Morgunblaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 26
Ákössum sem standa í háumstöflum í skemmu í Garða-bænum stendur „ökolog-isch“. Á hillustæðu eftir
hillustæðu má sjá kornmeti, kex,
þurrkaða ávexti, pasta, sápur, súkku-
laði og snyrtivörur sem allar eiga eft-
ir að enda á íslenskum heimilum inn-
an tíðar. Umfangið er margfalt á við
það sem hjónin Hildur Guðmunds-
dóttir og Rúnar Sigurkarlsson létu
sig dreyma um fyrir 20 árum er þau
settu verslunina Yggdrasil á lagg-
irnar en í dag sjá þau fram á stöðuga
aukningu. Við tyllum okkur á kont-
órinn, sem er á palli með góðu útsýni
yfir lagerinn og yfir bolla af kaffi – líf-
rænt ræktuðu – segja þau frá því
hvar ævintýrið hófst.
„Þetta byrjaði eiginlega fyrir þrjá-
tíu árum. Þá vorum við sjálf farin að
spá í eigin mataræði og ætluðum að
gerast lífrænir bændur,“ útskýra þau
en sú ákvörðun leiddi þau á Steiner-
skóla í Järna í Svíþjóð. „Þar var m.a.
kennd lífræn ræktun enda var hann
frumkvöðull í þeim efnum en í stað
þess að fara í ræktunarnám enduðum
við í uppeldisfræðinni sem Steiner
byggir á,“ segir Rúnar og brosir.
Alls urðu árin í Svíþjóð sjö talsins
og eftir að hafa lifað og hrærst í um-
hverfi þar sem lífræn ræktun þótti
sjálfsögð fannst þeim úrvalið af slík-
um vörum fátæklegt er heim kom. „Í
Svíþjóð höfðum við haft aðgang að líf-
rænt ræktuðu grænmeti og þurrvöru
en hér var úrvalið afskaplega fátæk-
legt. Þær heilsubúðir sem voru til
höfðu lítið úrval af lífrænt ræktaðri
vöru og oft vissi starfsfólk ekki alveg
hvort hún væri lífrænt ræktuð eða
ekki. Við ákváðum því að stofna
Yggdrasil, þar sem eingöngu yrði
boðið upp á lífrænar vörur.“
Hildur segir brosandi frá því að
nafn verslunarinnar hafi komið
mörgum í opna skjöldu og þau hafi
jafnvel verið skömmuð fyrir að klína
útlendu nafni á fyrirtækið. Nafnið er
hins vegar rammíslenskt, fengið úr
norrænu goðafræðinni. „Yggdrasill
er tré lífsins sem hýsir allan heiminn,
allt frá guðunum í krónunni til ör-
laganornanna við ræturnar. Okkur
fannst það passa mjög vel vegna
þeirrar heildstæðu heimspeki sem
býr að baki lífrænni ræktun. Hún
snertir alla þætti mannlegs lífs.“
Gamlir hippar
Þrátt fyrir að lagt væri upp með
stórar hugsjónir var Yggdrasill held-
ur smár í sniðum til að byrja með.
