Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 43
✝ Sólrún Þor-björnsdóttir
fæddist í Reykjavík
18. maí 1928. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni 12. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Guðríður
Þórólfsdóttir hús-
móðir, f. 20. sept-
ember 1894, d. 8.
nóvember 1980, og
Þorbjörn Guð-
laugur Bjarnason
pípulagningameistari, f. 14. júlí
1895, d. 8. nóvember 1971. Systur
Sólrúnar eru Rósa Björk, f. 30.
mars 1931, maki Árni Pálsson, og
ber 1955, Ólafur Haukur, f. 13.
september 1957, Magnea Auður, f.
4. október 1959, Þorbjörn Reynir,
f. 25. desember 1960, Gísli, f. 12.
febrúar 1963, og Matthías Rúnar,
f. 25. apríl 1969. Barnabörnin eru
21 og langömmubörnin sjö.
Sólrún lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur, hún
lauk námi í hraðritun og stundaði
framhaldsnám í tungumálum. Hún
vann um tíma við listsaum í kirkju-
klæðum hjá Unni Ólafsdóttur og
síðan við skrifstofustörf hjá Vél-
smiðjunni Hamri þar til hún giftist
og sinnti hún húsmóðurstörfum
eftir það.
Útför Sólrúnar verður gerð frá
Garðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Ragnhildur, f. 17. júlí
1935, maki Bragi
Geirdal sem er lát-
inn.
Árið 1954 giftist
Sólrún Gísla Ferdin-
andssyni skó-
smíðameistara, f. 13.
október 1927, en
hann er einn af sjö
börnum hjónanna
Magneu Guðnýjar
Ólafsdóttur, f. 4. apr-
íl 1895, d. 20. mars
1981, og Ferdinands
Eiríkssonar skó-
smíðameistara, f. 13. ágúst 1891,
d. 12. febrúar 1978. Börn Sólrúnar
og Gísla eru: Guðríður Valva, f. 12.
maí 1954, Kolbeinn, f. 16. desem-
Í raun má líkja mömmu við
Hvítá. Í upptökum renna í hana
efnismiklar jökullitar ár. Ofarlega
myndar hún tignarlega fossa, fer
um þröng gil. Þegar giljum sleppir
myndar hún straumþungar flúðir.
Nær Tungufljóti breikkar árfarveg-
urinn og saman renna Hvítá og
Tungufljót í eitt. Þrátt fyrir veru-
lega aukið vatnsmagn breytist
hvorki litur né nafn árinnar. Fljót-
lega eftir samrunann bætast í Hvítá
stórar ár og svo aðrar minni. Oft
geta orðið stórkostleg flóð í Hvítá
en einnig á hún til að þorna að
mestu vegna krapa og íshröngls
sem stíflar ána. Þegar áin hefur
ferðast lengstan veg sinn til sjávar
breytist nafn hennar í Ölfusá. Fyrir
ofan Selfoss er farvegur árinnar af-
ar sérkennilegur, nokkrar flúðir og
hávaðar en enginn foss. Áin breikk-
ar fljótlega aftur og verður feikna-
breið og verður að einu mesta ósa-
svæði landsins og gætir þar mjög
sjávarfalla. Þegar hásjávað er hafa
sjávarföll áhrif á vatnsstöðu árinnar
langt inn í land. Ölfusá er mikil
vetrarflóðaá sérstaklega þegar
hláka með ofsaregni steypist yfir
gaddfreðið og vatnsþétt vatnasvið
lindaánna. Þurrðir hafa komið í
Hvítá og Ölfusá og vakið furðu og
um þær hafa skapast skemmtilegar
furðusögur.
Meginstraumur árinnar er við
Austurlandið. Á milli lóns og sjávar
liggur lágur og mjór sandtangi.
Austast á tanganum liggur alldjúp-
ur áll þar sem áin rennur til sjávar.
Úti fyrir suðurströndinni má sjá
jökullitað vatn Hvítár-Ölfusár.
Steinefni jökulvatnsins nærir lífrík-
ið útifyrir ströndinni.
Minningin lifir.
Þinn sonur
Gísli.
