum hliðum,“ sagði Anna Sofia Wahlström verkefnisstjóri í sam- tali við Morgunblaðið. Í heimildarmyndinni má sjá að í Reykjanesbæ bjóðast margir möguleikar fyrir öflun vitneskju um báta. Hægt er að heimsækja Bátasafn Gríms Karlssonar, fara niður á bryggju, skoða víkingaskip, tala við fróða menn og svo auðvitað horfa út á hafið. „Við tókum líka fyrir dreka. Það viðfangsefni leiddi okkur út í um- ræður og vinnu með eldinn sem síðan þróaðist í þekkingarleit um slökkviliðið. Einnig voru hús og húsbyggingar vinsælt viðfangsefni og kötturinn og fiskar, enda bregð- ur þessu öllu fyrir í bókinni. Það er svo misjafnt hversu langt hvert könnunarferli er þar sem áhuginn á viðfangsefninu er mismikill. Við grípum svo tækifærið þegar þau fara að sýna öðru áhuga eins og stöfunum og stærðfræði og tengj- um við og þannig kemur verkefnið á endanum inn í allt leikskólastarf- ið,“ sagði Anna Sofia og bætti við að drekinn hefði verið mjög skemmtilegt viðfangsefni sem börnin tala um enn í dag þó að tvö ár séu liðin síðan það var tekið fyr- ir. Meiri áhugi á bókum nú Kristín Helgadóttir leikskóla- stjóri sagði að framundan væri að kynna þetta þróunarverkefni á málþingi Kennaraháskóla Íslands í næsta mánuði. Hún sagðist vona að heimildarmyndin nýttist öðrum leikskólum í landinu og að þeir sem hefðu áhuga á verkefninu gætu nálgast myndina á Holti. „Við vorum byrjuð að nota þessa aðferð áður en við fengum styrk frá Þróunarsjóði leikskóla og fannst það gefa góða raun, ekki síst vegna þess hversu áhrifin eru margþætt. Við fundum fyrir aukn- um áhuga á bókum. Börnin í þrem- ur elstu árgöngunum fengu bóka- gjöf frá foreldrafélaginu og foreldrar voru beðnir um að lesa með þeim heima. Á þann hátt dróg- ust þeir inn í verkefnið heima með lestri. Þetta hefur einnig eflt for- eldrasamstarf,“ sagði Kristín í samtali við blaðamann. Hún sagði jafnframt að haldið yrði áfram með verkefnið í leikskólanum þó að því væri lokið sem þróunarverkefni. Þó yrði einungis hægt að færa elsta árganginum bókagjöf vegna þess hversu leikskólinn hefði vaxið. Aðr- ir foreldrar hefðu verið beðnir um að verða sér úti um bókina eftir öðrum leiðum. TENGLAR ............................................ www.reykjanesbær.is/holt Heimildarmynd gefin út um verkefnið „Lifandi lestur“ á leikskólanum Holti „Finnum verulegan mun“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Könnunaraðferð á Holti Anna Sofia Wahlstöm verkefnisstjóri og Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri á Holti, í móanum umhverfis leikskólann. Móinn hefur alla tíð verið uppspretta könnunarleiðangra hjá börnunum. Keflavíkurflugvöllur | Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar hf., Fríhöfnin ehf. og Golf- klúbbur Suðurnesja héldu golfmót á dög- unum. Þátttakendur keyptu högg af atvinnukylfingum á vissum holum og fyr- irtækin tvöfölduðu þá fjárhæð sem safn- aðist. Söfnunarféð var afhent Þroskahjálp á Suðurnesjum, samtals 300 þúsund kr. Myndin var tekin við afhendinguna, f.v. Halldóri Leví Björnsson, formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum, Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fríhafn- arinnar, Elín Árnadóttir, staðgengill for- stjóra FLE, Sóley Ragnarsdóttir, for- stöðumaður starfsþróunarsviðs FLE, og Gylfi Sigurðsson, framkvæmdastjóri GS. Þroskahjálp á Suður- nesjum fær styrk Reykjanesbær | Bæjarstjórn Reykjanes- bæjar hefur ákveðið að lækka gjald fyrir vistun barna á leikskólum bæjarins. Eftir breytingar mun átta tíma vistun með fullu fæði kosta 23.790 krónur í stað 28.350 kr. Jafnframt er systkinaafsláttur aukinn. Lækkun á gjaldskrá leikskóla var á stefnuskrá sjálfstæðismanna fyrir kosn- ingarnar í vor. Einnig upptaka umönn- unargreiðslna. Nú hefur bæjarstjórn sam- þykkt bæði málin. Fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði á móti tillögunum. Þeir vildu lækka leikskólagjöldin enn meira og töldu umönnunargreiðslur ekki rétta leið. Leikskólagjöld lækk- uð í Reykjanesbæ Egilsstaðir | Nú er hjá Gunnars- stofnun á Skriðuklaustri unnið að skráningu á