Morgunblaðið - 22.09.2006, Side 50

Morgunblaðið - 22.09.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning Grein eftir Hannes Hólm-stein Gissurarson prófess-or birtist í ritinu Þjóð-málum í gær og ber yfirskriftina „Hvers vegna hlaut Gunnar Gunnarsson ekki Nób- elsverðlaunin 1955?“. Kemur þar fram að Gunnar hafi staðið nær því að fá Nóbels- verðlaunin í bókmenntum 1955 en talið hefur verið. „Það, sem kom að- allega í veg fyrir að verðlaununum yrði skipt milli Íslendinganna tveggja, var andróður virtustu bók- menntamanna þjóðarinnar, umfram allt Jóns Helgasonar, en líklega einnig Sigurðar Nordals, og áhuga- leysi sumra félaga Sænska lærdóms- listafélagsins, Akademíunnar, um verk Gunnars. Þetta sýna gögn, sem ég kannaði í ágúst 2006 í hinu lokaða skjalasafni Sænska lærdómslista- félagsins í Börshuset í Stokkhólmi (sem ég fékk sérstakt leyfi til að skoða) og úr handritadeild Stifts- bókasafnsins í Linköping. Gögnin staðfesta í öllum meginatriðum frá- sögn mína í Laxness, þriðja bindi ævisögu Nóbelsskáldsins íslenska, styrkja tilgátuna, sem þar var sett fram um andróður gegn Gunnari, og bæta við fróðlegum smáatriðum,“ segir m.a. í grein Hannesar. Þar greinir hann frá bréfum Jóns Helgasonar og Sigurðar Nordal. Bréf Jóns til Eliasar Wessén er dag- sett 14. október 1955 og bréf Sig- urðar 29. október 1955 eða tveimur dögum eftir að opinberlega var til- kynnt um Nóbelsverðlaunahafann, Halldór Kiljan Laxness. Hannes segir í grein sinni að ekki þurfi að leita lengi til að sjá hvaðan Jón Helgason kunni að hafa frétt um hugsanlega skiptingu Nóbelsverð- launanna. „Sigurði Nordal hafði bor- ist til Kaupmannahafnar bréf frá Eliasi Wessén, dags. 23. september, daginn eftir að Nóbelsnefndin hafði gert tillögu sína um skiptingu verð- launanna milli Gunnars Gunn- arssonar og Laxness. Þar sagði Wessén: Í umræðunum um veitingu Nóbelsverðlaunanna, sem nú eru að hefjast, hefur komið fram tillaga um að skipta verðlaununum milli Gunn- ars Gunnarssonar og Laxness. Báðir hafa áður verið tilnefndir, Gunnar um 1920 og Laxness nokkur síðustu ár. Í ár eru meiri líkur en oft áður á því að verðlaunin fari til Íslands. Í þetta skipti má verja það að skipta verðlaununum, segja þeir, sem til- löguna gera, þar sem í henni á að fel- ast hylling til Íslands. Það væri mér mjög mikils virði að fá að vita hvern- ig þú myndir bregðast við slíkri hug- mynd og hvernig þú myndir halda að almenningsálitið á Íslandi myndi bregðast við.“ Höfðu bréfin úrslitaáhrif? Með kenningu sinni um áhrif and- róðurs íslenskra áhrifamanna kemst Hannes Hólmsteinn að annarri nið- urstöðu en þeirri sem Halldór Guð- mundsson rithöfundur heldur fram: „Tillagan um að Halldór Kiljan Lax- ness og Gunnar Gunnarsson fengju Nóbelsverðlaunin saman árið 1955 voru komnar út af borði sænsku Akademíunnar áður en Jón Helga- son, prófessor í norrænum fræðum, og Sigurður Nordal, þáverandi sendiherra Íslands í Danmörku, skrifuðu bréf sín til Eliasar Wessén, félaga í sænsku Akademíunni og réðu frá því,“ segir Halldór. Með því að skoða gögn um fundi Akademíunnar frá því í október 1955 kemur í ljós, að sögn Halldórs, að bréf þessara íslensku áhrifamanna, sem nú hafa verið birt, hafi ekki haft nein úrslitaáhrif á val Akademíunn- ar á sínum tíma þegar Halldór Kilj- an stóð einn uppi sem Nóbels- verðlaunahafi í bókmenntum. Fulltrúi íslenskrar sagnahefðar Í grein sinni í Þjóðmálum segir Hannes einnig: „Þótt bréf Sigurðar væri ekki skrifað fyrr en eftir hina opinberu tilkynningu um verðlauna- veitinguna er það eflaust prýðileg heimild um skoðanir hans, sem hann hefur varla legið á við menn mán- uðina á undan. Þeir Nordal, Jón Helgason og Peter Hallberg hafa beint eða óbeint komið sjónarmiðum sínum á framfæri við aðra félaga í Lærdómslistafélaginu, hvort sem fleiri skrifleg gögn eiga eftir að finn- ast um það eða ekki. Hefur Gunnar Gunnarsson lítt notið þess að hann flutti þrumuræðu gegn komm- únisma á fjölmennum fundi Heim- dallar haustið 1954 og sætti eftir það hörðum árásum í Þjóðviljanum.