Hver barnsfæðing er undur,
kraftaverk. Fyrsta barn hjóna, lítil
stúlka, kemur í heiminn, sannkallað
óskabarn. Heillaður faðirinn fagnar
með móðurinni og finnst hann verði
að fara út í náttúruna til að finna
barninu verðugt nafn. Hann kemur
ljómandi til baka, Sólrún það er
nafnið, og ljóma bar hún alla tíð.
Gáfur hlaut hún frábærar til
munns og handa. Fegurð, góðvilja
og glaðværð. Alla ævi einkenndu
hana viðkvæmni, geðríki og stolt.
Umvafin ást og umhyggju góðra
foreldra og ættingja vex hún upp
eins og fífill í túni, dugleg og óvenju
kjarkmikil.
Hún menntaðist vel, eignaðist
vænan mann og sjö vel gerð og
gjörvileg börn.
Í lífi hvers manns skiptast á skin
og skúrir. Hver reynsla sem tekist
er á við af reisn þroskar manninn.
Að bogna, ef til vill um stund, en
brotna ekki. Árum saman, með
nokkrum hléum, berst Sólrún af
reisn við sjúkdóm andlega og lík-
amlega þjáningarfullan. En verst
og mest niðurlægjandi voru hleypi-
dómar og grimmd samfélagsins.
Sárt var að sjá brothætt sjálfs-
traustið og sjálfsvirðingu þessarar
stoltu konu komast á ystu nöf.
Sú ósk er heitust að örari fram-
farir megi verða í stuðningi félags-
og heilbrigðisþjónustu við þá sjúk-
linga og aðstandendur sem þurfa að
takast á við þennan og aðra geð-
ræna sjúkdóma, sem og á um-
hyggju og viðhorfum okkar allra í
samfélaginu.
Ég þakka líf hennar allt og allan
hennar kærleika.
Starfsfólki Sóltúns, sem var
heimili hennar síðustu árin, þakka
ég þá umhyggju og vináttu sem
henni var sýnd.
Rósa Björk Þorbjarnardóttir.
Sólrún frænka, móðursystir mín,
er látin. Hennar lokastríð frá því í
vor var þungt.
Sólrún Þorbjörnsdóttir var fædd
árið 1928 og ólst upp í Reykjavík,
hjá foreldrum sínum Guðríði Þór-
ólfsdóttur og Þorbirni G. Bjarna-
syni, sem bæði voru ættuð úr Vest-
ur-Skaftafellssýslu. Þessi fallega
stúlka giftist Gísla Ferdinandssyni
skósmið. Saman eignuðust þau sjö
mannvænleg og myndarleg börn
sem öll komust vel til manns.
Já, það var heldur betur líf í
tuskunum þegar þau Valva, Kolli,
Óli, Auður, Þorbjörn Reynir, Gísli
og Matti uxu úr grasi. Fyrst í
Drápuhlíð 21, í kjallaranum hjá
Guðríði og Þorbirni og síðan í Arat-
úninu, þar sem þau Gísli og Sólrún
gerðust frumbyggjar í Garða-
bænum. Í minningu drengs sem átti
þessi fjörugu frændsystkini, bar
hæst lífsgleði og endalaus uppá-
tæki. Það mæddi því mikið á Sól-
rúnu að halda utanum hópinn sinn
fríða. En skuggar lágu í leyni. Á
þessum árum var ekki talað hátt
um geðræn vandamál. Þó mátti
smám saman skynja að Sólrún
frænka átti bágt, sinnið var þungt
og dökkt var yfir. Á milli flaug hug-
urinn hátt. Fallega brosið hennar
bræddi mann samt alltaf, t.d. þegar
hún skildi svo vel uppátektasemi í
okkur Óla er við komum í Aratúnið
skítugir upp fyrir haus úr læknum.
Eins þegar hún gekk um í heim-
sókn hjá okkur fyrir vestan og
spurði, eins og maður væri fullorð-
inn, um eitthvað sem fyrir augun
bar í náttúrunni.
