Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í KVÖLD klukkan 20 verð-
ur heimildamyndin In and
Out of Africa sýnd í Reykja-
víkurAkademíunni á vegum
Menningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs og Kviksögu –
heimildamyndamiðstöð
ReykjavíkurAkademíunnar.
Myndin fjallar um fljótandi
merkingu afrískra lista og
veltir upp spurningum um
samband Vesturlandabúa
við afríska menningu.
Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur fylgir
myndinni úr hlaði.
Aðgangur er ókeypis.
Kvikmyndasýning
Heimildamynd um
afrískar listir
Katla Kjartansdóttir
NORRÆNIR músíkdagar
halda áfram í dag með af-
slöppun og óvissutónleikum.
Rúta fer frá Hótel Barón í
Reykjavík um kl. 13 í Bláa
lónið þar sem fólk getur
slappað af, úr Bláa lóninu er
haldið á óvæntan stað þar
sem tónleikarnir fara fram.
Þrjú tónverk verða flutt á
þessum tónleikum, sem eng-
inn veit hvar verða, eftir Martin Stig-Andersen
frá Danmörku, Hanna Hartmann frá Svíþjóð og
Camilla Söderberg frá Íslandi. Þessi tónskáld
eiga það sameiginlegt að semja nútímaraftónverk.
Heimkoma er áætluð um kl. 18.
Raftónleikar
Bláa lónið og
óvæntir tónleikar
Bláa lónið
FÆREYINGA saga og Ólafs
saga Tryggvasonar eru komn-
ar út á einni bók í nýrri útgáfu
hjá Hinu íslenzka fornrita-
félagi. Hafði Ólafur Hall-
dórsson umsjón með útgáfunni
og ritar hann ennfremur veg-
legan formála að bókinni. Rit-
stjórar eru Jónas Kristjánsson
og Þórður Ingi Guðjónsson.
Færeyinga saga er saga
Götuskeggja, færeyskrar höfð-
ingjaættar sem kennd var við
óðalið Götu í Austurey. Oddur Snorrason, munkur
á Þingeyrum á 12. öld, tók saman sögu Ólafs kon-
ungs Tryggvasonar.
Bókaútgáfa
Tvær fornsögur
á einni bók
Færeyinga saga og
Ólafs saga
Tryggvasonar.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EINS og fram kom í þriðjudags-
útgáfu Morgunblaðsins hafa þeir
Barði Jóhannsson, best þekktur sem
heilinn á bakvið Bang Gang, og Sig-
urður Pálmi Sigurbjörnsson hleypt
nýju útgáfufyrirtæki af stokkunum.
From Nowhere Records, eða Frá
engu ehf., er í eigu þessara tveggja
aðila en þriðjungshlutur fellur í skaut
Tónvís, hins nýja fjárfestingasjóðs
FL Group. Skipurit fyrirtækisins er
á þann veg að Barði er stjórnarfor-
maður, Sigurður framkvæmdastjóri
og stjórnarmaður og Tryggvi Jóns-
son situr í stjórn sem fulltrúi Tónvís.
Tækifæri
„Ég og Sigurður sáum fram á
ákveðið tækifæri í Ameríku og
ákváðum að láta slag standa,“ segir
Barði, aðspurður um hvers vegna
fyrirtækið hafi verið sett á laggirnar.
Þau verkefni sem standa nú fyrir
dyrum er að koma síðustu plötu
Bang Gang, Something Wrong, á
Bandaríkjamarkað og einnig næstu
plötu þeirrar sveitar, sem út kemur í
september/október á næsta ári. Ann-
að er ekki fast í hendi ennþá, en
markmiðið er að gefa út plötur með
öðrum listamönnum, hvort heldur er-
lendum eða íslenskum.
„Málið er að tvö fyrirtæki í Banda-
ríkjunum hafa boðið mér samninga
um útgáfu á Bang Gang. Annað fyrir-
tækið er lítið, en hitt heldur stórt.
Svo hafa verið þreifingar með ýmis-
legt annað, sem og útgáfa á Lady and
Bird. Það var því nóg um hauka í
hornum þegar við hófum undirbún-
inginn. Við Sigurður fórum til New
York og hittum marga kynningar- og
dreifingaraðila og erum við nú búnir
að velja þau PR-fyrirtæki sem munu
koma að útgáfunni (PR stendur fyrir
public relations eða almannatengsl).
Þá er verið að ganga frá dreifingar-
samningum en ég get ekki upplýst
um hvaða fyrirtæki mun sjá um þá
hlið mála strax.“
Bækistöðvar fyrirtækisins verða í
New York og mun Sigurður sjá um
reksturinn þar. Barði verður hins
vegar staðsettur á Íslandi þar sem
fyrirtækið er skráð en hann verður
engu að síður „á stöðugum flækingi“,
eins og hann orðar það. „Þetta er
auðvitað algjört smáfyrirtæki og við
erum t.d. ekki með skrifstofu, Barði
segir að raunhæf markmið verði
reglan, og starfsemin muni fara
hægt og rólega af stað. Kostnaði
verði haldið í lágmarki og öllum
skýjaborgum haldið úr augsýn.
Barði segist ekki munu fylgja neinni
sérstakri listrænni stefnu, tónlistin
verður einfaldlega að vera góð. „Það
er offramboð á lélegri tónlist í heim-
inum og því viljum frekar vinna á
þeim vettvangi sem ekki er of-
framboð.“
Eðlilegt framhald
Opnunarpartí From Nowhere Re-
cords fer fram í kvöld á Hiro Lounge
í New York. Bang Gang mun þá spila
sína fyrstu tónleika í Bandaríkjunum
í Getty-listamiðstöðinni í Los Angel-
es eftir eina viku og einnig á CMJ-
tónlistarhátíðinni, sem er ein stærsta
sinnar tegundar, en þá koma hundr-
uðir sveita fram út um alla borg. Ný
stuttskífa með Bang Gang kemur þá
út í nóvember og stóra platan í febr-
úar/mars eins og áður er getið.
