Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÖÐVAR Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, hafði ekkert heyrt um
hugsanlegar hleranir í utanríkis-
ráðuneytinu í ráðherratíð Jóns
Baldvins Hannibalssonar fyrr en
Jón Baldvin greindi frá málinu í
fjölmiðlum í fyrradag. Ráðuneytið
var á þessu tímabili í sama húsi og
lögreglan og segir Böðvar að það
hefðu verið hæg heimatökin hjá ráð-
herra eða starfsmönnum hans að til-
kynna um málið til lögreglu.
„Þær hleranir sem ég veit um í
minni embættistíð eru þær sem
voru heimilaðar hjá dómstólum,“
sagði Böðvar. Í umræðu um hler-
anir væri ennfremur mikilvægt að
menn gerðu greinarmun á löglegum
hlerunum sem dómstólar veittu leyfi
fyrir vegna öryggis ríkisins eða
gruns um ólöglegt athæfi og hins
vegar ólöglegum hlerunum.
Utanríkisráðuneytið var um ára-
bil til húsa á 5.
hæð í sama húsi
og lögreglustöðin
við Hverfisgötu.
Böðvar undrast
mjög að lögregla
hafi ekki verið
látin vita af hugs-
anlegum hlerun-
um. „Ef menn
halda að eitthvað
ólöglegt sé framið upp á 5. hæð, af
hverju er lögregla þá ekki látin vita?
Það er mjög óheppilegt að það hafi
verið látið liggja í láginni að greina
frá þessu,“ sagði Böðvar. Þá haml-
aði það athugun á þessu tiltekna til-
viki að ekki hefði verið greint frá því
hver framkvæmdi skoðun á síma
Jóns Baldvins en það skipti veru-
legu máli hvaða tæki og kunnáttu
viðkomandi hefði haft.
Hefði ráðuneytið látið vita af hler-
ununum hefði lögregla reynt að
bregðast við því. „Lögreglan hefur
um langt skeið haft aðstöðu til þess
að aðstoða þá í opinbera geiranum
sem hafa viljað ganga úr skugga um
hvort símar þeirra séu hleraðir,“
sagði Böðvar. Þessari þjónustu hefði
lögreglan í Reykjavík sinnt fram til
ársins 1996. Aðspurður hvort ein-
hvern tíma hafi komið í ljós að símar
slíkra aðila væru hleraðir vildi
Böðvar ekki svara því af þeirri
ástæðu að umræðan um hleranir
þyrfti að komast á þokkalegri
grundvöll. Hann telur jákvætt að
Alþingi hafi sett nefnd til að fjalla
um þessi mál og það sé betra að
fjalla um málið á þeim vettvangi,
fremur en í fjölmiðlum. „En ég er
jafnáhugasamur og aðrir um að
þetta verði skoðað. Það er nauðsyn-
legt að lögreglan í landinu liggi ekki
undir ámæli.“
Undrast að lögregla
var ekki látin vita
Böðvar Bragason
DAVÍÐ Oddsson, seðlabanka-
stjóri og fyrrverandi forsætis-
ráðherra, efast um að sími
Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, hafi verið hleraður eins
og Jón Baldvin heldur fram.
Þetta kom fram í kvöldfrétta-
tímum beggja sjónvarpsstöðva
í gær.
„Ég verð því miður að efast
um að hann [Jón Baldvin] hafi
haft nokkra vitneskju um þetta og að þetta sé
einhver eftiráminning sem sé ekki mjög merki-
leg. Hún fær ekki staðist, því við létum athuga
þetta mjög vel,“ sagði Davíð í kvöldfréttum Rík-
issjónvarpsins og vísaði þar til þess að símalínur
jafnt á skrifstofum sem í heimahúsum hjá for-
sætisráðherra, utanríkisráðherra og dómsmála-
ráðherra hafi á þessum árum verið athugaðar ár-
lega af hæfustu sérfræðingum sem völ var á í
Evrópu á þeim tíma, bæði í samvinnu við Nató
og norska öryggiseftirlitið. Aðspurður sagðist
hann ekki muna til þess að neitt óeðlilegt hefði
fundist í þessum reglubundnu leitum Nató á ráð-
herraskrifstofunum. Í fréttum Ríkissjónvarpsins
benti hann á að slíkar athuganir hefðu tekið allt
uppundir tvo sólarhringa og sagði með ólíkindum
ef Jón Baldvin hefði ekki vitað af þessu.
„Ég skil ekki af hverju Jón var þá að fá þenn-
an aðila sem hann nefnir til sögunnar, en vill þó
ekki segja hver er, sem getur ekki verið leynd-
armál, meðan við höfðum séð um það að hans
húsakynni í utanríkisráðuneytinu og hans símar
væru vel og tryggilega athugaðir þannig að ekki
væri um hugsanlegar hleranir á þeim símum að
ræða,“ sagði Davíð í kvöldfréttum NFS og bætti
við: „Ég tel að Jón verði að fá þennan ágæta
tæknivædda vin sinn til að útskýra hvernig þessi
mæling fór fram áður en menn taka mikið mark
á þessu.“
Aðspurður vísaði Davíð því á bug að meintar
hleranir hefðu verið á vegum Sjálfstæðisflokks-
ins. „Ég veit nú ekki hvað ég sem formaður
Sjálfstæðisflokksins hefði átt að láta hlera hjá
honum Jóni mínum til að fá að vita,“ sagði Davíð
og sagðist telja að menn hefðu farið mjög langt
yfir strikið í hlerunarumræðunni allri sem tröll-
riðið hefði íslenskum fjölmiðlum að undanförnu.
