Morgunblaðið - 12.10.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 35
NOKKUÐ er síðan fyrstu rafbílar
komu á markað og mikið átak var
gert í að markaðssetja slíka bíla á
árabilinu 1995–2000. Meðal annars
voru fluttir hingað til lands nokkrir
Peugeot rafbílar sem notuðu nikkel-
cadmium rafgeyma. Á þessum árum
voru bundnar miklar vonir við að raf-
geymabílar yrðu framtíðarbílar
tæknisamfélagsins. Sérfræðingar
spáðu mikilli framþróun í rafgeym-
um og að hleðslutími rafgeyma
myndi styttast verulega og að
drægni bílanna gæti orðið svipað eða
litlu minni en hefðbundinna bíla með
brunahreyfil. Kostir
rafbíla eru miklir fram
yfir hefðbundinn
brunahreyfil; þeim
fylgir engin mengun
nema frá framleiðslu
og endurvinnslu raf-
geymanna, mun betri
orkunýtni, hljóð-
mengun er hverfandi,
„eldsneytið“ – raf-
magnið – er mun ódýr-
ara en bensín og það er
framleitt úr hreinum,
innlendum orkulind-
um. Gallarnir eru færri
en þeir vega þungt: Hleðslutími raf-
bíla er 4–8 klst, drægni er oftast ekki
nema um 150 km og líftími rafgeym-
anna er yfirleitt styttri en hefðbund-
inna brunahreyfla, geymarnir eru
þungir og innihalda málma sem eru
skaðlegir umhverfinu. Stærsti gall-
inn er auðvitað sá að orkuþéttleiki í
rafgeymum er miklu minni á hvert
kg geymis heldur en orkuþéttleiki
eldsneytis, hvort sem er bensíns, dís-
els, vetnisvökva eða háþrýsts vetnis.
Einnig dregur úr afli rafgeymabíla
þegar hleðsla geymanna minnkar og
þeir verða latir.
Þróun rafgeyma
Þróun geymanna hefur því miður
orðið hægari en við var búist. Að vísu
hafa verið þróaðar nýjar gerðir
geyma, svokallaðir liþíum-jóna raf-
geymar. Væntingar til slíkra raf-
geyma voru miklar en því miður hef-
ur enn ekki tekist að þróa tæknina
þannig að hún svari ýtrustu kröfum
hins almenna bíleiganda. Endingin
er þó meiri en hefðbundinna raf-
geyma, hleðslutíminn er um 4–5 klst
og með hraðhleðslu er hægt að ná
nokkuð góðri hleðslu á innan við 1
klst. Þessi þróun hefur verið til góðs
fyrir framtíðarrafbílinn og með því
að tengja rafhlöður og vetnistækni
saman mætti ná verulegum árangri í
orkunýtni og miklum ávinningi í um-
hverfismálum.
Tvinnbílar
Framþróun á hinni svokölluðu
tvinntækni eða blend-
ingstækni („hybrid“)
hefur verið hröð í seinni
tíð og er nú líklegt talið
að þar liggi framtíð-
arlausnin. Toyota hefur
á undanförnum árum
sannað tilverurétt
tvinnbílanna með
Toyota Prius og Lexus.
Frumorkan í tvinnbíl-
unum er enn bensín en
búið er að bæta við raf-
ala, rafgeymi, raf-
hreyflum og stjórnbún-
aði þannig að orkuflæðinu innan
bílsins er stjórnað með þeim hætti að
orkan nýtist sem best í drifkraft.
Rafgeymirinn er frekar smár og
hingað til ekki verið hugsaður til ann-
ars en innri orkugeymslu. Því hefur
ekki verið hægt að hlaða geyminn
sérstaklega með því að stinga bílnum
í samband líkt og með hefðbundna
rafbíla. Þetta kann þó að breytast í
náinni framtíð. Í áætlunum Toyota
má sjá að fremsta takmark fyrirtæk-
isins er að þróa vetnistvinnbíl sem
hefur langhæsta nýtni eldsneytisins
eins og hún er reiknuð frá tanki út í
drif.
Vetnistæknin hefur verið að ryðja
sér til rúms á undanförnum árum og
er nú svo komið að allir helstu bíla-
framleiðendur heims eru að vinna að
þróun rafbíla sem geyma orku í formi
vetnis í stað rafgeyma. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að vetnisgeymslur
er hægt að fylla hratt, svipað því þeg-
ar bensíni er dælt á bíl, öfugt við raf-
geyma og að drægni vetnisbíla er
jafnframt meiri. Með því að sameina
þessa tækni og að blanda saman
vetnisnotkun og rafgeymum er hægt
að ná því besta út úr hvoru tveggja.