“ Að sögn Halldórs Guðmundssonar sýna gögn að umræður voru um þessar tillögur 6. og 13. október og í seinna skiptið var efnt til óform- legrar atkvæðagreiðslu. Tillagan um skiptingu verðlaunanna hlaut þá engan stuðning. Þrátt fyrir að hætt hafi verið við að skipta verðlaununum með Gunn- ari og Halldóri áður en bréf Jóns er dagsett, segir Hannes það vera ljóst að þeir íslensku bókmenntamenn, sem félagar í Sænska lærdómslista- félaginu treystu best, hafi lagst gegn því að deila með þeim verðlaununum þar eð Gunnar hefði haslað sér völl sem danskur rithöfundur og gæti ekki talist fulltrúi hinnar íslensku sagnahefðar. Þrátt fyrir allt væri Halldór Kiljan Laxness einn verð- ugur þess árið 1955 að taka við Nób- elsverðlaununum sem fulltrúi ís- lenskra bókmennta. Getgátur og fullyrðingar Vitað er að þriggja manna Nób- elsnefnd, undirnefnd Akademíunn- ar, gerði tillögu hinn 23. september 1955 um að Gunnar og Halldór skiptu með sér Nóbelsverðlaun- unum. Hannes sagði í samtali við Morgunblaðið að nafn Gunnars hefði horfið úr umræðunni á tímabilinu 10.–14. október. „Ósannað er með öllu hvað réð úrslitum. Það eina, sem ég get fullyrt um, er að Gunnar kom miklu sterkar til greina en áður hef- ur verið talið og að Jón og Sigurður beittu sér gegn því að Gunnar fengi verðlaunin með Laxness.“ Að sögn Halldórs er bréf Jóns Helgasonar sannarlega mjög nei- kvætt út í Gunnar, en virðist ekki hafa ráðið úrslitum um málslok, þó ekki sé hægt að útiloka önnur af- skipti þessara manna. „Það er fróðlegt að vita að Gunnar kom alvarlega til álita. Mér finnst hinsvegar kominn tími til að við sættum okkur við úrslit Nóbelsverð- launanna. Miklu nær er að þjóðin fari að lesa Gunnar Gunnarsson svo hún geti sjálf farið að mynda sér skoðun á verkum hans.“ „Gunnar kom miklu sterkar til greina en áður hefur verið talið“ Skiptar skoðanir eru á þætti íslenskra áhrifa- manna í því að Gunnari Gunnarssyni var ýtt til hliðar þótt Nóbels- nefndin hefði lagt til að hann fengi verðlaunin árið 1955. Jóhanna Ingvarsdóttir talaði við Hannes Hólmstein Gissurarson og Halldór Guðmundsson. Gunnar Gunnarsson Halldór Kiljan Laxness Hannes Hólm- steinn Gissurarson Halldór Guðmundsson Í HNOTSKURN »Einkum andróður virtrabókmenntamanna á Ís- landi kom í veg fyrir að Nób- elsverðlaunum yrði skipt milli Gunnars Gunnarssonar og Halldórs Laxness, að mati Hannesar H. Gissurarsonar. »Halldór Guðmundssonsegir bréf íslenskra áhrifa- manna gegn Gunnari Gunn- arssyni ekki hafa haft úr- slitaáhrif á val akademíunnar á sínum tíma. ÞEIR sem veita sér þá ánægju stöku sinnum að sökkva sér í listir, hvort heldur er myndlist, bókmenntir eða tónlist upplifa einstaka sinnum upp- hafningu, sem er svo sterk að í nokk- ur augnablik hverfur allt annað. Listaverkið eitt skiptir máli og veitir ómælda gleði. Að horfa og skoða, að hlusta, að lesa og fara með eru tækin til þess að nálgast þetta ástand, ein- faldir eiginleikar, sem flestum eru gefnir og unnt er að þjálfa. Í raun eru þetta ókeypis gæði, menning, kynslóð fram af kynslóð og án menningar væru þjóðirnar ekki til. Á síðustu áratugum tuttugustu aldar voru það forréttindi og rík ánægja að fylgjast með listsköpun nokkurra snillinga á sviði myndlistar, sem unnu að list sinni af einlægni og án allrar málamiðlunar. Magnús Kjartansson var í þeirra hópi. Síðasta stóra einka- sýning hans var á Kjarvalsstöðum 1994. Þá stóðu margir listunnendur á öndinni af hrifningu. Áhrifamesta framlag Magnúsar til íslenskrar list- ar, skrifaði gagnrýnandi, sem vekur miklar væntingar og forvitni um framhaldið. Með því að skoða sýningarferil Magnúsar frá 1972 til 1984, alls 11 sýningar, er ljóst að einangruð smá- þjóð hefur getið af sér einn snilling í myndlist til viðbótar við nokkra aðra, sem sumir hafa hlotið viðurkenningu meðan aðrir eru ennþá týndir snill- ingar. Tíminn og ritun íslenskrar listasögu á eflaust eftir að skipa þeim á bekk með hinum viðurkenndu. En Magnús var meira en snjall myndlist- armaður, hann var íhugull lífs- og mannvinur og umfram allt skemmti- legur gleðigjafi. Ein lítil og lágvær setning frá Magnúsi tók fram tilgerð- arlegu hjali sjálfskipaðra menning- arvita. Í mörg ár unnu hjónin Maggi og Kogga saman að listsköpun, hún hnoðaði og mótaði leirinn, hann skreytti gripina, í raun tveir snill- ingar saman alveg eins og sitt í hvoru lagi. Um leið og ég votta Kolbrúnu og börnum þeirra samúð mína læt ég fylgja með þessari kveðju upphafs- erindi úr ljóði Steins Steinars, Tíminn og Vatnið. Tíminn er eins og vatnið og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs. Og tíminn er eins og mynd, sem er máluð af vatninu og mér til hálfs. Og tíminn og vatnið renna veglaust til þurrðar inn í vitund mín sjálfs. Minning | Magnús Kjartansson myndlistarmaður Íhugull lífs- og mannvinur Magnús Kjartansson Eftir Knút Bruun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.