handritum og bréfasafni Gunnars Gunnarssonar skálds í samstarfi við Landsbókasafn Ís- lands – háskólabókasafn og sömu- leiðis verið að skanna inn mikið úr- klippusafn sem Gunnar skildi eftir sig og skrá svo það verði aðgengilegt á tölvutæku formi. „Einn þátturinn, sem snýr að ævi Gunnars og verkum er að halda sögu hans á lofti og til haga öllum hugs- anlegum heimildum,“ segir Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar. „Hér á staðnum á að byggja upp heimildasafn þannig að hér verði til öll þau gögn sem menn þurfa á að halda til að rann- saka Gunnar og verk hans. Slíkt fel- ur í sér markvissa söfnun á öllum út- gáfum verka hans, hvort sem er í bók eða á blaði. Þá þarf að hafa hér aðgengileg í tölvu eða ljósritum handrit að verkum, bréf, blaða- úrklippur og ljósmyndir. Sömuleiðis erum við byrjuð að safna viðtölum og upplestrum hans úr sjónvarpi og útvarpi. Þá hafa afkomendur Gunn- ars hug á að færa höfundarrétt skáldsins tímabundið til stofnunar- innar sem gerir það að verkum að við getum farið að vinna markvisst að því að þrýsta á um útgáfu á verk- um hans.“ Skúli Björn segir þar mörg tækifæri. Gunnar hafi lítið ver- ið gefinn út erlendis og bækur hans að verða ófáanlegar á Íslandi. „Stofnunin á ekki að mínu mati að snúast einvörðungu um fortíðina heldur einnig um að halda hug- sjónum Gunnars lifandi,“ heldur Skúli Björn áfram. „Við heiðrum minningu skáldsins með því að hafa verk hans aðgengileg og segja frá lífi hans og starfi. Hann var á kafi í mörgu öðru en skáldskapnum og einkar framfarasinnaður. Úti í Dan- mörku gerði hann t.d. töluvert af því að styðja við bakið á ungum lista- mönnum og var Kjarval þar á meðal. Þekkti örbirgð á eigin skinni Þá var hann alla tíð viljugur að láta fé af hendi rakna til hvers konar góðgerðarmálefna. Menn segja að hann hafi þekkt örbirgðina á eigin skinni eftir fyrstu árin sín í Dan- mörku og því ætíð viljað rétta hjálp- arhönd. Að mínu mati er mikilvægt að Gunnarsstofnun reyni að fram- fylgja og vinna að hugsjónum skáldsins um leið og verkum hans er haldið á lofti. Það er göfugra mark- mið en margt annað.“ Skúli Björn segir bækur Gunnars eiga fullt er- indi við 21. aldar manninn, þótt nú séu liðin eitt hundrað ár frá útgáfu fyrstu bóka skáldsins. „Þær stand- ast fyllilega tímans tönn.“ Bókmenntir sem eiga fullt erindi til 21. aldar mannsins Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hughrif Ritvél Gunnars við stofugluggann á Skriðuklaustri, hvar hann hefur vísast sótt innblástur í fagra útsýn. Unnið að skráningu handrita og bréfasafns Gunnars skálds Egilsstaðir | Enn eitt metárið í far- þegafjölda um Egilsstaðaflugvöll virðist í uppsiglingu. 97.517 farþegar fóru um völlinn fyrstu átta mánuði ársins og er það 19% aukning frá því á sama tíma í fyrra. Í fyrra fóru rétt undir 126.900 farþegar um völlinn og því meira en líklegt að það met verði slegið í ár, en sl. fjögur ár hefur verið stöðug aukn- ing í nánast öllum þáttum þjónustu á Egilsstaðaflugvelli, m.a. hefur orðið 11% aukning á fraktflutningum. 13% fleiri flugvélar hafa lent á vellinum fyrstu 8 mánuði ársins en í fyrra, eða 1.842 vélar. Fjölgun lendinga er hlutfallslega ekki jafn mikil og fjölgun farþega og segir það að sætanýting í vélunum er betri nú en í fyrra. Í ár stóð að byggja viðbótarhús- næði fyrir farþega, þar sem húsnæði flugstöðvarinnar reynist mjög þröngt í öllum þeim umsvifum sem þar eru, en það frestast eitthvað. Enn eykst flug og far- þegafjöldi Egilsstaðir | Á miðvikudag hófust beinar útsendingar frá fundum bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Eru þeir sendir út á Netinu þannig að hægt er að horfa og hlusta á full- trúa bæjarstjórnar í beinni útsend- ingu. Hver fundur verður auk þess vistaður á vefþjóni þannig að hægt verður að kalla þá fram hvenær sem óskað er eftir að fundi lýkur. Reglulegir fundir bæjarstjórnar eru haldnir tvisvar í mánuði og þá að jafnaði fyrsta og þriðja miðviku- dag mánaðarins. Bæjarstjórnar- fundir í beinni LANDIÐ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.