Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 51
Sjónlistarorðan
verður afhent
í kvöld kl. 20.10
í beinni
útsendingu
Sjónvarpsins
Nánari upplýsingar um Sjónlist
2006 má nálgast á vefslóðinni
www.sjonlist.is
Aðalfyrirtækjabakhjarl Verðlaun veita Aðrir samstarfs- og styrktaraðilar
Bakhjarl dagskrárgerðar
Nýtur stuðningsSjónlist er samstarfsverkefni
Listaháskóli Íslands
Hönnunarvettvangur
CIA.is
Menntamálaráðuneytið
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
Margt kemur upp í hugannvið hið óvænta brotthvarfmálarans Magnúsar
Kjartanssonar úr þessari jarðvist,
af mörgum vænum hliðum að taka
en nærtækast að hefja skrifin á
upphafsreit kynna okkar.
Í þann mund er kennsla var að
hefjast í Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands haustið 1969 sá
Hörður Ágústsson þáverandi skóla-
stjóri tilefni til að taka mig tali eins-
lega. Sagði hvorutveggja upprifinn
sem alvarlegur, að nú fengi ég erf-
iðan nemanda en mikið listamanns-
efni að fást við. Taldi einhver tor-
merki á því að ég eða nokkur annar
kennaranna réði við verkefnið,
sagði viðkomandi einrænan, léti
ekki segja sér fyrir verkum og því
mætti við ýmsu búast. Þessar lítt
uppörvandi fréttir voru það fyrsta
sem ég fékk að vita af persónu
Magnúsar Kjartanssonar, sagði þó
strax að til þessa hafi ekki komið
fram óstýrilátur nemandi í forn-
ámsdeild sem ekki hafi verið mögu-
legt að koma til jarðar og ég væri
alls óhræddur. Hörður glotti, brosti
kankvíslega út í annað munnvikið
líkt og hann teldi þetta oflæti í mér,
en ég gekk rakleiðis inn í stofu og
uppgötvaði fljótlega að Magnús
hafði hreiðrað um sig yst í norð-
urhorninu. Og alveg rétt, hér var
kominn sérstæður ungur glókollur,
nýútskrifaður stúdent, grannur,
mjósleginn og virtist forn í háttum.
Fljótlega varð ég var við að hann
mætti alltaf með snjáða skólatösku
sem hann skorðaði við aðra hvora
hlið sér og seildist reglulega í. Ekki
ónýtt að upplýsa unga fólkið í dag
um, að í töskunni var rammíslensk
fæða, náttúrulegir og styrkjandi
sterar eins og harðfiskur, hangiket,
rúg- og flatbrauð, súr hvalur og
jafnvel hákarl, ásamt vökva til að
blandast kræsingunum og láta þær
renna ljúflegar niður. Kannski
áhrif frá dularfullum matarvenjum
Kjarvals sem Magnús hlýtur að
hafa þekkt allvel, meður því að
Guðbrandur í ríkinu, einn helsti
aðdáandi málarans, var afi hans, og
sá var alltaf hátt hátt uppi í skýj-
unum en af öllu öðru en áfengi.
Magnús mun í æsku hafa verið past-
urslítill, einrænn og feiminn og
kann það að hafa verið ástæða þess
að hann var útbúinn slíku kjarna-
fæði að heiman. Úr honum teygðist
rækilega er fram í sótti en ekkert
yrði vöðvabúntið frekar en meist-
arinn, trúlega vegna þess að báðum
hugnaðist meir að þjálfa kraftbirt-
ing anda en efnis.
Satt að segja var þetta meðtöskuna ekki alveg í takt við
skráðar og óskráðar reglur skól-
ans, en á stundum er til blessunar
að kennarinn loki öðru auganu, og
sjaldan mun það hafa borið meiri
ávöxt í ljósi framvindunnar sem
varð nokkuð önnur en skólameist-
arinn óttaðist. Hér nefnilega kom-
inn einn áhuga- og dugmesti nem-
andi sem á fjörur skólans hafði
rekið, að auki sannkölluð vítam-
ínasprauta á vinnuandann í bekkn-
um. Hinn feimni og einangraði ung-
lingur var að vinna sig upp úr
kreppu og félagslegri einangrun í
gegnum myndlistina, og má þar
vera fundin ástæða fyrir metn-
aðinum og framkvæmdaákafanum í
skólanum.
Litið til baka situr minningin um
þetta fast skorðuð í huga mér og er
með því ánægjulegasta sem ég
minnist á öllum kennsluferli mín-
um, til viðbótar var drjúgu úrvals-
liði skilað til næsta árs, þarnæst
framhalsdeilda og loks út í þjóðfé-
lagið eftir útskrift. Magnús sótti og
fleira til fornámsins en trausta
grunnmenntun því samtíða honum
var bráðmyndarlegt fljóð, Kolbrún
Björgólfsdóttir (Kogga), sem hann
hafði allgott útsýni til á ská yfir
endilanga stofuna. Róðanlímið og
músan í lífi hans í heil 36 ár þegar
hann fyrir grimman sjúkdóm sem
engu eirði var kallaður til feðra
sinna.
