Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 27
neytendur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 27 Gjafahandbók Flugstöðvarinnar er komin út Dagana 12. október – 21. nóvember geta farþegar nálgast Gjafahandbók Flugstöðvarinnar í öllum verslunum Flugstöðvarinnar og á heimasíðunni www.airport.is. Gjafahandbókin er jafnframt happadrættismiði og geta heppnir farþegar unnið til glæsilegra vinninga. Dregið er út vikulega og eru vinningsnúmer auglýst á heimasíðu Flug- stöðvarinnar www.airport.is Góðir farþegar Vegna framkvæmda í flugstöðinni og aukinna öryggisráðstafanna hvetjum við fólk til þess að gefa sér góðan tíma fyrir flug. Mætið tímanlega og njótið ferðarinnar. Innritun hefst kl. 5.00 eða 2 tímum fyrir brottför. FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Náttúrulegt tannkrem Fyrirtækið Yggdrasill, sem sérhæfir sig í sölu á lífrænt ræktuðum vörum, hefur ný- lega tekið í sölu vörulínuna Wala- Vita sem framleidd er af WALA Heil- mittel, sem einnig framleiðir Dr.Hauschka snyrtivörulínuna. Um er að ræða þrjár tegundir, SítrónuSalt og NeemMintu tannkrem og Salvíu munnskol. WALA Heilmittel hefur við þróun Wala- Vita-tannkremanna verið í samvinnu við tann- lækna í Þýskalandi. Tannkremið inniheldur lækningajurtir og náttúruleg innihaldsefni frá lífænni ræktun og er án flúors. Nýr Kristall Sport Nýr og hitaeiningasnauður vatns- drykkur, sniðinn fyrir fólk, sem hreyfir sig reglulega er kominn á markaðinn. Kristall Sport er léttkolsýrður og sykurlaus drykkur, sem er ríkur af vítamínum og steinefnum sem hjálpa líkamanum að jafna sig eftir átök á borð við líkamsrækt eða erf- iðisvinnu. Kristall Sport inniheldur sex teg- undir B-vítamína, kalk, magnesíum og kalíum og fæst annars vegar með lime- og jarðarberjabragði og hinsvegar með appels- ínu- og melónubragði. Nýtt kaffi fyrir sælkerana Te og kaffi er nú að setja á markaðinn nýja vörulínu, sem inniheldur þrjár gæðakaffiteg- undir, sem koma í 400 gramma umbúðum. Baunir og malað kaffi seljast á sama verði. Te og kaffi er með þessari vöru að höfða til hvers- dagssælkerans í okkur öllum, segir í frétta- tilkynningu frá fyrirtækinu. Tegundirnar þrjár heita Java Mocca, Co- lombia Santos og Expresso Roma. Java Mocca er léttristuð og bragðmikil blanda sérvalinna kaffitegunda frá Indónesíu og Afríku. Co- lombia Santos er meðalristuð og frískleg blanda kaffitegunda frá Mið- og Suður Am- eríku. Espresso Roma er dökkristuð blanda kaffitegunda sem saman gefa hinn eftirsótta „ítalska“ kaffikeim. Íslenskt fæðubótarefni Komið er á markaðinn nýtt íslenskt fæðu- bótarefni, Pro Fitt prótínduft, sem þróað hefur verið af sérfræðingum iðnfyrirtækisins Kötlu og Goran Micic, íþróttafræðings og yfirþjálf- ara á Nordica Spa. Pro Fitt er ætlað fólki, sem vill ná auknum árangri í líkamsrækt. Það inniheldur mysup- rótín og fæst í þrenns konar útfærslum eftir því hvaða markmiðum fólk stefnir að. Duftinu er blandað við ávexti. mjólk, skyr eða vatn og kemur drykkurinn til dæmis í staðinn fyrir stöku máltíð eða sem hressing eftir áreynslu og hjálpar til við uppbyggingu líkamans. Pro Fitt fæst bæði með súkkulaði- og jarð- arberjabragði auk þess sem hægt er að fá Pro Fitt án bragðefna. NÝTT Kína um jól Unnur Guð- jónsdóttir, hjá Kínaklúbbi Unn- ar, ætlar með Ís- lendinga til Kína yfir næstu jól og áramót. Þann 21. desember verður flogið til Stokk- hólms með Icelandair og þaðan með Air China til Xian gegnum Beijing. Í Xian verður hinn 2200 ára gamli „leirher“ keisarans Chin Shihuang Di skoðaður, en hann þykir ein merkilegasta fornleif heimsins. Litla Gæsapagóðan verð- ur skoðuð, farið verður upp á borg- armúr Xian, og borgarþjóðminja- safn verður heimsótt. Fleira verður skoðað í Xian. Flogið verður til Shanghai á jóla- dag, og margt skoðað þar, t.d. hinn 500 ára gamli Yu-Yuan garður og náttúrugripasafnið. Shanghai er stærsta borg Kína. Frá Shanghai verður farið í lest til borgarinnar Suzhou, lestarferðin tekur rúman klukkutíma. Hér kynnist fólk silkiiðnaði landsins. Þar verður gist eina nótt og farið til baka með lestinni til Shanghai og þaðan flogið til Beijing. Höf- uðborgin hefur upp á margt að bjóða; Forboðnu borgina, Torg hins himneska friðar, lamaklaustur og Garð sólarinnar, sem gerður var ár- ið 1530. og Hof himinsins. Stóri múrinn eða kínverski múrinn verð- ur heimsóttur. Rétt fyrir miðnætti 2. janúar 2007 endar ferðin á Keflavík- urflugvelli Vetraráætlun British Airways Vetraráætlun British Airways á flugleiðinni Keflavík – London tek- ur gildi sunnudaginn 29. október og verður fjölda vikulegra ferða fækk- að úr fimm í fjórar meðan hún gild- ir, auk þess sem brottfarartími breytist. Vetraráætlunin gildir á tímabilinu 29. október 2006 til 24. mars 2007 og verður flogið á mánu- dögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Í lok júlí jók Brit- ish Airways framboð lágra far- gjalda verulega milli Gatwick flug- vallar og fjölda annarra áfangastaða í Evrópu og má nú fljúga milli Keflavíkur og London fyrir 6.045 krónur að sköttum meðtöldum. Þaðan má svo fljúga áfram fyrir svipaða upphæð til fjölda áfanga- staða Í Evrópu. Í fréttatilkynningu frá British Airways kemur fram að nú sé til dæmis hægur vandi að fljúga með British Airways fyrir um tíu þúsund krónur (með sköttum) frá Keflavík til Amsterdam, Barce- lóna, Genfar, Madrídar, Marseille, Nice, Riga, Toulouse, Bologna, Krakár, Napoli, Písa, Split, Salz- borgar, Feneyja, Vilnius, Veróna, Lúxemborgar og fleiri áfangastaða. Nánari upplýsingar eru að finna á vef British Airways, ba.com. vítt og breitt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.