Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 23
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Bókaverslun hefur
verið starfrækt í áraraðir við Aust-
urveg á Seyðisfirði en nú hefur nýr
aðili hafið rekstur með nokkuð
önnur viðmið en fyrri bóksalar.
Hann heitir Helgi Örn Pétursson
og stendur við að mála nýtt en þó
gamaldags búðarskilti þegar
blaðamann ber að garði. Dóttir
hans, níu mánaða gömul, kúrir ut-
an dyra í vagninum sínum í mildu
haustregninu og inni við má greina
höfgan kaffiilm í bland við þurr-
akeiminn af gömlum bókum og
nýjum. Helgi segist vera Reykvík-
ingur og hafi flutt til Seyðisfjarðar
sl. sumar.
„Ég var hér allt síðasta sumar
með konunni minni, Þórunni Ey-
mundardóttur, framkvæmdastjóra
menningarmiðstöðvarinnar Skaft-
fells, en hún er búin að eiga hér
hús í þrjú ár,“ segir Helgi. „Við út-
skrifuðumst bæði úr myndlistar-
deild Listaháskóla Íslands sl. vor.“
Bókabúð eftir eigin höfði
Þegar hann er inntur eftir
ástæðum þess að hann höndlar nú
með bækur segist hann ekki eiga
von á að fitna mikið af slíkum
rekstri en hafi alltaf haft gaman af
að koma í góðar bókabúðir og sé
mikill grúskari með töluverða
bókaeign á bakinu. „Fyrir ári eða
tveimur hefði ég alls ekki getað
séð sjálfan mig fyrir mér reka
bókabúð á Seyðisfirði. Ekki séns!
Snilldin við lífið er að ef maður
leyfir hlutunum að gerast þá koma
þeir. Ég ber virðingu fyrir því fólki
sem rak verslunina hér áður en
langar sjálfan að gera búðina eftir
mínu höfði. Er kominn með sófa-
horn, fína ítalska kaffivél, mynd-
listarbækur í sérrekka sem var
ekki áður fyrr, geisladiska sem ég
fæ frá vinum í 12 tónum og Smekk-
leysu og notaðar vasabrotsbækur
af ýmsum gerðum. Ég hef kosið að
leggja metnað í að hafa eins fjöl-
breytt úrval og mögulegt er og
verð með allar helstu bækurnar
fyrir jólin þótt ég geri mér grein
fyrir að ég get ekki keppt við Bón-
us á Egilsstöðum. Það sem ég hef
hins vegar fram yfir þá er að bjóða
upp á persónulega þjónustu og
gott andrúmsloft. Mér þykir sjálf-
um gaman að koma inn í bókabúðir
af þessu tagi og reyni að endur-
skapa það umhverfi.“
Helgi segist gjarnan sérpanta
bækur fyrir fólk, hafi það eitthvað
ákveðið í huga. Hans eigin bóka-
smekkur liggur m.a. í ævisögum,
skáldsögum, myndlistarbókum og
-tímaritum. „Ég hef líka gaman af
vissum tegundum af teiknimynda-
sögum og bókum um dulræn mál-
efni og furðulegheit. Ég veit ekki
hvort bókaúrvalið á að einkennast
af mínum bókasmekk því ég get
auðvitað ekki verið að kaupa mik-
inn lager bóka sem eru ekki auð-
seljanlegar. Ég fer sjálfsagt var-
lega í það.“
Listamenn sækja
í Seyðisfjörð
Hann segir Seyðfirðinga farna
að koma í búðina. „Það hefur lengi
loðað við Seyðfirðinga að þeir séu
heimsborgarar og bærinn heims-
borg á sína vísu. Ég hugsa að þeim
þyki þægilegt að hafa svona búð
hér. Veltan hrundi um mánaða-
mótin ágúst-september þegar
ferðamennirnir fóru en mér skilst
að það hafi alltaf verið mjög mikið
að gera fyrir jólin og bind vonir við
það.“
Helgi ætlar að hafa vinnustofu í
einu horni búðarinnar þar sem
hann getur unnið að list sinni þeg-
ar lítið er að gera. „Það er gott að
vera á Seyðisfirði, góður og þægi-
legur andi hér og svo fannst mér
nú bara mjög gott að fara úr 101
Reykjavík. Einhverjir vina minna
hristu samt höfuðið yfir því hvað
ég væri að pæla með þessu en okk-
ur líður mjög vel hér, eigum litla
dóttur og höldum ágætis tengslum
við listalífið með því að vera hér.“
Hann segir talsvert um að listafólk
hafi keypt og sé að festa kaup á
húsum á Seyðisfirði, einhver ára sé
yfir staðnum sem lokki skapandi
manneskjur að honum, en sú ára
sé óútskýrð og óhöndlanleg með
öllu. „Seyðisfjörður hefur mikið
aðdráttarafl og fólki þykir staður-
inn spennandi,“ segir hinn nýbak-
aði bókabúðareigandi og heldur
áfram með skiltið sitt sem brátt
mun prýða húsið að utan.