„Við byrjuðum í sex fermetra kjall-
araherbergi í blokkinni þar sem við
bjuggum og viðskiptavinirnir
hringdu í okkur áður en þeir komu,“
segir Hildur og Rúnar heldur áfram:
„Eftir tæp tvö ár fluttum við í um 50
fermetra húsnæði á Kárastíg. Ég
man að fyrsta árið var bara opið eftir
hádegi þrjá daga í viku enda vann ég
á sambýli með þessu og Hildur var
með dagbörn. Kúnnahópurinn var
mjög lítill því þeir sem versluðu við
okkur voru aðallega fólk sem hafði
búið erlendis eða gamlir hippar eins
og við.“ Vöruúrvalið samanstóð í
fyrstu aðallega af kornvörum og
þurrmat auk grænmetis en þau hjón
hafa ávallt verið í góðu samstarfi við
bændur sem rækta lífrænt hér á
landi. „Úrvalið var samt ótrúlega fjöl-
breytt því þá vorum við byrjuð með
Sonett-hreinlætisvörurnar sem eru
framleiddar á lífrænan hátt.“
Verslunin stækkaði aftur nokkrum
árum síðar þegar þau tóku yfir rýmið
við hliðina eftir að bakaríið þar hætti
starfsemi. Viðskiptin blómguðust
hægt og sígandi sem Rúnar segir
hafa verið ósköp þægilegt. „Í fyrstu
vann ég fulla vinnu með þessu en svo
minnkaði ég hana smám saman, í
fyrstu niður í 70%, svo hálfa vinnu og
svo framvegis.“ Kona hans tekur orð-
ið. „Svo liðu þónokkur ár þar sem við
vorum bara tvö í þessu auk einnar
hjálparmanneskju. Í raun vorum við
bara tvö fyrstu fimmtán árin.“
Ekki eru nema sjö ár síðan Hildur
og Rúnar voru bæði komin í fulla
vinnu við fyrirtækið og er það til
marks um hvílík vakning hefur orðið
hjá landanum í þessum efnum að í
dag eru 17 manns starfandi hjá
Yggdrasil. „Þessi mikli vöxtur hefur
eingöngu orðið síðustu tvö, þrjú ár-
in,“ útskýrir Hildur en í maí í fyrra
var svo komið að verslunin við Kára-
stíg var búin að sprengja húsnæðið
utan af sér. „Okkur fannst mjög mik-
ilvægt að vera með góða miðbæjar-
búð og kættumst því mjög þegar við
fundum húsnæðið við Skólavörðustíg,
sem er frábær staður,“ segir Rúnar.
„Það er svo skemmtilegt andrúmsloft
á Skólavörðustígnum með öllum sín-
um sérbúðum og listagalleríum. Eins
vorum við svo heppin að undir búð-
inni er stór kjallari með mikilli loft-
hæð þar sem er mjög flottur salur og
þar höfum við verið með námskeið og
fyrirlestra og annað slíkt á veturna.“
Í maí í ár fluttu þau svo lagerinn í
þúsund fermetra húsnæði í Suður-
hrauni í Garðabæ enda hefur heild-
söluþáttur fyrirtækisins vaxið hratt á
undanförnum mánuðum og miss-
erum. „Við fórum í ákveðið til-
raunaverkefni með nokkrum stór-
mörkuðum á borð við Fjarðarkaup,
Hagkaup og Samkaup,“ útskýrir
Rúnar en að auki selja þau vörur í
minni verslanir. „Og þetta hefur auk-
ist gífurlega. Í Fjarðarkaupum byrj-
aði þetta með einni hillu. Svo var
ákveðið að bæta við annarri hillu og
þriðju hillunni og áður en varði var
ákveðið að opna búð í búðinni.“
Siðferðisleg vakning
Engin ein skýring er á þessari
miklu aukningu í neyslu lífrænna
vara hér á landi. „Við Íslendingar
höfum verið svolítið á eftir öðrum
þjóðum hvað þetta varðar hingað til
en erum að taka rosalega vel við okk-
ur núna,“ segir Rúnar þegar þetta
ber á góma. „Ég hugsa að það sé
stutt í að Íslendingar verði á svipuðu
róli og nágrannaþjóðirnar í neyslu á
lífrænum vörum. Þetta er alls staðar
að aukast og til dæmis er gríðarlegur
vöxtur í Þýskalandi þar sem eru
komnar stórar heilsubúðir svipaðar
og stórmarkaðir. Hið sama er hægt
að segja um Holland. Og mér skilst
að um 20% allra mjólkurafurða í
Danmörku séu nú lífræn.“
Rúnar heldur áfram: „Mér finnst
vera ákveðin siðferðisleg vakning í
gangi,“ segir hann og kona hans sam-
sinnir: „Heilsan er bara hluti af þessu
því lífræn ræktun snýst um virðingu
fyrir öllu lífi og umhverfi okkar.
Enda eru umhverfið og heilsan ná-
tengd. Það skiptir máli hvernig við
meðhöndlum jarðveginn þar sem
maturinn vex sem við erum að borða.