Í fréttum Ríkissjónvarpsins sagðist Davíð
furða sig á því að Jón Baldvin hefði ekki greint
sér frá grunsemdum sínum um hlerun á sínum
tíma, enda hefði að mati Davíðs verið eðlilegt að
Jón Baldvin greindi bæði sér sem forsætisráð-
herra og Þorsteini Pálssyni, þáverandi dóms-
málaráðherra, frá grunsemdum sínum.
Davíð efast um að síminn
hafi verið hleraður
Í HNOTSKURN
»Að sögn Davíðs Oddssonar könnuðusérfræðingar Nató árlega skrifstofur
forsætis-, utanríkis- og dómsmálaráðherra
til þess að fullvissa sig um að þær væru ekki
hleraðar.
»Jón Baldvin Hannibalsson, sem var ut-anríkisráðherra á árunum 1988–1995,
fékk tæknimann til að kanna ráðherrasíma
sinn og lýsti sá því yfir að síminn væri hler-
aður.
»Davíð Oddsson vísar því á bug að meint-ar hleranir hafi verið á vegum Sjálf-
stæðisflokksins.
Davíð Oddsson
„ÞETTA er ekki í
fyrsta sinn sem
Davíð Oddsson
rengir mig um að
ég fari með rétt
mál,“ segir Jón
Baldvin Hanni-
balsson. „En sem
fyrrverandi for-
manni Sjálfstæð-
isflokksins stæði
honum nær að
gera grein fyrir leyniþjónustu Sjálf-
stæðisflokksins sem hér virðist hafa
verið við lýði áratugum saman. Það
er miklu brýnna mál og verðskuldar
alvöru umræðu,“ sagði Jón Baldvin
og tók fram að mikilvægt væri að fá
svör við því hverjir hefðu stundað
njósnirnar og um hverja, hvað hefði
verið gert við upplýsingarnar, hver
hefði veitt leyfi fyrir því að umrædd-
um upplýsingum væri komið á fram-
færi við bandaríska sendiráðið og
hvernig hefði staðið á því að for-
ystumenn annarra flokka hefðu ekki
haft vitneskju um leyniþjónustuna.
Vantar enn
fullnægj-
andi svör
Jón Baldvin
Hannibalsson
STÚLKURNAR við Langholtsskóla
létu ekki á sig fá þótt haustið hefði
gert vart við sig undanfarna daga.
Þær buðu því byrginn með hlýjum
klæðnaði, úlpum, húfum og vett-
lingum.
Í dag er spáð fremur hlýju veðri
með vaxandi norðaustanátt og rign-
ingu sunnan- og austanlands í kvöld.
Morgunblaðið/Ásdís
Dúðaðar í haustnepju
FRAMKVÆMDASTJÓRI Rolf
Johansen & Co ehf. var í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær dæmdur til
að greiða sex hundruð þúsund króna
sekt fyrir að láta birta fimm auglýs-
ingar á áfengum bjór á árinu 2005.
Fjórar af auglýsingunum birtust í
Fréttablaðinu og ein í Gestgjafanum.
Í niðurstöðu dóms héraðsdóms
kemur fram að samkvæmt áfengis-
lögum séu hvers konar auglýsingar á
áfengi og einstökum áfengistegund-
um bannaðar. „Þær fimm auglýsing-
ar sem ákært er fyrir í málinu birtust
annars vegar í Fréttablaðinu og hins
vegar í Gestgjafanum. Sýnist ekki
um það deilt að um sé að ræða aug-
lýsingar og hefur ákærði staðfest að
fyrirtækið Rolf Johansen & Co ehf.,
sem hann er framkvæmdastjóri fyr-
ir, hafi óskað eftir og greitt fyrir birt-
ingu þeirra,“ segir í dóminum. Fram
kemur að auglýsingarnar hafi verið
samdar á vegum fyrirtækisins og
varðað tilgreindar vörur þess. Hafi
framkvæmdastjórinn sagst ábyrgur
fyrir birtingu þeirra. Samkvæmt
þessu teljist ákærði höfundur þeirra
auglýsinga sem ákæran taki til.
Sekt fyrir
að auglýsa
áfengi
TVEIR Kanadamenn og fjórir
Bandaríkjamenn lömuðust eftir að
hafa drukkið gulrótarsaft frá fyrir-
tækinu Bolthouse Farms í Kaliforn-
íu. Í frétt vefútgáfu Berlingske Tid-
ende kemur fram að fyrirtækið hafi
innkallað saftina úr verslunum og
kanadísk stjórnvöld etji nú kappi við
tímann við að fjarlægja hana úr búð-
um. Fram kemur í fréttinni að safinn
hafi verið gerður úr gulrótum frá
Earthbound Farms sem er þekkt
vörumerki fyrir lífrænar landbúnað-
arafurðir. Fyrr í ár var spínat frá
þessu sama fyrirtæki innkallað úr
verslunum eftir að ecoli-bakteríur
fundust í því.
Hjá Kjartani Má Friðsteinssyni,
framkvæmdastjóra Banana, fengust
þær upplýsingar að umræddur safi
væri ekki fluttur inn til Íslands.
„Samkvæmt mínum heimildum frá
erlendum birgjum hafði þessi sýking
ekkert með gulræturnar sjálfar að
gera, heldur var um að ræða sýkingu
í vökvanum sjálfum,“ sagði Kjartan
og tók fram að samkvæmt hans
heimildum hefði allur safi sem grun-
að var að væri sýktur þegar verið
innkallaður.
Lömuðust eftir
að hafa drukk-
ið gulrótarsaft