Morgunblaðið - 22.09.2006, Síða 29
mbl.isókeypissmáauglýsingar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 29
Valdimar Lárusson vill taka upphanskann fyrir Magna eftir
vísu Jóns Ingvars í gær:
Ekki er fyrir skildi skarð
„skríllinn“ stóð í ljóma.
Magni leynt og ljóst því varð
landi og þjóð til sóma!
Steinar Þór Sveinsson er
staðsettur í Írak, las um afrek
Magna og sendi vísu heim:
Öðrum líkur engum Magni
Íslands stærsta von.
Ætli núna ekki þagni
Andri Snær Magnason.
Róbert Marshall skrifaði grein
undir fyrirsögninni „Kæri Jón“ í
Morgunblaðið og fór fram á
stuðning hans við NFS. Sólskríkjan
syngur:
Ekkert lætur á sig fá
áfram leitar vina;
mun hann Róbert máski fá
Marshall-aðstoðina?
Hjálmar Freysteinsson las um
bíltúr 10 ára stráks:
Á þessu landi þraukar enn
þjóðin hæfileikarík
og efnilega ökumenn
eigum við á Húsavík.
VÍSNAHORN
Efnilegir
ökumenn
pebl@mbl.is
VÍSINDAMENN hafa mögulega
uppgötvað ólíklegt vopn í barátt-
unni gegn offitu: þara. Sagt er
frá þessu á vef BBC News.
Vísindamennirnir komust að
því við tilraunir að rottur sem
fengu fucoxanthin, sem er lit-
arefni úr brúnum þara, töpuðu
allt að 10% líkamsþyngdarinnar,
aðallega í kringum innyflin. Til-
raunir voru gerðar á meira en
200 rottum og músum. Niðurstöð-
urnar voru þær að fucoxanthin
hafði tvenns konar áhrif á fitu. Í
þeim dýrum sem voru of feit örv-
aði efnablandan prótein sem kall-
ast UCP1 en það veldur nið-
urbroti fitu. Blandan gerði það
líka að verkum að lifrin fram-
leiddi efnasambandið docosahexa-
enoic-sýru (DHA) sem getur
minnkað slæmt kólesteról tengt
offitu og hjartasjúkdómum.
Dýrin sem voru notuð í rann-
sókninni sýndu engin merki um
aukaverkanir.
Vonir standa til að hægt verði
að þróa lyf sem virkar gegn
slæmri fitu úr fucoxanthin.
Rannsóknin var gerð í Hok-
kaido-háskólanum og voru nið-
urstöðurnar nýlega kynntar á
læknaráðstefnu í San Fransisco.
Eitt aðalhráefnið
í miso-súpu
Brúnn þari, Undaria pinnati-
fida, er eitt aðalhráefnið í hinni
svokölluðu miso-súpu, sem er jap-
önsk. Vísindamennirnir bentu
hins vegar á að þó að fólk drykki
súpuna í stórum stíl í því skyni að
grennast myndi það hafa lítil
áhrif.
Dr. Kazuo Miyashita fór fyrir
rannsóknarhópnum og haft var
eftir honum að enn gætu verið
þrjú til fimm ár þangað til megr-
unarpilla sem unnin væri úr fu-
coxanthin yrði aðgengileg al-
menningi.
Efnasambandið finnst í miklu
magni í nokkrum tegundum af
brúnu þangi, en það er ekki að
finna í grænu og rauðu þangi
sem einnig er notað í asíska mat-
argerð.
Þari vopn í
baráttunni
gegn offitu?
Reuters
Þaratöflur Vonast er til að hægt verið að þróa lyf gegn offitu úr þaranum.
AFMÆLI AFMÆLI•AFMÆLI AFMÆLI•AFMÆLI AFMÆLI•AFMÆLI AFMÆLI• •
AFMÆLIAFMÆLI• AFMÆLIAFMÆLI• AFMÆLIAFMÆLI• AFMÆLIAFMÆLI••
AF
M
Æ
LI
AF
M
Æ
LI
•
AF
M
Æ
LI
AF
M
Æ
LI
•
AF
M
Æ
LI
•
AFM
Æ
LI
AFM
Æ
LI
•
AFM
Æ
LI
AFM
Æ
LI
•
AFM
Æ
LI
•Í dag föstudaginn 22. september á sjúkranuddstofan mín
5 ára afmæli. Um leið og ég þakka viðskiptavinum mínum fyrir
viðskiptin býð ég bæði þá og nýja viðskiptavini velkomna.
Frí meðferð fyrir alla sem eiga afmæli þennan dag.
Sjúkranuddstofan
Moonstartherapy
Síðumúli 15,
108 Reykjavík
Sími/fax
588-1408
Gsm: 895 9404
Afmæli
Öll börn eiga rétt á að geta greint á milli
þess hvað má og má ekki gera við líkama þeirra.
Talaðu við barnið þitt og upplýstu það
um staðreyndirnar – því fyrr því betra.
Barn sem þekkir muninn á réttu og röngu er betur
í stakk búið til að neita, segja frá og komast óskaddað frá óeðlilegum
kringumstæðum sem það vill ekki taka þátt í.
Rjúfðu þögnina og fræddu barnið þitt – það er á þína ábyrgð
Þögnin er
„Það má enginn fikta
við tippið mitt“
Hvernig tölum við um þetta við börnin? Fáðu leiðbeiningar á www.blattafram.is.
Ef velferð barns er í húfi hringdu í 112