Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 37 ÞAÐ er erfitt að setja ofaní við þá sem manni þykir vænt um og/ eða ber virðingu fyrir. Maður vonar alltaf að þeir finni sjálfir réttu leiðina eða í versta falli að einhver annar bendi þeim á. Þegar viðkomandi forherðist frekar en hitt þrátt fyrir vinsam- legar ábendingar, misbýður manni ítrekað og veldur sjálfum sér og öðrum skaða þá neyðist maður að grípa til annarra ráða. Mér er nefnilega verulega í mun að ríkisútvarpið lifi og verði aftur útvarp allra landsmanna. Ef ég væri ekki sérstakur holl- vinur rásar 1 Ríkisútvarpsins mundi ég sjálfsagt láta mér nægja viðbrögð margra skoð- anabræðra minna: þusa úti í bæ um að þetta sé óþolandi, uppá- þrengjandi og leiðinlegt, saka stofnunina um mismunun og brot á Stjórnarskrá Íslands og mann- réttindasáttmála Sameinuðu þjóð- anna og síðan slökkva einfaldlega á þessari rás til langframa. Það þarf ekki að hlusta lengi á Rás 1 til að heyra að hún er að breytast í áberandi málpípu kirkj- unnar og kristilegu efni er mis- kunnarlaust dælt yfir hlustendur. Hér er ekki átt við hinar föstu sunnudagsmessur, kvöldbænir, passíusálma og annað hefðbundið efni sem áratuga aðgangur rík- iskirkjunnar að útvarpinu hefur skapað. Sú dagskrá er komin til að vera og ekki ástæða til að amast við því. Hér er átt við nán- ast reglubundið kristnifræðiefni; viðtöl, frásagnir og fræðslu sem snerta kristna trú í ýmsum dag- skrárliðum, morguns, kvölds og miðjan dag. Bónusfréttir og kirkjurásin? Það kastaði svo tólfunum mánu- daginn 25. september að ég get ekki lengur setið undir þessum vinnubrögðum þegjandi og hljóða- laus. Þetta var kornið sem fyllti mælinn. Í þætti kl 15.03 „Í rútu með Lúther“ hafði dagskrárgerð- armaðurinn „fengið að fljóta með“ kirkjunnar mönnum um sögusvið Lúthers og þar voru meðal ann- ars langar upptökur með far- arstjóra úr rútunni. – Auðvitað allt rammlútherskt efni enda ætl- að „kirkjunnar mönnum“ Hefði þetta verið ferð á vegum Bónus og efnið flutt á Stöð 2 hefði allt orðið brjálað í samfélag- inu og þeim Bónusfeðgum brigsl- að um ritstýringu á eigin miðlum. Sennilega hefðum við fengið að heyra hið gamalkunna orð „Bón- usfréttir“ frá þeim sem ekki skilja að það er ekki á valdi eig- endanna að koma sér á framfæri í miðlunum, það er stjórnenda mið- ilsins að marka honum stefnu og framfylgja henni. Það sama gildir um mismun- unina hjá RUV, það er ósann- gjarnt að stimpla Rás 1 sem „kirkjurásina“ því kirkjan er að- eins þiggjandi í málinu. Þeir seku (ef einhverjir eru sekir) er dag- skrárgerðarfólk sem sést ekki fyrir í áhuga sínum á vissu mál- efni, sinnulaus útvarpsstjóri eða aðrir stjórnendur sem annað hvort eru sofandi á verðinum eða gera sér ekki grein fyrir alvar- leika málsins. Útvarp allra landsmanna? Ríkisútvarpið hefur þurft að berjast fyrir tilveru sinni og mun þurfa að gera það áfram. Til þess verjast atlögum þeirra sem vilja það út af markaðinum verður það að uppfylla kröfur um frjálsan og óháðan fjölmiðil sem raunveru- lega er allra landsmanna, þ.e.a.s. mismunar ekki fólki vegna „kyn- ferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti“ og rekur ekki erindi eins hagsmunaaðila (trúfélags) fremur annars. Hjá ríkisútvarpinu starfar úrvalslið dag- skrárgerðarfólks sem flest hefur hæfileika til að leita út fyrir eigið áhugasvið eftir skemmtilegu og fræð- andi efni. Þetta frá- bæra starfslið er fært um að skoða menninguna í landinu án fordóma. Það er fullkomlega fært um að kynna fólkið í landinu fyrir okkur, líf þess, verk og áhugamál. Inn í það flokkast að sjálf- sögðu trúmál (og þá einnig annarra trú- félaga í landinu). Það getur frætt okkur og kennt um gamla siði, nýjustu tækni og vís- indi og allt þar á milli í markvissum fræðsluþáttum. Það getur líka skemmt okkur með leikjum, keppnum og upplestri ýmist með gríni eða af djúpri alvöru. Alls þessa getur við notið áfram ef RUV gætir að sér og fylgir al- mennum siðareglum um að mis- muna og misbjóða ekki hlust- endum sínum. Nú er nóg komið af kristilegu efni á rás 1, það á ekkert erindi þangað umfram aðra menningu. Þjóðkirkjan þarfnast ekki frek- ari stuðnings ríkisútvarpsins en þá föstu þætti sem kristinni trú hafa verið tileinkaðir hingað til. Sé svo, má einfaldlega stofna sérstakt þjóðkirkjuútvarp, hingað til hefur kirkjan ekki verið í vandræðum með að útvega fé úr opinberum sjóðum til menningarmála. Hingað og ekki lengra, nú er nóg komið af mismunun. RÚV, nú er nóg komið Jóhanna Harðardóttir skrifar um dagskrá Ríkisútvarpsins » Það þarf ekki aðhlusta lengi á Rás 1 til að heyra að hún er að breytast í áberandi mál- pípu kirkjunnar og kristilegu efni er mis- kunnarlaust dælt yfir hlustendur. Jóhanna G. Harðardóttir Höfundur er blaðamaður og fyrrverandi dagskrárgerðar- maður m.a. á RUV.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.