Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 24

Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 24
|fimmtudagur|12. 10. 2006| mbl.is daglegtlíf Glænýjar kartöflur, blóðmör og lifrarpylsa er meðal þess sem verslanir bjóða á tilboðsverði um helgina. » 28 neytendur Gigtsjúkir halda upp á al- þjóðlega gigtardaginn og ganga saman frá Lækjartorgi og upp á Skólavörðuholt. » 26 heilsa Þau hittast á haustin og taka fimmtán slátur sem gera um áttatíu keppi og skipta þeim svo jafnt á milli sín. » 28 matur Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Á borðum klæddum bláum plastdúkum ligg- ur mör í hrúgum. Nál og þráður leika í hönd- um sem komnar eru til ára sinna og smám saman verður ólöguleg vömb að framtíðarslát- urkepp. Litlir snjóhvítir fingur pota í afraksturinn og eigandinn hryllir sig: „Ojjjj,“ segir hann með áherslu. Fríður flokkur áhugasamra nem- enda frá leikskólanum Sólhlíð er staddur á Droplaugarstöðum þenn- an dag. Þeir eru komnir til að læra handtökin við sláturgerð af sér eldra og reyndara fólki, fólki sem man þá daga þegar sláturgerð var ekki bara skemmtun heldur lífsnauðsyn. „Komdu hingað, greyið mitt,“ segir gömul kona og gerir sig líklega til að aðstoða kornunga kynsystur sína við að setja upp hvíta plastsvuntu. 87 ár skilja þær í aldri. Eftir að búið er að þrífa litlar hendur í tugatali er hafist handa. Pjakkur sem saumar vömb einbeitt- ur er með á hreinu hvað fólkið er að gera. „Að búa til slátur,“ segir hann og upplýsir hver næstu skref í fram- leiðslunni eru. „Maður setur feiti og blóð ofan í og svo inn í ofn. Og svo breytist það í slátur.“ Stallsystur hans tvær fitja upp á nefið þegar glansandi og sleipar vambir eru bornar á borð fyrir þær. „Mér líst bara vel á þetta,“ segir ein og bendir á glansandi vambirnar en trúverð- ugleiki hennar fer forgörðum þegar hún bætir við: „Þær eru mjúkar, en samt alveg ógeðslegar!“ Límband í stað sauma Sigurrós Kristinsdóttir, sem lítur eftir hersingunni á Rauðu deildinni á Sólhlíð, útskýrir að þarna sé svo- kallaður skólahópur á ferðinni en um fjögur ár eru síðan elsti árgang- urinn í leikskólanum hóf að heim- sækja heimilisfólkið á Droplaug- arstöðum. „Þetta kom til af því að ein mamman sem er iðjuþjálfi var að vinna hér. Svo vatt þetta upp á sig og nú heimsækjum við gamla fólkið reglulega, kannski einu sinni í mán- uði. Reykjavíkurborg hefur síðan veitt okkur styrk til þróunarverk- efnis í samvinnu við Droplaug- arstaði.“ Verkefni ungra sem aldinna í þessum heimsóknum hafa verið fjöl- breytileg. Fyrir utan sláturgerðina, sem er orðinn árviss viðburður, hafa krakkarnir sett niður kartöflur með gamla fólkinu, föndrað fyrir jól og páska, grillað á sumrin og svo mætti lengi telja. „Stundum spjöllum við bara saman, spilum á spil og púslum og gamla fólkið segir börnunum frá gamla tímanum. Við viljum líka að þessar heimsóknir verði sem eðlileg- astar, líkt og börnin séu að heim- sækja afa og ömmu. Samveran er aðalatriðið.“ Hún segir bæði unga sem aldna ákaflega sæla yfir þessu. „Þetta skilar sér mjög vel á báða bóga því börnin hafa ofsalega gaman af þessu og það birtir yfir gamla fólkinu við þessar heimsóknir.“ Það fer heldur ekkert á milli mála. Heldri kona brosir í kampinn yfir aðförum sláturgerðarmanns í styttri kantinum sem hamast eins og óður við að brytja niður mör. „Ég er að skera maga á kind,“ staðhæfir hann. Ungur vísindamaður stingur upp á að nota límband í stað sauma og fé- lagi hans útskýrir framleiðsluferlið fyrir blaðamanni. „Fyrst á að skera kindamaga og búa til poka og svo man ég ekki meir. Fáum við núna kex og köku?“ Jú, kex og kaka er handan við hornið en þetta í bláu flöskunni er bara fyrir fullorðna fólkið. „Letivín!“ gellur í eldri manni sem þiggur þó sérrísopann. Hann yljar alltént hið innra líkt og heimsóknin frá Sólhlíð. Vinnusemi Emilía sem er 98 ára sýnir Smára og Þór hvernig maður ber sig að við að sníða vambirnar. Vandvirkar Emilie og Sofia eiga ekki í nokkrum vanda með að hakka mörinn í slátrið. Hjálpast að Guðlaug 92 ára aðstoðar Þórdísi Huld fimm ára við að setja upp svuntuna og jafnaldra þeirrar síðarnefndu, Íris Lilja, horfir á. Feiti og blóð í maga á kind Vön Jóhanna, sem er níræð, kann handtökin við mörinn. Stendur til að heimsækja Dublin? Unnur H. Jóhanns- dóttir skoðaði hvað borgin hef- ur upp á að bjóða. » 30 ferðalög Morgunblaðið/Eyþór

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.