Morgunblaðið - 12.10.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 39
FYRIR tæplega 10 árum setti
heilbrigðisráðherra nýja reglugerð
um greiðslu umönnunarbóta. Í
henni fólst nokkur réttarbót fyrir
foreldra fatlaðra og alvarlegra
veikra barna því
greiðslurnar hækk-
uðu. En reglugerðin
fól meira í sér. Þar
var ákveðið að for-
eldrar þessara barna
gætu ekki notið sam-
tímis bóta í fæðing-
arorlofi og umönn-
unarbóta. Fyrir
setningu reglugerð-
arinnar fengu þessir
foreldrar greiddar
umönnunarbætur
með barni sem fædd-
ist fatlað eða alvar-
lega veikt strax frá
þriggja mánaða aldri
þess. Fyrirkomulag
reglugerðarinnar um
að saman færu ekki
greiðslur í fæðing-
arorlofi og umönn-
unarbætur var síðan
lögfest með lögum
um fæðingar- og for-
eldraorlof frá árinu
2000.
Réttur til greiðslna
í fæðingarorlofi er
áunninn réttur sem allir ein-
staklingar öðlast með þátttöku á
vinnumarkaði eða að fullnægðum
öðrum tilgreindum skilyrðum.
Umönnunargreiðslur eru af öðrum
toga. Þeim er ætlað að styðja for-
eldra fatlaðra og langveikra barna
til að mæta viðbótarkostnaði sem
fylgir því að eignast fatlað eða
langveikt barn. Mismunandi eðli
þessara bóta kemur best fram í
því að greiðslur í fæðingarorlofi
eru skattskyldar og hafa alltaf
verið. Enda er litið á þær með
sama hætti og laun. Umönn-
unarbætur eru skattfrjálsar og
hafa alltaf verið. Á þær er litið
sem endurgreiðslu útlagðs kostn-
aðar. Það er því ekkert samhengi
milli greiðslna í fæðingarorlofi og
umönnunarbóta og því
ástæðulaust að spyrða
þær saman með þeim
hætti sem gert hefur
verið.
Ég tel að með þessu
fyrirkomulagi sé rétt-
ur brotinn á for-
eldrum fatlaðra og
langveikra barna, sem
bitnar á börnunum. Í
jafnræðisreglu stjórn-
arskrárinnar felst að
allir skuli jafnir fyrir
lögunum. Foreldrar
fatlaðra og langveikra
barna eru það ekki
meðan þeim er synjað
um það að geta notið
samtímis greiðslu í
fæðingarorlofi og
umönnunarbóta.
Þessu vil ég breyta.
Ég vil að foreldrar
sem eignast fatlað eða
alvarlega veikt barn
geti strax frá grein-
ingu barnsins, sem
venjulega er í kring-
um þriggja mánaða
aldur, notið samtímis fæðing-
arorlofsgreiðslna og umönn-
unarbóta. Þetta er réttlætismál,
barnanna vegna.
Stjórnarskrár-
brot á börnum?
Dögg Pálsdóttir skrifar
um reglugerð um greiðslu
umönnunarbóta
Dögg Pálsdóttir
»Ég tel aðmeð þessu
fyrirkomulagi
sé réttur brot-
inn á foreldrum
fatlaðra og lang-
veikra barna,
sem bitnar á
börnunum.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður og
gefur kost á
sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ÁN ÞESS að reikna til sölu
Símans eða aðrar ríkiseignir mun
tekjuafgangur ríkissjóðs losa rúm-
lega 100 milljarða króna á tveggja
ára tímabili eða fyrir árin 2005 og
2006.
Tekjuafgangurinn
er gífurlegur þrátt
fyrir stóraukin fram-
lög til mennta- og
velferðarmála á síð-
ustu árum. Skilj-
anlega hefur árang-
urinn vakið
alþjóðaathygli, því
samhliða jákvæðri
þróun ríkisrekstrar
hafa íslensk félög
vakið mikla athygli
fyrir áræði og dug í
þeirri hörðu keppni
sem einkennir alþjóðaviðskipti í
dag.
Minni vaxtagjöld greiða niður
matvælaverð
Tekjuafgangur af ríkisrekstri
undanfarinna ára hefur einnig
nýst að stórum hluta til greiðslu á
erlendum skuldum ríkissjóðs. Ný-
verið komst ríkissjóður í þá stöðu
að inneign hans hjá Seðlabank-
anum er orðin hærri en erlendar
skuldir að samanlögðu. Nið-
urgreiðsla skulda hefur tryggt rík-
issjóði þá einstöku stöðu að sparn-
aður á vaxtagjöldum tryggir fé í
stað lánsfjár til að mæta aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar, s.s. þeim
sem eru á næsta leiti og lúta að
stórfelldum en blönduðum aðgerð-
um til að ná matarverði í landinu
niður.
Ég efast um að stjórnarandstöð-
una hefði órað fyrir þeim mögu-
leika að niðurgreiðsla á skuldum
og ábyrgur ríkisrekstur gæti haft
jafn víðtæk og jákvæð áhrif á
landsmenn alla.