Orkunýting er mun betri við notkun
rafgeyma, en þegar vetni er notað
með sem orkuberi er hægt að stytta
áfyllingartímann niður í 2 mínútur og
koma drægninni í 300–400 km.
Framtíðarsýn margra þeirra sem
rýna í þessi fræði er því sú að tvinn-
bíllinn muni verða með stærri raf-
geymi en nú er og að hægt verði að
hlaða hann með því að stinga bílnum í
samband. Drægni rafgeymisins gæti
því verið 40–60 km, sem hugsanlega
fer langt með að nægja til daglegrar
notkunar innanbæjar. Vilji menn
keyra lengri vegalengdir, t.d. til Ak-
ureyrar, myndi ferðatími rafgeyma-
bíls verða hátt í 12 klst, vegna þess að
það þyrfti að hlaða geymana á leið-
inni, en með blandaðri tækni yrði
ferðatíminn sá sami og nú er.
Því má líklegt telja að vetnisbílar
framtíðarinnar verði tvinnbílar sem
geti nýtt annars vegar raforku frá
rafgeymum og hins vegar frá vetni.
Ef eingöngu er horft til tækniþróun-
ar þá gætu slíkir bílar komið í stað
hefðbundinna bíla í dag og uppfyllt
allar þær þarfir og kröfur sem nú-
tíminn gerir til fólksbíla. Fram-
leiðslutækninni fleygir nú fram og
kostnaður lækkar ört. Á starfstíma
Íslenskrar NýOrku hafa sést miklar
kostnaðarlækkanir á nánast öllum
þáttum vetnistækninnar, geymslu,
efnarafala og samkvæmt spá manna
styttist sífellt í fjöldaframleiðslu. Því
mun fylgja mun meiri kostn-
aðarlækkun en hingað til. Það eru því
góðar líkur á því að vetnistvinnbílar
verði samkeppnisfærir á almennum
markaði innan fárra ára. Slíkir bílar
yrðu draumafarartæki sem samein-
uðu hámarks orkunýtni með lág-
marks umhverfisáhrifum, viðunandi
áfyllingartíma, góða drægni og afl.
Orkan á bílana yrði hrein og íslensk,
rafmagn annars vegar og vetni hins-
vegar, sem unnið yrði úr rafmagni.
Rafbíll framtíðarinnar
Jón Björn Skúlason
fjallar um vetnistækni
» ...og er nú svo komiðað allir helstu bíla-
framleiðendur heims
eru að vinna að þróun
rafbíla sem geyma orku
í formi vetnis í stað raf-
geyma.
Jón Björn Skúlason
Höfundur er framkvæmdastjóri Ís-
lenskrar NýOrku.
OKKUR hættir til að bölsótast
yfir peningum sem nýttir eru til að
hjálpa þeim sem
minna mega sín. Ég
segi að þetta sé arð-
bær fjárfesting.
Dæmi um það er
Hjálpartækjamiðstöð
í Kópavoginum. Ríkið
notar skattpeninga til
að greiða fyrir hjálp-
artæki. En vegna
þess að mér, til dæm-
is, eru útveguð nauð-
synleg hjálpartæki, þá
er ég heima en ekki á
stofnun, ég get stund-
að mína vinnu, ég get
bölsótast yfir öllum skattinum sem
ég greiði um hver mánaðarmót
eins og þorri Íslendinga gerir.
Svo að með hjálpinni eru mér
tryggð borgaraleg réttindi eins og
stjórnarskrá Íslands kveður á um.
Reyndar getum við gert betur og
það mun koma fyrr en seinna.
Dæmi um mikla bót á borg-
aralegum réttindum
er auðvitað mál eins
og að fá tækifæri til
að anda, einstaklings-
miðuð „Hjálparhellu“-
þjónusta, afstofn-
anavæðing með auk-
inni heimaþjónustu
svo eitthvað sé nefnt.
Við Íslendingar er-
um þannig gerðir, sem
betur fer, að við vilj-
um aðstoða hvort ann-
að. Ég tel mig lán-
saman mann að vera
Íslending og er þess
fullviss að við munum fljótlega
taka forystu í málefnum þeirra
sem minna mega sín í heiminum.
Við verðum öðrum fyrirmynd.
