Morgunblaðið - 12.10.2006, Page 6

Morgunblaðið - 12.10.2006, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Suðurströnd 4 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 Bestu dekkin átta ár í röð! Í átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið valin þau bestu af Tire Review Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra hjólbarðasala í Bandaríkjunum. Góðar samgöngur tryggðar Flugfélag Íslands hefur áætlunarflug til Vestmannaeyja á mánudag og verður 37 sæta Dash-8-flugvél aðallega notuð í flugið en einnig 50 sæta Fokker-vél „VIÐ erum að tala um stórbætur á flugsam- göngum milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Við lítum tvímælalaust svo á að Flugfélag Ís- lands muni tryggja öruggari samgöngur en verið hafa undanfarin ár,“ segir Elliði Vignisson, bæj- arstjóri Vestmannaeyja, en á mánudag hefur Flugfélag Íslands áætlunarferðir til Eyja, sem hafa legið niðri í um tvær vikur, eftir að Lands- flug dró sig út úr fluginu. Flugfélagið sá um samgöngurnar í mörg ár til ársins 2001. „Þetta er nákvæmlega það sem við lögðum upp með, þarna er ríkisstjórnin að koma til móts við kröfu okkar og við erum mjög ánægð með þessa nið- urstöðu,“ segir Elliði en flugið verður nú rík- isstyrkt. Verulega hefur dregið úr farþegafjölda milli lands og Eyja undanfarin ár. Árið 2001 voru þeir um 40 þúsund en í ár stefnir í að þeir verði aðeins um 17 þúsund. Elliði fullyrðir að bættar samgöngur muni hafa mjög góð áhrif á atvinnulífið, töluvert sé um að menn sæki vinnu til lands – og öfugt, og eins muni þetta hafa góð áhrif á ferðaþjónustuna. „Allir okkar vaxtar- möguleikar eru háðir góðum samgöngum.“ Flogið verður 13 sinnum í viku til Eyja, tvisv- ar alla daga nema laugardaga. Notast verður við 37 sæta Dash-8-vél og jafnframt 50 sæta Fokk- er-vél. „Við erum bjartsýn á að vinna aftur upp markað á þessari flugleið,“ segir Árni Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. „Við sjáum ákveðin tækifæri í að vinna land aft- ur og ná farþegatölunni á flug.“ Á morgun verður byrjað að taka á móti bók- unum og fyrst í stað verða sértilboð í gangi, 2.000. kr. fyrir flugið og krónufargjöld fyrir börnin. RÁS 2 er sú útvarpsstöð sem mest er hlustað á ef marka má könnun sem framkvæmd var af Capacent – áður Gallup – vikuna 17.–23. ágúst sl. Stöð- in mældist með 55,3% uppsafnaða hlustun yfir vikuna og komst þar með á nýjan leik upp fyrir Bylgjuna, sem var vinsælust útvarpsstöðva í sams- konar könnun í apríl sl. Uppsöfnuð hlustun Bylgjunnar minnkar um fimm prósent frá því í maí, úr 58,9% í 53,9%, og hlustun á Rás 1 um tæp sjö prósent. Ef litið er til hlustunar á lands- byggðinni kemur sterk staða Rásar 2 í ljós. Uppsöfnuð hlustun yfir vikuna mældist þar tæp 62%, sem er fimm prósentum meira en Bylgjan mældist með – en hlustun á Bylgjuna á lands- byggðinni hefur dregist saman um 4,5% á milli kannana. Rás 2 er vinsælust hjá aldurshópn- um 40–49 ára en Bylgjan hjá fólki á aldrinum 30–39 ára. Af öðrum útvarpsstöðvum má nefna að jafnframt því sem hlustun á Kiss FM og Flass dregst lítillega saman eykst hlustun á FM 95,7 sem því nemur. Þá eykst hlustun á út- varpsstöðina X-ið um 2,8% en hlustun á XFM dregst saman um 1,7%. Um var að ræða dagbókarkönnun. Úrtakið var 1463 Íslendingar á aldr- inum 12–18 ára og fjöldi svara 531. Mest hlustað á Rás 2 sam- kvæmt könnun Capacent                                   !"  #   $   % &'( )(       $*(' STARFSHÓPUR sem viðskipta- ráðherra skipaði telur vel fram- kvæmanlegt að taka upp opinber viðmið um áætlaðan fram- færslukostnað heimilanna hér á landi. Slík viðmið hafa víða verið tekin upp, t.d. á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Sambærileg aðferðafræði og not- uð er í Svíþjóð, Noregi og Dan- mörku við gerð neysluviðmiða þyk- ir tiltölulega kostnaðarsöm. Að fenginni reynslu þótti sýnt að neysluviðmið fyrir Ísland yrðu byggð á íslenskri neysluhegðun. Starfshópurinn mælti því með að notuð yrði svonefnd útgjalda- aðferð, lík og notuð hefur verið í Finnlandi og í Bandaríkjunum. Opinber viðmið um framfærslu VITNI í máli ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni og Jóni Gerald Sullenberger eru eftirfarandi skv. lista sem lagður var fram í Héraðs- dómi Reykjavíkur í fyrradag, 10. október sl. af Sigurði Tómasi Magn- ússyni, settum ríkissaksóknara í málinu. Alls eru 82 nöfn á listanum, sem lagður er fram með fyrirvara um heimild til að bæta við nöfnum. Aðalheiður Fritzdóttir, Aðalsteinn Hákonarson, Aldís Hilmarsdóttir, Anna Þórðardóttir, Arnar Jensson, Auðbjörg Friðgeirsdóttir, Arnfinnur Sævar Jónsson, Árni Albertsson, Árni Pétur Jónsson, Árni Oddur Þórðarson, Baldur Már Helgason, Bjarki Diego, Bjarni Ármannsson, Bjarni Jóhannesson, Bjarni Kristján Þorvarðarson, Daniel Reiffers, Einar H. Einarsson, Einar Þórisson, Eiríkur Sigurðsson, Finnur Reyr Stefánsson, Finnur Sveinbjörnsson, Garðar Guðmundur Gíslason, Grímur Grímsson, Guðfinna Bjarnadóttir, Guðmundur Ingi Hjartarson, Guðmundur Andrés Jónsson, Guðmundur Marteinsson, Guðmundur Kristján Tómasson, Gunnar Snævar Sigurðsson, Hafsteinn Sæmundsson, Halldór Kristjánsson, Hans Kristian Hustad, Hans Mortensen, Helga Gísladóttir, Helgi Þór Bergs, Helgi Jóhannesson, Helgi Magnús Gunnarsson, Helgi Sigurðsson, Hjalti Magnússon, Hjörleifur Kristinsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Hreinn Loftsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Íris Bjarnadóttir Ansnes, Jim Schafer, Jóhanna Guðmundsdóttir, Jóhanna Waagfjörð, Jóhannes Rúnar Jóhannesson, Jóhannes Jónsson, John Bravaccini, Jón Lárusson, Jón Ólafur Lindsay, Jón Scheving Thorsteinsson, Jónína Benediktsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Kristrún Sveinbjörnsdóttir, Lárus Óskarsson, Linda Jóhannsdóttir, Magnús Guðmundsson, Margrét H. Nikulásdóttir, Brian Newton, Niels Heini Mortensen, Óskar Magnússon, Pauli Ellefsen, Pálmi Kristinsson, Ragnar Björn Agnarsson, Ragnar Þórhallsson, Marís Rúnar Gíslason, Regin Jörgensen, Ritchard J. Browdy, Sif Einarsdóttir, Sigfús R. Sigfússon, Sigríður Gröndal, Sigurður Einarsson, Sigurður Heiðar Steindórsson, Stefán Hilmarsson, Sveinn Ingiberg Magnússon, Tómas Sigurðsson, Unnur Sigurðardóttir, Þorgeir Baldursson, Þórður Bogason, Þórður Már Jóhannesson. 82 vitni í Baugsmáli HÁTT í þrjátíu manns tóku þátt í krossgátukvöldi sem haldið var á Næsta bar í gærkvöldi. Að sögn Ásdísar Bergþórsdóttur, skipuleggjanda krossgátukeppninnar og höfundar keppniskrossgátnanna, verður í vetur blásið til slíkrar keppni annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 20. Segir hún að haldin hafi verið slík krossgátukvöld fyrr á árinu með góðum árangri og því hafi þótt ástæða til þess að gera þetta að föstum viðburði. Aðspurð segir Ásdís, sem er höfundur hinnar geysi- vinsælu sunnudagskrossgátu Morgunblaðsins, keppnis- krossgáturnar vera nokkurs konar einfaldaða útgáfu af sunnudagskrossgátunum. Keppnin sé liðakeppni þar sem tveir til fimm vinni saman að því að leysa þrjár mis- munandi krossgátur. Aðspurð segir hún flesta kepp- endur vera á miðjum aldri, en einnig sé nokkuð af ungu fólki. Spurð hverjum detti í hug að keppa í krossgátum segir Ásdís það vera forfallið áhugafólk um krossgátur sem fái ekki nóg af þeim. „Stemningin hér á Næsta bar er afar sérstök þegar keppnin fer fram, því um leið og fólk fær gáturnar í hendur dettur allt í dúnalogn á barn- um. Ég held að það sé sjaldan sem jafnmikil þögn ríkir á bar fullum af fólki,“ segir Ásdís kímin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfuðið lagt í bleyti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.