Sólrún var hrókur alls fagnaðar á
góðum stundum og ég man hennar
smitandi hlátur. Þessar stundir
urðu þó æ færri. Hún átti sólar-
geisla sína í börnunum og síðar
barnabörnum, vildi þeirra hag alltaf
sem mestan. Og vissulega átti hún
á milli sína góðu daga. Dýrmætt er
að eiga minninguna um heimsóknir
í Sóltúnið þar sem hún fékk góða
umönnun. Það var líka eins og á
stundum fengi hún meiri ró, þegar
líkamleg heilsa hennar versnaði.
Það virðist nefnilega vera sam-
þykkt að hafa líkamlega kvilla með-
an samfélagið á erfiðara með að
horfast í augu við andlega sjúk-
dóma.
Kæri Gísli og allir krakkarnir
hennar Sólrúnar. Löngu stríði er
lokið og ég veit að mikið mæddi á
ykkur. Þegar Sólrún hefur nú loks
fengið sína hvíld þá trúi ég að góð-
ur Guð taki henni vel og veiti henni
þá eilífu hamingju sem hún þráði og
á svo vel skilið.
Þórólfur Árnason.
Eitt laufblað á tré mínu titrar.
Og tómleg gatan er.
Það hárautt fellur við húsið mitt.
Hausta fer.
Og órólegt haustsins hjarta
Spyr: Hvar er þín minning geymd?
Er ilmur vorsins og ást þín
öllum gleymd?
Um andlit þitt ljósgeisli leikur
mitt litla, fallna blað.
Og birtan í hjarta þér ber þig
á betri stað.
(Gunnar Dal)
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til Gísla og fjölskyldu.
Eysteinn og Valgerður.
Sólrún Þorbjörnsdóttir
Eitt laufblað á tré mínu titrar.
Og tómleg gatan er.
Það hárautt fellur við húsið mitt.
Hausta fer.
Og órólegt haustsins hjarta
Spyr: Hvar er þín minning geymd?
Er ilmur vorsins og ást þín
öllum gleymd?
Um andlit þitt ljósgeisli leikur
mitt litla, fallna blað.
Og birtan í hjarta þér ber þig
á betri stað.
(Gunnar Dal)
Okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur til Gísla og fjöl-
skyldu.
Eysteinn og Valgerður.
HINSTA KVEÐJA
Það er stundum erf-
itt að sætta sig við
veruleikann, að þú
sért hrifin frá okkur í
blóma lífsins. Hvers vegna svona
ósanngjarnt og ótímabært? Okkar
góði vinskapur hófst fyrir rúmum
tuttugu árum, þegar dætur okkar
Sólrún og Selma hófu skólagöngu á
Álftanesi. Samband okkar efldist
með árunum, þú varst mín besta vin-
kona. Hestaferðirnar, kvenfélags-
ferðirnar innanlands sem utanlands
Anna Hafsteinsdóttir
✝ Anna Hafsteins-dóttir fæddist í
Reykjavík 24. mars
1958. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 9. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ
18. september.
og ófáar ferðirnar í lík-
amsræktina Hress í
Hafnarfirði, standa
eftir í minningunni
ásamt svo mörgu öðru
góðu. Samneyti fjöl-
skyldnanna var okkur
báðum ómetanleg. Við
Gummi og fjölskylda
vottum Ársæli og fjöl-
skyldu dýpstu samúð
okkar. Minning um
Önnu mun ávallt lifa.
Hver minning dýrmæt
perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
var gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum,
er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg. Sig.)
Anna Thorlacius.
Okkar ástkæri liðs-
maður, Bryngeir Guð-
mundsson, er fallinn
frá langt fyrir aldur fram, eftir
stutta en hetjulega baráttu við ill-
vígan sjúkdóm.
Bryngeir starfaði hjá Vistor (áð-
Bryngeir Guðjón
Guðmundsson
✝ Bryngeir Guð-jón Guðmunds-
son fæddist í
Reykjavík 5. desem-
ber 1957. Hann lést
á gjörgæsludeild
12B á Landspítala
við Hringbraut 9.
september síðastlið-
inn og var jarðsung-
inn frá Hjallakirkju
20. september.
ur Pharmaco) frá
1999 við þjónustu á
lækninga- og rann-
sóknatækjum á veg-
um fyrirtækisins. Í
starfi sínu átti hann í
samskiptum við
fjölda fólks, s.s.
tæknimenn sjúkra-
húsa, lækna og
hjúkrunarfólk auk
samstarfsmanna hjá
Vistor sem sjá nú á
eftir góðum félaga.
