Morgunblaðið - 22.09.2006, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Gamanleikurinn MeinKampf, sem Borgarleik-húsið frumsýnir annaðkvöld, fjallar um sambýli
gyðingsins Slómó og Adolfs Hit-
lers er hann kemur úr sveitinni frá
fæðingarbæ sínum Braunau am
Inn til Vínarborgar. Listin á hug
hans allan. Hann hyggst gera til-
raun til að komast inn í Listaaka-
demíuna í þeim tilgangi að gerast
listmálari, en hann fær afdrátt-
arlausa synjun skólayfirvalda.
Mein Kampf verður til
Synjunin veldur Hitler miklu
hugarangri. Í einstæðingsskap sín-
um og peningaleysi ratar hann inn
á gistiheimili fyrir húsnæðislausa
og hittir þar fyrir tvo gyðinga, sem
taka hann að sér, ganga honum að
heita má í móður stað, kenna hon-
um grundvallaratriði í mannasiðum
og hjálpa honum við að finna hina
réttu braut í lífinu. Gyðingurinn
Slómó er að skrifa bók og vantar
titil á bókina. Eftir miklar vanga-
veltur verður þrautalendingin
Mein Kampf eða Baráttan mín
sem er sá titill, sem Hitler kaus að
kalla Biblíuna sína.
Gyðingarnir tveir átta sig hins
vegar ekki á hrikalegri tortíming-
aráráttu Hitlers fyrr en alltof
seint.
Æfingaferlið hefur staðið yfir í
mánuð og verið ævintýri líkast, að
sögn Hafliða Arngrímssonar leik-
stjóra. Sex leikarar taka þátt í
sýningunni. Sjöundi leikarinn, ef
leikara skyldi kalla, birtist svo
áhorfendum þegar þar að kemur,
segir leikstjórinn leyndardóms-
fullur á svip og neitar alfarið að
láta neitt meira uppi.
Stórmerkilegur leikhúsmaður
Höfundur verksins George Ta-
bori á langan feril sem leikskáld,
skáld, handritshöfundur, leikstjóri,
leikhússtjóri og leikari. Hann er 92
ára ungverskur gyðingur og er
einn af merkustu höfundum sem
leikhúsið á í dag, að sögn Hafliða.
Eftir Tabori liggja tugir verka og
hefur hann hlotið flestöll leiklist-
arverðlaun, sem nöfnum tjáir að
nefna. Hann er elsti starfandi leik-
húsmaður í heimi um þessar
mundir, en hann er nú búsettur í
Berlín. Sófókles hætti leikhússtarfi
er hann var áttræður.
Hann er breskur ríkisborgari og
bjó í Bretlandi um skeið eftir að
hafa flúið frá Þýskalandi á þriðja
áratug síðustu aldar. „Berlín er
ekki nógu stór fyrir okkur báða,“
sagði hann eitt sinn og átti þá við
sjálfan sig og Hitler. Hann vann
um árabil sem blaðamaður í Lond-
on, starfaði sem stríðsfréttaritari
BBC í Istanbúl og víðar, en fyrsta
skáldsagan hans, Beneath the
Stone kom út árið 1941.
Árið 1945 var honum boðin
vinna í Hollywood við að skrifa
kvikmyndahandrit, m.a. fyrir Alf-
red Hitchcock. Þar kynntist hann
Bertolt Brecht, sem kveikti ævi-
langa ástríðu Taboris á leikhúsinu
sem olli skilnaði hans og leikkon-
unnar frægu Vivecu Lindfors.
Kímnigáfan er bjarghringur
Upphaflega skrifaði Tabori verk-
ið Mein Kampf sem skáldsögu, en
leikritið var frumsýnt í hans leik-
stjórn í Vínarborg árið 1987. „Það
er heilmikill sannleikur í verkinu
og sjálfur kallar höfundurinn það
guðfræðilegan farsa. Það er vel
hægt að horfa á helförina í spé-
spegli. Það vill svo til að höfund-
urinn er sjálfur gyðingur og missti
ættmenni, m.a. móður sína, í út-
rýmingarbúðunum í Auschwitz.
Leikritið er meðal annars um
kímnigáfu, en höfundurinn segir að
í öllum bröndurum sé falin lítils
háttar helför. Þegar menn hafa
lent í hremmingum, hvort sem það
er í einkalífinu eða á æfingum í
leikhúsinu, þá segja þeir gjarnan
frá síðar í brandarastíl, þ.e.a.s. ef
þeir hafa komist lífs af. Kímnigáf-
an er því nokkurs konar bjarg-
hringur, ekki þó til að forðast
raunveruleikann heldur til að kom-
ast í gegnum hann. Leikritið
fjallar einnig um ástina í ýmsum
myndum, himneska ást, jarðneska
ást, erótíska ást og kynlífslega ást.