Tónlist | Barði og Sigurður Pálmi reka útgáfufyrirtækið From Nowhere Records
Raunhæf markmið og enginn asi
Morgunblaðið/ÞÖK
Frá engu Barði Jóhannsson er stjórnarformaður Frá engu ehf. sem nýverið hlaut styrk til útrásar.
VIRTUSTU bók-
menntaverðlaun
Bretlands, Man
Booker-verðlaun-
in, voru afhent á
þriðjudaginn. Í ár
féllu verðlaunin í
skaut rithöfund-
inum Kiran Desai
fyrir aðra skáld-
sögu hennar, The
Inheritance of Loss. Desai, sem er
35 ára, er yngsta konan til að hljóta
þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Bókina tileinkaði Desai móður
sinni, rithöfundinum Anitu Desai,
en móðirin hefur þrisvar sinnum
verið tilnefnd til verðlaunanna án
þess þó að hreppa hnossið.
Dómnefndin lofaði The Inher-
itance of Loss í hástert og sagði m.a.
að þar væri á ferðinni „stórbrotin
skáldsaga“ gædd „mannlegri dýpt
og visku, skoplegri blíðu og póli-
tískri skarpskyggni“.
Harmonie Lee, formaður dóm-
nefndarinnar, sagði við afhend-
inguna að móðir Desai væri örugg-
lega stolt. „Það er greinilegt fyrir
þau okkar sem höfum lesið verk
Anitu Desai að Kiran Desai hefur
lært mikið af verkum móður sinnar.
Það sem er svo magnað við Kiran
Desai er að hún er meðvituð um
angló-indverska arfleifð sína en
skapar um leið eitthvað einstakt.“
Fyrirfram var talið að Sarah
Waters væri sigurstranglegust fyrir
bókina The Nigth Watch.
Kiran Desai
hlýtur Man
Booker
Móðir hennar tilnefnd
þrisvar sinnum
Kiran Desai
SÆNSKA kvikmyndin Zozo hlýtur
kvikmyndaverðlaun Norðurlanda-
ráðs árið 2006. Þetta var tilkynnt á
fréttamannafundi í Sænsku kvik-
myndastofnuninni í Stokkhólmi í
gær. Nema verðlaunin um fjórum
milljónum íslenskra króna og verða
þau afhent við hátíðlega athöfn í
Kaupmannahöfn 1. nóvember nk.
Tíu kvikmyndir frá Norðurlöndun-
um voru tilnefndar til verðlaunanna.
Í greinargerð dómnefndar kemur
m.a. fram að Zozo sé grípandi mynd
sem notfæri sér margvísleg tjáning-
arform og „tengir sterka raunsæis-
frásögn við ljóðræna myndræna
tjáningu, ímyndunarafl og húmor“.
Leikstjóri og handritshöfundur
myndarinnar er Josef Fares.
Zozo hlut-
skörpust
DANSKA tón-
skáldið Per
Nørgård hlýtur
Síbelíusarverð-
launin í ár, sem
talin eru ein
fremstu tónlist-
arverðlaun Norð-
urlanda. Upphæð
verðlaunanna
nemur 100.000
evrum, euro, tæplega 8,7 milljónum
króna.
Per Nørgård er fæddur árið
1932 og er fyrsti Daninn til að
hljóta verðlaunin. Það er finnski
Wihuri-sjóðurinn sem að verðlaun-
unum stendur.
Síðan um miðja síðustu öld hefur
tónskáldið skrifað tónlist sem þykir
hafa sérnorræn einkenni. meðal
verka hans eru stór hljómsveit-
arverk – sex sinfóníur, sex óperur
og tveir ballettar – en einnig æf-
ingar og raftónlist.
Per Nørgård
fær Sibeliusar-
verðlaunin
Per Nørgård
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók við fyrsta eintakinu af
bókinni Ljóð í sjóð í gærdag; bók
sem MND-félagið gefur út.
Bókin inniheldur málverk, ljóð og
geisladisk með íslenskri tónlist og
ljóðalestri og gefa tugir íslenskra
listamenn úr ýmsum greinum félag-
inu, sjúklingum og aðstandendum
þeirra, vinnu sína við bókina.
Nöfn nokkurra þeirra íslensku
listamanna sem að gerð bókarinnar
komu má sjá hér til hægri.
Listamenn gefa vinnu sína
Bókin Ljóð í sjóð
gefin út til styrktar
MND-félaginu
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Andri Snær Magnason
Edda Heiðrún Backman
Einar Már Guðmundsson
Eyjólfur Kristjánsson
Gerður Kristný
Gísli Helgason
Guðmundur Jónsson
Gyrðir Elíasson
Hildur Vala
Hörður Torfa
Ingibjörg Haraldsdóttir
Jón Ólafsson
Kristján Árnason
Margrét Ólafsdóttir, Steindór
Hjörleifsson og Ragnheiður
Steindórsdóttir
Páll Óskar & Monika
Ragnar Sólberg Rafnsson
Ragnheiður Gröndal
Regína Ósk
Rut Gunnarsdóttir
Rúnar Júlíusson
Sálin hans Jóns míns
Sigurður Pálsson
Thor Vilhjálmsson
Þorsteinn frá Hamri
Þórarinn Eldjárn
TENGLAR
..............................................
www.mnd.is
Morgunblaðið/Eyþór
Gott málefni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti fyrsta eintak-
inu af bókinni Ljóð í sjóð viðtöku á Bessastöðum í gær.
♦♦♦
♦♦♦