Ungur listamaður opnar spennandi bókabúð með gamalt og nýtt á Seyðisfirði
Bókagrúsk með kaffibragði
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gamalt og nýtt Helgi Örn Pétursson leggur listamannslega alúð í nýtt
skilti fyrir bókabúðina á Seyðisfirði sem býður upp á bækur og kaffi.
Í HNOTSKURN
»Ný bókabúð hefur veriðopnuð á Seyðisfirði og
mun bjóða upp á fjölbreytt úr-
val bókmennta, listaverkarita,
notaðra vasabrotsbóka og
barnagulla, auk kaffis og þýðs
viðmóts.
»Eigandinn er nýútskrif-aður frá Listaháskóla Ís-
lands og segir listafólk í tölu-
verðum mæli festa sér hús á
Seyðisfirði og dvelja þar í
lengri tíma eða skemmri.
Staðurinn veiti innblástur og
hafi mikið aðdráttarafl.
Höfn | Á aðalfundi Sam-
bands sveitarfélaga á
Austurlandi (SSA) var
m.a. haldið upp á 40 ára
starfsemi með dagskrá í
menningar- og mennta-
setri Hornfirðinga, Ný-
heimum og fram haldið
á Hótel Höfn.
Hápunktur kvöldsins
var tvímælalaust þegar
nokkrir þjóðþekktir
einstaklingar stigu á svið og spiluðu eins
og þeir hefðu aldrei gert annað. Hljóm-
sveitina skipuðu Albert Eymundsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri á Hornafirði, Björn
Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri á
Djúpavogi og nýr formaður SSA, Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarða-
byggðar, Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra og Þorvaldur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri SSA. Stuðið náði hámarki
þegar hljómsveitin tók hið þekkta lag
Upplyftingar Traustur vinur, en Magnús
Stefánsson er gamall meðlimur þeirrar
þjóðþekktu hljómsveitar.
Stuðboltar á sveitar-
stjórnarsviðinu
Stjórnsýslurokk
upp um alla veggi.
Á FIMMTUDAG eftir
rétta viku hefur frétta-
og auglýsingablaðið
Austurlandið göngu
sína. Útgefandi er Ís-
lensk fréttablöð ehf.,
sem m.a. rekur frétta-
vefinn www.austur-
landid.is.
Blaðinu verður dreift
frítt til heimila á Aust-
urlandi og flytur það
fréttir, fregnir af dægurmálum, menn-
ingu, íþróttum og pólitík úr fjórðungnum.
Auglýsingar munu standa undir útgáf-
unni. Davíð Sigurðarson er fram-
kvæmdastjóri Íslenskra fréttablaða.
Nýju vikublaði, Aust-
urlandinu, dreift frítt
Davíð Sigurðarson
framkvæmdastjóri.
Ölfus | Um 130 skógar-
bændur víðsvegar um land
stunda nú nám í Grænni
skógum á vegum Land-
búnaðarháskóla Íslands.
Einnig eru 17 skóg-
arbændur á Austurlandi
að hefja nám í öðrum
hluta.
Hópurinn sem sækir
Grænni skóga námskeiðin
er fjölbreyttur. Flestir eru
starfandi bændur en
nokkrir eiga jarðir úti um
landið og stunda skógrækt
með þátttöku í lands-
hlutabundnu skógræktarverkefn-
unum. Um næstu helgi verða þrjú
námskeið á vegum Grænni skóga,
á Reykjum, í Holti í Önundarfirði
og á Egilsstöðum.
Sem dæmi um fjölbreytnina
nefnir Magnús Hlynur Hreiðarsson
verkefnisstjóri að tveir læknar eru
meðal nemenda í Grænni skógum á
Suðurlandi. Það eru Guðrún Agn-
arsdóttir, forstjóri Krabbameins-
félags Íslands, og Sigurgeir Már
Jensson, læknir í Vík í Mýrdal. Þau
mættu bæði á námskeið á Reykjum
um síðustu helgi en ekki fylgir sög-
unni hvort heiti námskeiðsins hafi
vakið athygli læknanna en það var
„Sjúkdómar og skaðar í skógi“.
Fjölbreyttur hópur
í skógræktarnámi
Varmahlíð | Byggðaráð Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar samþykkti á
fundi sínum í fyrradag að ganga frá
verksamningi við verktaka um
breytingar á félagsheimilinu Mið-
garði sem menningarhúss, eftir að
breytingar höfðu verið gerðar á
hönnun framkvæmdarinnar.
