Morgunblaðið - 22.09.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 25
Það er einfalt og skemmtilegt aðeiga blómakryddaðan sykuren hann má nota sem ynd-islegt krydd, til dæmis út í ab-
mjólk, í te nú eða þá á pönnukökur.
Þurrkað lavender er auðvelt að fá í te-
verslunum en lavender vex líka auð-
veldlega í görðum hérlendis og því til-
valið að þurrka sitt eigið lavender.
Vallhumall, mynta og rósir henta þá líka
afar vel í blómasykur. Aðferðin er ein-
föld:
Takið sykur og bætið út í þurrkuðum
blómum. Til dæmis um það bil eina mat-
skeið af lavender í 1 dl af sykri. Látið
standa í nokkra daga. Alveg himneskt.
Ilmandi lavenderkökur
165 g smjör
3½ dl hrásykur
1½ dl matarolía
6 dl hveiti
3⁄4 teskeið hjartarsalt
20 g lavendersykur
Þeytið saman smjör og sykur þannig
að það verði létt og ljóst, setjið olíuna
smám saman út í. Blandið hveiti, hjart-
arsalti og lavendersykri saman við og
hrærið þar til deigið er þétt og þægilegt
í meðförum. Búið til litlar kúlur úr deig-
inu og raðið þeim á plötu, bakið við
150°C í 20–30 mínútur.
Lavender er sagður virka mjög slak-
andi og það gera þessar kökur svo sann-
arlega líka.
Ávaxtaberjapæ
með fræjum
fyrir 6
4 rabarbarar, 500 g
1–2 dl ber eða epli
1½–2 dl hrásykur
2 msk. kartöflumjöl
100 g smjör
1½ dl gróft haframjöl
1½ dl hveiti
1 dl kókosflögur
½ dl heslihnetur, saxaðar
(u.þ.b. 25 g)
½ dl fræblanda, graskersfræ, hörfræ,
sólblómafræ (u.þ.b. 25 g)
3 msk. hrásykur
örlítið salt
Skerið rabarbarann í bita og blandið
öðrum ávöxtum, hrásykri og kart-
öflumjöli saman við. Setjið í eitt stórt
form eða í sex skammta form. Bræðið
smjörið og blandið öllu öðru út í, hrærið
saman í laust deig og stráið yfir ávext-
ina. Bakið við 225°C í 20–25 mínútur.
Berið fram helst heitt með vanilluís
eða þeyttum rjóma.
Þetta er sígilt og gott pæ sem má
breyta óendanlega með því að breyta
ávöxtum og fræjum eftir því sem hug-
urinn stendur til í hvert skipti.
Blómstrandi sætur sykur
Morgunblaðið/Arnaldur
Ávaxtaberjapæ með fræjum Sígilt pæ sem þarf aldrei að vera eins.
Lavenderkökur Slakandi góðar.
Nú þegar haustið er gengið í
garð fer hver að verða síð-
astur að bjarga sumarblóm-
unum og af hverju ekki, spyr
Heiða Björg Hilmisdóttir,
að taka þau með sér inn í
veturinn í fæðuformi?
Blómasykur Passar með mörgu.