Það er óhætt að
segja að Bryngeir
hafi verið fagmaður í fremstu röð í
sínu fagi og hvers manns hugljúfi í
öllum samskiptum við samstarfs-
fólk og viðskiptavini. Hann gerði
sér vel grein fyrir þeirri ábyrgð
sem í starfinu fólst og var ávallt til
þjónustu reiðubúinn þegar á þurfti
að halda. Það var sama á hverju
gekk, Bryngeir nálgaðist öll verk-
efni með miklu jafnaðargeði og yf-
irvegun og leysti þau með útsjón-
arsemi. Þrátt fyrir veikindi sín
vildi Bryngeir stunda vinnu eins og
honum var kleift á meðan hann
hafði krafta til. Hann bar ekki sín
mál á torg og vildi ekki vorkunn.
Við samstarfsfélagar hans hjá
Vistor erum harmi slegin yfir frá-
falli hans og mun hans verða sárt
saknað. Við höfum misst frábæran
liðsmann.
Missir fjölskyldunnar er þó enn
meiri og ólýsanlegt áfall fyrir eig-
inkonu og börn. Ég sendi eigin-
konu, börnum og fjölskyldu Bryn-
geirs okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi Guð vernda
ykkur öll á þessum erfiðu tímum.
F.h. Vistor hf. og samstarfsfólks,
Hreggviður Jónsson.
Nú er hún Margrét
farin og söknuður okk-
ar sem vorum svo lán-
söm að eiga hana að
vini er mikill. Minningar líða um
hugann. Margrét kemur í leikfimina,
aðeins of sein, svo mikið að gera í
vinnunni – sérstaklega um mánaða-
mót – og samviskusemin mikil. Hún
kom á hjólinu, heit og rjóð og fer
auðvitað fremst í flokki, fimust, feg-
Margrét Ólafsdóttir
✝ Margrét Ólafs-dóttir fæddist í
Neskaupstað 31.
janúar 1950. Hún
lést á heimili sínu,
Tómasarhaga 12,
aðfaranótt 7. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Neskirkju
15. september.
urst og fótvissust.
Áfram streyma minn-
ingarnar, Margrét á
hjólinu, glæsileg, Mar-
grét á hraðri göngu
um bæinn að ná því
sem þarf að ná, Mar-
grét klappar á kinn og
segir: „Þetta verður
örugglega allt í lagi.“
Margrét á fjallstindi
og augun tindra af
gleði, Margrét í Döl-
unum að loknum góð-
um göngudegi, græn-
meti skorið í kjötsúpu
og Margrét hlær svo dátt að tárin
renna niður kinnarnar, Margrét á
þorrablótinu að dansa við Gretar, ást
þeirra og vinátta svo augljós, Mar-
grét að æfa fyrir jólagleði Kram-
hússins, stígur aldrei feilspor, við hin
getum stólað á hana þegar við fip-
umst, sem við gerum ævinlega. Nú
er engin Margrét að horfa til.
Enginn tók á jafn áreynslulausan
hátt þátt í gleði og sorgum annarra
og Margrét.
Engan höfum við þekkt sem tók
með jafn mikilli reisn og jafnaðar-
geði á eigin lífi og Margrét eftir að
hún fékk sjúkdómsgreininguna.
Vandfundin verður sú fjölskylda sem
vinnur jafn fallega að því verkefni að
lifa lífinu áfram og þakka fyrir hvern
dag.
Enda sýndi það sig undir lokin hve
fallegt samband þeirra var þegar
Gretar og strákarnir önnuðust hana
heima fram á hinsta dag af þeirri
natni og ástúð sem er fágæt. Þar
gátu þeir þakkað Margréti sinni fyr-
ir allt og allt og sýndu um leið hví-
líkar hetjur hún átti.
Minning Margrétar mun lifa og
við sem eftir stöndum hnípin getum
svo margt af henni lært.
Sigríður Jónsdóttir,
Ólafur Örn Thoroddsen.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is