Nýi samningurinn hljóðar upp á
liðlega 72 milljónir. Ríkið greiðir
kostnaðinn á móti sveitarfélaginu.
Fulltrúr minnihlutans í byggðaráði
vildu láta gera ráð fyrir lyftu í húsið
nú þegar, þannig að tryggt yrði að-
gengi fyrir alla um allt húsið. Meiri-
hlutinn felldi tillögu þess efnis, sagði
að ákvörðun um lyftu yrði tekin síðar
í ljósi fjárhagslegs svigrúms.
Til að flýta því að framkvæmdir
geti hafist, þótt formlegt samþykki
bíði sveitarstjórnar, var ákveðið að
leita samþykkis fulltrúa utan fundar.
Ný hönnun menningar-
húss í Varmahlíð kynnt
LANDIÐ
Mýrar | „Ég held að ég hafi aldrei
séð svona heillegt hreindýr, það var
ekki einu sinni kúlugat á því,“ segir
Stefán Þórisson veiðimaður sem tók
þátt í sérstæðum björgunarleiðangri
í landi Flateyjar á Mýrum í sveitar-
félaginu Hornafirði á dögunum.
Félagar úr veiðifélaginu Húbertus
voru óheppnir þegar dregið var um
veiðileyfi fyrir hreindýravertíðina í
sumar. Aðeins einn úr tíu manna
hópnum fékk dýr. Þeir óheppnu fóru
því til gæsaveiða í Hornafirði. Það
fór þó aldrei svo að þeir fengju ekki
hreindýr.
Hreindýraleiðsögumaður sem
orðið hafði var við dýr flækt í vír bað
þá og bóndann á Hólmi að koma dýr-
inu til bjargar. Tóku þeir með sér
töng og fleiri áhöld. Hreindýrið, full-
orðin kýr, hafði flækt horn og háls í
rúllu af bindivír. Þegar björgunarlið-
ið mætti gat það hlaupið tíu metra
þangað til vírinn þrengdi að og felldi
það. Gátu fjórir menn notað líkams-
þunga sinn til að halda því niðri á
meðan vírinn var klipptur burt.
Stefán Þórisson segir að dýrið hafi
ekkert skaddast og hlaupið burt,
frelsinu fegið. Hann segir að þeir
hafi haft gaman af þessu. Úr því eng-
inn félaganna úr veiðihópnum hafi
fengið hreindýraleyfi hafi þeir orðið
að veiða og sleppa.
Gæsaveiðin gekk líka vel. Þeir
höfðu 25 fugla á tveimur dögum.
Björgun Stefán Þórisson (hampar klippunum), Gylfi Rúnarsson, Magnús
Guðjónsson í Hólmi og Jóhann Tómas Egilsson með hreindýrið.
Hreindýri bjarg-
að úr sjálfheldu
Hólmavík | Strandabúðin sem er
sölubúð á vefnum sem Galdrasýn-
ing á Ströndum rekur hefur lækkað
verð á bókum sem nemur fyrirhug-
aðri lækkun á virðisaukaskatti.
Fram kemur á vefnum strandir.is.
að þar séu eingöngu til sölu bækur
sem muni bera 7% virðisaukaskatt í
stað 14% eftir 1. mars næstkom-
andi, samkvæmt ákvörðun rík-
isstjórnarinnar.
Viðskiptavinir Strandabúð-
arinnar munu strax finna fyrir
lækkun vöruverðs og Strandabúðin
mun taka á sig mismuninn á inn-
skatti og útskatti fram til 1. mars.
„Með þessu er verið að stíga skref
til lækkunar vöruverðs og er um
leið hvatning til annarra smásölu-
aðila í landinu til að leggja sitt af
mörkum í baráttunni við verð-
bólgudrauginn,“ segir í frétt á
vefnum.
Strandabúðin sendir vörur um
allt land.
Lækka strax
skatt á bókum
Norðausturland | Trillukarlar á
Norðausturlandi hafa sent frá sér
ályktun þar sem harðlega er mót-
mælt þeim seinagangi sem þeir
segja að hafi verið í gerð akfærra
vega á svæðinu. Í ályktun Fonts
kemur fram að þolinmæði þeirra sé
löngu þrotin.
Telja þeir óhæfu að ætla sjó-
mönnum að böðlast mikið lengur
eftir hálfófærum vegum sem ýmist
séu baðaðir í saltmettuðu ryki eða
leirdrullu. Skora þeir á þingmenn
Norðausturkjördæmis að sjá til
þess að flýtt verði verulega vega-
framkvæmdum frá Kópaskeri til
Raufarhafnar og Þórshafnar, það-
an til Bakkafjarðar og gerð jarð-
ganga undir Hellisheiði og teng-
ingu Vopnafjarðar við hringveginn.
Sjómenn krefjast
akfærra vega