Á pokunum okkar stendur „heilsa –
mannúð – umhverfisvernd“ enda
Vinsældir Mikil aukning hefur verið í neyslu lífrænna vara hér á landi.
Lífrænt ræktað Ekki bara það sem maður lætur ofan í sig, segir Hildur.
Tréð sem hýsir heiminn
daglegt líf
26 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SANNGIRNISVIÐSKIPTI eða
„Fair Trade“ eru Hildi og Rúnari
hugleikin en einn helsti sam-
starfsaðili þeirra erlendis er
þýska fyrirtækið Rapunzel sem
hefur sett slík viðskipti á oddinn í
sinni framleiðslu. „Það voru hjón,
Jennifer Vermeulen og Joseph
Wilhelm, sem stofnuðu þetta fyr-
irtæki fyrir 30 árum þegar þau
voru rétt rúmlega tvítug. Frá
upphafi lögðu þau áherslu á að
vera eingöngu með lífrænt rækt-
að hráefni og í byrjun framleiddu
þau múslí og hnetusmjör. Þau
gátu fengið lífrænar hnetur og
korn til að framleiða úr en ráku
sig á að það voru ekki til lífrænt
ræktaðir ávextir til að hafa í
múslíinu. Fljótlega fundu þau
samt fíkjur sem þeim leist vel á
enda voru þær ekki brennisteins-
meðhöndlaðar en þær voru flutt-
ar inn frá Tyrklandi.“
Börnum tryggð menntun
Rapunzel-hjónin keyptu af inn-
flytjandanum fíkjurnar sem
komu í trékössum og á kössunum
var heimilisfang bóndans sem
ræktaði þær. „Þau söguðu heim-
ilisfangið út úr kassanum, stungu
því í bakpoka og tóku svo lest til
Tyrklands til að leita þennan
bónda uppi.“ Hjónin fundu bónd-
ann sem var til í að selja þeim
fíkjur beint en létu ekki þar við
sitja heldur sendu honum mann
til að kenna honum lífræna rækt-
un. „Þannig eru þau frumkvöðlar
í að kenna bændunum að rækta á
lífrænan hátt en í dag rækta 450
tyrkneskir bændur 28 mismun-
andi afurðir í beinu samstarfi við
þau.“
Bændurnir sem taka þátt í
verkefninu hafa ekki einungis
viðunandi lífsviðurværi heldur
rennur ákveðinn hluti hagnaðar-
ins í sjóði til að tryggja börnum
þeirra menntun. „Raunar er
kveðið á um það í samningnum
við bændurna að börn þeirra
megi ekki vinna við ræktunina
enda á vinna ekki að trufla skóla-
göngu þeirra.“
Tyrklandsverkefnið svonefnda
hafa hjónin síðan fært yfir til
landa í þriðja heiminum og í dag
framleiða þúsundir bænda á Ind-
landi, í Egyptalandi, Dóminíska
lýðveldinu, Kosta Ríka, Bólivíu,
Sri Lanka, Tansaníu og Brasilíu
hráefni í vörur Rapunzel á sömu
forsendum og bændurnir í Tyrk-
landi. Hluti hagnaðarins fer svo í
uppbyggingu á svæðunum þar
sem þeir búa, s.s. í vatnsveitur,
uppbyggingu á skólum eða ann-
ars konar samfélagsverkefni.
„Það er frábært að geta sam-
einað lífræna ræktun og sann-
girnisviðskipti,“ segja þau Rúnar
og Hildur. „Þannig er hvorki ver-
ið að pína jörðina né fólkið.“
Pína hvorki jörðina né fólkið Lífrænt ræktaðar vörur rjúka nú út úr verslunum
sem aldrei fyrr en annað var upp á teningnum þegar
hjónin Hildur Guðmundsdóttir og Rúnar Sigurkarls-
son opnuðu verslun sína Yggdrasil fyrir 20 árum.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ræddi við þessa
frumkvöðla í verslun með lífrænan varning hérlendis.
Morgunblaðið/Ásdís
Frumkvöðlar Það þarf enga sérvisku til að borða lífrænt ræktað fæði, segja þau Hildur og Rúnar.