Eftirfarandi 4 atriði eru efst á
lista MND félagsins, verkefni sem
koma mörgum smáhópum sjúk-
linga til góða og ekki síður sam-
visku Íslendinga í lag: 1. Ein-
staklingsmiðuð hjálparhellu-
þjónusta verði að veruleika. 2. Við
fáum raunverulegt val um hjálp-
artækið öndunarvél . 3. Íslend-
ingar leggi dollar á hvern Íslend-
ing til rannsókna á MND
sjúkdómnum, öðrum þjóðum til
eftirbreyttni. 4. Orlof fyrir alla
verði að raunveruleika. Orlofs-
svæði með aðgengi fyrir alla, óháð
félagsaðild.
Ísland er að verða best.
Gróðafyrirtækið
Hjálpartækjamiðstöð
Guðjón Sigurðsson fjallar
um málefni MDN sjúklinga
»Ég tel mig lánsamanmann að vera Ís-
lending og er þess full-
viss að við munum fljót-
lega taka forystu í
málefnum þeirra sem
minna mega sín í heim-
inum.
Guðjón Sigurðsson
Höfundur er formaður
MND félagsins.
Síðustu sætin - 20 nætur
Stökktu til
Kanarí
26. október
frá kr. 39.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanaríeyja í 20
nætur á frábæru verði. Þú bókar og tryggir þér sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna með 2 börn
í íbúð. Innifalið flug, gisting í 20 nætur og
skattar.
Verð kr.49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/
stúdíó. Innifalið flug, gisting í 20 nætur og
skattar.
FYRR eða síðar verðum við öll
fyrir því að sorgin sækir okkur
heim í einhverri mynd, þannig er
lífið. Sorgin hefur mörg andlit.
Engin tvö okkar mæta henni með
sama hætti. Þess vegna er mik-
ilvægt að öllum sé mætt af skiln-
ingi og virðingu á vegi sorg-
arinnar, bæði börnum og
fullorðnum.
Ný dögun heldur fyrirlestur í
Fossvogskirkju í
kvöld, 12. október, kl.
20. Fyrirlesarinn er
Anna Ingólfsdóttir.
Hún er aðstandandi,
missti maka og á
þrjú börn. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn.
Fyrirlesturinn Börn
og sorg mun sér-
staklega fjalla um
sorg barna vegna
ástvinamissis. Í gegn-
um tíðina hefur sorg
barna ekki fengið
mikið rými í umfjöll-
un um sorg yfirleitt. Það stafar
e.t.v. af því að lengi vel var talið
að börn fyndu ekki fyrir einkenn-
um sorgar á sama hátt og þekkist
hjá fullorðnum og því þyrfti ekki
að gefa þeim gaum sérstaklega.
Þekking á viðbrögðum barna við
sárum missi var til skamms tíma
takmörkuð og að sama skapi þekk-
ing á því hvernig best væri að
mæta þörfum þeirra í slíkum að-
stæðum.
Því hefur gjarnan verið haldið á
lofti í gegnum tíðina að hvorki sé
hollt fyrir börn að tala um sorg
sína né vera þátttakendur í sorg-
arferlinu eins og fullorðnir. En
börn syrgja rétt eins og fullorðnir
og þau þurfa að fá að tjá sig og
tala um tilfinningar
sínar og fá að orða
margvíslegar spurn-
ingar og vangaveltur.
Mikilvægt er að
börn fái að vera þátt-
takendur í sorgarferl-
inu ásamt foreldrum/
fjölskyldu sem er að
takast á við sorgina en
á sínum forsendum.
Því það að taka þátt í
sorgarferlinu með for-
eldrum/fjölskyldu er
um leið viðurkenning á
því að það sé í lagi að
finna til og það sé eðlilegt að finna
fyrir þeim tilfinningum sem sorgin
vekur, tilfinningum sem þau hafa
kannski aldrei fundið fyrir áður,
enda ný reynsla. Þannig er lík-
legra að sársaukinn sem verður til
í sorgarferlinu fari í þann farveg,
sem nauðsynlegt er að hann fari í,
til að hægt sé að horfast í augu við
sársaukann og vinna sig í gegnum
sorgina.
Börn og sorg
Elínborg Gísladóttir fjallar
um sorgarferli barna
Elínborg Gísladóttir
» Börn syrgja rétt einsog fullorðnir og þau
þurfa að fá að tjá sig og
tala um tilfinningar sín-
ar og fá að orða marg-
víslegar spurningar og
vangaveltur.
Höfundur er sóknarprestur og for-
maður Nýrrar dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð
Fréttir í tölvupósti