Þetta var á gullaldarárum skól-
ans þegar enn var gaman að vera
innan dyra í Skipholti 1, allir
þekktu alla, og skólinn á góðri leið
með að komast á akademískt há-
skólastig í sjónlistum. Mikill sam-
gangur milli kennara og nemenda,
engin fast mörkuð landamæri, og
samt var aginn og vinnuandinn einn
sá besti sem þekktist í skólakerfinu
og sagður mun betri en í hlið-
stæðum skólum erlendis. Við litum
varla á okkur sem kennara sam-
kvæmt niðursoðinni löggildingu
starfsheitisins, öllu frekar nokkurs
konar leiðbeinendur sem miðluðu
mikilvægum hlutum til sjálfsþekk-
ingar, ásamt eldsneyti til frekari
átaka í fyllingu tímans þegar skóla-
dyr féllu aftur. List er fljótandi en
ekki flokkandi hugtak eins og menn
hafa til skamms tíma skilgreint fyr-
irbrigðið.
Við Magnús náðum fljótlega sam-an og urðum er fram liðu
stundir góðir vinir og gekk aldrei
sundur þótt samvistir strjáluðust
með árunum. Löngu seinna kom
hann að skólanum sem kennari og
þar drjúgur liðsmaður, en honum
þótti kennslan taka of mikið frá sér
svo hann hætti, sem var vitræn og
hárrétt ákvörðun á þeim tíma.
Hannesi Sigurðssyni, forstöðu-
manni Listasafns Akureyrar, mælt-
ist vel á dögunum þá hann sagði
Magnús eftirminnilegan lærimeist-
ara og fortakslaust aristókratann í
hópi yngri kennara: „Magnús fyllti
mann kannski ekki neinum eldmóð
svipað og félagar hans Sigurður
Örlygsson og Árni Jóhannsson, hins
vegar andaði hann frá sér vissri
höfgi (með smá bóhemískri tauga-
veiklun og samblandi af angurværð
og depurð), nærveran sveimlynd og
dálítið brothætt.“
Magnús hélt til Kaupmanna-hafnar til framhaldsnáms við
Konunglegu listakademíuna 1972.
Richard Mortensen, einn nafnkunn-
asti fulltrúi strangflatalistarinnar í
Evrópu, var þar lærimeistari hans í
þrjú ár. Þegar ég átti leið til Hafnar
á þessum árum heimsótti ég hann
jafnaðarlega á akademíuna og átti
við hann fróðlegar samræður. Mað-
urinn sem fyrr sér á báti og ekkert
tiltakanlega að þóknast hinum
heimsfræga prófessor, hélt sínu
striki þótt fyrir vikið fengi hann á
köflum minni athygli meistarans en
aðrir nemendur. Mortensen virtist
nefnilega vilja sjá sem flestar smá-
útgáfur af sjálfum sér, sem aftur á
móti var höfuðverkur Matisse
löngu áður og gerði að verkum að
hann hætti með einkaskóla sinn í
París. Og Deyrolle, annar prófess-
orinn minn í München, var og ekki
par hrifinn ef nemendur tóku upp á
því að fara í smiðju hans og þannig
gat ég ekki annað en hvatt Magnús
til að standa fast á sínu, gefa ekki
eftir. Við Magnús og Kogga lifðum
margar góðar stundir í Höfn, fórum
á söfn og sýningar, veitingastaði og
krár, af og til var Tryggvi Ólafsson
með í för, ásamt því að leikurinn
barst stundum til hans og var þá
sem oftar kátt í ranni karls.
Magnús og Kogga höfðu komið
sér vel fyrir á Laugarnesinu og upp
risin hin myndarlegasta vinnustofa
við hlið gömlu húsasamstæðunnar.
Mikil prýði í umhverfinu, en því
miður hefur það tekið alltof mörg
ár og byggingin ekki enn komin í
gagnið. Hér hugsjónafólk á ferð
sem lifði fyrir list sína og var ekki
með neinar málamiðlanir til hags
fljótteknum ávinningi.
Magnús stóð á hátindi listarsinnar er hann missti trúna á
núlistir og hætti með öllu að fást við
hin viðameiri verk, hins vegar vann
hann í smámyndum í vatnslit og að-
stoðaði Koggu á verkstæði hennar,
skreytti leirlistaverk með sínum
lipru og þjálfuðu fingrum. Einnig
kom til að hann var langþreyttur á
óheilindunum í íslenskri myndlist-
arpólitík og ómyrkur í máli þar um.
Í stað þess að takast á við hin stærri
viðfagsefni hóf hann nú að rækta
blóm og hlúa að þeim í garðinum
heima og í þeim athöfnum og snert-
ingu við lífæðar gróðurmold-
arinnar uppgötvaði hann nýjar
víddir. Fann svo lífi sínu enn meiri
tilgang er hann heimsótti vin sinn í
Mexíkó sem ók honum vítt og breitt
um landið, milli safna, hofa og
hörga, upptendraðist og ljómaði er
hann sagði frá þeim lifunum sínum,
og ekki langt síðan hann fór aðra
ferð og tók nú Koggu sína með sér.
Ekki ólíklegt að ferðirnar hefðu
getað orðið honum hvati til að
bretta upp ermarnar til átaka og
landvinninga í stórum og svipmikl-
um dúkum. En hér ber ekki að vera
með neinar ágiskanir, heldur halda
sig við jörðina, skal þá helst virða
að verðleikum og þakka svipmikið
dagsverk sem var meira að vöxtum
en margan grunar. Myndverkin
jafnframt með því ágætasta sem
gert var á landi hér um daga lista-
mannsins.
Í minningu Magnúsar Kjartanssonar
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Eftir Magnús Lágmynd í blandaðri tækni.
bragi_asgeirsson@msn.com
AF LISTUM
Bragi Ásgeirsson
Morgunblaðið/Þorkell
Listamaðurinn Magnús Kjartansson við eitt verka sinna.