Ríkisstjórnin er á
réttri leið og fram-
undan eru spennandi
tímar. Landsmenn
verða að gera sér
grein fyrir mikilvægi
þess að ábyrg og að-
haldssöm stefna í rík-
isfjármálum kemur
okkur öllum til góða.
Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafa um
langa hríð verið í því
erilsama embætti að
halda um stjórn-
artaumana í fjármálaráðuneytinu.
Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa.
Framtíðin
Ég er talsmaður þess að tekju-
skattur á einstaklinga verði sam-
bærilegur og fyrirtækja eða um
18%. Hinn vinnandi maður, fjöl-
skyldur á ferð sinni í gegnum lífið,
þurfa á slíku svigrúmi og hvatn-
ingu að halda, rétt eins og fyr-
irtækin í landinu.
Eftir að ríkisstjórnir Sjálfstæð-
isflokksins lækkuðu skatta á lög-
aðila (fyrirtæki) jukust stórum
skatttekjur hins opinbera frá
sömu aðilum. Reynslan hefur að
minnsta kosti veitt okkur ákveðið
öryggi um að ná sama markmiði
fyrir einstaklinga.
Velferðarkerfið
Sjálfur tel ég sjálfstæðisstefn-
una vera okkur Íslendingum holl-
asta. Hún tryggir okkur öllum
ákveðið svigrúm og hún aðstoðar
okkur við að hjálpa okkur sjálfum.
Að sama skapi ítreka ég við sam-
flokksmenn mína að öfgastefna til
hægri er ávísun á slæman árangur
í stjórnmálum. Fjölmargir tals-
menn og trúnaðarmenn flokksins
hafa með ákveðnum hætti lýst yfir
vilja og ábyrgð til að takast á
hendur ný verkefni. Ég nefni í því
sambandi hvort ekki sé orðið
tímabært að sjálfstæðismenn taki
að sér ráðuneyti heilbrigðis- og
tryggingamála. Ég á sæti í heil-
brigðisnefnd Alþingis og hef á
stuttum tíma kynnst málaflokkn-
um nokkuð vel. Tækifæri til auk-
ins árangurs á sviði velferðarþjón-
ustunnar eru til staðar. Með réttu
átaki er hægt að auka þjónustu á
sama tíma og hreinsað er til við
almennan rekstur sem leiða mun
til aukinnar hagræðingar innan
málaflokksins.
Ég þakka þeim sem lásu.
Rekstur ríkissjóðs
í góðum farvegi
Gunnar Örn Örlygsson
skrifar um stefnumál sín » ...samhliða jákvæðriþróun ríkisrekstrar
hafa íslensk félög vakið
mikla athygli fyrir
áræði og dug...
Gunnar Örn Örlygsson
Höfundur er alþingismaður .
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í sölu í
Sjálandinu í Garðabæ, stórglæsilega 135 fm
íbúð á 4. hæð (efstu) í mjög fallegu og vönd-
uðu lyftuhúsi. Þar af er geymsla í kjallara 11,5
fm og sérstæði í lokaðri bílageymslu. Glæsileg-
ar ca 40 fm svalir fylgja eigninni, sjávarútsýni.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu,
borðstofu, 2 herb., hjónah., baðh., þvottah.,
geymslu og bílageymslu. Fallegar innréttingar
og gólfefni. Frábær staðsetning. Verð 42,5
millj. Laus strax. Upplýsingar veitir Þor-
björn Helgi, s. 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Norðurbrú - 4ra - Gbæ - LAUS STRAX
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu sérlega glæsilega 185,5 fermetra íbúð á 3.
hæð, þar af er bílskúr 37,1 fermetri í góðu vel
staðsettu fjölbýlishúsi við Hrísmóa í Garðabæ.
Eignin er á tveimur hæðum og skiptist í forstofu,
hol, eldhús, stofu, borðstofu, sólstofu, baðher-
bergi, barnaherbergi, hjónaherbergi, þvottahús
og geymslu. Á efri hæð er alrými sem auðveld-
lega er hægt að útbúa herbergi. Fallegar innrétt-
ingar og gólfefni eru parket og flísar. Verð 37,5
millj. Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, s.
896 0058. Skipti möguleg á stærri eign.
Hrísmóar - M. bílskúr
Hraunhamar fasteignasala kynnir sérlega smekk-
legt parhús á þessum góða útsýnisstað í Ása-
hverfinu í Garðabæ. Húsið er 170,9 fm auk bíl-
skúrs sem er 28,5 fm, samtals 199,4 fm. Skipting
eignarinnar: Neðri hæð: Forstofa, bílskúr, hol,
stofa, borðstofa, eldhús, baðherb. og geymsla.
Efri hæð: 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, tvennar
svalir, baðherbergi og þvottahús. Glæsilegar inn-
réttingar og gólfefni. Eignin getur verið laus fljót-
lega. Verð 53,5 millj. Upplýsingar veitir
Þorbjörn Helgi, s. 896 0058.
Grjótás 6