Ef maður tekur ritninguna alvar-
lega, sem fólk ætti að gera í ríkari
mæli, hvort sem litið er til biblíu
gyðinga eða kristinna manna á
manni að þykja jafnvænt um óvin
sinn og sjálfan sig og það er ein-
mitt mottó gyðinganna í þessu
leikriti. Ef menn tækju þá sér til
fyrirmyndar hefði verið hægt að
koma í veg fyrir ýmsar hremm-
ingar mannkynssögunnar,“ segir
Hafliði.
Helförin í
spéspegli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Titilhlutverkið Bergur Þór Ingólfsson fer með hlutverk Hitlers í gam-
anleiknum Mein Kampf sem frumsýndur er á morgun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamanleikur Mein Kampf segir frá ungum Adolf Hitler sem gerir tilraun
til að komast inn í Listaakademíuna í Vínarborg.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinátta Gyðingurinn Slómó vingast við Hitler. Þór Tulinius og Bergur Þór
í hlutverkum sínum sem vinirnir tveir.
Eftir: George Tabori.
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson.
Leikstjórn: Hafliði Arngrímsson.
Leikmynd/búningar: Snorri Freyr
Hilmarsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Hljóðmynd: Sigurvald Ívar Helga-
son.
Sýningastjórn: Chris Astridge.
Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson,
Þór Tulinius, Guðmundur Ólafsson,
Hanna María Karlsdóttir, Björn
Ingi Hilmarsson og Marta Nordal.
Mein Kampf
Borgarleikhúsið frumsýnir annað kvöld
gamanleikinn Mein Kampf eftir George
Tabori í leikstjórn Hafliða Arngrímssonar.
Höfundurinn hefur kosið að kalla verk sitt
guðfræðilegan farsa, en það fjallar ekki síst
um kímnigáfuna og ástina í ýmsum myndum.
Hvað segirðu gott?
Bara fínt!
Hvernig sérðu ár (tímaeininguna) fyrir þér? (Spurt af síð-
asta aðalsmanni, Ólöfu Arnalds.)
Sem sívalning.
Kanntu þjóðsönginn?
Ég er svolítið ryðgaður þar. En yfirleitt þegar ég heyri
hann get ég sungið með.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Ég var síðast með eiginkonu minni á eyjunni Santorini í
gríska eyjahafinu. Algjör paradís.
Uppáhaldsmaturinn?
Ég er svo mikill matarkarl að ég gæti ómögulega gert upp
á milli, mér finnst flest gott.
Bragðbesti skyndibitinn?
Búlluborgari.
Besti barinn?
Getur bar verið bestur?
Hvaða bók lastu síðast?
Ég er oft með margar bækur í gangi í einu, síðast kláraði
ég Draumalandið og bókina The Declaration of Independ-
ent Filmmaking eftir Polish-tvíburana. Mjög áhugaverðar
báðar tvær.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Afganga í Austurbæ eftir Agnar Jón Egilsson þar sem
Elma Lísa, eiginkona mín, og Stefán Hallur fara á kostum.
En kvikmynd?
Ég horfi á kvikmyndir nánast á hverjum einasta degi. Síð-
ast sá ég Volver eftir Almodóvar og hafði gaman af. Hann
er snillingur í að vinna með karaktera og hikar aldrei við að
hafa þá ýkta. Svo hlakka ég mikið til að sjá Börn.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég er með svo mikið af allskonar tónlist í tölvunni minni að
ég hef varla hlustað á heila plötu í langan tíma. Ætli sú síð-
asta hafi ekki verið tónleikaplata með Nick Cave sem ég á,
svona til að hita mig upp fyrir tónleikana.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Rás 2.
Besti sjónvarpsþátturinn?
The Simpsons og Family Guy.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveruleikaþætti í
sjónvarpi?
Nei takk, mér líður betur fyrir aftan myndavélina.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Ef spurt er um mig, þá venjulegar.
Helstu kostir þínir?
Jákvæður, hress og brjálæðislega „sexý“!
En gallar?
Móðgunargjarn og stundum of jákvæður.
Besta líkamsræktin?
Að lyfta með Gústa og vinum mínum í Matur & massi.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Pi frá Givenchy.
Ertu með bloggsíðu?
Nei.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Já, flugmiða og hótel.
Flugvöllinn burt?
Þetta er stór spurning, Já, ef svæðið fær að safna gróðri og
búinn verður til stór garður líkt og Tiergarden í Berlín.
Svo geta komandi kynslóðir ákveðið hvað verður um land-
ið.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Ertu ástfanginn?
Íslenskur aðall | Reynir Lyngdal
Jákvæður og hress matarkarl
Morgunblaðið/Ásdís
Leikstjóri Reyni langar að vita hvort næsti aðalsmaður sé ástfanginn.
Aðalsmaður vikunnar hefur tekið að sér það vandasama verk að leikstýra
áramótaskaupi Sjónvarpsins í ár. Hann heitir Reynir Lyngdal og honum
líður best fyrir aftan myndavélina.